Pressan - 10.09.1992, Page 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
13
0 lafur Ragnarsson hjá Vöku-
Helgafelli mun hafa heykst á því að halda
áfram að gefa út íslenska samtíð, annál-
inn um atburði liðins
árs, sem kom út tvíveg-
is hjá forlaginu. Mikið
var lagt í bókina og
mun útgáfan ekki hafa
staðið undir sér. Vil-
hem G. Kristinsson
blaðamaður, sem var
ritstjóri bókarinnar, starfar nú hjá frétta-
stofuSjónvarps...
u
X X ún ætlar að verða hörð, barátta
sveitarfélaga um að fá til sín fangelsi. Dal-
víkingar og Eyrbekkingar vilja fá fangelsið
í sína byggð en það eru fleiri sveitarfélög
sem líta fangelsi hýru auga. Víkurfréttir
greina frá því að Njarðvíkurbær hafi nú
sótt um að nýtt fangelsi verði staðsett í
landi Njarðvíkur, nánar tiltekið á Broad-
street-svæðinu svokallaða, en það mun
vera svæðið á Vogastapa milli Selskógar
og Reykjanesbrautar. Kristján Pálsson,
bæjarstjóri í Njarðvík, segir í viðtali við
Víkurblaðið að þama sé hentug staðsetn-
ing fyrir fangelsi; í nágrenni við höfuð-
borgarsvæðið, stutt sé í alla þjónustu en
jafnframt yrði fangelsið utan þéttbýlis.
Þtjú sveitarfélög vilja semsagt fá fangana
til sín en sjálfsagt eiga þau eftir að verða
fleiri áður en yfir lýkur...
ÚTHLUTUN
ÚR KVIKMYNDASJÓÐIÍSLANDS 1993
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsóknum um
framlög til kvikmyndagerðar.
Umsóknir skulu sendar Kvikmyndasjóði fyrir 13. nóvember
1992, á umsóknareyðublöðum sjóðsins ásamt handriti,
kostnaðaráœtlun, Qármögnunaráætlun og greiðsluáætlun.
011 umsóknargögn skulu berast í Qórum eintökum.
Hafi umsækjandi áður fengið úthlutað úr sjóðnum eða
fyrirtæki, sem hann hefur átt aðitd að og verki ekki lokið,
skal greinargerð um það verk fylgja og uppgjör áritað af ’
löggiltum endurskoðanda.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu
Kvikmyndasjóðs, Laugavegi 24,
101 Reykjavík.
Áka
kafir bókmenntaunnendur munu
líklega eiga dálítið óhægt um vik á bók-
menntahátíðinni sem hefst núna á
sunnudaginn. Dagskrá hátíðarinnar er
einkum þríþætt; í hádeginu flesta dagana
eru erindi, á kvöldin rithöfundakynning-
ar, en klukkan tvö eftir hádegi hefjast yfir-
leitt pallborðsumræður um ýmis efni með
þátttöku innlendra og erlendra gesta.
Þetta eru varla óforvitnilegustu dagskrár-
liðirnir á hátíðinni, en tæplega verður
neinn hægðarleikur fýrir vinnandi fólk að
fylgjast með...
P
-L. rentsmiðja DV er að færa út kvíam-
ar og að líkindum flytur hún bráðlega úr
kjallara DV-hússins við Þverholt og í hús
Hampiðjunnar. Von
mun vera á nýrri og af-
kastamikilli prentvél og
vekur athygli að það er
ekki vé! til að prenta
blöð, heldur getur hún
prentað tímarit. Spum-
ingin er þá hvort þeir
Sveinn R. Eyjólfsson og Hörður Ein-
arsson í Frjálsri fjölmiðlun hyggjast fara í
samkeppni við prentsmiðjuna Odda, sem
prentar flest íslensk tímarit...
V
J. msir bókaútgefendur munu vera
nokkuð fúlir út í prentsmiðjuna Odda.
Ástæðan er Svarta bókin svokallaða,
handbók sem dreift er til skólanema í
gegnum bókaverslanir Eymundssonar.
Nú er hún ókeypis, en eftir 1. október
kemur hún til með að kosta tæpan þús-
undkall. Oddi er eigandi bókaverslana Ey-
mundssonar og hlýtur því að teljast útgef-
andi bókarinnar. Þar með finnst útgef-
endum að Oddinn sé kominn í sam-
keppni við sig, en það sé ekki gott mál í
ljósi þess að fyrirtækið prentar fyrir mörg
stærri bókaforlögin...
s
V^/agt var frá því í síðustu PRESSU að
hljómsveitin Nýdönsk væri nú án útgef-
anda. Hljómsveitarmeðlimir riftu samn-
ingi sínum við Steina
og leituðu hófanna hjá
Jóni Ólafssyni í Skíf-
unni. Jón gerði þeim fé-
lögum tilboð sem Ný-
dönskum þótti ekki að-
gengilegt, þá sendu þeir
Jóni fax og óskuðu eftir
nýju tilboði. Jón sagðist þá ekki ætla að
standa í samningagerð í gegnum faxtæki
og sagði að hljómsveitin gæti bara átt sig.
Þrátt fyrir þessa stirðu byrjun viðskipta
Nýdanskra og Jóns hafa samningar nú
náðst og hljómsveitin skrifað undir út-
gáfusamning við Skífuna. Nýdönsk hefur
undanfarin ár verið ein af vinsæiustu
sveitum landsins og plötur hennar selst
griðarvel á íslenskan mælikvarða. Það er
því ljóst að Steinar Berg ísleifsson og
fyrirtæki hans, Steinar, hafa misst stóran
spón úr aski sínum yfir til keppinautar-
ins...
Pó/turinn Póll
Litabók fylgir hverri spólu
iiwf”' *
BERGVÍK HF., Ármúla 44, Reykjavík, sími 91-677966
FAST I VERSLUNUM UM LAND ALLT