Pressan - 25.07.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. JÚU 1991
9
Systurnar Rósa og Kristín Guðmundsdætur hafa báðar komist í kast við
Barnaverndarnefnd.
mynd er röng, þó að sjálfsögðu
komi upp bráðatilfelli þar sem hús-
ráðendur eru frávita af drykkju eða
vímuefnaneyslu og þá þarf að fjar-
lægja börnin tímabundið. Þegar fé-
lagsleg úrræði duga ekki, eins og til
dæmis í þeim tilfellum þar sem um
mikla óreglu eða geðræn vandamál
er að ræða, er reynt að þrýsta á að
fólk leiti sér aðstoðar. Málsmeðferð
hjá Barnaverndarnefnd tekur yfir-
leitt langan tíma,“ sagði Anní.
SAMKOMULAG UM FÓSTUR
Samkuœmt upplýsingum frá lög-
frœdingum sem hafa farið með
þessi mál, suo og fólki sem hefur
lent í barnauerndarmálum, er uiö-
komandi foreldri ekki alltaf suipt
forsjá með barninu formlega, held-
ur látið skrifa undir samþykkisyfir-
lýsingu þess efnis að barnið sé í
fóstri annars staðar. Oft eru félags-
legar aðstœður fólks slíkar að það á
ekki um mikið að uelja.
„Á þessum tíma er því yfirleitt
þannig farið að sálfræðingar hafa
gert rannsóknir á bæði börnum og
foreldrum til að meta hvað hægt er
að aðhafast," sagði Anní Haugen.
,,Á þessum tíma gæti náðst sam-
komulag um fóstur barnanna og þá
er þeim komið í fóstur til 16 ára ald-
urs eða þar til nefndin ákveður ann-
að. Ef samkomulag um fóstur næst
ekki og engin önnur úrræði finnast
er foreldrið svipt forsjá barnsins,"
sagði Anní.
DÝR LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
Til að leita réttar síns gagnvart
barnaverndarnefnd ef skjólstæðing-
hjón í fjárhagsvandræðum f'rá Fé-
lagsmálastofnun.
Okkur var strax gefið til kynna
að það kæmi aldrei til greina að
við fengjum börnin aftur, hvernig
svo sem aðstæður kynnu að snú-
ast okkur í vil. í beinu framhaldi af
því var markvisst reynt að klippa
á öll tilfinningatengsl mín við
börnin og ég fæ aðeins að hitta
þau tvisvar á ári, klukkutíma í
senn.
Mín eina huggun er sú að ég veit
að börnunum líður vel í nýjum
heimkynnum, en það breytir því
hinsvegar ekki að barnaverndar-
nefnd valdi mjög ódýra lausn á
þessu máli. Nefndin reyndi ekki til
hlítar neina aðstoð. en leikur eftir
sem áður hlutverk góðu gæjanna
í þessu máli. Eftir sitja ég og konan
mín fyrrverandi. afskrifuð sem
vanhæfir einstaklingar, og tökum
út refsingu fyrir mistök okkar í líf-
inu. Við erum stimpluð fyrir lífstíð
og um leið og annað okkar myndi
gera sig líklegt til að stofna fjöl-
skyldu yrði barnaverndarnefnd
komin inn á gafl. Það sannar mál
Annýjar Margrétar Ólafsdóttur nú
á dögunum." sagði Einar biturlega
að lokum.
um finnst á sér brotið þarf oftar en
ekki lögfræðilega aðstoð jafnvel
þótt málið þurfi ekki að fara fyrir
dómstóla. Önefndur lögfræðingur
sagði í samtali við PRESSUNA að
barnaverndarmál væru með óvin-
sælli málum sem kæmu inn á borð
til lögfræðinga og flestir þeirra neit-
uðu að taka þau að sér. Bæði vegna
þess hve tyrfin og persónuleg þau
eru og einnig vegna þess að oftar en
ekki er um eignalaust fólk að ræða
með takmörkuð fjárráð.
FJÁRHAGSVANDRÆÐI
OFTAST MEÐAL ÁSTÆÐNA
Sérfræðiaðstoð er dýr, en oftast
haldast peningavandræði í hendur
við önnur bágindi fólksins sem á um
sárt að binda í slíkum málum. Fáir
sinna þessum málum af hálfu
Barnaverndarnefndar og eins og
áður hefur komið fram er nefndin
bæði rannsóknar- og dómsaðili og
ákvarðanir eru í höndum fárra.
Finnist foreldrum á sig hallað er
því í fá hús að venda og þungur róð-
ur fyrir þá að reyna að fá börn sín
aftur, því fæstir eru sendibréfsfærir
þegar kemur að lögfræðilegri túlk-
un á barnaverndarmálum og gagna-
öflun þar að lútandi. Anní Haugen
kvað það vera rétt að foreldrar
hefðu átt í erfiðleikum með að fá
lögfræðilega aðstoð, en í öllum til-
fellum hefðu þeir þó fengið hana að
lokum. Félagsmálastofnun hefur
auk þess, að sögn Anníar, greitt slík-
an kostnað fyrir fólk þegar málin
eru á úrskurðarstigi.
SÁRSAUKAFULLT INNGRIP
„Samkvæmt lögum um vernd
barna og ungmenna geta foreldrar
farið þá leiðina að áfrýja úrskurði til
Barnaverndarráðs, sem er einskon-
ar hæstiréttur í barnaverndarmál-
um,“ sagði Anní og bætti við: „Þetta
er alltaf mjög sársaukafullt inngrip í
líf viðkomandi einstaklinga og sem
betur fer þurfa ekki öll þau mál sem
koma til kasta Barnaverndarnefnd:
ar að enda með forsjársviptingu. í
flestum tilfellum er um að ræða ein-
staklinga sem hafna allri samvinnu
og það er ekkert skrítið þó að sá
hópur sé reiður."
Aðspurð um samtökin Fjölskyldu-
uernd suaraði Anní:
„Mér vitandi hafa þessi samtök
ekki komið með neinar tillögur eða
málefnalegar athugasemdir. Barna-
verndarnefnd er hinsvegar ekki
undanþegin gagnrýni ef sú gagn-
rýni er sanngjörn og reist á málefna-
legum grunni. Ég mundi einnig telja
að meiri umræða um málefni barna
og barnavernd þyrfti að fara fram.“
FÓSTURFORELDRAR
Ýmsir viðmælendur blaðsins
héldu fram að Félagsmálastofnun
hefði stundum ráðlagt mæðrum að
gefa frá sér börnin og jafnvel synjað
þeim um aðstoð að öðrum kosti.
Talsmenn samtakanna Fjölskyldu-
verndar sögðu að oft á tíðum veldi
Félagsmálastofnun ættleiðingu eða
fóstur sem lausn, án þess að stuðn-
ingsaðgerðir væru reyndar til þraut-
ar. Anní Haugen neitar því að þetta
sé rétt. Sumir viðmælenda blaðsins
bentu á að óeðlilegt væri að sama
nefndin fjallaði um ættleiðingar og
forsjársviptingar.
ÆTTLEIÐINGAR OG
FÓSTURBÖRN
Aðeins þeir aðilar sem eru giftir
eða hafa verið í öruggri sambúð fá
að ættleiða börn eða taka fóstur-
börn. Þáð þýðir í raun að einstæðar
mæður, sem eru stærsti hópur skjól-
stæðinga stofnunarinnar og þeir
skjólstæðingar sem búa við hvað
lakastar fjárhagsaðstæður, eru í
raun af stofnuninni taldar óheppi-
legt fjölskyldumynstur.
Umsóknir um ættleiðingar fara í
gegnum dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið, en hinsvegar þarf vottorð frá
Barnaverndarnefnd til að ættleið-
ing geti farið fram. Að auki gerist
það varla án samþykkis foreldra, en
fyrir því finnst þó undanþága í kerf-
inu. Umsóknir fósturforeldra berast
Félagsmálastofnun og eru háðar
samþykki Barnaverndarnefndar.
Nú hafa meðlimir Fjölskyldu-
uerndar gagnrýnt að greiðslur til
fósturforeldra eru í raun mun hœrri
en sú aðstoð sem kynforeldrum
býðst.
„Greiðslur til fósturforeldra eru
aðeins inntar af hendi á reynslutíma
eftir aldri og ásigkomulagi og þeirri
vinnu sem umönnun barnsins
krefst. Eftir þann tíma er það sam-
kvæmt 40. grein laganna um vernd
barna og ungmenna," sagði Anní
Haugen að lokum.
SÁRSAUKAFULL MÁL
Það má vera Ijóst af þessari um-
fjöllun að barnaverndarmá! eru og
verða alltaf sársaukafull og erfið
mál. Þar sem Barnaverndarnefnd er
bundin trúnaði um einstök mál
skjólstæðinga sinna er það aðeins
önnur hlið málsins sem birtist hér á
síðunni. Það skal einnig tekið fram
að Anní Haugen mælir hér fyrir
munn Barnaverndarnefndar
Reykjavíkur, en félagsleg úrræði
ráðast af mismunandi sveitarfélög-
um.
Þóra Kristin Ásgeirsdóttir
Úhsf til að ala upp
eitt at bönnum
en hæf til
að annast hin tvö
Rósa og Kristín Guðmundsdœt-
ur eru utan af landi og áttu mjög
erfiða œsku. Þœr máttu þola sifja-
spell af uöldum fööur síns og það
setti mark sitt á sjálfsmynd þeirra
þegar þœr kynntust barnsfeðrum
sínum. Þœr hafa báðar lent í að
missa frá sér börnin sín, en Kristín
hefur nú nýlega með aðstoð lög-
frœðings endurheimt sín börn, tuo
drengi, úr fóstri sem Félagsmála-
stofnun Reykjauíkur hafði áður
úrskurðað þau í. Það hjálpaöi til
uið lausn málsins að drengirnir
struku til móður sinnar úr fóstr-
„Þegar ég skildi bað ég um tíma-
bundna aðstoð. Pabbi þeirra og
fjölskylda hans höfðu snúið baki
við drengjunum í kjölfar skilnað-
arins. Lausn Félagsmálastofnunar
var að taka frá mér börnin og stía
þeim sundur í fóstur, og eftir það
höfðum við öll misst alla fjölskyld-
una frá okkur," segir Kristín.
„Ég var á átjánda ári þegar ég
eignaðist barn sem ég lét í fóstur
til föðurömmu þess, enda voru
sjálfsmynd mín og sjálfsvirðing í
molum eftir samband mitt við föð-
ur minn, sem þegar þarna var
komið sögu hafði misnotað mig
kynferðislega frá því ég var smá-
barn og starfaði sem lögreglumað-
ur í bænum um þetta leyti,“ sagði
Rósa. „Ég hafði treyst vinkonu
minni fyrir því að annar maður
Isem vann þarna í frystihúsinu
hefði nauðgað mér. Hún brást
trúnaði mínúm og sagan gekk
sem eldur í sinu um bæinn og
barst loks til föður míns, sem
neyddi mig til að biðja manninn í
frystihúsinu og konuna hans af-
sökunar. Þá lokaðist ég inni í sjálfri
mér og hætti að leita eftir sam-
neyti við annað fólk, tæplega
fimmtán ára gömul. Það setti
mark sitt á min fyrstu ástarsam-
bönd, enda fundu þeir að eitthvað
var að.
Aðrir karlmenn, svipað innstillt-
ir og pabbi minn, fundu inn á þetta
varnarleysi mitt. Eftir það sem
hafði gerst heima Jrorði ég ekki
einu sinni að æpa. Ég lenti ítrekað
í misnotkun og hætti að geta treyst
nokkrum manni.
Eftir að hafa átt mitt annað barn
með öðrum sambýlismanni mín-
um skildum við og ég réðst sem
ráðskona í sveit. Það voru mínir
bestu tímar, en ég dvaldi þar fjög-
ur ár. Þeim tíma lauk þannig að ég
lenti í hörmulegu bílslysi sem
skerti starfsorku mína verulega.
Ég flutti því næst í bæinn og þar
hófust vandræði mín fyrir alvöru.
Ég kynntist þriðja sambýlis-
manninum, sem drakk mjög illa,
og átti með honum tvö börn og
annað þeirra var tekið af mér eftir
að mál mín fengu vægast sagt
undarlega meðferð hjá Félags-
málastofnun Kópavogs. Ég hafði
beðið um tímabundið fóstur fyrir
drenginn meðan málin væru í
ólestri og eftir það fóru þeir að
setja upp allskyns kröfur og skil-
yrði fyrir því að ég fengi drenginn
aftur. Mér var m.a gert að fara í
áfengismeðferð og sálfræðiviðtöl,
sem ég og gerði, enda vildi ég
samvinnu og mig óraði ekki fyrir
því að stofnunin gengi á bak orða
sinna.
Meðan ég dvaldi á áfangastaðn-
um á Amtmannsstíg fór mig að
gruna að ekki væri allt með felldu
og það kom á daginn. Eftir að ég
var komin heim, og undirbjó
heimkomu barnsins míns, var ég
kölluð inn á teppi hjá Félagsmála-
stofnun Kópavogs og tilkynnt að
barninu yrði komið í fóstur vestur
á fjörðum. Barnið var þá ársgam-
alt. Þessir fósturforeldrar fyrir
vestan voru „óvart" barnlaus hjón
og nánir vinir félagsmálastjóra,
sem fór með málið. Ég er sem
sagt talin óhæf til að ala upp og
umgangast þetta barn um leið og
ég er hæf til að annast nýfætt barn
og annað tólf ára,“ sagði Rósa að
lokum.
F
Æ. yrir skömmu stofnaði Jóhann
Ingólfsson nýtt fyrirtæki, Hol-
lenska verslunarfélagið. Það væri
ekki í frásögur fær-
andi nema vegna
þess að þetta er sami
Jóhann og setti ís-
lensk-portúgalska á
hausinn fyrir nokkr-
um árum. Það gjald-
þrot er eitt af þeim
umfangsmestu sem hér hafa orðið,
því með heildversluninni fylgdi
fjöldinn allur af verslunum víða um
land. Þær voru reknar sem sjálf-
stæðar einingar en í nánum tengsl-
um við Islensk-portúgalska. Stjórn-
arformaður í íslensk-portúgalska
var Magnús Hreggviðsson, nú-
verandi stjórnarformaður Frjáls
framtaks og Fróða hf... .
s
K-7vo getur farið að Asgeir Elias-
son, hinn nýi landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, fái fleiri verkefni en
Evrópuleikina gegn
Spánverjum og
Frökkum í haust. Nú
standa yfir viðræður
við Kýpurbúa um
landsleik þar ytra.
Kýpur er í „flóð-
hestadeildinni" í fót-
boltanum og ætti að verða þokka-
lega auðveld bráð ...
N
JL N u mun Inga Ingvarsdóttir,
sem verið hefur auglýsingastjóri
Sjávarfrétta um árabil, hafa hætt
störfum hjá Fróða. Sjávarfréttir
náðu mikilli útbreiðslu á sínum
tíma, svo og Fiskifréttir, sem komu á
tímabili út vikulega. Þessi blöð hafa
átt í harðnandi samkeppni við sér-
blað Morgunblaðsins, Úr verinu,
sem kom fyrst út fyrir um það bili
ári. . .
F
Æ. ramganga Sighvats Björg-
vinssonar í lyfjamálinu hefur vakið
mikinn titring innan Alþýðuflokks-
------------ ins. Sighvatur þykir
innan flokksins né
þýðuflokknum ótt-
ast varanlegar óvinsældir vegna
þessa máls, sem allaballar kalla
„súrmjólkurstefnu krataflokksins".
Sú nafngift kom upp eftir að leiðara-
höfundur Alþýðublaðsins ráðlagði
fólki með hægöatregðu að borða
súrmjólk og „morgunkorn" í stað
hægðalyfja. Á þriðjudaginn var
boðaður þingflokksfundur krata,
þar sem eingöngu átti að ræða lyfja-
málið. Honum var hins vegar frest-
að á síðustu stundu ...
s
l^tjornarflokkarnir hafa ekki enn
komið sér að því að skrifa málefna-
samning fyrir ríkisstjórnina, en hon-
um var lofað með haustinu. Stjórnin
keyrir því enn á ýmsum misheldum
heiðursmannasamkomulögum.
Sjálfstæðismenn hafa enn ekki til-
nefnt menn í starfshópinn sem á að
berja saman málefnasamninginn.
Kratar munu hins vegar vera lang-
leiðina tilbúnir með samninginn,
enda vanir slíkri vinnu frá síðustu
ríkisstjórnum ...