Pressan - 21.11.1991, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 21. NÓVEMBER 1991
13
Atvinnutryggingasjóður útflutningsgreina
Vanskil hjá Atvinnutrygginga-
sjóði útflutningsgreina námu 740
milljónum króna um síðustu mán-
aðamót og höfðu aukist um nær 450
milljónir á árinu eða um 152 pró-
sent. Frá upphafi lánveitinga sjóðs-
ins 1989 áttu að hafa borist inn
1.320 milljónir í afborgunum og
vöxtum. en aðeins 088 milljónir
hafa greiðst inn í sjóðinn. Þrjú fyrir-
tæki eru nú með samtals um 100
milljónir króna í vanskilum, en van-
skil 23 lánahæstu fyrirtækjanna
nema nær 370 milljónum króna.
Sjóðurinn þarf 5 til 5,5 milljarða
króna á næstu þremur árum til að
standa við skuldbindingar sinar og
bætir það ekki stöðu hans ef afborg-
anir og jafnvel vaxtagreiðslur verða
felldar niður næstu tvö árin. Sjóður-
inn var fyrir orðinn „gjaidþrota og
alfarið á framfærslu ríkisins", eins
og einn heimildamanna sagði.
„Hæfileikar þeirra manna sem
veittu lán úr sjóðnum mæiast á því
hvernig gengið hefur að greiða af
lánunum. Mér sýnist að ekki hafi vel
tekist til við lánveitingar," segir
Brvnjólfur Bjarnason. forstjóri
Granda.
Sjóðurinn á útistandandi 9.300
milljónir króna hjá 358 lántakend-
um. 1.650 milljónir hafa verið lagð-
ar á afskriftarreikning og 422 millj-
ónir króna eru á sérstökum bið-
reikningi vegna gjaldþrota fimm
fyrirtækja. Hafa þá í raun liðlega
2.000 milljónir verið afskrifaðar af
lánum sjóðsins.
ÞRJÚ FYRIRTÆKI MEÐ ALLS
100 MILUÓNIR í VANSKILUM
Þessi 5 þrotabú eru Álafoss, með
237 milljóna króna skuld við sjóð-
inn, Bakkalax með 65 milljónir,
Hraðfrystihús Ólafsvíkur með 59
milljónir, Smári í Þorlákshöfn með
43 milljónir og íslax með 18 milljón-
ir króna.
PRESSAN fékk ekki uppgefið
hvaða fyrirtæki það eru sem eru
með hæstu vanskilin hjá sjóðnum.
Hins vegar liggur fyrir að skulda-
staða 23ja fyrirtækja er 100 milljón-
ir eða meira á hvert fyrirtæki. Eru
það fyrirtæki Einars Guðfinnssonar
hf. á Bolungarvík sem til samans
skulda mest eða um 375 milljónir
króna og eru með tæplega 40 millj-
ónir króna í vanskilum.
Þá liggur fyrir að þau þrjú fyrir-
tæki sem eru með hæstu vanskilin
eru til samans með vanskil upp á um
100 milljónir króna. Töluverð fylgni
er á milli lánahæstu fyrirtækjanna
og þeirra vanskilahæstu.
FÆR AÐEINS HELMINGINN AF
ÞVÍ SEM RUKKAÐ ER
740 milljóna króna vanskil hjá
sjóðnum verða enn verri staða í Ijósi
þess að i raun eru lántakendur ekki
farnir að greiða afborganir að ráði.
Af þessum vanskilum eru 555 millj-
ónir vegna vaxta en aðeins 185
milljónir vegna afborgana.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er staða sjóðsins nú hrika-
legri en nokkurn óraði fyrir. „Þegar
sjóðurinn var settur á laggirnar
voru sett þau skilyrði fyrir lánum að
þau skyldu aðeins veitt fyrirtækjum
sem staðið gætu í lappirnar á eftir.
Þetta hefur alls ekki gengið eftir.
Innheimtuhlutfall er aðeins um 50
prósent og þótt allt væri greitt upp í
topp á næstu þremur árum er inn-
byggð skekkja í sjóðnum upp á
1.750 milljónir króna, vegna þess að
lánstími á lánveitingum annars veg-
ar og lántöku sjóðsins hins vegar er
ólíkur. Þá er innheimtustofn að
skerðast vegna gjaidþrota, afla-
skerðing brostin á og hugmyndir
uppi um að fresta afborgunum í tvö
ár. Þetta er gjaldþrota sjóður,” sagði
einn viðmælenda blaðsins.
Að fresta afborgunum til sjóðsins
á næsta ári rýrir tekjur hans um 700
til 800 milljónir króna. Ef farið verð-
ur út í að fresta vaxtagreiðslum þýð-
ir það nálægt 600 milljóna króna
tekjumissi sjóðsins til viðbótar.
MÁTTI BARA LÁNA ÞEIM SEM
STÆÐU UPPRÉTTIR Á EFTIR
Á sama tíma liggur fyrir að til að
geta staðið við skuldbindingar sínar
þarf sjóðurinn að fá 1,5 milljarða
króna á næsta ári, tæpa 2 milljarða
1993 og tæplega 2 milljarða til við-
bótar 1994.
í reglugerð með lögunum um
sjóðinn sagði: „Fyrirtæki koma því
aðeins til álita við lánveitingu eða
skuldbreytingu samkvæmt reglu-
gerð þessari að grundvöllur teljist
vera fyrir rekstri þeirra þegar til
lengri tíma er litið og að loknum
skipulagsbreytingum á fjárhag
þeirra og rekstri..Ríkisendur-
skoðun hefur sagt að stjórnendur
sjóðsins hafi ekki gætt þessa ákvæð-
is nægilega vel.
í fyrstu stjórn sjóðsins í október
1988 voru aðalmenn Gunnar Hilm-
arsson, tilnefndur af forsætisráð-
herra en valinn af Stefáni Valgeirs-
syni, Björn Björnsson bankastjóri,
Jóhann Antonsson viðskiptafræð-
ingur, nú starfsmaður Seðlabank-
ans, Kristján Skarphédinsson,
starfsmaður sjávarútvegsráðuneyt-
isins, og PéturSigurdsson, forseti Ál-
þýðusambands Vestfjarða. Síðar
sagði Björn sig úr stjórninni. Árið
1989 var stjórnarmönnum fjölgað.
Þá kom Hólmgeir Jónsson inn í stað
Björns en ný komu inn þau Gud-
mundur Sigurdsson, Drifa Sigfús-
dóttir og Páll Gústafsson. Fjölgunin
var í tengslum við innkomu Borg-
araflokksins i ríkisstjórnina.
332 ÞÚSUND Á HVERN
BOLVÍKING EN 70 ÞÚSUND
Á ÍSFIRÐING
Áberandi er að sum útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki sem hvað mest-
um hagnaði skiluðu í fyrra þurftu lít-
ið eða jafnvel ekkert að leita til
sjóðsins. Þannig skuldar Útgerðar-
félag Akureyringa sjóðnum ekki
krónu en skilaði í fyrra hagnaði upp
á nær 200 milljónir króna. Skag-
strendingurskuldarsjóðnum heldur
ekki krónu, en skilaði 100 milljóna
króna hagnaði. Grandi skilaði svip-
uðum hagnaði og ÚA í fyrra en
skuldar sjóðnum (ásamt Hraðfrysti-
stöðinni) um 195 milljónir.
Þá er athyglisvert hversú fyrirtæki
sumra byggðarlaga hafa fengið
mikla fyrirgreiðslu úr sjóðnum, en
önnur litla. Skuldir fyrirtækja á Bol-
ungarvík námu um síðustu áramót
tæplega 400 milljónum eða sem
nemur 332 þúsund krónum á hvern
íbúa. Fyrirtæki á ísafirði skulduðu
hins vegar liðlega 240 milljónir eða
sem svarar 69 þúsundum á hvern
íbúa. Nær 1.100 milljónir lágu í fyrir-
tækjum í Vestmannaeyjum eða sem
nemur 219 þúsundum á hvern íbúa,
en 431 milljón hjá fyrirtækjum
Akraness eða sem nemur 82 þús-
undum á hvern íbúa.
HÆFILEIKI LÁNVEITENDANNA
MÆLIST í INNGREIÐSLUNUM
Brynjólfur Bjarnason, íorstjóri
Granda, sagði það sitt mat, að að-
gerðir vegna vanda sjávarútvegs-
fyrirtækja yrðu að vera almennar
en ekki sértækar þannig að í þeim
felist mismunun milli fyrirtækja.
„Grandi sótti um lán í sjóðnum á sín-
um tíma vegna vaxtakjara en t.d. Út-
gerðarfélag Akureyringa ekki. Það
kemur ekki til greina að mismuna
fyrirtækjunum með því að Grandi
sleppi við afborganir í sjóðinn á
sama tíma og ÚA fær ekkert. Það
verður þá að bjóða ÚA eitthvað
samsvarandi.”
Brynjólfur sagði aðspurður að
„hæfileikar þeirra manna sem
veittu lán úr sjóðnum mælast á því
hvernig gengið hefur að greiða af
lánunum. Mér sýnist að ekki hafi vel
tekist til við lánveitingar," sagði
hann.
Norðurtangi hf. á ísafirði skuldar
sjóðnum um 30 milljónir króna. Jón
Ftíll Halldórsson framkvæmdastjóri
sagðist ekki vilja leggja dóm á
hvernig til hefði tekist við lánveit-
ingar úr sjóðnum. „Eg þekki það
ekki nógu vel, en mér virtist þó að
unnið hefði verið þar faglega. En ef
forsendurnar bregðast brestur alit
og sjálfsagt hafa forráðamenn sjóðs-
ins gert ráð fyrir meiri tekjum í sjóð-
inn er síðar reyndist. Ég hygg að
enginn hafi reiknað með þeim afla-
samdrætti sem varð og að botnin-
um hafi verið náð á síðasta veiði-
tímabili. Svo reyndist því miður
ekki,“ sagði Jón Páll. Hann sagði
ennfremur að frestun á afborgunum
og vaxtagreiðslum úr sjóðnum
mundi breyta afskaplega litlu fyrir
Norðurtanga, þótt aðgerðin væri út
af fyrir sig eðlileg.
Friðrik Þór Guðmundsson
20 STÆRSTU SKULDARARNIR
01. Einar Guðfinnsson hf.................................. 373,9 m.kr.
02. Haraldur Böðvarsson hf............................... 349,4 m.kr.
03. Hradfrystistöö Vestmannaeyja......................... 286,3 m.kr.
04. Álafoss (á biöreikningi)............................. 272,2 m.kr.
05. Sildarvinnslan Neskaupstaö............................221,9 m.kr.
06. Fiskiöjan Vestmannaeyjum..............................212,4 m.kr.
07. Kaupfelag Eyfiröinga Akureyri..........................197,0 m.kr.
08 Grandi/Hraöfrystistööin................................195,2 m.kr.
09. Glettingur Þorlákshöfn.................................173,4 m.kr.
10. Vinnslustööin/Lrfrarsamlag. Vestm......................173,2 m.kr.
11. fsféiag Vestmannaeyja..................................169,9 m.kr.
12. Kaupfél. A-Skaftafellssýslu............................160,1 m.kr.
13. Meftillinn Þorlákshöfn................................156,9 m.kr.
14. Þormóöur rammi Siglufiröi..............................150,4 m.kr.
15. Miönes hf. Sandgerði....................................1443 m.kr.
16. Hraöfrystihús Eskifjaröar............................143,1 m.kr.
17. Fiskiöja Sauöarkróks..................................122,9 m.kr.
18. Ingimundur hf. Reykjavík...............................121,0 m.kr.
19. Fiskiðjusamlag Húsavikur...............................117,0 m.kr.
20. Fáfnir hf., Þingeyri...................................114,3 m.kr.
Skýringar. Miöað er viö skuldastööu um siöustu áramót og sú staöa uppreiknuö meö
lánskjaravisitólu (8,57%). Lán fyrirtækja sem eru i eigu sómu aöila eöa hafa sameinast
hafa verið talin saman.