Pressan - 21.11.1991, Page 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991
9
Bjami Pálmarsson: Lind borgadi bifreiAagjöldin af bilunum sam Bjami keyrir á og stefndi honum siðan fyrir upphœö-
inni og vann málið.
að kaupleigufyrirtækið, í þessu til-
viki Féfang, hafði ekki áttað sig á öll-
um veðskuldum á tækjum fyrirtæk-
isins.
Reyndar voru kaupin nokkuð
flókin, því Glitnir átti tækin í fyrir-
tækinu til að byrja með. Síðan lenti
G. Ólafsson í rekstrarerfiðleikum
sem enduðu með gjaldþroti. Áður
en það gerðist höfðu tekist þríhliða
samningar um að Glitnir fengi borg-
að fyrir sín tæki, sem gerðist með
þeim hætti að Féfang yfirtók eignar-
réttinn að tækjunum. Það kom síð-
an í Ijós við gjaldþrotaskiptin að Fé-
fangsmenn höfðu ekki áttað sig á
veðskuldbindingum vegna Iðnlána-
sjóðs, en sjóðurinn hélt því fram að
hann ætti kröfu á að koma þar inn
kröfur Iðnlánasjóðs, sem þýddi að
þeir þurftu að taka að sér kröfur
sem á vélunum hvíldu áður en þeir
gátu fengið eitthvað upp í sínar kröf-
ur. Tap þeirra af þessu máli varð því
verulegt, þrátt fyrir að Glitni tækist
að stofna til nýrra kaupleigusamn-
inga í kringum endurreisn fuglaslát-
urhússins.
Fuglasláturhússævintýrið varð
hins vegar til þess að Glitnir fór að
gera mun strangari kröfur um að
engar veðskuldbindingar hvíldu á
tækjum sem þeir endurfjármögn-
uðu.
BRUGGTANKAR OG
LOFTRÆSTIKERFI
Á KAUPLEIGU
Mörg dæmi er sjálfsagt hægt að
fasteignaveð í hótelinu, sem gerði
það síðan að verkum að það leysti til
sín hótelið.
GLITNIR TAPAÐI
TÖLVUBÚNAÐIVEGNA
VANLÝSINGAR
Mjög margir kaupleigusamningar
hafa verið gerðir vegna tölvukaupa
og ófáir þeirra munu hafa endað
með innheimtumáli. í júní í sumar
gekk dómur í máli Glitnis gegn Bút
hf. og ábyrgðarmönnum fyrirtækis-
ins Glitni í óhag. Krafa þeirra var því
töpuð og þar að auki varð fyrirtæk-
ið að greiða málskostnað.
Árið 1987 hafði Glitnir gert samn-
ing við fyrirtækið um fjármögnun-
arleigu á tölvubúnaði. Bútur var síð-
an tekinn til gjaldþrotaskipta 19.
Siguröur Már Jónsson
unnar Arnarins, sem nú er gjald-
þrota. „Það var engin tala á víxlin-
um vegna þess að þetta var vegna
tryggingar á bílum sem kunningi
minn átti. Síðan löngu, löngu síðar,
þegar við teljum að þessi víxill sé
ekki lengur gildur, kemur krafa og
þeir fara í mál út af henni, en ég sé
ekki betur en þessi krafa sé ekki
byggð upp með eðlilegum hætti og
vildi láta á það reyna," sagði Stefán
í samtali við PRESSUNA.
Vixillinn sem Stefán er rukkaður
um er, eins og áður segir, vegna bif-
reiðatrygginga sem eru lögveð sem
fylgja bílunum. Stefán sagði að á sín-
um tíma hefði verið talað um lága
upphæð, 50 til 60 þúsund, vegna
þessa, en nú, löngu síðar, kemur
önnur og hærri tala fram.
GLÆSIVAGNAR
BJARNA SÖFNUÐU
VEÐSKULDUM Á LIND
Og áfram um bíla, en bílaián eru
einn umfangsmesti liðurinn í starf-
semi kaupleigufyrirtækja. Þar hafa
fyrirtækin lent í vandræðum með
lögveð eins og mál Lindar gegn
Bjarna Ftílmarssyni hjá Limúsínu-
þjónustu BPsýnir. Lind fjármagnaði
kaup Bjarna á tveimur bifreiðum af
gerðinni Oldsmobile 98 Regency og
Mercedes Benz 300 D. Upp kom
hins vegar ágreiningur vegna bif-
reiðagjalda af bílunum og eftir að
Lind varð að greiða þau stefndi fyr-
irtækið Bjarna og vann málið fyrir
bæjarþingi Reykjavíkur, enda varði
Bjarni ekki mál sitt.
Þegar haft var samband við
Bjarna sagðist hann koma af fjöllum
um lyktir þessa máls og sagðist ekk-
ert hafa vitað af dómnum! „Þetta
hlýtur að vera einhver misskilning-
ur,“ sagði Bjarni, en hann segir að
samkomulag hafi orðið um að hann
greiddi gjöld af öðrum bílnum en
Lind af hinum. Þess má geta að
Bjarni er ennþá með báða bílana í
kaupleigu og segist ekki annað vita
en hann standi í skilum.
FÉFANG VISSI EKKI AF
VEÐBÖNDUM IÐNLÁNASJÓÐS
Þegar lyfjafyrirtækið G Ólafsson,
sem var til húsa á Grensásvegi 8, var
tekið til gjaldþrotaskipta kom í Ijós
Stefán Valgeirsson er krafinn um tryggingavixla vegna heillar bilasölu.
á milli. Sú krafa var reyndar ekki
tekin til greina en það vakti athygli
þeirra sem við skiptin voru hve full-
komlega á óvart veðkröfur Iðnlána-
sjóðs komu fulltrúa Féfangs. Þar
sem Féfangi tókst að selja tækin aft-
ur hefur tapið vegna þessa atviks
líklega verið lítið.
GLITNIR TAPAÐI
FUGLASLÁTURHÚSI
Annað líkt tilvik kom í ljós í kring-
um gjaldþrot fuglasláturhússins
Hreiðurs í Mosfellsbæ, sem er lík-
lega flestum kunnugt vegna vöru-
merkisins; ísfugl. Þar átti Iðnlána-
sjóður veð í bæði húsi og tækjum en
síðan keypti Glitnir þessi tæki og
láðist að athuga hvort þau væru
veðsett fyrir. í þessu máli gekk síðan
úrskurður á þann veg að Iðnlána-
sjóður teldist hafa veð í eignunum
þótt Glitnir hefði kaupleigusamn-
inga um þau.
Glitnir varð þarna að þola veð-
taka um óvenjulega kaupleigu-
samninga, enda eitt af boðorðum
þessara fyrirtækja að bjóða upp á
„sveigjanlega" samninga.
Með þeim óvenjulegri hljóta þó að
vera kaupleigusamningar á brugg-
tönkunum í Víking brugg á Akur-
eyri. Þar sem tankarnir voru hins
vegar rammlega byggðir inn í verk-
smiðjuna var það frekar marklítil
hótun að koma og ná i þá!
Sömuleiðis verður kaupleigan á
loftræstikerfinu í Holiday Inn-hótel-
inu að teljast dálítið djörf vegna þess
að loftræstikerfið verður aldrei tek-
ið án þess að rífa hótelið. Glitnir átti
kaupleigusamning vegna innbús
hótelsins og við gjaldþrot þess varð
fyrirtækið að afskrifa nokkrar upp-
hæðir. Reyndar varð Glitnir að fá
sérstakt leyfi frá viðskiptaráðuneyt-
inu á sínum tíma vegna þessa samn-
ings, þar sem ekki var um hefð-
bundið kaupleigufyrirkomulag að
ræða. Vegna þessa tók fyrirtækið
október 1989 og virðist Glitnis-
mönnum hafa yfirsést að lýsa kröf-
um í búið og kom krafa þeirra því
ekki til úthlutunar úr þrotabúinu.
Þrátt fyrir að eigendur Búts, þeir
Konrúö Balduinsson, /ngimar Þor-
láksson og Baldvin Jónsson, hafi
undirritað sjálfskuldarábyrgð fyrir
kaupunum þurftu þeir ekki að
greiða. Glitnir tapaði þess vegna
kröfunni þó að hún hefði átt.að vera
rækilega baktryggð.
FÉFANG SAT UPPI MEÐ
NÁNAST VERÐLAUSAR
FISKELDISKVÍAR
Kaupleigufyrirtækin lögðu tölu-
vert til af tækjum vegna fiskeldis-
stöðvanna sem hér hafa verið
byggðar. Oft voru gerðir kaupleigu-
samningar vegna búnaðar stöðv-
anna eins og súrefnistækja, dæla og
kvía. Kaupleigufyrirtækin fjár-
mögnuðu oft tækjakaup sem aðrar
lánastofnanir vildu ekki koma ná-
lægt.
Stærsta einstaka tap Féfangs er
vegna fiskeldisfyrirtækisins Faxa-
lax, sem nú er orðið gjaldþrota. Þar
var um að ræða fiskeldiskvíar sem
Féfang fjármagnaði. Féfang leysti
þær til sín við gjaldþrotið og gat að
iokum selt þær á um 15 prósent af
upphæðinni sem uppreiknuð krafa
sagði til um. Voru kvíarnar seldar til
Færeyja. Eftir því sem næst verður
komist hafa þær ekki verið afskrif-
aðar ennþá í reikningum fyrirtækis-
ins.
„VORUM HVÍTÞVEGNIR AF
BANKAEFTIRLITINU“
„Við höldum nú ekki í við bank-
ana í afskriftum," sagði Kjartan Ge-
org Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Féfangs, þegar hann var spurður um
afskriftastöðu fyrirtækjanna. „Öll
eignarleigufyrirtækin hafa verið
tekin fyrir af Bankaeftirlitinu á
þessu ári og í lok síðasta árs. Það
hefur verið skrifuð skýrsla um hvert
einasta þeirra. Ég þekki auðvitað
ekki skýrslurnar um hin fyrirtækin
en ég þekki skýrsluna okkar og við
fengum mjög hreina og fína skýrslu
frá Bankaeftirliti Seðlabankans og
bankaeftirlitið fer miklu betur ofan
í þetta en PRESSAN getur nokkurn
tímann gert. Þeir hvítþvoðu okkur
og fundu ekkert athugavert," sagði
Kjartan Georg.
„Okkar skýrsla var mjög jákvæð,"
sagði Kristján Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Glitnis, þegar hann
var spurður um úttekt bankaeftir-
litsins á Glitni. Það kom fram hjá
Kristjáni að 9 mánaða uppgjör lægi
fyrir hjá fyrirtækinu og væri gert
ráð fyrir að á þessu ári yrðu heildar-
afskriftir Glitnis 27 til 28 milljónir
króna. Þegar hafa verið lagðar í
varasjóð 30 milljónir, sem er aukn-
ing frá því sem verið hefur.
Eiftir því hefur verið tekið að Á»-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ,
er að þessu sinni ekki fulltrúi á
landsfundi Alþýðu-
bandalagsins eins
og hann hefur verið
til fjölda ára. Ás-
mundur var fulltrúi
Alþýðubandalagsfé-
lagsins í Reykjavík
og er stuðningsmað-
ur EES-samningsins, en ABR hefur
opinberlega lýst yfir stuðningi við
Samstöðu Bjarna Einarssonar í
Byggðastofnun, sem er á móti
samningnum .. .
I Iver sýningin á fætur annarri
fellur nú í leikhúsunum og fólk spyr
sig hvað sé að. Félag áhugamanna
um bókmenntir ætl-
ar að efna til sam-
komu á laugardag-
inn kl. 13 í Norræna
húsinu, þar semfjall-
að verður um af
hverju íslensk verk
falla unnvörpum af
fjölunum. Þeir sem flytja erindi um
málið eru: Páll Baldvin Baldvins-
son, hægri hönd borgarleikhús-
stjóra, Árni Ibsen, leiklistarráðu-
nautur Þjóðleikhúss, og Martin
Regal. Auk þeirra tekur Silja Aðal-
steinsdóttir þátt í pallborðsum-
ræðum á eftir ...
F
Æ. elag islenskra iðnrekenda hef-
ur leitað til auglýsingastofa eftir til-
lögum að nýju slagorði. Slagorðið á
að nota til að koma íslenskum vör-
um á framfæri erlendis. Kynning og
markaður, eða KOM hf„ mun eiga
að fara yfir þær tíllögur sem berast.
Hjá KOM er Jón Hákon Magnús-
son aðalmaður. Auglýsingafólk er
ekki ánægt með að þurfa að leggja
verk sín í dóm hjá KOM og telur
óeðlilegt að samkeppnisaðilar fái að
skoða hugverk þeirra og ákveða
hvort þau eru nothæf...
F
JK yrrverandi starfsfólk Jóhann-
esar B. Skúlasonar á Stjörnunni
hefur ákveðið að leita til lögfræð-
inga til að fá greidd
þau laun sem það á
inni hjá Jóhannesi.
Meðal annars mun
Sigurður Ragnars-
son, fyrrverandi
dagskrárstjóri, eiga
inni að minnsta
kosti 500 þúsund krónur. Sigurjón
Skæringsson, fyrrverandi starfs-
maður auglýsingadeildar, fullyrðir
að skuldir Jóhannesar séu milli 10
og 11 milljónir. Hann segir einnig að
Jóhannes eigi yfir höfði sér kæru
um skilasvik vegna fyrirfram
greiddra auglýsinga. Viðskiptavinir
greiddu með skuldabréfi fyrir birt-
ingu auglýsinga en aðeins lítill hluti
þess sem greitt var fyrir birtist. Að
sögn Sigurjóns hleypti Jóhannes af
stokkunum auglýsingaherferð á
strætisvögnum sem kostaði 800
þúsund krónur. Á sama tima var Jó-
hannes ekki fær um að borga starfs-
mönnum sínum laun. Starfsfólk
Stjörnunnar mun vera búið að fá
nóg af framkomu Jóhannesar, sem
það telur hafa einkennst af virðing-
arleysi...