Pressan - 10.09.1992, Síða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
í Þ R Ó T T I R
29
Þjálfarar fyrstudeildarliðanna velja
PRESSUUMfl
P
Skaga-
menn eru
búnir að
klára Is-
landsmótið
— já, Lárus Sigurðs-
meira að son markvörð-
segja búnir ur, Þór.
að'fá bikar-
inn afhent-
an þó að ein umferð sé eftir. Það
er því tími til kominn að gera
sumarið upp og finna út hverjir
stóðu sig best. Við fengum þjálf-
ara fyrstudeildarliðanna til að
velja PRESSULIÐIÐ — leik-
mennina sem allir þjálfararnir
vildu hafa.
Sú aðferð var viðhöfð að hver
rjálfari nefndi fjóra leikmenn,
Luka Kostic
varnarmaður,
(A.
Hlynur Birgis-
son varnarmað-
ur, Þór.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson,
varnarmaður,
KR
Rúnar Kristins-
son miðvallar-
leikmaður, KR.
Sveinbjörn Há-
konarson mið-
vallarleikmað-
ur, Þór.
Salic Porcha
miðvallarleik-
maður, Val.
Bjarki Gunn-
laugsson mið-
vallarieikmað-
ur, (A.
Haraldur Ing-
ólfsson miðvall-
arleikmaður, (A
Valið var bundið því að tilnefhdur
væri markvörður, varnarleikmað-
ur, miðvallarleikmaður og sókn-
arleikmaður. Þeir máttu hins veg-
ar ekki velja leikmenn úr eigin liði
til að valið yrði sem hlutlausast.
Þjálfararnir sem tóku þátt í
þessu voru: Guðjón Þórðarson,
þjálfari ÍA, Sigurður Lárusson,
Sex milljónir frá
Knattspyrnusam-
bandi Evrópu til ís-
landsmeistaranna
Þær eru ekki litlar fjárhæðim-
ar — á íslenskan mælikvarða —
sem liðin sem komast í Evrópu-
keppni fá frá Knattspyrnusam-
bandi Evrópu (UEFA). Greiðslur
þessar haldast í hendur við sjón-
varpsréttinn að leikjum liðanna
og fara stighækkandi eftir því
sem liðin komast lengra í
keppnunum.
Islandsmeistarar Akurnes-
inga fá sex milljónir ffá UEFA og
bikarmeistarar Vals fjórar millj-
ónir. Annað sætið í deildinni
gefur rétt til þátttöku í Evrópu-
keppni félagsliða og það þýðir
sömuleiðis fjórar milljónir. Það
verða annaðhvort KR eða Þór
sem það hnoss hreppa — Valur
getur að vísu lent í öðm sæti og
gerist það fer liðið í þriðja sæti í
Evrópukeppni félagsliða þar
sem Valsmenn eru bikarmeist-
arar og fara í Evrópukeppni sem
slíkir. Komist íslensku liðin í
aðra umferð fá þau nærri tvö-
falda upphæðina sem þau fengu
í fyrri umferðinni. Skagamenn
fá, eins og áður segir, sex millj-
ónir sem meistarar, komist þeir í
aðra umferð fá þeir yfir tíu millj-
ónir og hafa þá fengið rúmlega
sextán milljónir í aðra hönd fyrir
árangurinn.
Það er því að miklu að keppa.
Vissulega kostar þátttaka í Evr-
ópukeppnunum sitt, en án efa er
um einhvern afgang að ræða
sem kemur viðkomandi félagi
mjög til góða.
þjálfari Þórs, Ivan Sochor, þjálfari
KR, Ingi Bjöm Albertsson, þjálfari
Vals, Pétur Ormslev, þjálfari
Fram, Njáll Eiðsson, þjálfari FH,
Logi Ólafsson, þjálfari Víkings,
Hörður Hilmarsson, þjálfari
Breiðabliks, Gunnar Gíslason,
þjálfari KA, og Ómar Jóhannsson,
þjálfari ÍBV.
Lárus markvörður
sumarsins
Valið virtist einfalt — að
minnsta kosti er niðurstaða þjálf-
aranna furðu einföld. Vandasam-
ast virtist valið þegar kom að
markvörðunum. Fimm komust á
blað en valið stóð fyrst og fremst
um Lárus Sigurðsson hjá Þór og
landsliðsmarkvörðinn Birki Krist-
insson í Fram. Láms hafði betur,
en aðrir sem fengu stig vom Krist-
ján Finnbogason hjá fA, Bjarni
Sigurðsson hjá Val og Ólafur Gott-
skálksson hjá KR.
Þeir sem gáfu Lárusi atkvæði
sitt voru á einu máli um að þar
færi mikið markmannsefni —
ffamtíðarmarkvörður íslands.
Kostic varnarmaður
sumarsins
I hópi varnarmanna komust
aðeins tveir á blað. Luka Kostic
fékk meirihluta atkvæða og voru
þjálfaramir sammála um mikil-
vægi hans fyrir íslandsmeistarana.
„Ég tel að Kostic hafi verið þýð-
ingarmesti maður liðsins í sumar.
Menn skulu ekki halda að Skaga-
menn hefðu orðið fslandsmeistar-
ar ef þeir hefðu ekki notið eins
reynslumikils leikmanns og hans.
Þrátt fyrir öll efnin þurfa að vera
leikmenn eins og hann í liðinu,“
sagði Hörður Hiímarsson, þjálfari
Blika, en margir nefndu Kostic
þegar þeir voru beðnir að nefna
mann mótsins.
Annar varnarmaður hefur svo
sannarlega komið á óvart. Það er
Hlynur Birgisson hjá Þór, en hann
hefur ffam að þessu leikið í sókn.
„Hlynur hefur reynst merkilega
heilsteyptur varnarmaður og
komið gífurlega á óvart í sumar,“
sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari
ÍA. Óskar Hrafn Þorvaldsson
komst einnig á blað, enda fljótasti
vamarmaður deildarinnar.
Rúnar besti miðjumaðurinn
Það kemur lfklega fáum á óvart
að Rúnar Kristinsson í KR skyldi
fá flest atkvæði í kosningu um
miðvallarleikmann sumarsins. Til
Rúnars hafa verið gerðar miklar
væntingar undanfarin ár og vom
flestir þjálfaranna á því að hann
hefði staðið undir þeim.
En næstir vom þeir Sveinbjörn
Hákonarson, Þór, og Bjarki
Gunnlaugsson, ÍA. Flestir þjálfar-
arnir nefndu Sveinbjörn til sög-
unnar þótt þeir veldu hann ekki
allir. Sveinbjöm nýtur augljóslega
mikillar virðingar og sagði Logi
Ólafsson til dæmis að hann kæmi
til greina sem leikmaður sumars-
ins ásamt Amari.
Bjarki hefur hingað til verið
þekktur sem sá tvíburanna sem
skorar minna, en það segir ekki
alla söguna: „Ég tel að tvíburarnir
hafi klárað þetta fýrir Skagann í
sumar, eins og þeir hafa verið að
gera í yngri flokkunum til þessa.
Þeir hafa yfir að ráða ótrúlegri
tækni, hraðabreytingum og skot-
getu — þetta eru yfirburðamenn.
Þá horfi ég ekki síður til Bjarka,
sem stundur fellur í skuggann af
ArnarGunn- AnthonyKarl
laugsson sókn- Gregorysókn-
arleikmaður, (A. arleikmaður,
Val.
því hann skorar ekki eins mikið.
Hann er hins vegar gífurlega mik-
ilvægur, eins og sannaðist þegar
hann meiddist í sumar. Þá datt
botninn úr miðjuspilinu," sagði
Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs.
Þá fékk Valsmaðurinn Salic Por-
cha einnig atkvæði í þessa stöðu
og sömuleiðis Haraldur Ingólfs-
son, sem er án efa einn besti kant-
maður deildarinnar.
Arnar sóknarmaður
sumarsins
Það er víst óhætt að segja að
Arnar Gunnlaugsson sé öruggur
með markakóngstitilinn þetta ár-
ið. Hann hefur skorað fjórtán
mörk nú þegar ein umferð er effir
og er fimm mörkum á undan
næstu mönnum. Allir þjálfararnir
luku einróma lofsorði á Arnar
sem sóknarmann og hann var
óumdeildur í kjöri um sóknar-
mann sumarsins. „Hann er ótrú-
lega skemmtilegur leikmaður og
þeir bræður báðir. Það er ein-
hvern veginn annar stíll yfir
þeim,“ sagði Njáll Eiðsson, þjálfari
FH. Einnig fékk Anthony Karl
Gregory atkvæði íþessa stöðu.
Öruggtað
annaðhvor
Eyjamenn e
KA-menn fall
Fallbaráttan í fyrstu deild er nú
í algleymingi. Fjögur lið — ÍBV,
KA, Breiðablik og Víkingur —
geta fallið. Eyjamenn eru með 13
stig og 22 mörk í mínus, KA-
menn hafa sömuleiðis 13 stig en
14 mörk í mínus. Breiðablik er
með 15 stig og 15 mörk í mínus,
Víkingar hafa 16 stig og 10 mörk í
mínus. Samkvæmt þessu eiga
Víkingar mesta möguleika á að
halda sér uppi. Á laugardaginn
leika fBV og KA í Eyjum og Vík-
ingur og Breiðablik á Víkingsvelli.
En lítum nánar á möguleika lið-
anna.
Það er ljóst að annaðhvort IBV
eða KA feUur. Það lið sem tapar á
laugardaginn er fallið, geri liðin
jafntefli falla þau bæði og enda
með 14 stig. Bæði liðin verða því
að sigra; jafntefli gefur ekki neitt.
Ef leikurinn í Eyjum endar ekki
með jafntefli og Breiðablik tapar
þá falla Blikar ásamt liðinu sem
tapar í Eyjum. Fá 15 stig og verða
einir í næstneðsta sæti. Blikar geta
líka fallið geri þeir jafntefli við
Víkinga. Ef KA-menn vinna í Eyj-
um og Blikar og Víkingar gera
jafntefíi falla Blikar og Vestmann-
eyingar. KA og Breiðablik verða
þá bæði með 16 stig en marka-
hlut
fall KA-
manna er
betra. Vinni
ÍBV hins vegar
KA og Víkingur og Breiðablik
gera jafntefli þá falla KA og ÍBV.
IBV fær þá 16 stig eins og Blikar
en hefur lakara markahlutfall, það
er að segja nema Eyjamenn vinni
með sjö mörkum, þá fara Blikar
niður.
Vinni Blikar Víkinga eru þeir
sloppnir. Víkingar hafa 10 mörk í
mínus, KA-menn 14 og Eyjamenn
22. Tapi Víkingar til dæmis fyrir
Breiðabliki með 2 mörkum og
KA-menn vinni Eyjamenn með 2
mörkum enda KA-menn og Vík-
ingar með 16 stig og jafna marka-
tölu. Víkingar halda sér þá uppi
þar sem þeir hafa skorað fleiri
mörk. KA þarf því að vinna ÍBV
Um helgina
l1.1'M<l.lil‘M.ra'Mil
3-0 ef Víkingar
tapa 2-0. Tapi
Víkingar 1-0
þurfa KA-menn
að vinna 4-0.
Eyjamenn hafa 12
mörkum meira í mínus en Vík-
ingar og því varla raunhæft að
Víkingar falli þótt ÍBV vinni KA
og Víkingar tapi fyrir Blikum.
Tapi Víkingar 1-0 þurfa Eyja-
menn að vinna KA 11-0, tapi Vík-
ingur 2-0 þurfa Eyjamenn að
vinna 10-0 og svo framvegis.
Möguleikarnir eru því margir.
Víkingar eiga þó ljóslega mestan
möguleika á að halda sæti sínu.
1.DEILD
Valur - KR kl. 14. Bæði þessi lið
hafa spilað vel í sumar. KR-lngar
skila þó ekki titli f ár frekar en
síðustu tuttugu og eitthvað árin.
En þeir eiga möguleika á
Evrópusæti leggi þeir Valsmenn
að velli.
(BV - KA kl. 14. Eyjamenn unnu
fyrsta leik sinn á heimavelli f
sumar er þeir lögðu Fram um
daginn, í síðasta leik unnu þeir
Breiðablik og geta enn bjargað
sér frá falli. KA-menn eru Ifka f fall-
hættu. Baráttuleikur.
Víkingur - IBK kl. 14. Eitthvað
hefur verið að hjá Víkingum i
sumar og einhvern veginn hafa
hlutirnir ekki verið ( lagi hjá
Blikum. Annar botnslagur og
bæði lið geta fallið.
FH - Fram kl. 14. Frammararnir
bókstaflega verða að vinna þen-
nan leik. Ömurlegu sumri þurfa
þeir að Ijúka með sigri. FH-ingar
verða þó varla auðveld bráð.
Þór - (A kl. 14. Nýkrýndir
(slandsmeistarar mæta Þórsurum.
Góð lið hvor tveggja. Þórsarar
eiga möguleika á Evrópusæti.
GOLF
Viking Brugg-mótið Þetta
þykir sumum ugglaust fallegt
nafn. Golfklúbbur Akureyrar með
golfmót, leiknar verða 36 holur
með og án forgjafar. Ætli sé fullur
bfl af bjór fyrir að fara holu í
höggi?
FRJÁLSAR íþróttir
Haustskokk (R verður hlaupiö f
dag. Fyrir hrausta skokkara og
önnur ofurmenni.
Frjálsiþróttamót landsbankans og
Húsasmiðjunnar. Fimleikafélag
Hafnarfjarðar stendur fyrir þessu
móti f Kaplakrika. Vonandi verða
sett eínhver met, það fara að
verða sfðustu forvöð. Aðeins hafa
verið sett þrjú met á árinu; í
hástökki og tvö í spjótkasti. Það er
slaemt segir forystufólkið í frjáls-
um.
BÍLASPORT
Mótorkross. Vélhjólaiþrótta-
klúbburinn (VÍK) tryllir og tætir.
Síðasta mótið á tfmabilinu og
gildir til (slandsmeistaratitils.
Víking Brugg-mótið Seinni
dagur mótsins á Akureyri.