Pressan - 21.11.1991, Síða 27

Pressan - 21.11.1991, Síða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991 27 „Ef íslendingur hefði ekki borgað hótelreikninginn sinn og tekist að fá heildsölu til að láta sig hafa vörur út í reikning hefði þetta aldrei orðið svona stórmál," segir Thorbjörn Gunnarsson. Thorbjörn er hér í Sakadómi Reykjavikur eftir að dómurinn var kveðinn upp. vörur út í reikning hefði þetta aldrei orðið svona stórmál,” segir Thorbjörn. ÁKÆRAN Thorbjörn var kærður fyrir að hafa gist á Hótel Holti vit- andi það að hann væri ekki borgunarmaður fyrir reikn- ingi að upphæð 214.823 krónur. Hann var kærður fyr- ir að hafa með blekkingum. eins og að Ijúga til um að vera íslenskur ríkisborgari fæddur á Húsavik og gefa upp virðis- aukaskattsnúmer fyrirtækis á Hellu, fengið heildsölufyrir- tækið Kristu sf. til að afhenda sér ýmsar vörur fyrir samtals að verðmæti 426.671 krónur. Krista sf. fékk megnið af vör- um sínum til baka og loka- krafan á hendur Thorbirni var 32.816 krónur. Hann var einnig kærður af Kreditkort- um hf. fyrir að hafa notað greiðslukort sitt, útgefið í Suður-Afríku. eftir að það var afturkallað fyrir 38.865 krón- ur. Thorbjörn segir ekki rétt að hann hafi ekki átt fyrir hótelreikningnum og hann hafi margoft reynt að ná i EG EB BSKOP VEAIJULEGUR MABUR SEM GERDIMISTÖK segir Namibíumaðurinn svokallaði, sem nýlega fékk sex mánaða fangelsisdóm og var dæmdur til að greiða sektir og dómskostnað Tveimur mánuðum eftir að Thorbjörn Gunnarsson. oft- ast kallaður Namibíumaður- inn í fréttum. kemur til Is- lands er fallinn á hann dómur vegna fjársvika. Hann er sak- aður um að hafa þegið þjón- ustu og vörur án þess að hafa haft nokkra fyrirsjáanlega möguleika á að geta borgað. Hann var dæmdur í sex mán- aða fangelsi og þarf að greiða þeim sem kærðu hann alla þá fjárhæð sem þeir fara fram á, samtals 286.504 krónur ásamt dráttarvöxtum. Hon- um er einnig ætlað að greiða níutiu prósent málskostnað- ar. eða 270.(KK) krónur. Saga Thorbjarnar hér á Is- landi er ekki löng og fréttirn- ar um hann hafa verið skraut- legar. Hann er sagður hafa gabbað fólk upp úr skónum út um allan bæ. svikið út vör- ur og þjónustu og vera ósannsógull með ólíkindum. PRESSUNA langaði að for- vitnast um manninn á bak við fréttirnar. Thorbjörn er 26 ára hvítur maður með namibískt nafn. sem gæti allt eins verið ís- lenskt. Hann kom til landsins 19. september síðastliðinn og gisti á Hótel Holti og fór fljót- lega að athuga hvort hann gæti ekki sest að hérna. Hann langaði til að starfa hér se -!yrtifræðingur og hár- greiðsiumeistari og leigði sér pláss á virtri hárgreiðslustofu í Reykjavík. „Eg er ósköp venjulegur maður sem gerði þau mistök að Ijúga þvi að ég væri af ís- lensku bergi brotinn til að auka atvinnumöguleika mína." segir Thorbjörn Gunn- arsson. Hann segist eiga ættir að rekja til Skandinavíu en vera fæddur í Namibíu. Móðir hans er læknir og faðir hans gegnir mikilvægri stöðu í störfyrirtæki i Suður-Afríku, þar sem foreldrar hans búa. Thorbjörn segist hafa hitt marga Islendinga um allan heim, en hann hefur búið í mörgum löndum vegna at- vinnu foreldra sinna og ferð- ast til þrjátíu og eins lands síðan snemma í vor. Hann kom oft til íslands þegar hann var yngri með foreldrum sín- um. Þau stoppuðu bara nokkra daga í senn. „Mér fannst iandið alltaf heillandi. ævintýralegt og dularfullt. það var eithvað sem dró mig hingað. Allir ís- lendingar sem ég hef hitt um ævina hafa verið svo verald- arvanir og mig langaði ein- faldlega að vera hérna til að kynnast þvi sem gerir þessa eyjarskeggja svona veraldar- vana. Margir íslendingar sögðu mér að ég gæti auðveldlega fengið vinnu á íslandi vegna þess að ég hefði þetta nafn sem gæti alveg eins verið ís- lenskt. Ég ákvað að slá til og prófa." HÉR VIUA ALLIR VITA ALLT UM ALLA Ævintýrið gekk ekki upp. „Mér datt aldrei i hug að Is- lendingar væru svona for- vitnir um mig og mína hagi og að þetta skipti einhverju máli. Fólk var alltaf að spyrja mig hvaðan af íslandi fjöl- skylda mín væri og ég svar- aði bara eitthvað út í loftið. Þegar fólk spurði hvaðan pabbi minn væri sagði ég að hann væri frá ísafirði. vegna þess að það datt mér fyrst í hug. Svo þegar fólk spurði hvaðan mamma mín væri sagði ég að hún væri frá Vopnafirði. vegna þess að hann kom mér í hug. Mér datt aldrei í hug að fólk færi að hringja á þessa staði til að leita ættingja minna." Thorbjörn segist halda að það sé smæð þjóðfélagsins sem gerir það svona auðvelt að komast að því hver er hver. „Hvergi í heiminum er þetta eins auðvelt og hér og hvergi skiptir það eins miklu máli að vita deili á fólki og hér," segir hann. Þar sem Thorbjörn ætlaði sér að setjast hérna að um einhvern tima var honum sagt að hann ætti að fá sér ís- lenska kennitölu. Hann fór þvi á Hagstofuna daginn eftir að hann kom og sótti um kennitölu og fékk hana sam- dægurs. „Þetta var mjög ein- falt og ekkert ólöglegt heldur. Allir útlendingar sem ætla að vera hér þurfa að hafa kenni- tölu. Svo var ég spurður hvort ég vildi láta skrifa nafnið mitt með th eða þ og ég sagði bara þ takk fyrir." SNYRTISTOFURNAR Thorbjörn segist fljótlega hafa tekið eftir að snyrtistof- ur hér á landi buðu ekki upp á neina sérstaka þjónustu og voru frekar á eftir í snyrtingu. „íslenskar konur fá ekki bestu meðferð sem völ er á," segir Thorbjörn. Honum fannst hann geta orðið þar að liði þar sem hann hefði tekið kúrsa hjá virtum snyrtiskóla i ferís fyrir nokkrum árum. Thorbjörn viðurkenndi þó fyrir rétti að hafa ofmetið menntun sína. Viku eftir að hann kom hingað til lands leigði hann pláss hjá virtri hárgreiðslustofu í Reykjavík. Þar hugðist hann starfa sem snyrtifræðingur. Thorbjörn segir að hann hafi ætlað að hefja störf í byrjun nóvember, hann hafi verið búinn að panta vörurnar sem hann þurfti og var að raða í hillur og útbúa plássið sem hann leigði. Stuttu seinna fór allt í súginn. HENTÚT AF HÓTEL HOLTl Ellefta október kemur Thorbjörn á Hótel Holt og biður um lykilinn að herberg- inu. Honum er þá sagt að hann geti ekki fengið lykilinn og hann verði að tala við eig- andann. Skúla Þorvaldsson. „Ég þurfti að bíða heillengi eftir Skúla og svo loksins þeg- ar hann kemur segir hann mér að ég verði að borga all- an reikninginn. 2(K).(KK) krónur. i íslenskum pening- um strax. Ég segi honum að ég geti það ekki og hann meinar mér aðgang að her- berginu mínu og öryggishólf- inu. „Svo henti hann mér út og sagði mér að hann væri mjög áhrifamikill maður í þessu þjóðfélagi og geti gert það sem hann vildi," sagði Thorbjörn. Þá flutti Thor- björn á Hótel ísland. Nokkrum dögum eftir að Thorbirni er hent út af Hótel Holti koma menn frá heild- sölunni Kristu hf„ sem Thor- björn hafði pantað af vörur, taka allar vörurnar úr hillun- um og hverfa á brott. Thor- bjöm telur næsta víst að Skúli hafi hringt i heildsöluverslun- ina og sagt að honum væri ekki lengur treystandi. Thor- björn hafði búið í fjóra daga á Hótel íslandi þegar Rann- sóknarlögregla ríkisins kom á hótelið og flutti hann í Síðu- múlafangelsið fyrir fjársvik. Daginn eftir úrskurðaði Saka- dómur Reykjavíkur hann í sjö daga gæsluvarðhald. „Þetta fannst mér ómann- eskjuleg meðferð. Ég hafði ekki gert neitt glæpsamlegt. Það var verið að rannsaka mál mitt en fyrir það er ekki hægt að setja fólk í fangelsi.” segir Thorbjörn. „Reynsla mín af fangelsisvistinni er ólýsanleg, mér leið hræði- lega. Ég bað um að fá að tala við kaþólskan prest en var sagt að það starfaði bara lút- erskur prestur við fangelsið og það ætti að duga mér.” Þremur dögum seinna var svo hringt í kaþólskan prest sem kom og talaði við Thor- björn. Á fjórða degi úrskurð- aði Hæstiréttur að hann ætti ekki að vera í gærsluvarð- haldi. Ástæðan var sú að refs- ing hans fyrir þetta brot yrði aldrei tveggja ára fangelsi. en tveggja ára fangelsisvist er forsenda þess að menn séu settir í gæsluvarðhald. ÍSLAND ER LÖGREGLURÍKl „fsland er eiginlega lög- regluríki. Það er alveg ein- stakt að það skuli vera nóg fyrir hóteleiganda að hringja í Rannsóknarlögreglu ríkisins ef hann grunar að ekki sé allt með felldu og fá Sakadóm Reykjavfkur til að henda manni í fangelsi. Dómskerfið vinnur greinilega fyrir fyrir- tækin í þessu landi en ekki fyrir einstaklingana," segir Thorbjörn. Það er einnig skoðun hans að réttarkerfið á íslandi sé tvískipt. Eitt kerfi fyrir fslendinga og annað fyr- ir útlendinga. „Ef íslendingur hefði ekki borgað hótelreikn- inginn sinn og tekist að fá heildsölu til að láta sig hafa Skúla í síma til að semja um greiðslur. „Ég ætlaði mér alltaf að borga hótelreikninginn en ég gat það aldrei vegna þess að þetta mál varð að sakamáli áður en mér tókst að borga reikninginn. í dómnum kem- ur fram að samkvæmt upp- lýsingum frá Interpol i Kan- ada er Thorbjörn eftirlýstur þar í landi fyrir auðgunarbrot framið í febrúar síðastliðn- um. Þar kemur einnig fram að Thorbjörn er fæddur í Kanada og ber nafnið Lars- Erik Thorbjörn Matti Pekka Gunnarsson. ERFTTT AÐ VERA ÚTLENDINGUR Thorbjörn segir að það sé honum fjötur um fót að vera útlendingur í islensku réttar- kerfi. Hann eigi erfitt með að fylgjast með öllum smáatrið- um vegna þess að hann geti aðeins hlustað á stuttorða út- tekt á aðalatriðum málsins frá túlki. „Þetta hefur verið mjög þreytandi og erfiður tími og ég er viss um að eftir þessi málaferli og allt þetta fjölmiðlafár verð ég að yfir- gefa landið. Það yrði mjög erfitt að koma á viðskipta- samböndum hér í þessu litla landi. þar sem allir vita allt um alla." Eftir réttarhöldin sagði Thorbjörn að hann væri mjög hissa á dómnum: „Þetta er alveg ótrúlega þungur dómur og miklu þyngri en nokkur íslendingur mundi fá. Þetta sannar bara það sem ég hef sagt áður að útlendingar sitja ekki við sama borð og ís- lendingar í þessu réttarkerfi" segir Thorbjörn. Hann hefur tvær vikur til að ákveða hvort hann áfrýjar dómnum til Hæstaréttar.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.