Pressan - 25.07.1991, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 25. JÚU 1991
smaa
letrið
Vissirdu þetta: Ein af hverjum
tíu hjónum gera'da aldrei og
eru bara hæstánægd. Þetta
kemur fram í hinu virta banda-
ríska vikubladi National Enqu-
irer. „Kynlíf höfðar einfaldlega
ekki til þessa fólksj' er haft eftir
hjónabandsráðgjafanum Jud-
ith Seifer. Og dr. Anthony Pi-
etropinto kynlífsfræðingur
segir: „Þvert ofan í viðteknar
skoðanir, þá geta hjón verið
hamingjusamlega gift án þess
ai stunda kynlíf." Hvað skyldi
Jóna Ingibjörg segja um
þetta? En þetta minnirlíka á hin
fleygu orð Cher: „Þú ættir aldr-
ei að elskast þegar þú hefur
eitthvað betra að gera — en
hvað erbetra?" Ég segi það líka.
Og nú er Ivana Trump að
reyna að krækja aftur í Donald
eftir að hann lét Mörlu Maples
fjúka. Veldi Donalds er að
mestu hrunið til grunna en Iv-
ana segist einfaldlega elska
hann samt. Donald er hins veg-
ar að dúlla með Cörlu Bruni
þessa dagana, ítalskri gellu úr
módelbransanum og dóttur
milljónamærings.
En það eru víðar sviptingar!
Eftirsóttustu piparsveinar Is-
lands, samkvæmt ítarlegri
könnun PRESSUNNAR, ganga
út einn af öðrum. Birgir Árna-
son, hagfræðingur EFTA í Genf,
er á leiðinni í hjónaband með
Margréti Pálmarsdóttur. Þau
kynntust þegar hann var for-
maður Sambands ungra jafn-
aðarmanna og hún varafor-
maður. (Stjórnmálin eru róm-
antisk.) Margrét er kaþólsk og
þess vegna þurfa þau persónu-
legt leyfi Jóhannesar Páls
páfa. Jóhannes hlýtur að gefa
leyfi enda veit hann að Birgir er
góður drengur þótt hann sé
ekki kaþólskur. Árni Jörgen-
sen, ritstjórnarfulltrúi á Morg-
unblaðinu, var lika i hópi eftir-
sóttustu piparsveinanna. En
ekki lengur! Hann er búinn að
kaupa hús Bubba Morthens og
fluttur inn með Margréti Þóru
Þorláksdottur (systur Rand-
vers) sem var á auglýsinga-
deild Moggans. Og enn einn af
piparsveinum PRESSUNNAR
stendur ekki undir nafni lengur:
Hans Kristján Arnason (best
klæddi maður Islands). Hann er
aftur tekinn saman við Önnu
Sigriði Pálsdóttur, fyrrum eigin-
konu sína. Meira um tilhugalíf-
ið: Skáldið Sjón hefur verið að
slá sér upp með Ásu Junius-
dóttur. Hún er systir Moeidar
sem hefur slegið i gegn sem
söngkona i sumar: Móeiður og
Eyþor Arnalds ur Todmobile
eru saman. Ása og Móeiður éru
dætur Guðrunar Gudlaugs-
dóttur, blaðamanns á Moggan-
um. Sólveig, dóttir Jóns Ótt-
ars, er með Jokli Tomassyni:
faðir hans er Tómas Karlsson,
sem einu siiini var ritstjóri 77m-
ans og foringjaefni hjá Fram-
sókn áður en hann fór i utanrik-
isþjónustuna Fyrrverandi
kona Jóns Óttars, Elfa Gisla-
dóttir, er hins vegar tekin aftur
saman við Matthias Vidar Sæ-
undsson bókmenntafræð-
, , en þau bjuggu saman fyrir
nokkrum árum. Óg um siðustu
helgi gengu i hjonaband vestur
i Selárdal Hulda Þóra Sveins-
dóttir (Jakobssonar jarðfræð-
ings og Gudriðar Hannibals-
dóttur Valdimarssonar) og
Arnar Arnason, sem verið hef-
ur áberandi i stúdentapólitik-'
inni. Þau Hulda og Arnar ætla
bæði tilJapans til náms. Gam-
an fyrir Japani!
Tvifarakeppni PRESSUNNAR
— 5. hluti
Tvifarar vikunnar eru skald,
hvort ur sinni áttinni; Ari Gisli
Bragason og Flattop (eða Flat-
haus eins og vinir hans a Islandi
kalla hann) sem hefur löngum
verið einn af helstu andstæð-
ingum Dicks Tracy. Hargreiðsl-
an er eins, hátt og hvelft ennið,
bogadregnar brúnirnar, kipruð
augun og litið eitt uppbrett nef.
Ari Gisli er að visu kominn með
skegg en Dick gæti hæglega
handtekið hann i misgripum
fyrir Flathaus.
Hvernig menn fara á
völlinn og horfa á „sitt
lið“, styðja það í blíðu og
strídu, sama hvað á dyn-
ur? Alls konar menn:
Skáld, stjórnmálamenn,
múrarar, verkamenn,
söngvarar. Alls konar
menn, já. En alls engar
konur. Fótboltavöllurinn
er eitt síðasta vigi karl-
anna og það vígi er ekki
líklegt til að falla í bráð.
Á vellinum fá menn út-
rás. Hrópa og skammast,
eða skiptast á íbyggnum
augnaráðum. Og þetta
gæti ekki verið einfald-
ara: Allt sem þarf er að
halda með öðru liðinu.
Og vera þar með á móti
hinu.
KR-ingar eiga sérlega
harðsnúið lið stuðnings-
manna. Stefán Haraldsson,
formaður knattspyrnudeild-
arinnar, sagði að 5—600
manna kjarni léti sig aldrei
vanta og þannig hefur það
verið í mörg ár, þótt ekki
hafi Vesturbæingar hampað
neinum alvöru titlum í rúm-
lega 20 ár. En nú hefur orð-
ið mikil aukning áhorfenda
hjá KR og það sem af er
þessu keppnistímabili hafa
að meðaltali 1.800 manns
VÍKINGAR
Ólafur Skúlason biskup, Bjarnl
Guðnason prófessor, Garðar
Yaldimarsson rík isskattst jóri.
Ólafur B. Thors forstjóri, Jón G.
Tómasson borgarlögmaöur,
Ólafur Ólafsson landlæknir,
Gisli Sigurbjörnsson i Grund,
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra, Hallur Simonar-
son blaðamaður, Benedikt
Árnason leikari, Eysteinn
Helgason íorstjóri, Jóhann Óli
Guðmundsson i Securitas,
Ómar Kristjánsson í Þýsk-is-
lenska, Ágúst Ingi Jónsson
fréttastjóri á Morgunblaðinu.
komið á heimaleikina. Allir
vilja styðja sigurvegara.
EKKI í GRÖFINA
FYRR EN BIKARNUM
ER HAMPAÐ
En auðvitað eiga þeir
heiður skilinn sem fylgja fé-
laginu sínu í gegnum þykkt
og þunnt. Egill rakari er
löngu orðinn þjóðsagnaper-
sóna og hann lætur sig aldr-
ei vanta; mætir ennþá með
kíkinn sinn og hefur jafn
ákveðnar skoðanir og áður
þótt hann láti þær ekki
flakka i jafn stórkallalegum
stíl og áður. Óli í Hala er
önnur goðsögn. Hann var
einn af fremstu knattspyrnu-
mönnum landsins á fjórða
áratugnum og er helst á því
að síðan hafi fótboltanum
bara hrakað. Og KR-ingar
þekkja líka Óskar bruna-
vörð, eða Skara babú eins
og hann er kallaður. Skari
babú er kominn um áttrætt
og hefur strengt þess heit
að fara ekki í gröfina áður
en Vesturbæjarljónin hampa
meistaratitli. Björguin
Schram stórkaupmaður er á
níræðisaldri en lét sig ekki
muna um það í fyrra að
fljúga með liðinu á útivelli.
Að jafnaði er það um 30
manna hópur sem fylgir lið-
inu hvert á land sem er.
Þeir bræður Hördur og
Gunnar Felixsynir voru
stjörnur í gullaldarliði KR
en verða nú að láta sér
nægja að fylgjast með. Þeir
eru að sögn „taugaveikiuð-
ustu áhorfendur" á íslandi.
„Himnaríki er
einn stór
fótboltavölIur“
Áhangendur og stuðningsmenn Reykjavíkurliðanna kortlagðir
Þannig mun Gunnar sjaldn-
ast hafa úthald í að horfa á
heilan leik. „Þegar KR var
að leika úti á landi fannst
Gunnar oft niðri við höfn
þegar leiknum var lokið. Þá
þóttist hann vera að skoða
bátana og mannlífið en
hafði bara ekki taugar í að
standa og horfa á,“ sagði
Stefán Haraldsson.
Múraragengid hefur verið
alræmt síðustu ár fyrir væg-
ast sagt umdeildar athuga-
semdir í garð dómara. Það
er kennt við forsprakkann,
Hauk, sem er múrari. Þeir
félagar, fjórir talsins, létu
ýmislegt flakka. Fúkyrði
þeirra í garð dómara líða
ekki úr minni annarra
áhorfenda: „Taktu forhúðina
frá augunum, fíflið þitt“ og
„Vinur minn er heima hjá
þér að ríða konunni þinni."
Stefán sagði að múrara-
gengið hefði róast mikið
upp á síðkastið, eftir að einn
úr hópnum, Karl Löve, fór á
dómaranámskeið. „Nú eru
þeir farnir að læra reglurn-
ar,“ sagði Stefán.
VALSARAR
Á NÆLONSKYRTU í
KULDA OG TREKKI
„Ég er viss um að himna-
ríki er bara einn stór fót-
boltavöllur," sagði Jón Stef-
ánsson, skáld og stuðnings-
maður Frammara. Af ein-
hverjum ástæðum virðast
rithöfundar og bókmennta-
fræðingar flykkjast til Fram
frekar en til annarra liða.
„Fram leikur mjög listræna
knattspyrnu," sagði Jón en
taldi að titlar skiptu litlu á
vellinum. „Galdurinn við
knattspyrnuna er sá, að það
skiptir ekki máli hvort
menn eru bankastjórar eða
skuldarar, skáld eða bók-
menntagagnrýnendur. Á
vellinum sameinast menn,
gleyma sér. Menn verða
hluti af múgnum, rétt eins
og í hringleikahúsum Róm-
verja til forna."
Áhangendur Fram hafa
yfirleitt orð á sér fyrir prúð-
mannlega framkomu. Það
virðist standa í sambandi
við velgengni liðsins síðustu
árin, þéir hafa ekki haft
ástæðu til að vera með
skæting. Stuðningsmenn
smærri liða eru oft orðljótir,
og þess er skemmst að
minnast að blöð á Suður-
nesjum kvörtuðu hástöfum
yfir framkomu áhangenda
Þróttar fyrr í sumar. Þróttur
hefur átt erfitt uppdráttar
síðustu ár og það hefur eðli-
lega hlaupið i skapið á sum-
um gallhörðum stuðnings-
mönnum.
Einn kunnasti stuðnings-
maður Fram er Hördur Ein-
arsson, verkstjóri og forsp-
rakki „Castró-gengisins".
KR-INGAR
Mörður Árnason málfraeðing-
ur, Jón Óskar Sólnes frétta-
maður, Egill Helgason blaða-
maður, Árni Snævarr frétta-
maður, Birgir Árnason hag-
fræðingur, Halldór Guð-
mundsson, útgáfustjóri MM,
Geir Haarde alþingismaður,
Bogi Agústsson fréttastjóri,
Leó Löve i ísafold, Björgólfur
Guðmundsson, fv. forstjóri
Hafskips, Egill rakari Valgeirs-
son, Björgvin Schram stór-
kaupmaður.
PENIR VÍKINGAR
Engir hafa átt eins erfitt
uppdráttar og stuðnings-
menn Víkings síðasta árið.
Heilt ár leið án þess að liðið
ynni leik á heimavelli, enda
dalaði aðsóknin mjög. Vík-
ingar hafa hins vegar verið
mjög grimmir á útivelli og
þangað leggja stuðnings-
menn frekar leið sína til
þess að sjá sigra og mörk.
Það er vísu nær ekkert um
að Víkingar fylgi sínum
mönnum út fyrir
Stór-Reykjavíkursvæðið.
Gunnar Órn Kristjánsson,
formaður knattspyrnudeild-
arinnar, sagði að KR og
Fram stæðu langbest að
vígi, með 5—600 manna lið
sem aldrei léti sig vanta.
Kjarni annarra liða væri
tæpast nema milli eitt og
tvöhundruð manns. En Vík-
ingar eiga sér ýmsa öfluga
áhangendur, einkum úr við-
skiptalífinu og opinbera
geiranum. Þeir eru hins
vegar undantekningarlaust
ákaflega ráðsettir og hafa
sig lítt í frammi með hvatn-
ingarhrópum.
MINNSTA STÚKA í HEIMI
Það hefur gjarnan verið
FRAMMARAR
Einar Kárason rithöfundur, Páll
Valsson bókmenntafræöingur,
Jón Stefánsson skáld, Hall-
grímur Helgason myndlistar-
maöur, Sveinn Andri Sveins-
son borgarfulltrúi, Egill Ólafs-
son tónlistarmaður, Pétur
Kristjánsson tónlistarmaður,
Þorsteinn J. Vilhjálmsson út-.
varpsmaöur, Helgi Björnsson
tónlistarmaöur, Þorgeir Ást-
valdsson útvarpsmaður, Björn
Arnórsson hagfræöingur,
Ómar Ragnarsson fréttamaö-
ur.
talað um litla klíku í kring-
um Val sem byggt hafi
minnstu stúku í heimi utan
um sjálfa sig. Ekkert lið
virðist heldur eiga eins
ótrygglynda áhangendur: í
hvert sinn sem leikið er á
Hlíðarenda eru tugir og
jafnvel huhdruð manna sem
fylgjast með úr Öskjuhlíð-
inni. Skotastúkan er þessi
staður kallaður, af skiljan-
legur ástæðum, og fór lengi
mjög fyrir brjóstið á for-
ráðamönnum félagsins. í
seinni tíð hefur verið brugð-
ið á það ráð að byrgja út-
sýni „Skotanna" með segl-
dúk.
En atkvæðamesti stuðn-
ingsmaður Vals er án efa
Gunni blaðasali, sem aldrei
lætur sig vanta og á í fórum
sínum óþrjótandi hvatning-
arorð til sinna manna.
EN ÍÞRÓTTA-
FRÉTTAMENNIRNIR?
Og að lokum: Með hvaða
liðum halda mennirnir sem
segja okkur fréttir af fótbolt-
anum? Samkvæmt heimild-
um okkar er skiptingin
svona: Á DV eru Stefán
Kristjánsson og Jón Kristján
Sigurdsson gallharðir
Frammarar, og Vídir Sig-
urdsson mun einnig vera
þeim hliðhollur. Róbert Ró-
bertsson er FH-ingur (og
sagður hafa skrifað um
hvern einasta FH-leik í sex
ár!) og það er Guömundur
Hilmarsson auðvitað líka,
enda leikmaður með Fim-
leikafélagi Hafnarfjarðar.
Sigmundur O. Steinarsson á
Morgunblaðinu er mikill
Frammari, Steinþór Guö-
bjartsson er KR-ingur en
Skafti Hallgrímsson er Ak-
ureyringur. Og svo
er það sjónvarpið. Jón Ósk-
ar Sólnes heldur með KR en
Arnar Björnsson kvað halda
með Völsungi. Og svo er
það náttúrlega hann Bjarni
Fel...
Hrafn Jökulsson
Friðrik Sophusson fjarmála-
ráðherra. Ossur Skarpheðins-
son alþingismaötir, Pétur
Sveinbjarnarson. Kristinn
Hallsson songvari. Jón G
Zoéga logfræöingur, Helgi
Magnússon, endurskoðandi
og ritstjóri. Birgir Andrésson
myndlistarmaður, Ólafur Lár-
usson myndlistarmaöur.
Hörður er kallaður síðasti
stalínistinn á íslandi og
hann stjórnar genginu sínu
að hætti einvalda. Það eru
ströng inntökuskilyrði í
Castró-gengið; meðal annars
að standa úti heilan vorleik
í köldu veðri í fráhnepptri
nælonskyrtu!
„Vinur minn er
heima hjá þér að
ríða konunni þinni“