Pressan - 25.07.1991, Qupperneq 25
LISTAPOSTURINN
Kedjusagar-
skúlptúristinn
kemur til Islands
Hann hóf feril sinn korn-
ungur og skar út litla trékarla
aö hœtti Emils í Kattholti.
Seinna tóku stórvirkari tœki
við; og nú er Rolf Suensson
kunnur fyrir ad saga út stórar
tréfígúrur med vélsög. Rolf
œtlar aö saga út fyrir áhorf-
endur íslensk tröll og víkinga.
í kynningu á Rolf Svensson
kemur fram að hann er nú
um fertugt og hefur skapað
um tvö hundruð tréfígúrur í
Svíþjóð, Noregi, Danmörku,
Þýskalandi og Bandaríkjun-
um.
Rolf Svensson sýnir vegfar-
endum í Austurstræti leikni
sína á föstudag og laugardag
en hann flutti stóran trjábol
til landsins af þessu tilefni.
Áhugasamir geta pantað
verk á staðnum frá Rolf, sem
virðist ekki minni húmoristi
en landi hans í Kattholti.
Þess er enn fremur getið í
áðurnefndri kynningu að
Rolf Svensson reykir ekki,
hann drekkur góð vín og öl
með mat (en eftir matinn
drekkur hann ekki meira,
segir þar) og áhugamálin eru
meðal annars náttúruskoð-
un, konur og ný sambönd.
Eða eins og þar stendur: ,,Sá
se upp nu ni kvinnor pá Is-
land."
Rolf Svensson að störfum. Sagar út tréfólk i viðurvist áhorf-
enda.
Súsanna Svavarsdóttir skrifar skáldsögu
Xú geta Porvaröur Helga-
son rithöfundur og önnur
fræg fórnarlömb Súsönnu
Siavarsdóttur. gagnrýnanda
Morgunbladsins. farid ad
hlakka til: Súsanna gefur út
skáldsögu fyrir jólin!
Súsanna hefur verið að-
sópsmikill gagnrýnandi síð-
ustu árin. bæði fjallað um
bókmenntir og leiklist; og
hafa blaðadeilur oft fylgt í
kjölfar dóma hennar. Jafn-
framt þessu hefur hún verið
umsjónarmaður menningar-
blaðs Morgunblaðsins.
Það er Iðunn sem gefur bók
Súsönnu út en áður hefur ver-
ið fært upp leikrit eftir hana.
TVEIR RISAR
Iðunn og Mál og menning bera höjuð og herðar
yfir önnur bókaforlög
Mál og menning og Iðunn
bera höfud og herdar yfir
önnur íslensk bókaforlög.
Þessi forlög gefa út 40—50%
allra bóka sem út koma. Þau
reka einnig fjölmargar bóka-
búðir og œtla má ad ríflega
60% allrar bóksölu í Reykja-
vík séu í þeirra höndum. Þá
eru langflestir íslenskir rit-
höfundar og skáld hjá löunni
eda MM.
Síðasta áratug hafa orðið
miklar breytingar hjá bóka-
forlögunum. Einkum hefur
Iðunni og MM vaxið fiskur
um hrygg. Árið 1989 unnu að
meðaltali 27 starfsmenn hjá
Iðunni en 72 á siðasta ári. Þar
munar langmest um starfs-
menn Eymundsson-búða-
keðjunnar sem Iðunn keypti
á siðasta ári. Almenna bóka-
félagið rak búðirnar áður, en
seldi þær til Prentsmiðjunnar
Odda, þar sem AB var skuld-
um vafið. Oddi seldi Iðunni
búðirnar skömmu síðar. Ey-
mundsson-búðirnar eru i
Austurstræti, Laugavegi,
Kringlunni, Mjódd og Eiðis-
torgi á Seltjarnarnesi, auk úti-
bús á Keflavíkurflugvelli. Fyr-
ir rak Iðunn tvær búðir, for-
lagsverslun og Bókabúð
Braga.
Mál og menning rekur tvær
mjög öflugar búðir, við
Laugaveg og Síðumúla.
Bókaútgefandi í meðalstóru
forlagi áætlaði að MM-búð-
irnar hefðu um 20% af allri
bóksölu í Reykjavík og Iðunn-
arbúðirnar rúm 40%. Aðrir
bókaútgefendur hafa tals-
verðar áhyggjur yfir því hve
mikill hluti bóksölunnar er i
höndum keppinauta þeirra.
FYRIRTÆKI AF
ÓLÍKUM UPPRUNA
Iðunn og MM eru af mjög
ólíkum uppruna. Mál og
menning var stofnað fyrir
rúmlega hálfri öld af róttæk-
um vinstrimönnum og var
smátt í sniðum lengi framan
af. Iðunn er fjölskyldufyrir-
tæki, sett á laggirnar árið
1945 af Valdimar Jóhanns-
syni, sem rak það lengst af.
Jóhann Páll sonur hans kom
til starfa hjá fyrirtækinu árið
1974 og átti mestan þátt í vel-
gengni þess næstu 10 árin. Þá
skildi leiðir og Jóhann Páll
stofnaði Forlagið með fleir-
um. Það hefur verið rekið
sem meðalstórt en mjög
metnaðarfullt bókaforlag. Á
síðasta ári keypti Mál og
menning hins vegar Forlagið
í kjölfar fjárhagserfiðleika en
það er rekið áfram sem sjálf-
stætt fyrirtæki undir stjórn
Jóhanns Páls.
Mál og menning hefur ver-
ið i mikilli sókn síðustu ár.
Mennirnir á bak við vel-
gengni MM eru fyrst og
fremst Árni Einarsson fram-
kvæmdastjóri og Halldór
Guömundsson útgáfustjóri.
Á þeim bæ hefur verið ráðist
í ýr.isar velheppnaðar nýj-
ungar, m.a. Kiljuklúbbinn.
ÓLAFUR í VÖKU
VILDI EKKI AB
Iðunn rekur nú íslenska
bókaklúbbinn, en rekstur
bókaklúbba hefur verið erfið-
ur síðustu árin. í PRESSUNNI
í síðustu viku var sagt frá því
að Iðunni hefði verið boðið
að taka Almenna bókafélagið
yfir. Ef af því verður getur Ið-
unn nýtt sér Bókaklúbb AB,
sem er elsti og öflugasti
klúbburinn. Heimildir
PRESSUNNAR herma raunar
að staða AB sé svo slæm að
óvíst er að Jón Karlsson sjái
sér hag í því að kaupa fyrir-
tækið. Þannig hefur PRESS-
AN heimildir fyrir því að Ól-
afi Ragnarssyni í Vöku-Helga-
felli hafi fyrst verið boðið AB
en hann sagt nei takk. Ólafur
stofnaði Vöku snemma á síð-
asta áratug og bætti nokkru
síðar Helgafelli við, sem var
gamalt stórveldi.
Vaka-Helgafell er nú þriðja
stærsta bókaforlagið.
Velta Máls og menningar á
síðasta ári var tæpar 580
milljónir króna en Jón Karls-
son í Iðunni vildi ekki gefa
neinar upplýsingar um fjár-
mál síns fyrirtækis. Fjöldi
starfsmanna og útgáfubóka
hjá forlögunum tveimur er
hins vegar áþekkur.
MARKVISST
„UPPELDISSTARF“ MM
Síðustu ár hafa rithöfundar
og skáld safnast í ríkari mæli
annaðhvort til MM eða Ið-
unnar. Ef litið er á nýlegan
lista PRESSUNNAR yfir 26
hæstu ^launþega úr Launa-
sjóði rithöfunda 1982—'91
sést að 12 þeirra eru annað-
hvort hjá MM eða Forlaginu;
3 hjá Iðunn i og 3 hjá AB. Onn-
ur forlög leggja nær enga
rækt við íslenska höfunda
nema Vaka-Helgafell. Mál og
menning er eina forlagið þar
sem markvisst hefur verið
unnið að því að fá unga höf-
unda til liðs við forlagið. Þar
má nefna Gyröi Elíasson,
Sjón og Kristínu Ómarsdótt-
ur, sem ýmist byrjuðu hjá
mjög litlum forlögum eða
gáfu verk sín út sjálf.
Hjá Iðunni hefur talsverð
rækt verið lögð við eldri höf-
unda en tveir nýir skáld-
sagnahöfundar kveðja sér
hljóðs þar í haust, Illugi Jök-
ulsson og Súsanna Svavars-
dóttir.
Mál og menning
Starfsmenn: 48 (m/Forlaginu)
Fjöldi útgáfubóka 1990: 117,
þar af 18 barnabækur (MM og
Forlagió)
Áætlaður fjöldi útgáfubóka
1991: 209 (MM og Forlagið).
Bókabúðir: 2.
Áætluð hlutdeild í bóksölu i
Reykjavik: 20%.
Rekur Kiljuklúbbinn, gefur út
Tímarit Máls og menningar og á
Forlagið.
Höfundar
Anton Helgi Jónsson
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Einar Kárason
Guðmundur Andri Thorsson
Gyrðir Eliasson
Jakobina Sigurðardóttir
Kristin Ómarsdóttir
Pétur Gunnarsson
Sigurður A. Magnússon
Sjón
Stefán Hörður Grimsson
Thor Vilhjálmsson
Frá Forlaginu
Friöa Á. Sigurðardóttir
Guöbergur Bergsson
Nína Björk Árnadóttir
Ólafur Gunnarsson
Siguröur Pálsson
Svava Jakobsdóttir
Þórunn Valdimarsdóttir
Þórarinn Eldjárn
Bókaútgáfan Iðunn
Starfsmenn: 72.
Fjöldi útgáfubóka 1990: Um
100.
Áætlaður fjöldi útgáfubóka
1991:Um 100.
Bókabúðir: 8.
Áætluð hlutdeild i bóksölu í
Reykjavik: 40%
Rekur íslenska bókaklúbbinn,
gefur út tímaritið Ljóðorm, á
bókaforlagið Lögberg.
Höfundar
Andrés Indriðason
Elias Mar
Eyvindur Erlendsson
Gils Guðmundsson
Guðrún Helgadóttir
Hannes Pétursson
lllugi Jökulsson
Kristján Jóhann Jónsson
Matthías Johannessen
Njörður P. Njarðvik
Olga Guðrún Árnadóttir
Rúnar Ármann Arthúrsson
Sigfús Daðason
Steinunn Sigurðardóttir
Súsanna Svavarsdóttir
Vigdis Grímsdóttir
Þorsteinn frá Hamri