Pressan - 21.11.1991, Side 38
38
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991
'Jil'jjrtf
íölcttéímf
|)jóÖéögiu’
Þegar SÁÁ var stofnaö
var boðað til mikils blaða-
mannafundar. Þeir sem
stóðu að stofnun samtak-
anna tóku að sér að tala viö
fjölmiðlafólkiö. Það var gert
með þeim hætti að hver
stofnendanna sá um að
ræða við tvo til þrjá blaða-
menn. Allir stofnendurnir
voru alkóhólistar sem voru
hættir að drekka áfengi.
Meðal þeirra sem boð-
uöu til fundarins var Hilmar
heitinn Helgason. Hann
sagði blaöamönnunum frá
ævi sinni i stuttu máli.
Meðal annars sagðist Hilm-
ar vera alkóhólisti og að
hann hefði veriö undir
áhrifum áfengis i tuttugu
ár, og þaö án þess að missa
ur dag.
Á þessum tima voru lýs-
ingar sem þessar ekki al-
gengar og blaðamennirnir
hlustuöu undrandi á Hilmar
segja frá.
Hilmar lauk máli sinu ein-
hvern veginn á þann hátt
að hann hefði verið búinn
að vera drukkinn i tuttugu
ár þegar hann hætti og
hann heföi ekki smakkað
vin eftir það.
Sem fyrr störöu blaða-
mennirnir undrandi á Hilm-
ar og voru allir orðlausir,
þar til ung kona frá einu
blaðanna, sem haföi sjálf
ekki misnotað áfengi nema
i sáralitlum mæli, stundi
upp eftirfarandi:
„Vá, í tuttugu ár. Varstu
ekki timbraður?"
(ur blaðamannasogum)
Eitt sinn kom ensku-
kennari til Hafnar i Horna-
firði. Kennarinn var með
enskunámskeið á kvöldin.
Þau voru vel sótt og tókust
með mestu ágætum. Nem-
endurnir voru misgóðir i
enskunni, eins og gengur.
Jæja, ekki meira um það.
Eitt sinn áttu nemend-
urnir að gera heimaverkefni
og í þvi voru meðal annars
þýöingar úr íslensku yfir á
ensku. Þeirra á meðal var
eftirfarandi:
„Hver á þessa bók?" Einn
nemendanna leysti verk-
efnið með þessari þýðingu:
„Hot spring river this
book?"
(úr skolasogum)
Útvarpsstöðin Alfa hefur aldrei mælst í hlustendakönnunum
UTVARPSSTOÐ GUÐS EN EKKI MANNA
Finnum að það er mikil þörf fyrir það sem við erum að boða,
- segir Þráinn E. Skúlason. Hann frelsaðist fyrir þremur ár-
um og stjórnar nú útvarpsþáttum á Alfa. Og talar fyrir dauf-
um eyrum ef marka má skoðanakannanir.
..Mi'Hinmurkmiöit) nwö
rekstn úit arsstoövurmnur
Alfu vr uö boöu fuítnuöurvr-
indiö um Jvsútn Krist." svtfir
Þráinn K. Skúlason.
Á þriðjudaKskvöldum oi;
sunnudÖKum stjörnar Þráinn
þætti á Alfa, fm 102.9, þar
sem liann lcikur lof«er(Sar-
tönlist on seííir frá því sem
hann hefur upplifað í trú sinni
o(4 boðar or(S Jesú.
I hlustendakönnunum hef-
ur Alfa ekki mælst. Kr fölkið
á Alfa ekki að tala fyrir dauf-
urn eyrum? Kr hlustað á ykk-
ur?
,.Já, við vitum að það er
hlustað á okkur. Það sem (fef-
ur okkur það til kynna er
bænalinan. en við henni hafa
verið mjö(4 (4Öð viðbrögð.
Kölk hrin(4ir inn bænarefni í
síma 675320. Símtölin eru
skráð niður 0(4 eins er beðið
með fölki i )4e(4num símann ef
það vill það. Fjörum sinnum á
da(4 eru bænastundir. þá er
beðið í beinni útsendin(4u fyr-
ir þeim bænarefnum er inn
hafa komið o(4 eins fyrir því
sem (4uðs orð hvetur okkur til
að biðja fyrir; yfirvöldum.
þjöð o)4 landi o(4 kirkju Jesú
Krists á jörðinni."
Að útvarpsstöðinni Alfa
stendur hlutaféla(4ið Kristile)4
fjölmiðlun. en að því féla(4i
standa Hjálpra-ðisherinn.
Orð lífsins. Fíladelfía, Kross-
inn. Ve(4tirinn o(4 fjölmar(4ir
einstakliii(4ar. Alfa tilheyrir
þvi ekki einni ákveðinni
kirkju eða kirkjudeild.
I>e(4ar mar(4ar lrúhreyfiii(4-
ar slanda að svona stöð, þar
sem liver túlkar Guðs orð á
sinn liátt o(4 menn eru á
Hluti starfsfólks og dagskrárgerðarfólks Ölfu. Frá hægri Óli Jón, Kristbjörg, Sverrir, Þráinn og fremst er Eva Liija.
mar(4an hátt ölíkir, er ekki
hætta á að hver rekist á ann-
an?
..Utsendiii(4artíma er ekki
deilt niður á söfnuði. Að da(j-
skránni stendur höpur fölks
úr öllum þessum félö(4um en
það kemur ekki fram undir
nafni féla«s síns. Markmiðið
er að hreiða úl fa(4naðarer-
indið. Við einum eitt samei>4-
inle«t: Oll viljum við boða
Jesúm Krist sem okkar per-
sönule(4a frelsara." er svar
Þráins.
Sjálfur sækir l’ráinn sam-
komur hjá samfélaginu Ve)4-
inum. en hvað kom til að
hann fór að starfa á Alfa?
..Fyrir þremur árum frels-
aðist é«. K« hafði verið mjö(j
leitandi o(4 meðal annars leit-
að i nýöldina o(4 spiritisma en
fékk ekki fyllin«u í þetta
tómarúm sem var í hjarta
minu o(4 er í hjarta hvers on
eins. Þá fór é« að leita Guðs
o(4 eins o(4 se«ir í orði Guðs
..leitið o(4 þér munuð finna"."
Þráinn segir trúna hafa
breytt lífi sínu mjö(4 mikið o(>
hann hafi öðlast annað við-
horf til lífsins. Hann kveðst i
upphafi hafa verið á móti trú-
arstarfsemi o(4 talið fólk sem í
slíku var öf«afólk o(4 fólk sem
ætti við vandamál að stríða.
Sjálfsa«t er það viðhorf sem
Þráinn talar um hér býsna al-
«en«t meðal almenniii(4s.
sem talar um öf«afullar halle-
lújasamkomur. Þráinn kveðst
hafa orðið var við þetta við-
horf í sinn garð. ,.Að vísu ekki
á vinnustað, en é« verð var
við að margir líta á mann sem
öf(4amann. Kn það er ekkert
sem (4etur tekið þetta frá mér.
þótt einhver hæðist að mér
þá eru það smámunir miðað
við það sem Guð hefur «efið
mér."
Þráinn se«ir líf með Guði
ekki felast í boðum o(4 bönn-
um. í da(4 lan«i hann ekki til
að (4era sumt af því sem hann
(4erði áður en hann frelsaðist
o(4 eins lan«i hann til að (4era
ýmisle(4t í dag sem hann lann
en(4a lönjjun til að gera áður
en hann fann Guð. „l.íf með
Guði er skemmtile(4t o(4
spennandi líf." se«ir Þráinn.
Nú líður senn að jólum.
koma ekki jólalög til með að
heyrasl á Alfa?
„Það er til mikið af kristi-
le«ri jólatónlist. ef svo má
se({ja. 0(4 að sjálfsö«ðu á é«
von á að mikið verði spilað af
henni."
Kn(4inn Snæfinnur snjó-
karl?
„Um það skal é« ekkert
se(4ja.“ se«ir Þráinn o(4 hla‘r.
SJÚKDÓMAR OG FÓLK
Sjálfsmorð unglinga
Stórgóður þáttur var í fyrri
viku í Ríkissjónvarpinu um
sjálfsmorð unglinga. Þar
komu fram leikmenn og fag-
menn sem tjáðu sig af hrein-
skilni og innsæi um þau
sorglegu tíðindi að þeim
unglingum fer fjölgandi sem
svipta sig lííi. Sjálfsmorð er
endanleg uppgjöf manneskj-
unnar gagnvart þeim heimi
sem hún lifir í. Kftir það
verður ekki aftur snúið og
engu breytt. Aðstandendur
og ástvinir sitja eftir fullir af
sektarkennd og efasemdum
og spyrja sjálfa sig hvort eitt-
hvað hefði mátt gera til að
koma í veg fyrir verknaðinn.
Algengast er að sjálfsmorð
sé ruglingslegur verknað-
ur, framinn í stundarörvingl-
an þar sem skipulagning og
fyrirætlanir eru á stöðugu
reiki. Kinstaklingurinn hugs-
ar sér þá dauðann sem frels-
un frá sérstökum aðstæðum
eða útgönguleið frá erfið-
leikum hvunndagsins. Það
er oft tilviljunum háð hvort
lausnin á að verða endanleg
eða tímabundin. Sjálfsmorð-
um unglinga hefur farið
fjölgandi enda er nú svo
komið að algengasta dánar-
orsök pilta er sjálfsvíg.
HVERJIR FREMJA
SJÁLFSMORÐ?
Þegar persónuleiki og
geðhöfn eru skoðuð kemur í
Ijós, að margir jieirra sem
fremja sjálfsmorð hafa átt
við andleg vandamál að
stríða. Algengust eru þung-
lyndi og kvíði auk andlegrar
óheilsu sem stafað getur af
stóráföllum í lifinu. Alkóhól-
ismi og önnur misnotkun
vímuefna eru algeng meðal
þeirra sem fyrirfara sér. Oft á
tíðum virðast faraldrar
koma upp í samfélögum og
skólum. Dauðinn verður þá
mjög nálægur og sjálfsögð
leið út úr ákveðnum vanaa-
málum. í unglingasamfélagi
samtímans ber talsvert á
dauðadýrkun, látnir tónlist-
armenn eins og Jim Morri-
son eru hafnir til skýjanna
og mikið af dægurlagatext-
um tjáir svartnætti og dapur-
leika daglegs lífs. Á tónleik-
unum sem sýnt var frá í
þættinum kom þetta vel í
Íjós. Textarnir voru drunga-
legir og lokalagið var hinn
þekkti Rolling Stones-söng-
ur Sympathy for the Devil.
Margir unglingar finna fyrir
smæð og umkomuleysi í
samkeppni nútímans. Sjálfs-
vígið verður leið til að undir-
strika eigið mikilvægi, hróp
á athygli sem þó kemur of
seint þegar siðustu dyrunum
hefur verið lokað um alla ei-
lífð.
SJÁLFSMORÐSÞRÓUN
Sjálfsmorðið fylgir oftast
ákveðinni þróun sem ein-
staklingur gengur í gegnum.
Hann verður þunglyndur og
finnur fyrir vonleysi eigin
lífs. Á næsta stigi fer hann að
velta dauðanum fyrir sér.
Smám saman sér hann
dauðann sem valkost í tilver-
unni og óskar sér þess að
vera dauður. Kf þessi þróun
heldur áfram fara menn að
velta fyrir sér sjálfsmorðsað-
ferð og láta síðan verða af
fyrirætlan sinni ef ekkert
kemur í veg fyrir það. Ef
þessi einstaklingur notar
áfengi eykst hættan á sjálfs-
morði þar sem drykkja
minnkar hömlur og evkur
þor einstaklingsins til að
vinna sér tjón og dregur úr
dómgreind og raunsæi. Það
er mikilvægt að grípa inn í
þessa þróun og koma þeim
til hjálpar sem finna fyrir
miklu vonleysi og eru farnir
að velta dauðanum og til-
gangsleysi eigin lífs fyrir sér.
I þeirri sjálfsmorðsöldu sem
gengið hefur yfir að undan-
förnu eiga heilbrigðis- og
skólayfirvöld að ganga fram
fyrir skjöldu og fara í alla
skóla með fyrirlestra, hóp-
starfsemi og viðtalsþjón-
ustu. Þannig mætti mögu-
lega finna einhverja ein-
staklinga sem eru að gæla
við sjálfsmorðið sem væn-
legan kost í tímabundnum
erfiðleikum og kenna þeim
aðrar aðferðir til að komast
út úr sálarkreppunni. Þegar
spurt var í þættinum af
hverju ekkert hefði verið
gert var svarað: „Við bíðum
eftir niðurstöðum rann-
sókna." Það er ekki hægt að
bíða lengur og stundum þarf
að taka af skarið þó að form-
legar niðurstöður liggi ekki
fyrir. Hvert einasta mannslif
er ómetanlegt til fjár.