Pressan - 25.07.1991, Side 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. JÚLÍ1991
29
Hefði kcnan Hallvarður
Einvarðsson orðið
ríkissaksóknari?
hægt að taka mark á því öllu.
Guðrún hefur verið dálítið utan-
veltu á þingi, eða allt þar til Ólaf-
ur Ragnar Grímsson stakk upp í
hana sporslu og gerði hana að for-
seta sameinaðs þings til að kaupa
sér frið. Steingrímur varð hins
vegar formaður Framsóknarflokks-
ins, forsætisráðherra og um skeið
vinsælasti stjórnmálamaður lands-
ins. Guðrún er kona og Steingrím-
ur karl.
Og fyrst minnst er á Ólaf Ragn-
ar; hefði konu verið fyrirgefið fjöl-
lyndi hans í flokkamálum og gerð
að formanni Alþýðubandalagsins
eftir að hafa verið í Framsókn,
Frjálslyndum og vinstrimönnum
og guð má vita hvað?
Ólafur væri líklega að kenna
stjórnmálafræði í Menntaskólanum
í Hamrahlíð ef hann væri kona og
sæti í áttunda sæti á lista fram-
sóknarmanna í borginni. Og mið-
að við aldur hans hefði hann lík-
lega stutt Guömund G. Þórarins-
son í slagnum við Finn Ingólfsson
um fyrsta sætið. Hann hefði að
minnsta kosti ekki stutt Ástu
Ragnheidi Jóhannesdóttur, því á
sama hátt og karlar gerast sjaldan
stuðningsmenn kvenna í pólitík þá
styðja konurnar þær ekki heldur
vegna öfundsýki. Það ætti að
minnsta kosti við um jafn metnað-
arfulla konu og Ólaf Ragnar
Grímsson.
SKASSIÐ DAVÍÐ ODDSSON OG
JÓN BALDVIN, MAÐURINN
HENNAR BRYNDÍSAR
En hvað með Dauíd Oddssorí!
Mundi hann ekki pluma sig sem
kona? Verða einskonar Margaret
Thatcher íslands?
Kannski á næstu öld. Thatcher
sat á þingi í hartnær tuttugu ár
áður en hún varð formaður Ihalds-
flokksins. svo það er ekki trúlegt
að Davíð hefði orðið forsætisráð-
herra um leið og hann settist á
þing. Líklegra væri að hann væri
enn fastur í borgarstjórn ásamt
Markúsi Erni þar sem þeir mundu
baknaga hvor annan, vitandi vits
að enginn flokkur er það stór að
hann rúmi tvær konur með borg-
arstjórann í maganum. Og Davíð
hefði hvorki útlitið né skapferlið
með sér. Hann væri ekki álitinn
fylginn sér heldur frekur. Hann
væri kallaður „skassið".
Það er líka hugsanlegt að Davíð
hefði tekið leikritasmíðar framyfir
pólitikina. Ef hann væri kona
hefði hann ekki getað haldið
hvoru tveggja. Til þess hefði hann
þurft að vanrækja uppeldi sonar-
ins og slíkt gera fáar konur.
Og heldur einhver að Jóni Bald-
uini Hannibalssyni hefði tekist að
verða fyrsta konan í formannsstóli
Alþýðuflokksins fyrst Jóhönnu Sig-
urdardóttur hefur ekki tekist það?
Sjálfsagt hefði Hannibal gamli
frekar veðjað á pólitískan frama
tengdasonarins, Bryndísar
Schram, þótt ætterni hennar
hefði sjálfsagt orðið henni
fjötur um fót
í Alþýðuflokknum.
Þannig að Jón Baldvin hefði
sjálfsagt fylgt Bryn-
dísi yfir í Sjálfstæðisflokkinn
og tekið þar lítillega þátt
í borgarmálapólitíkinni.
FLOKKARNIR SJA UM
KARLANA EN EIGIN-
MENNIRNIR UM KONURNAR
Og hvað með alla kallana í kerf-
inu? Hvar væru þeir ef þeir væru
konur: Þórdur Fridjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, Jón
Skaptason borgarfógeti, Sverrir
Hermannsson, bankastjóri Lands-
bankans, Fridjón Þórdarson, sýslu-
maður í Dalasýslu, Halluardur Ein-
vardsson ríkissaksóknari, Bödvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykja-
vík, og Eggert G. Þorsteinsson, for-
stjóri Tryggingastofnunar?
Sjálfsagt gegndi enginn af þess-
um mönnum þeim störfum sem
þeir sinna í dag ef þeir hefðu ekki
fæðst sem sveinar.
Margir þeirra geta þakkað
stjórnmálaflokkunum sínum þessi
embætti. Það er nefnilega þannig
að flokkarnir taka á sig ábyrgð af
framfærslu helstu flokkshestanna.
Þeir sem hafa náð langt innan
flokkanna þurfa því ekki að ör-
vænta; flokkurinn sér um að
koma þeim í embætti sem tryggja
þeim góð laun og tiltölulega lítið
vinnuframlag.
Þetta á hins vegar ekki við um
konur. Framfærsla þeirra er mál
eiginmannanna, ekki flokkanna.
Sumir þeirra sem nefndir eru
hér að ofan hefðu sjálfsagt náð
ágætisframa þótt þeir nytu ekki
stuðnings stjórnmálaflokkanna. En
fáir eða enginn þeirra hefði kom-
ist svona langt ef þeir væru konur.
Hefði kona með
skapgerð og vaxtalag
Davíðs Oddssonar náð
frama innan
Sjálfstæðisflokksins?
Þórður væri hugsanlega hag-
fræðingur hjá Stéttarsambandi
bænda, Jón deildarlögfræðingur í
samgönguráðuneytinu, Böðvar
væri sjálfsagt fulltrúi við sýslu-
mannsembættið á Hvolsvelli og
Hallvarður trúlega enn hjá Rann-
sóknarlögreglunni. Meira þyrftu
flokkarnir ekki að gera til að upp-
fylla skyldur sínar gagnvart þess-
um konum. Þeir Eggert og Friðjón
væru sestir í helgan stein en
Sverrir hefði sjálfsagt aldrei náð
neinum frama í Sjálfstæðisflokkn-
um og flokkurinn því ekki haft
neinar skyldur gagnvart honum.
MATTHÍAS HEFÐI SVIPAÐAN
SESS OG ELÍN PÁLMA
Og svona má halda áfram. Matt-
hías Johannessen væri varla rit-
stjóri Morgunblaðsins ef hann
væri kona og ekki heldur Styrmir
Gunnarsson. Ef Matthías væri í
vinnu hjá blaðinu gegndi hann
ábyggilega svipuðu hlutverki og |
Elín Pálmadóttir; tæki viðtöl og
héldi úti Gáru-dálkinum. Styrmir
skrifaði kannski fréttaskýringar
'eins og Agnes Bragadóttir eða
ferðaðist um arabalönd eins og Jó-
hanna Kristjónsdóttir.
Það er líka erfitt að ímynda sér
að Indriöa G. Þorsteinssyni hefði
verið treyst fyrir Tímanum ef
hann væri kona og enn síður Ingv-
ari Gíslasyni. Indriði hetði sjálfsagt
haldið sig fyrir norðan og orðið
virt en lítt lesin skáldkona eins og
Jakobína Siguröardóttir.
Hins vegar er líklegt að Árni
Bergmann hefði orðið ritstjóri á
Þjóðviljanum þrátt fyrir að hann
væri kona. Jónas Kristjánsson
væri sjálfsagt þingmaður Kvenna-
listans en ekki ritstjóri DV. Páll
Magnússon hefði aldrei verið tek-
inn alvarlega sem fréttamaður.
Fólk hefði látið sér nægja að tala
um hvernig hann væri klæddur.
HÖRÐUR HEFÐI EKKI VERIÐ
KEYPTUR FRÁ FJÁRMÁLA-
RÁÐUNEYTINU
Og sjálfsagt trúir þvi enginn að
Höröur Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, Siguröur Helgason, for-
stjóri Flugleiða, eða Valur Valsson,
bankastjóri Islandsbanka, hefðu
komist til þessara metorða væru
þeir konur.
Hörður væri sjálfsagt deildar-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, þar
sem hann hóf starfsferilinn. Flug-
leiðir hefðu varla sótt hann þang-
að á sínum tíma, enda eru konur
sjaldan keyptar á milli fyrirtækja.
Állra síst konur á aldur við Hörð.
Sigurður hefði meiri framalíkur
þar sem hann er yngri. Hann gæti
gert sér vonir um deildarstjóra-
‘stöðu hjá Flugleiðum. Eins og öðr-
um konum yrðu honum sjálfsagt
helst treyst fyrir starfsmanna-
stjórnun.
Valur væri gjaldkeri í útibúi ís-
landsbanka í Lækjargötu eða í
besta falli útibússtjóri einhvers
staðar úti á landi.
Jón Ottar Ragnarsson hefði aldr-
ei fengið nokkurn banka til að
leggja 500 milljónir í Stöð-2 ef
hann væri kona. Það hefði auk
þess varla komið til, því hann
hefði líklega einbeitt sér að nær-
ingarfræðinni og kannski séð um
svipaða þætti í sjónvarpinu og Sig-
rún Stefánsdóttir er með.
Og þar yrði hann í dálítilli sam-
keppni við Hemma Gunn, sem
sjálfsagt væri með spjall- og
skemmtiþátt í sjónvarpinu, svipað-
an þeim sem hann stýrir í dag.
Gunnar Smári Egilsson
Væri Matti Jó ekki með
svipað hlutverk á
Morgunblaðinu og Elín
Pálma í dag efMatti
væri kona?
Hefði fólk ekki bara
horft á fötin hans Páls
Magnússonar ef hann
væri kona og ekkert
heyrt hvaða fréttir hann
væri að flytja?
J—linn af þeim sem skrifa um fjöl-
miðla í Morgunblaðið er Ingvi
Hrafn Jónsson, fyrrverandi frétta-
stjóri sjónvarps. í
síðasta sunnudags-
blaði Morgunblaðs-
ins kvartar hann
mikið undan því að
„skynsemispiltarn-
ir“ í útvarpsréttar-
nefnd hafi lokað á
CNN-sjónvarpsstöðina. Ingvi Hrafn
hefur þarna augsýnilega gleymt því
að í nefndinni sitja tvær konur . ..
æntanlega mun ekki líða lang-
ur tími þar til Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra tilkynnir val á
nýjum útvarps-
stjóra. Eins og allir
muna kom val sjálf-
stæðismanna á nýj-
um borgarstjóra á
óvart og er jafnvel
gert ráð fyrir slíkum
sviptingum í kring-
um útvarpsstjóraembættið. Al-
mennt er talið að Inga Jóna Þórd-
ardóttir, formaður útvarpsráðs,
standi næst embættinu, en því hefur
verið haldið fram að vel geti hugsast
að Árna Sigfússyni verði kippt inn
í stöðu útvarpsstjóra. Þá segja sumir
að það sé nóg fyrir framkvæmda-
stjóra flokksins, Kjartan Gunnars-
son, að lýsa yfir áhuga sínum þá fái
hann embættið .. .
ví hefur verið haldið fram að
fljótlega muni miklar aðhaldsað-
gerðir koma í Ijós hjá Miklagarði hf.
Er rætt um að verslunum fyrirtækis-
ins verði fækkað niður í tvær — í
Mjódd og við Sund. Eins og kom
fram á aðalfundi tapaði fyrirtækið
216 milljónum króna í fyrra. Það
kemur ofan á 500 milljóna króna tap
á Verslunardeild Sambandsins í
fyrra, en Mikligarður hefur yfirtekið
!þann rekstur. I ár var gert ráð fyrir
39 milljóna króna tapi hjá Mikla-
garði en ljóst þykir nú að stefni í
mun meira tap, sérstaklega í ljósi ný-
legs milliuppgjörs hjá fyrirtækinu.
Það er því ekki efnileg staða sem
bíður Björns Ingimarssonar, sem
fljótlega tekur við stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Miklagarði
hf.. ..
M. yrir skömmu var áberandi í
fjölmiðlum deila Hallgríms Þ.
Magnússonar, læknis á Seltjarnar-
nesi, og Ólafs Ól-
afssonar landlækn-
is. Þrátt fyrir að lykt-
ir málsins hafi orðið
þær að Hallgrímur
fékk að opna stof-
una aftur er Ijóst að
starfsemin er ekki
söm og áður. Mun verulegur sam-
dráttur hafa orðið þar á stuttum
tíma. Þá er því haldið fram að ind-
íáni sá sem stundaði lækningar hjá
Hallgrími sé nú farinn af landi brott,
en hann lenti einnig í rannsókn hjá
landlækni.. .