Pressan - 21.11.1991, Blaðsíða 8

Pressan - 21.11.1991, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991 Kaupleigufyrirtækin afskrifa sífellt hærri upphæðir KAUPAAFTUR EIGIN SKItB I mörgum tilfellum hafa kaup- leigufyrirtækin þurft að leysa út eignir sínar með því að greiða JJ upp vanskil viðskiptavina sinna. FU GLASLATll RHU S TÖUfUROG LOFTRÆSTIKERFI f Kristján Óskarsson, framkvœmda- stjóri Glitnis: Afskrifuðu flutninga- skipið ísafold 1987. Kjartan Georg Gunnarsson, fram- kvœmdastjóri Féfangs: Seldu fiskel- diskviar til Færeyja fyrir 15 prósent af andvirði þeirra. Á undanförnum árum hafa komiö upp mörg tilfelli þar sem kaupleigu- fyrirtæki hafa þurft að greiða upp vanskil viðskiptavina sinna til leysa til sín eignir. Eins og kunnugt er starfa þessi fyrirtæki þannig að þau eru skráðir eigendur tækja, sem þau lána út á, þar til kaupandinn hefur greitt upp allt kaupverðið. í mörgum tilfellum hafa ýmiskonar gjöld: tryggingar, hafnargöld og bifreiða- gjöld, hins vegar hlaðist upp á þessi tæki vegna vanskila notendanna. Þegar þeir fara síðan á hausinn sitja kaupleigurnar uppi með skuldirnar. Kaupleigufyrirtækin hafa gengið í gegnum þrengingar á undanförnum árum eins og aðrar lánastofnanir. Fyrirtækin hafa orðið að færa hundruð milljóna króna á afskriftar- reikninga sína og sér ekki fyrir end- ann á því. Sumt af þessu er vegna eðlilegrar áhættu í starfseminni en mörg þeirra útlána sem þeir hafa staðið fyrir hljóta að vekja eftirtekt. Sérstaklega vegna þess að fyrirtæk- in hafa mikið þurft aö leita til dóm- stóla og það í sívaxandi mæli til að fá kröfum sínum framgengt. Mun láta nærri að nokkrir tugir dóms- mála þar sem kaupleigur eiga hlut að máli bíði fyrir bæjarþingi Reykja- víkur. AFSKRIFTARPRÓSENTAN HÆKKUÐ Kaupleigufyrirtækin hafa með hverju ári aukið þá prósentutölu sem þau leggja til hliðar á afskriftar- reikninga auk þess sem afskriftir vegna einstakra mála hafa aukist. Þetta er að nokkru leyti vegna þess að kaupleigufyrirtækin starfa á áhættusömu lánasviði. Þau eru oft- ast að fjármagna nokkuð sérhæfð tæki sem geta orðið verðlaus allt í einu, eins og sannast hefur í fiskeldi. Þá eru sum tækjanna sem fyrirtæk- in höndla með tæpast til þess fallin að fjármagna með þessum hætti. Það er meðal annars vegna þess að þegar á reynir og þarf að taka tækin burtu geta þau verið svo rammlega byggð inn í starfsemi að þeim verð- ur tæpast náð í burtu. Þetta á líklega við um bruggverksmiðjur, fuglaslát- urhús og skipavélar. „Þetta eru dýr lán en þægileg," sagði fyrrverandi kaupleigustarfs- maður, sem segir líklega margt um ásóknina í þessi lán sem kaupieigu- fyrirtækin hafa í sífellt meira mæli þurft að baktryggja. GLITNIR TAPAÐl HEILU SKIPI Glitnir á líklega eitt sérstæðasta málið núna, en fyrirtækið hefur stefnt fimm einstaklingum sem stóðu að Kæliskipum hf„ þeim Gislu V. Benjaminssyni, Hirti Haukssyni, Friöriki Jónssyni, Brynjólfi M. Þor- steinssyni og Gudmundi Kr. Þórdar- syni. Þeir Gísli og Friðrik búa nú er- lendis. Fyrirtækið, sem úrskurðað var gjaldþrota í september 1989, gerði samning um fjármögnunar- leigu á flutningaskipinu ms. Isafold, sem hét áður ísberg. Átti leigusamn- ingurinn að gilda frá 19. ágúst 1986 til 1. september 1993. Nánast frá upphafi var slagsíða á útgerðinni og strax í maí 1987 var skipið kyrrsett í Hull í Englandi. Kyrrsetningarkrafan byggðist á veð- skuldum sem hlaðist höfðu upp á skipið, en útgerð þess hafði í engu sinnt að greiða hafnargjöld. Glitnir sagði síðan leigusamningnum upp 31. júlí 1987, en til að geta leyst skip- ið til sín varð Glitnir að greiða lög- veðskröfur upp á um 10 milljónir. Auk þess voru gjaldfallin leiguvan- skil upp á 2,4 milljónir og þá voru eftirstöðvar leigusamnings, upp á 10,8 milljónir, gjaldfelldar. Glitnir stefnir því vegna vanskila upp í tæp- ar 23 milljónir króna síðan 1987. Þrátt fyrir að Glitni hafi tekist að selja fyrirtækið aftur á fjármögnun- arleigu 1987 er ljóst að fyrirtækið hefur skaðast verulega af þessari skipasölu, sem var færð á afskriftar- reikning fyrirtækisins 1987. „Þeir virðast einfaldlega hafa gleymt að fylgjast með lögveðunum," sagði maður kunnugur þessu máli. En lögveðsmál hafa líka komið upp í kringum bílaviðskipti. STEFNA STEFÁNI VALGEIRSSYNI VEGNA ÁBYRGÐARÁ BÍLATRYGGINGU M Lýsing er nú með mál gegn Stef- áni Valgeirssyni, fyrrverandi alþing- ismanni og formanni bankaráðs Búnaðarbankans. Þar er Stefáni stefnt vegna tryggingavíxils sem hann skrifaði upp á vegna bílaleig-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.