Pressan - 09.05.1991, Page 26
LITHAAR
VIÐURKENNA NÝJU
STJÓRNINA í VIÐEY
— óþolandi afskipti af
innanríkismálum, segir
Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra
Landsbergis, forseti Litháens,
hefur nú opinberlega viður-
kennt ríkisstjórn Viðeyjar, fyrst-
ur þjóðhöfðingja.
Týra, nýi hasshundurinn á Fá-
skrúðsfirði.
Óli Þ. Guðbjartsson
RÉÐ HUND FRÆNKU
SINNAR SEM
HASSHUND TIL
LÖGREGLUNNAR
Á FÁSKRÚÐSFIRÐI
— hann er þefvís þó hann
hafi aldrei lagst í dóp,
segir frænkan
Norðmenn segjast kátir yfir til-
boði Austurríkismanna í Eirík.
AUSTURRIKISMENN
VILJA FÁ AÐ PRUFA
EIRÍK HAUKSSON í
NÆSTU EUROVISION
— allt er þegar þrennt er,
segir Eiríkur og er tilbú-
inn í slaginn
19. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR
IISr,
■ ■
FIMMTUDAGURINN 9. MAÍ 1991
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
boðsmanns Alþingis.
Frœnka Óla Þ.
kærir hann til
umboðsmanns
Alþingis
Hellu, 9.___________________
„Ég hef staðið í þeirri
trú að á íslandi ættu allir
að vera jafn réttháir gagn-
vart stjórnvöldum. Það
hefur hins vegar sýnt sig
að svo er ekki en ég vil
ekki una því. Þess vegna
kærði ég manninn,“ sagði
Olga Tryggvadóttir,
frænka Óla Þ. Guðbjarts-
sonar, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, en hún hef-
ur kært frænda sinn til
umboðsmanns Alþingis.
„Auðvitað brá mér þegar
ég heyrði að hann hafði ráðið
marga ættmenn okkar í góð-
ar stöður, en ég fékk ekkert.
Sumt af þessu fólki var miklu
fjarskyldara honum en ég og
mér sýnist að hann hafi valið
einkum þá sem hafa nennt að
sleikja sig upp við hann. Ég er
hins vegar ekki þannig gerð.
Ég tel hins vegar fráleitt ef
stjórna á landinu með þeim
hætti að ég verði látin líða
fyrir það," sagði Olga.
Aðspurð segist hún ekki
vera að leita að neinu sér-
stöku starfi hjá hinu opin-
bera. Hún kunni ýmislegt fyr-
ir sér en vilji ekki tíunda það
opinberlega.
„Auk þess sýnist mér málið
snúast miklu frekar um laun
en vinnu," sagði Olga.
200 bœndur af Suöurlandi
Verða framlag Islendinga
til flóttamanna í Tyrklandi
Reykjavík, 9. maí
„Ég verd að viðurkenna
að ég áttaði mig ekki á
þessu. Það hefur svo
margt breyst síðan við
sjálfstæðismenn fórum
með landbúnaðarmálin,"
sagði Halldór Blöndal
landbúnaðarráðherra, en
vegna mistaka verða 200
sunnlenskir bændur send-
ir utan til flóttamanna-
búða Kúrda í Tyrklandi
næstkomandi þriðjudag.
„Mér yfirsást að í dag eru
niðurgreiðslur bundnar við
bændur en ekki kjöt. Þegar
ég ákvað að verja fé til út-
flutningsbóta svo hægt væri
að metta flóttamennina átt-
aði ég mig ekki á því að í raun
var ég að greiða niður bænd-
ur til útflutnings," sagði Hall-
dór.
Halldór sagði að unnið
væri að því að afturkalla gjöf-
ina hjá alþjóðaskrifstofum
Rauða krossins.
„En því miður er bæði af-
skaplega mikið að gera þarna
úti og eins finnst okkur hálf
hallærislegt að bakka með
þetta á síðustu stundu. Ég
held því að ég geti ekki ann-
að en ráðlagt bændunum að
'ferðbúast. Ég krossa mig bara
yfir að bændur fyrir norðan
skuli sleppa," sagði Halldór.
„Veistu að ég er alveg hætt-'
ur að verða hissa á landbún-
aðarstefnunni," sagði Krist-
inn Úlfarsson, bóndi í Vest-
ur-Landeyjum, þegar GULA
PRESSAN spurði hann hvern-
ig honum litist á ferðina. „Eft-
ir að þeir leyfðu innflutning á
ostlíkinu hefur maður átt á
von á hverju sem er. Og hvers
vegna ekki þessu?"
Framlag fslendinga til flótta-
mannavandans í Kúrdistan
verða 200 bændur á fæti.
Arnarhváll, þar sem fjármálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið eru til húsa.
Nýjar útskýringar á halla ríkissjóös
FJÁRMÁLAR ÁBIIVEYTIB
ER I „SJÚKU HÚSI“
Reykjavík, 9. mof
„Niðurstöður okkar
benda til að sívaxandi
hallarekstur ríkissjóðs sé
ekki sök Ólafs Ragnars
Grímssonar eda annarra
fjármálaráðherra. Ástæð-
an er einfaldlega sú að
Arnarhváll, þar sem fjár-
málaráðuneytið er, er svo-
kallað „sjúkt hús“. Þeir
sem þar vinna eru því ekki
heilir á meðan þeir dvelja í
húsinu. Það skýrir margt,“
sagði Sigurður Þóröarson
vararíkisendurskoðandi
þegar hann kynnti niður-
stöður ríkisendurskoðun-
ar á rannsókn á halla ríkis-
sjóðs.
„Við könnuðum heimilis-
rekstur Ólafs Ragnars og
nokkurra annarra starfs-
manna ráðuneytisins og okk-
ur til mikillar furðu kom í Ijós
að þetta reyndust allt afskap-
lega hagsýnir menn þegar
þeir eru heima hjá sér,“ sagði
Sigurður.
I skýrslu ríkisendurskoðun-
ar kemur meðal annars fram
að dómsmálaráðuneytið er í
sama húsi og fjármálaráðu-
neytið og telur stofnunin það
skýra ýmislegt sem þar hefur
gerst.
„Okkar tillögur eru einfald-
ar. Flytjið ráðuneytið og ríkis-
kassann. Þá ætti ríkissjóður
að réttast af,“ sagði Sigurður.
Heimssýningin í Sevilla
ÍSLENSKI BÁSINN LENTI Á
BÍLASÝNINGU f SÖMU BORG
Sevillu, 8. maí
„Þetta er alveg fáran-
legt. Það veit ekki nokk-
ur maður af okkur hérna
úti og ef einhver tæki eft-
ir okkur er ég hræddur
um að hróður okkar færi
ekki langt,“ sagði Helgi
Pétursson, sem staddur
er í Sevilla á Spáni á ai-
þjóðlegri bílasýningu,
en hann er þar á vegum
íslensku ríkisstjórnar-
innar.
„Ég verð að vona að hér
sé um einhvern misskilning
að ræða," sagði Helgi en
hann segir að stefnan hefði
verið sett á World Expo '91
í Sevilla, svokallaða heims-
sýningu. í Sevilla væri hins
vegar einnig World Auto
'91 og hefðu íslendingar
byggt hús á því sýningar-
svæði fyrir misskilning.
„Það er gífurlega langt
héðan þar sem við erum yf-
ir á sýningarsvæði heims-
sýningarinnar. Svona álíka
langt og úr Vesturbænum í
Reykjavík til Þingvalla,"
sagði Helgi.
„Ég hef reynt að láta fara
World Auto '91 er glæsileg
sýning en ekki beint það
sem við sóttumst eftir," seg-
ir Helgi Pétursson.
lítið fyrir mér á bílasýning-
unni. Ég vonast til að eng-
inn reki augun inn í sýning-
arbásinn okkar en þar er
mest fiskur, lambakjöt, ull
og ferðabæklingar. Það
virkar hálf álappalega inn-
an um sportkerrurnar,"
sagði Helgi og bætti við að
hann og íslenski hópurinn
hefði reynt að gera það
besta úr öllu.
„Við fórum í kynnisferð í
gær og erum á biðlista um
að fá að reynsluaka nýjasta
módelinu af Ferrari seinna í
dag.“
Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944