Pressan - 10.09.1992, Page 31
FIMMTUDAGUR PRíSSAN 10. SEPTEMBER 1992
31
vandlætingarfulla fféttatilkynningu út af
skýislu Rikisendurskoðunar um samein-
ingu Glettings í Þor-
lákshöfn og Hraðffysti-
húss Stokkseyrar í Ár-
nes hf. Byggðastofnun
hafnar þeirri niður-
stöðu að hlutur HS
(sem Hlutafjársjóður
Byggðastofnunar átti 77
prósenta hlut í) hefði átt að vera um eða
yfir 40 prósent en ekki 36 prósent. Stofn-
unin gerir sérstaka athugasemd við að
skýrslan hafi verið gerð opinber og harm-
ar að slíkt trúnaðarbrot gagnvart Glettingi
hafi verið framið. f þessu sambandi má
geta þess að Morgunblaðið var fyrst fjöl-
miðla með fféttir úr skýrslunni, en á því
blaði er þingmaðurinn Árni Johnsen
blaðamaður í hálfu starfi eða svo. Það var
einmitt þingmaðurinn Ámi Johnsen sem
bað forseta þingsins að láta Ríkisendur-
skoðun skoða sameininguna...
P
X lestir sem til þekkja eru sammála um
að tilfæringamar í máli Hagvirkis/Fómar-
lambsins og Hagvirkis-Kletts séu ekki síst
tilkomnar fyrir beina
eða óbeina tilstuðlan ís-
landsbanka, viðskipta-
banka verktakafyrir-
tækisins. Hagvirkis-
samsteypan skuldar
bankanum háar fjár-
hæðir og má bankinn
ekki til þess hugsa að fyrirtækið fari á
hausinn. Liður í þessu var að heimila yfir-
töku Hagvirkis-Kletts á 700 milljóna
króna skuld Hagvirkis með tilheyrandi
eignatilfærslu á veðsettum vélum og tækj-
um. Hagvirki fellur undir Val Valsson,
bankastjóra f fslandsbankanum, og má
geta þess að þeir Valur og Jóhann G.
Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis-sam-
steypunnar, eru bræður í Frímúrarareglu
fslands...
s
W mábátaútgerðarmenn í Höfnum á
Suðumesjum era enn að deila við Björg-
vin Lúthersson, oddvita hreppsins,
vegna lokunar á höfninni. Höfninni var
samkvæmt oddvitanum lokað vegna þess
að ekki tókst að fá vigtarmann, en tnllu-
karlar halda því ff am að ffáfarandi vigtar-
manni hafi verið bolað úr starfi þrátt fyrir
góða ffammistöðu, að tilstuðlan hins of-
ríka oddvita. Oddvitinn vandar trillukörl-
unum ekki kveðjumar og hefur nánast
kallað þá ómaga á framfæri hreppsins.
Þessu neita þeir vitaskuld og bendir einn
þeirra, Ríkharður Ásgeirsson, á að
hann geti reyndar ekki svarað fyrir eig-
anda bátsins „Kolla“, sem er skráður á
eiginkonu oddvitans...
XT að er annars um deilurnar milli
trillukarlanna og oddvitans f Höfnum,
Björgvins Lútherssonar, að segja að
höfninni þar var að hluta til lokað vegna
skulda á hafnargjöldum. Samkomulag
hafði sl. vor náðst fynr tilstuðlan Lands-
sambands smábátaeigenda Um að þeir
sem skulduðu fengju frest til desember
næstkomandi til að greiða skuld sfna og
þá vaxtalaust. En tveimur mánuðum síðar
höfðu þeir skuldugu hins vegar fengið
rukkunarbréf ffá Sveini Snorrasyni lög-
ffæðingi um að gera skil á gjaldföllnum
hafnargjöldum með tilheyrandi kostnaði
innan tíu daga frá dagsetningu bréfsins,
að öðram kosti yrði að grípa til frekari
innheimtuaðgerða...
J.\xflvíkingar eru komnir upp í fyrstu
deild eftir nokkurra ára dvöl f annarri
deild. Margar skrautfjaðrir hafa verið að
reytast af liðinu undanfarin ár, þeir leik-
menn hafa flestir verið hjá KR. En nú
velta menn því fyrir sér hvað verði um
þessa gistivini í Vesturbænum. Leikmenn
á borð við Ragnar Margeirsson og
Gunnar Oddsson eru engir unglingar
lengur þótt báðir séu í fullu fjöri. Heyrst
hefur að þeir gætu vel hugsað sér að klára
ferilinn heima f Keflavfk, enda era báðir
búsettir þar. í þokkabót er nú rætt um að
Rúnar Kristinsson sé á leiðinni f at-
vinnumennsku. Ef þetta gengur allt effir
gætu KR-ingar verið í dálftið erfiðri stöðu
á næsta keppnistímabili...
ST eir ólafur Ragnar Grímsson og
Friðrik SophussoA, fyrrverandi og nú-
verandi fjármálaráð-
herrar, deila nú af
mætti um raunveraleg-
an halla rfkissjóðs og
má af orðum Ólafs
Ragnars skilja að Frið-
rik hafi fengið Sigurð
Þórðarson ríkisendurskoðanda til að
leggja dæmið upp á þann hátt sem yrði
Ólafi sem óhagstæðastur. Deilan snýst um
hvort gera eigi ríkissjóð upp á rekstrar-
granni eða greiðslugranni. I fýrra tilfell-
inu era allar skuldbindingar ársins settar
á blað, þótt greiðslur þeirra vegna fari
ff am á mörgum áram. I síðara tilfellinu er
' aðeins það tiltekið sem kemur til útborg-
unar á árinu. Þarna á milli geta verið 5
milljaiuai eins og ffam hefur komið. Sig-
urður ritaði nýlega grein í Álit, tímarit
löggiltra endurskoðenda, og lýkur henni
með svofelldum orðum: „Ástæðu fortíð-
arvandans er því að hluta til að leita í því
að ráðamenn hafa ekki þurft að horfast í
augu við afleiðingar gerða sinna þegar
ríkisbúskapurinn er gerður upp á
greiðslugranni"...
O
O
co
<
o
OO
Láttu þér ekki
duga minna!
HYUNDAI Swper 386DL
Intel 80386DX 33MHz
4MB vinnsluminni (stækkanl. í 32MB)
SuperVGA 14" lággeisla litaskjár
52MB harður diskur
3,5" disklingadrif, 1,44MB
Eitt hliðtengi, eitt raðtengi og
músatengi
Windows 3.1 og mús
MHz
129.900.-
MHz
98.900.-
HYUNDAI Super 386SL
Intel 80386SX 20MHz
2MB vinnsluminni (stækkanl. í 8MB)
SuperVGA 14" lággeisla litaskjár
52MB harSur diskur
3,5" disklingadrif, 1,44MB
Eitt hliðtengi, eitt raðtengi og
músatengi
Windows 3.1 og mús
Skólapalcki 1
HYUNDAI Super 386SL..........Kr
JustWrite ritvinnsla fyrir Windows..Kr.
Hyundai HDP-930,
9 nála prentari meá kapli ...Kr.
Tölvuborð....................Kr.
Skólapakki 2
HYUNDAI Super 386DL........Kr.
JustWrite ritvinnsla fyrir Windows..Kr.
Hyundai HDP-930,
9 nála prentari með kapli..Kr.
Tölvuborð..................Kr.
Pakkaverð samtals ...
Verð miðað við staðgreiðslu.
Greiðslukjör:
VISA- og EURORAÐGREIÐSLUR
GREIÐSLUSAMNINGUR GLITNIS
Kr. 98.900,-
's.. Kr. 14.000,-
Kr. 15.900,-
Kr 8.200,-
Kr. 137.000.-
Kr. 129.900,-
's ..Kr. 14.000,-
....Kr. 15.900,-
Kr 8.200,-
Kr. 168.000.-
Tæknival
SKEIFAN 17 ■ 7T 191) 681665, FAX: (91) 680664
MEÐ FORSKOT
Á FRAMTÍÐINA