Pressan - 10.09.1992, Síða 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
í Þ R Ó T T I R
Talið er líklegt að Logi Ólafsson
og Ingi Björn Albertsson verði
ekki áfram með sín lið. Hvorug-
ur þeirra hefur þó enn ráðið sig
til annars liðs.
Hætta Logi og
Ingi Björn?
Lfldegt er talið að Logi Ólafs-
son, þjálfari Víkinga, og Ingi
Björn Albertsson, þjálfari Vals-
manna, hætti hjá liðum sínum eft-
ir þetta keppnistímabil.
Logi sagði í samtali við PRESS-
UNA að ekkert hefði verið rætt
um áffamhaldandi starf hans hjá
Víkingum. Hann teldi hins vegar
ekki óeðlilegt að skipt yrði um
þjálfara hjá liðinu í ljósi gengis
þess í sumar. I fyrra urðu Víking-
ar Islandsmeistarar en eru nú í
fallhættu og gætu allt eins fallið í
aðra deild. „Eg hef ekki verið beð-
inn að þjálfa liðið áfram. Samn-
ingur minn rennur út í lok mán-
aðarins og ekkert hefur verið rætt
um ffamhaldið. Þannig er staðan í
dag,“ sagði Logi.
Heimildir PRESSUNNAR segja
þrjá menn koma helst til greina
sem arftaka Loga: Aðalstein Aðal-
steinsson, Lárus Guðmundsson
og Heimi Karbson.
„Ég ætla að minnsta kosti að
vera áfram við þjálfun,“ var það
eina sem Ingi Björn vildi segja um
málið þegar þetta var borið undir
hann. Hann sagði engar viðræður
í gangi um áframhaldandi veru
sína hjá Val en hins vegar lýsti
hann yfir fúllum áhuga á að þjálfa
áfram.
Gervihnattasport
10.00 Aksturslþróttir Eurosport.
Magasínþáttur um aksturs-
(þróttir. Meðal annars verð-
ur sýnt frá keppni á 125,
250 og 500 kúbika mótor-
hjólum sem haldin var i
Suður-Afriku.
14.00 Handbolti Screensport.
Handbplti ratar ekki oft I
dagskrár sportstöðvanna
en það gerist þó stundum.
Sýnt frá alþjóðlegu móti.
20.00 Fótbolti Screensport.
Spánski boltinn, sýnt frá
leik stórliðanna Real Madr-
id og Barcelona.
M.MH1.1MI1M
10.00 Keila Screensport. Frá móti
stórsnillinga í Hollandi.
14.00 Handbolti Eurosport. Frá
móti í Ystad í Svíþjóð.
15.00 Tennis Sky Sports. Bein út-
sending frá undanúrslitum
í kvennaflokki á US-Open.
Míwa.’WMM'Ætaxaii
9.00 Golf Eurosport. Bein útsend-
ing frá Walton Heath I
Surrey. Meðal keppenda er
Nick Faldo. Útsendingu
lýkur klukkan 12 en áfram
verður haldið klukkan 15.
15.00 Parlsar-Moskvu-Beijing-rall-
íið Screensport. Sýnt frá ell-
efta keppnisdegi þessarar
miklu keppni. Aftur á dag-
skrá klukkan 22 um kvöld-
ið.
15.00 Tennis Sky Sports. Það þarf
þolinmótt fólk til að horfa
á allan þennan dagskrárlið.
Bein útsending frá US-op-
en og stendur yfir í litla
átta tíma. Úrslitaleikurinn í
kvennaflokki og báðir und-
anurslitaleikirnir I karla-
flokki.
SUNNUDAGUR
10.00 Snóker Screensport. Af-
slappaðir snillingar sýna
listirslnar,
13.00 Fótbolti Sky Sports. Bein út-
sending frá leik Leeds og
Aston Villa á Ellend Road í
úrvalsdeildinni ensku.
14.00 Handbolti Eurosport. Úr-
slitaleikurinn á mótinu I
Vstad I Svíþjóð.
15.00 Golf Eurosport. Bein út-
sending frá lokadegi móts-
ins í Walton Heath.
en
Fyrsta konan sem verður ís-
landsmeistari í akstursíþrótt er
Kristín Birna Garðarsdóttir, ný-
krýndur fslandsmeistari í rall-
íkrossi. En er Kristín bara ekki
íyrsta konan 1 víðri veröld sem
verður landsmeistari í aksturs-
íþrótt? „Ég veit það nú ekki en ég
er að minnsta kosti fyrsta konan
sem verður íslandsmeistari í akst-
ursíþrótt. En ég veit ekki... ja, það
er aldrei að vita nema það sé eng-
in úti í hinum stóra heimi,“ segir
Kristín Bima.
Hún skaut körlunum ref fyrir
rass í sumar í rallíkrossinu og
keyrði fantavel. Hún segist ekki
verða var við að karlarnir beri
neina sérstaka virðingu fyrir sér í
brautinni af því að hún er kona.
„Ég verð ekki vör við það, ég vona
að þeir geri það ekki,“ segir hún.
Maður Kristínar Birnu er Guð-
bergur Guðbergsson, sem sömu-
leiðis er mikill ökuþór og bíla-
íþróttaáhugamenn kannast vel
við. Kristín Birna segir að Guð-
bergur hafi ekki keppt vegna
tímaskorts og þeim hafi þótt ófært
að láta bflinn standa ónotaðan og
hún hafi því skellt sér í slaginn.
Keppti í fyrra, er íslandsmeistari í
ár og ætlar að verja titilinn næsta
sumar. Guðbergur á varla aftur-
kvæmt í bflstjórasætið á Por-
scheinum eftir þessa fr ammistöðu
Kristínar Birnu. „Það er stefnan
hjá okkur að eignast annan alveg
Kristín Birna við Porscheinn. Það vantarfleiri konur í sportið segir
hún. Nú um miðjan mánuðinn á að halda sérstaka kvennakeppni í
rallíkrossi. Hún er hugsuð fyrir konur keppenda í fþróttinni og þeg
ar hafa fimmtán konur látið skrá sig til þátttöku
eins bíl og keppa saman, það væri
voðalega garnan," segir Kristín
Bima.
En hvort þeirra hjóna er betri
bílstjóri? „Við erum bæði helvíti
góð held ég,“ svarar hún og hlær
við. „Hann er kannski betri á
sumum sviðum og ég á öðrum.“
Ekki slegist um að keyra þegar
farið er í sunnudagsbíltúrinn?
„Nei, nei, mér finnst voðalega gott
að láta keyra mig,“ segir fslands-
meistarinn í rallíkrossi, Kristín
Bima.
Fær Rúnar enga peninga frá KR?
Það er opinbert leyndarmál að
margir íslenskir knattspyrnu-
menn fá peningagreiðslur frá fé-
lögum sínum, að vísu misháar,
en greiðslur til þeirra bestu eru
talsverðar. Sá leikmaður sem tal-
inn er fá mest fyrir sinn snúð er
KR-ingurinn Rúnar Kristinsson.
Hér í PRESSUNNI var fyrir
nokkru grein um hæstlaunuðu
leikmenn hvers félags, heimilda-
menn blaðsins staðhæfðu þá að
Rúnar fengi ekki minna en eina
og hálfa milljón fyrir yfirstand-
andi keppnistímabil — sennilega
meira.
f viðtali við fþróttablaðið síð-
asta segist Rúnar hinsvegar ekki
fá neinar umtalsverðar pen-
ingaupphæðir frá KR. „Ég fæ
ekkert meira en aðrir leikmenn
liðsins. Við erum samnings-
bundnir liðinu og fáum greitt í
samræmi við ffammistöðu okkar
en þar er ekki um háar upphæðir
að ræða,“ segir Rúnar í viðtalinu.
Það er vitað mál að íslenskir
knattspyrnumenn fá greiðslur,
það er vitað að sumir fá meira en
aðrir og það er sömuleiðis vitað
að upphæðirnar sem bestu leik-
mennirnir þiggja eru umtalsverð-
ar. En um þetta má ekki tala að
Rúnar Kristinsson segist litla
sem enga peninga fá frá KR.
því er virðist. Knattspyrnumenn
og forráðamenn liða koma ffarn í
fjölmiðlum og segjast ekki kann-
ast við neinar greiðslur — menn
fái að vísu eitthvert smotterí í
bætt vinnutap og fyrir titla en það
sé lítið sem ekkert. Þeim sem til
þekkja finnst hálfhjákátlegt að sjá
yfirlýsingar þessa efnis því þær
ganga þvert á það sem allir vita
að er rétt. Hér skal ekki staðhæff
að Rúnar segi vísvitandi rangt ffá
í viðtalinu en KR er fjáðasti
klúbbur landsins og mönnum
finnst ótrúlegt að besti knatt-
spyrnumaður landsins fái ekki
talsvert fyrir sinn snúð.
Litháar hrinda tískufar-
aldri afstað
Stórfýrirtæki eins og Reebok og
Nike eyddu fúlgum fjár í auglýs-
ingar á Ólympíuleikunum. Fræg-
ustu íþróttastjörnurnar þáðu
ómældar fjárhæðir fyrir að aug-
lýsa tiltekin merki, og fyrirtækin
vonast til að sala vara þeirra stór-
aukist í kjölfarið. En hverjir fá þá
mestan arð af fjárfestingu sinni í
Ólympíuleikunum? Gæti verið að
það væru ekki milljónafyrirtækin
heldur körfúboltalið Litháa og
hljómsveitin Gratefúl Dead?
Körfúboltamennimir ffá Lithá-
en klæddust litskrúðugum bolum
með mynd af beinagrind að troða
körfúbolta í körfu þegar þeir tóku
við bronsverðlaunum sínum. Það
var hin fornfræga hljómsveit
Gratefúl Dead sem borgaði bolina
og samskonar bolir renna nú út
eins og heitar lummur; eru vin-
sælasta varan sem sett var á mark-
að í tengslum við Ólympíuleikana.
Bolirnir eru gríðarlega effirsótt-
ir í Ameríku og pantanir skipta
þúsundum. Hver bolur kostar
þijátíu dollara en einn þriðji þeirr-
ar upphæðar rennur til ólympíu-
nefndar Litháa, restin rennur til
þess sem hannaði bolina og fyrir-
tækisins sem framleiðir þá.
Hljómsveitin fær ekki krónu fyrir
sitt framlag, einungis ánægjuna af
því að hafa látið gott af sér leiða.
Við verðlaunaafhendinguna
huldu margir leikmenn banda-
ríska draumaliðsins vörumerkin á
æfingagöllum sínum — banda-
ríska ólympíunefúdin gerði samn-
ing við Reebok um að allir amer-
ískir verðlaunahafar tækju við
verðlaunum sínum í búningum
frá Reebok, en vegna samninga
leikmanna draumaliðsins við
önnur fyrirtæki varð það mála-
miðlun að engin merki skyldu
sjást — en leikmenn Litháen tóku
stoltir við sínum verðlaunum
íklæddir beinagrindarbolunum
litskrúðugu.
Tugþúsundir pantana hafa bor-
ist og ekkert lát virðist vera á
ásókninni. En hvað kom til að
Grateful Dead hóf samstarf við
Litháa? Litháinn Sarunas Marci-
ulionis er atvinnumaður hjá Gold-
en State Warriors og hann hitti
meðlimi hljómsveitarinnar bak-
sviðs eftir tónleika í Detroit. f
framhaldi af þeim kynnum varð
hugmyndin til. Bolirnir slógu
heldur betur í gegn, eftirspurn
verður varla annað, og mylja nú
inn peninga til litháísku ólympíu-
nefndarinnar.
Beinagrindin prýddi ekki
búningana sem Litháar klædd-
ust í leikjunum, en á verðlauna-
pallinum stóðu þeir stoltir f
Grateful Dead bolunum.
Larry Bird
hættur
Ein skærasta stjarnan í
NBA-deildinni í körfubolta,
Larry Bird hjá Boston Celtics,
hefur neyðst til að hætta að
spila körfubolta. Orsökin er
þrálát bakmeiðsli og vegna
þeirra þarf hinn 35 ára gamli
Bird að hætta keppni eftir að
hafa verið í eldlínunni í deild-
inni frá árinu 1979 eða í þrett-
ánár.
Ferill Birds er glæsilegur en
kannski verður hann aldrei
metinn að verðleikum. Ástæð-
an? Jú, Bird er hvítur. „Besti
hvíti leikmaðurinn sem ffarn
hefur komið“, „hin mikla von
hvíta mannsins" sögðu áhang-
endur og blaðamenn um Bird.
Frasar sem þessir gera í raun
lítið úr körfuboltamanninum
Bird — þeir eru reyndar til
sem halda því fram að Larry
Bird hefði aldrei náð viðlíka
hylli væri hann svartur, þá
hefði hann bara verið einn af
mörgum góðum svörtum leik-
mönnum og aldrei orðið sú
stjarna sem hann varð — því
staðreyndin er sú að hann var
einfaldlega frábær leikmaður.
Og þá skiptir litarháttur hans
engu máli.
Á þrettán ára ferli skoraði
Bird 24,3 stig að meðaltali í
leik, tók 10 fráköst, átti 6,3
stoðsendingar og stal boltan-
um 1,7 sinnum. Þeir eru ekki
margir sem eiga slíkan feril að
baki og án efa verður Larrys
Bird minnst um ókomin ár
sem eins af bestu körfuknatt-
leiksmönnum sem komið hafa
fram á sjónarsviðið.
Er Pearce of
brjálaður?
Er Stuart Pearce rétti maður-
inn til að taka við fyrirliðastöðu
enska landsliðsins í knattspyrnu
af Gary Linekerl Um það eru
skiptar skoðanir en Pearce er tal-
inn líklegur til að hljóta hnossið.
Menn eru ekki vissir um að mað-
ur sem hefúr gælunafúið Psycho,
eða Brjálæðingurinn, sé vel til þess
fallinn að gegna þessari mikil-
vægu stöðu sem prúðmenni eins
og Bobby Moore og Brian Rob-
son hafa gegnt með ágætum. Pe-
arce þykir að mörgu leyti sérstak-
ur og víst er að hann býr sig ekki
undir leiki á algengasta máta. Til
að komast í rétta skapið fyrir leiki
spilar Pearce gamlar plötur með
hljómsveitinni Stranglers og stillir
víst ekki lágt.