Pressan - 09.05.1991, Side 23
FIMMTLTJAGUR PRESSAN 9. MAÍ 1991
23
flPÓSÍð
... fær Sigmundur Örn
Arngrímsson fyrir að
hafa komið laginu hans
Eyfa þó upp í 15. sæti.
ÁÐUR UTI MUNA INNI
Nú dugir ekki ad vera eins
og Kevin Costner, þrátt fyrir
aila Óskarana. Nú eru það
gæjar eins og Nicolas Cage,
Danzel Washington eða Tom
Waits sem duga. Best væri
sambland af þessu öllu;
kjarkurinn frá Tom Waits, út-
litið frá Danzel Washington
og framkoma Nicoiasar
Cage. Ef húmor og gáfum
Arthurs MiIIer er bætt við
versnar ekki biandan. Þá er
mættur maður dagsins. Gall-
inn er að hann er amerískur
— en þaö virkar reyndar
flott á ísienskar píur hvort
sem er.
AÐUR INNI NÚNA ÚTI
Einar Már Guðmundsson,
Einar Kárason, Friðrik Þór
Friðriksson, Guðmundur
Andri Thorsson og allir
þessir strákar úr Vogunum
veröa aö teljast hallærislegir
á þessum síðustu tímum. Það
er eitthvað svo rosalega
vemmilegt við hvað þeir líta
litlu verkin sín alvarlega. Og
alverst er þegar þeir tala um
Vogahverfiö fyrir rúmum 25
árum með nostalgíu-ekka og
reyna að vera kúl á meðan.
HEIÐUR, STOLT OG ÆRA
Hvað á ég að gera til að fólk
leggi ekki bílnum sinum í
stæðið mitt?______________
Ekkert. Bílastæði er bíla-
stæði. Það hefur ekkert með
heiður þinn að gera.
POPPIÐ
K.K. Band með Eyþór Gunnars-
son úr Mezzoforte og Sigtrygg
Sykurmolatrommara innan-
borðs ætlar að leika á Tveimur
vinum í kvöld. En annað kvöld
verður þar flower-power kvöld
með hljómsveitinni Deep Jimi
and the Zep Creams.
Galileó verður á Púlsinum föstu-
dag og laugardag, en síðara
kvöldið má einnig heyra í Svört-
um köggum frá Akureyri á
Tveimur vinum.
SJÓIN
Öngstræti Satans er nýjasta
dansatriði Eydísar Eyjólfsdóttur.
Það verður sýnt á Yfir strikinu
á föstudagskvöldið, þar sem mik-
ið kveðjuhóf verður haldið um
helgina fyrir fráfarandi skemmt-
anastjóra staðarins.
NÆTURLÍFIÐ___________________
Café Amsterdam er nýjasta inn-
leggið í barmenningu borgarinn-
ar. Kráin er til húsa við Tryggva-
götu, á horninu þar sem áður
voru Bæjarins bestu samlokur.
Forvitninlegt verður að vita
hvernig hún mun standa sig i
samkeppni við nágranna sína á
sama róli, sem eru ófáir. Kannski
næst að halda stemmningunni
öðruvísi, en eigendurnir leggja
metnað sinn i að skapa afslappað
andrúmsloft og hafa tónlistina
undir hávaðamörkum. Svo skal
það tekið fram að kráin á ekkert
skylt við Amsterdam, þrátt fyrir
nafnið.
LEIKHUSIN
Á ég hvergi heima? verður
frumsýnt í Borgarleikhúsinu í
kvöld og er önnur sýning á
sunnudag. Á laugardag verður
aukasýning á FIó á skinni, sem
og Eg er meistarinn á sunnu-
dag. Þá eru síðustu forvöð að sjá
einsmannssýningu Margrétar
Helgu Jóhannsdóttur, Sigrúnu
Ástrósu, sem nýverið átti eins
árs sýningarafmæli.
^■fiL
Pétur Gautur verður í næst síð-
asta sinn í Þjóðleikhúsinu á föstu-
dagskvöld. Ráðherrann klippt-
ur er á Litla sviðinu á sunnudag.
Á Söngvaseið er uppselt fram í
júní.
Þá er vert að minna á sýningu
Nemendaleikhússins á Damp-
skipinu Islandi í Borgarleikhús-
inu á laugardagseftirmiðdag.
Inferno 5 leikur á Púlsinum
í kvöld, danstónlist
með fornu ívafi.
Einstakt tækifæri til
að sjá og heyra Inferno,
því það er ekki oft
sem hljómsveitin kemur
fram opinberlega.
21
25
40
|48~
7— 5” 7“1 lð
“ P
P “
... P
■
■ 32
■ BP
P 43
: 47
: ■
ji
KROSSGATAN
LÁRÉTT: 1 víl 6 skorta 11 golþorsk 12 landræma 13 leynd 15 harð-
stjórn 17 kvabb 18 félagsskapur 20 eldsneyti 21 steintegund 23 óþétt
24 skálma 25 trjónur 27 gyllir 28 dauði 29 askja 32 splæs 36 ein-
söngslag 37 fífl 39 óhreinkar 40 seinkun 41 baunir 43 bleyta 44
skussa 46 japlið 48 fornsögu 49 yfirhöfn 50 sagan 51 úrelt.
LÓÐRÉTT: 1 fossar 2 blóminn 3 illviðri 4 reimum 5 karlmannsnafn
6 gangur 7 skolla 8 Ásynja 9 gráðugt 10 þátttakendur 14 op 16 vesöld
19 mælitæki 22 blökk 24 gaufa 26 stórfljót 27 heimakoma 29 fjanda
30 eymd 31 fullnóg 33 duglegri 34 kroppi 35 vinnukona 37 byrði 38
vorkenna 41 náttúra 42 skora 45 skelíing 47 þakskegg.
RIKISSJÓNVARPIÐ
The simple truth concert verð-
ur varpað beinustu leið frá Wem-
bley leikvanginum i Lundúnum á
sjónvarpsskjá okkar í gegnum
senda rikissjónvarpsins á sunnu-
dagskvöldið. Þar eru enn einu
sinni komnir saman hinir ýmsu
popparar til styrktar góðu mál-
efni... að þessu sinni Kúrdum.
Vinsœlustu
myndböndín
1. Bird on a Wire
2. Young Guns II
3. Wild at Heart
4. Pretty Woman
5. Die Hard II
6. Another 48 Hours
7. Impulse
8. Love at Large
9. Krays-bræðurnir
10. Cadillac Man
STOÐ2
Súkkulaðiverksmiðjan sem
sýnd er á Stöð 2 á föstudags-
kvöldið kemur úr smiðju Micha-
el Palin og Terry Jones úr Monty
Python hópnum. Söguþráðurinn
er hvorki frumlegur né spenn-
andi.
VEITINGAHUS
Nú er spurt stórt: Reykir
enginn veitingamaður á
íslandi annað en Winston
og sjúga þeir allir mola
með kaffinu sínu? Er
nema von að spurt sé. Fyr-
ir utan Hard Rock, Hornið
og stundum á Pisa fær
maður alltaf þessa and-
skotans mola i kaffið sitt.
Molarnir eru lengur að
bráðna en strásykur, það
er erfiðara að gera kaffið
mátulega sætt og maður
hefur alltaf á tilfinning-
unni að það sé einhver
sterkja sem heldur sykr-
inum svona ferköntuðum.
Þetta með sígaretturnar
þarf ekki aö skýra. Fólk er
fastheldnara á sígarettu-
tegundir en bilategundir.
Að bjóða Camelreykinga-
manni upp á Winston er
svipað og eiga ekki til salt
en bjóða upp á kanel i
staðinn.
Crozes-
Hermitage
Rauðvínið TJroz-
es-Hermitage kemur frá
Rhone-dalnum og er því
meðal annars búið til úr
Syrah þrúgunni. Fram-
leiðandinn er Cruse.
Þetta er bragðmikið vin,
með sæmilegum aldin-
keim og smá kryddkeim
og hentar vel með bragð-
miklum mat. Verðið er
hagstætt, 950 krónur
flaskan, og vínið Ijóm-
andi gott miðað við verð.
Árgangurinn er 1988 og
telst fullbúinn.
KLASSÍKIN
Taby kirkjukórinn frá Svíþjóð
heldur tónleika í Hallgrímskirkju
í dag kl. 17. Á efnisskránni eru
verk eftir Nysted, Sven-Erik
Back, Þorkel Sigurbjörnsson,
Norman og Josephson. Ein-
söngvari er Helena Alegesten.
Tónskóli Sigursveins heldur
nemendatónleika í Norræna
húsinu á laugardag kl. 17.
Árnesingakórinn i Reykjavík
verður með tónleika í Langholts-
kirkju, einnig á laugardag kl. 17.
Einsöngvarar eru Jensína
Waage, Þorgeir Andresson, Ing-
var Kristinsson og Þórarinn
Sverrisson. Stjórnandi er Sigurð-
ur Bragason.
Bergþór Pálsson og Jónas
Ingimundarson halda Ijóðatón-
leika í Gerðubergi á mánudg kl.
20.30.
Smoke and Stormy
Wiskey með iranum
Christy Moore. Hann
hefur þegar gert nokkrar
frábærar plötur með
Leonard Cohen og Van
Morrison einkennum.
Lög eftir hann sjáifan,
Pogues og Ewan
MacColl. Gefum henni
bestu meðmæli.
MYNDLISTIN
Sýning Yoko Ono stendur enn-
þá uppi á Kjarvalsstöðum, þrátt
fyrir stundum of mikinn áhuga
yngri gesta á verkum listakon-
unnar bandarísku.
Ekki gleyma verkum Fluxus
listamannanna í austursal.
Aðrar áhugaverðustu sýningarn-
ar í bænum eru án efa i Nýlista-
safninu, þar sem Guðjón Ketils-
son sýnir trélistaverk og Finn-
bogi Pétursson hljóðverk.
HUSRAÐ
Bróðir minn er byrjaður
með óbærilega leiðinlegri
stelpugálu. Ég hef þurft að
borða með þeim einn sinni
í viku eða svo og hún þvaðr-
ar alla máltíðina um hvað
Dóri hefur gert og reynir að
gera litið úr honum. Stund-
um langar mig til að standa
upp og berja hana, en ég hef
setið á mér hingað til. Hvað
á ég að gera? Ég er hræddur
um að ég láti hnefann vaða
fljótlega.
Mér hefur reynst best í aö-
stæðum sem þessum að
halia mér upp að viðkom-
andi í miðjum orðaflaumn-
um, taka fram tissjú og rétta
að honum og segja: „Gjörðu
svo vel, þú þarft að nota
þetta." Það sjatnar yfirleitt
strax í sjálfumgleðinni.
VIÐ MÆLUM MEÐ
að fólk geri eitthvað sem það
hefur efni á i sumar
það verður svo miklu léttara
að borga reikningana í
/ haust.
V '
Dairy Queen-ís
þrátt fyrir nafnið er hann
eitthvað svo miklu þjóðlegri
en allur annar ís.
• • I • •
að Óli Þ. Guðbjartsson fái að
vera forsætisráðherra í
einn dag
það verður gaman að vita
hverju hann kemur í verk.
að fólk kaupi sér strigaskó
skó fyrir sumarið
Nike eru líklega dýrastir en
þeir eru líka flottastir.
VINSÆLUSTU
SKOÐANIRNAR
(Gildir fyrir vikuna 9.—16.
maO
1. Vorið er loksins komið
2. Ætli það sé ekki best að
senda Sveinbjörn Beinteins-
son í næstu Eurovision?
3. Þeir eru nú allir svo lit-
lausir að ég held að það
skipti engu máli hver þess-
ara kandítata hreppi borgar-
stjórastólinn.
4. Það ætti að draga Óla Þ.
Guðbjartsson fyrir lands-
dóm.
5. Ég ætla ekki að borga af
afruglaranum þennan mán-
uðinn.
6. Guð hjálpi Ameríkönum
ef Dan Quayle kemst til
valda.
7. Ég skil ekki í sjáifstæðis-
mönnum að vera að púkka
upp á Halidór Blöndal sem
ráðherra.
8. Þetta veröur rigninga-
sumar.
9. Jújú, þær eru sætar, en
eru þessar fegurðardrottn-
ingar ekki allar alveg eins?
10. ÓIi Þ. er ekkert ööruvísi
en aðrir stjórnmálamenn —
hann var bara duglegri.
BÍÓIN
EYMD Misery BÍÓHÖLLINNI
Katy Bates er óhugnanlegasta kona þessa árs. Áriö þarf ekki að líða til að fullyrða það.
THE DOORS STJÖRNUBÍÓI
Álíka þreytandi og drykkjuferill ungs og efnilegs manns sem drekkur og dóparsig í hel.
CYRANO DE BERGERAC STJÖRNUBÍÓI
Efgert erráð fyrirað mannskepnan búi til fleiri en þrjátiu meistaraverk á öldþá erþetta
tvímælalaust meistaraverk. Jafnvel þó miðað sé við færri slík á öld.
FLUGSVEITIN Flight of the Intruder HÁSKÓLABÍO
Ef þig hefur einhvern timann langað til að sprengja Hanoi aftur á steinöld þá veistu
hvert John Milius er að fara. Annars ekki.
tveir þumlar upp: frábær einn þumall upp: góö einn þumall niður: sæmileg tveir þumlar niður: atleit