Pressan - 21.11.1991, Side 30

Pressan - 21.11.1991, Side 30
30 fimMtudagur PRESSAN 21. nóvember 1991 Hvers vegna er fólk timbrað? Hvaða líffræðilegi djöful- skapur liggur þar að baki? Og það sem meira máli skiptir; hvernig er hægt að losna undan þessum ósköpum? ALKASELZER Sumir sem PRESSAN hringdi i sögðu aó það besta som til væri vari að reyna að kom- ast yfir alkazelzer, sem er lyf sem ekki er selt á islandi Það læknaði timburmennina mjög vel. Hrcr kunnusl chki nd þessu hryllileifu lilfinninyu sem mudur fær eflir ud luifti i>erid ti lonyu fyllerii. t‘ii ruknur oy þud er eins oy uörubill hufi ktimifi sér fyrir i huusnum ú þér. Þú tíll erfill med tid huijsu skýrl. finnur lil múttleysis oy lilrtir tillur Munnurinn er þurr ofi hrjósl- svidinn óbterileyur oy þú veisl uö uppkösl eru ú nteslu leili. Þér liöur sro illu tiö þú ijœlir ffefiö uleiffunu lil tiö sleppu viö kvulirnur. Þessi tegund vanlídunar eftir fyllerí er venjulega köll- uð timburmenn vegna þess að það er eins og verið sé að hamra á heilanum í manni. En hvað eru timburmenn og hvað er hægt að gera við þeim? Eftir því sem PRESSAN kemst næst er ekki til nein endanleg líffræðileg skýring á þvi hvað þetta er og ekki nein ein aðferð til að minnka kvalirnar. Þó eru til tvær líf- fræðikenningar sem veita ágætis skýringu á kvölunum. BRENNIVÍNIÐ SJÁLFT EÐA SKORTUR Á VATNI OG SALTI Sú fyrri segir að vanlíðanin sé vegna þess að alkóhólið hefur verið brotið niður í lík- amanum og ferðast með blóðinu upp í haus. Þetta veldur ógleðinni og haus- verknum sem margir finna fyrir. Lifrin hreinsar blóðið en hún hreinsar svo lítið magn i einu að það tekur hana marga klukkutíma að vinna úr alkóhólinu. Þess vegna eru timburmennirnir svona lengi að hverfa. Því meira sem fólk drekkur því lengur er það að verða edrú. Hin skýringin er sú að van- líðanin sé afleiðing vatns- skorts og saltleysis vegna þess að fólk pissar mikið á fylleríinu sjálfu. Læknavís- indin halda að þetta geti vald- ið bjúg við heilann sem tekur marga klukkutíma að réna. segir Einar Thoroddsen læknir. ÝMIS RÁÐ TIL AÐ SLÁ Á TIMBURMENNINA Eins og fyrr segir er ekkert hægt að gera til að losna við timburmenn, en þ<> er hægt að gera ýmislegt til að minnka líkurnar á að maður fái þá. Allar aðferðir sem hér verða gefnar eru einstakl- ingsbundnar. Það besta sem fólk gerir, segir Einar, er að stoppa drykkjuna áður en illa fer. Þeir sem gleyma því ættu að fara i langan göngutúr og drekka mikið vatn áður en þeir fara að sofa. Sumir geta prófað að taka magnyl áður en þeir leggjast til hvíldar. Aðrir ættu að borða eitthvað salt áður en þeir hefja drykkju og einnig áður en þeir fara að sofa. Sumir þola ekki að blanda saman mörg- um tegundum af áfengi og þá ætti það fólk að sleppa því. Kyrir aðra er það ekki vanda- mál að blanda saman vinteg- unum. Sumir verða meira timbraðir af léttu víni, aðrir þola ekki rauðvín en finna aldrei fyrir timburmönnum eftir hvitvínsdrykkju. Fólk verður að læra að þekkja sjálft sig og fara eftir því sem likaminn segir því. AFRÉTTARI í RAUN ÞAÐ EINA SEM DUGIR Af öllum aðferðunum sem til eru er ein sem stoppar kvalirnar næstum eins og skot og það er að fá sér í glas. afréttara eins og það er oft kallað. þegar maður vaknar. Áfengi læknar áfengisböl. segir Einar, en oft fylgir bögg- ull skammrifi. Þegar fólk er farið að þurfa að fá sér í glas til að minnka timburmenn er það að verða háð áfengi og þá er fólk komið út á hálan is. En hvað gerir fólk við timb- urmönnum? Allir hafa sína aðferð og PRESSAN var for- vitin og hringdi í allskonar fólk og spurði hvað það gerði til að lina kvalirnar. Þórunn Bjarnadottir SÓDAVATN OG KAFFI Önnur rað eru að drekka hátfan litra af sódavatni og svo tvo stóra bolla af cappuccino-kaffi meö hun- angi. ________KREM PRESSAN komst lika að þvi að til er krem sem heitir Midnight Secret Krem þetta á að bera á andtitið aður en farið er að sofa eftir fylleri og það eyðir öllum einkennum mikillar drykkju eins og bólgnum augum og hrukk- óttri huA Þetta krem er gott fyrir þá sem verða að mæta til vinnu með útirtið i lagi. ________KYNLÍF________ Sumir segja að það besta við timburmönnum sé viltt kyn- lif. Það fái mann til að gleyma timburmönnunum og i staðinn fyrir kvalir öðlist maður ánægju. KÖRFUBOLTI Vinsætt meðal þjóðarinnar virðist vera að biða bara eftir að timburmennimir fari með þvi að horfa á ameriska körfuboltann á sunnudögum eða ensku knattspymuna á laugardögum, — þee s. að velja sér viðfangsefni sem hæfir ástandi likama og sál- ar. EINA TEGUND Nokkrir sem PRESSAN talaði við mæltu með að drekka bara eina tegund og ekki blanda hana i gos og reykja ekki — þá yrði maður ekki timbraður. LÝSI OG MJÓLK Annað ráð er að taka eina eða tvær matskeiðar af lýsi áður en maður byrjar að drekka. Svo á að drekka eins mikið af mjólk og mögulegt er fyrir svefninn. Þá losnar maður við að fá timburmenn. Þé er mjög gott að drekka mjólk þegar maður vaknar og vera duglegur og þrifa ibúðina eða fara i langan göngutúr. TÓMATDJÚS Barþjónn i bænum segir að það sé mjög gott ráð drekka eitt glas af sterkkrydduðu tómatdjúsi en sleppa vodk- anum. Tómatdjúsið á að krydda með tabaskososu, salti og miklum pipar. Svo á maður að halda sér i eitt- hvað, loka augunum og drekka allt i einum teyg. HREINT LOFT Margir mæla með þvi að fólk rifi sig bara upp úr volæðinu og skelli sér i sund eða ein- hverja hreyfmgu utandyra til að anda að sér hreinu lofti. Svo ætti fólk lika að reyna að borða eitthvað — þó það sé erfítt.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.