Pressan - 10.09.1992, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
35
Örn músarrefur og
Sigurður refmús
„Það er ekkert annað en
skemmtileg staðreynd að þeir Öm
Árnason og Árni Tryggvason eru
feðgar og hafa báðir farið og fara
með aðalhlutverk í Dýrunum í
Hálsaskógi,“ sagði Sigrún Val-
bergsdóttir, leikstjóri Dýranna í
Hálsaskógi, um valið á Erni í ann-
að aðalhlutverkanna. Ekki liggur
hins vegar ljóst fyrir með hvort
hlutverkið, hlutverk Mikka refs
eða Lilla klifurmúsar, Örn fer. Sig-
urður Sigurjónsson fer með hitt
aðalhlutverkið á móti Erni. Sam-
lestur á leikritinu hefst 21. sept-
ember og verður þá gert kunnugt
hver fer með hvaða hlutverk. Af
útlitinu að dæma væri Örn líklegri
í hlutverk refsins og Sigurður í
hlutverk Lilla klifurmúsar. Þó hafa
margir einnig velt því fyrir sér að
Sigurður gæti eins verið góður í
hlutverki hins illgjarna refs og Örn
geti verið ansi músarlegur.
Sem kunnugt er fór Bessi
Bjarnason með hlutverk Mikka
refs og Árni Tryggvason lék Lilla
klifurmús undir leikstjórn Klem-
enzar Jónssonar í uppfærslu
Þjóðleikhússins fyrir einum þrjá-
tíu árum. Mikki og Lilli hafa æ síð-
an verið miklir heimilisvinir ís-
lenskra barna.
I nýju uppfærslunni verður
Flosi Ólafsson í hlutverki Héra-
stubbs bakara og bakaradrenginn,
sem fer heldur betur rangt með
piparkökusönginn en bjargar um
leið bakarínu frá því að fara á
hausinn, leikur Hjálmar Hjálm-
arsson. í hlutverki bangsapabba
og bangsamömmu verða Erlingur
Gíslason og Guðrún Stephensen
og í hlutverki ömmunnar sem
bjargast á yfirnáttúrulegan hátt frá
því að verða étin af broddgeltin-
um er Herdís Þorvaldsdóttir. Að
auki er Sigrún í leit að fjórum lág-
vöxnum en knáum krökkum til
að fara með hlutverk bangsa-
drengsins og íkomabarnanna.
„Þetta er afskaplega fallegt leik-
rit. Torbjörn Egner er með alveg
yndislegan boðskap í þessu verki,
sem er að ef menn ætla að búa
saman í sátt og samlyndi á þessari
jörð verða þeir að koma sér upp
ákveðnum lögum sem allir verða
að lúta, líka þeir sem sjá sér hag í
því að fara framhjá lögunum. Svo
er sá boðskapur að maður verði
að nýta vel það sem jörðin gefur af
sér. Þetta verk stenst því alveg
íyllilega tímans tönn.“
Mynd sem
kóngurinn fékk
ekki að sjá
Þessa dagana stendur yfir í
Perlunni sýning þar sem
Montblanc-pennar eru pn'sað-
ir í bak og fyrir, eins og þeir
eiga vísast skilið þessir glæsi-
legustu pennar sem um getur.
Þarna stendur yfir farandsýn-
ing þar sem þekktir ljósmynd-
arar og listamenn sýna Mont-
blanc-penna við ýmsar að-
stæður og í ýmsu umhverfi.
Pennarnir eru fínir og mynd-
irnar líka, en þó var ákveðið að
reyna ekki á fi'nar taugar Har-
aldar Noregskonungs sem varð
gengið framhjá sýningunni í
Perlunni. Nokkrar myndir
höfðu verið teknar niður þegar
kóngur fór hjá — þær voru
álitnar of djarfar, meðal ann-
arraþessi...
Vaxbornar úlpur rifnar út
Það hefur lengi þótt töff að vera
í vaxborinni úlpu en ekki næstum
allir hafa getað leyft sér þann
munað vegna þess hversu dýrar
þær hafa verið. Nú hefur verslun-
in Sautján dottið niður á vaxborn-
ar úlpur sem allur almenningur
getur höndlað fjárhagslega. I stað
þess að töfra ffam um og yfir tíu
þúsund krónur þarf nú einungis
að reiða fram tæpar fimm þús-
undir.
Gæðamunurinn milli verð-
flokka liggur helst í því að dýrari
úlpurnar eru vaxbornar tvisvar en
hinar aðeins einu sinni. Það segir
manni hins vegar enginn að ódýr-
ari flíkin geti ekki þjónað sama til-
gangi sem hversdagslegur hh'fðar-
klæðnaður en margir hafa komist
að sömu niðurstöðu, því úlpurnar
renna út eins og heitar lummur.
Þegar PRESSAN hafði sam-
band við verslunareigendur voru
úlpurnar uppseldar en von var á
sendingu sem hangir nú að öllum
líkindum á slám verslananna. Það
fylgir þó eigninni skylda sem gild-
ir jafnt um alla verðflokka og ekki
má vanrækja. Úlpurnar verður að
vaxbera.
Vaxbornar úlpur hafa lengi þótt töff en ekki hafa allir getað leyft sér
að kaupa þær. Nú eru þær fáanlegar á mun lægra verði en áðurog
renna út eins og heitar lummur.
RAKOMIN HEIM
TILAÐVERA
Fyrir fjórum árum vakti athygli nýtt andlit í ís-
lenska dansflokknum. Þetta var kraftmikill
og hafði mjög persónulegan og
skemmtilegan dansstíl. Þarna var Þóra Guð-
johnsen komin en hún hélt utan til Þýska-
lands eftir eins árs viðdvöl hjá
dansflokknum. Þar ytra
dansaði hún bæði við Borg-
arleikhúsið í Darmstadt og
í Köln, en það er
sami dansflokkur og Katrln Hall hefur unnið
með. „Nú er ég komin heim til að vera,“ segir
Þóra. „Að vísu veit maður auðvitað aldrei en
það er þetta sem ég hef hugsað mér.“
Þóra byrjaði í ballettinum þegar hún var tólf
ára og var á þeim tíma búsett í Belgíu.
Seinna, þegar heim kom, lærði hún bæði
hjá Eddu Scheving og Báru Magnús-
’ íttur. „Ég tók dansinn strax alvar-
lega og ætlaði ekki að stunda hann
eingöngu sem áhugamál. Það
ef til vill til af þvl að ég var
í fimleikum áður og þoldi mjög
illa keppni. Það var vilji fyrir því
að ég yrði þjálfuð upp fyrir
Ólympíuleika í þrjú ár en við
fór ég öll í kerfi og hvíslaði
að mömmu að ég vildi bara fara í
ballett. Það var byijunin og ég sé
ekki eftir því.“ Fyrir Þóru var það spennandi og gaman að skipta yfir í
dansinn en hún telur aðalmuninn við dansinn hér heima og erlendis fel-
ast í jafnari vinnu og fleiri sýningum. „Vinnan sjálf er ekkert ósvipuð en
fer að vísu eftir því með hvernig flokki er starfað. Ef litið er yfir það sem
flokkurinn hefur gert hér heima er augljóst að hann hefur gert mjög vel
miðað við sambærilega flokka erlendis. Samkeppni er ekki harðari er-
lendis en persónulega á ég í mestri samkeppni við sjálfa mig.“
íslenskir áhugamenn um mat
leika nú á als oddi og svo sem eng-
in furða því stóra stundin er rann-
in upp — tími villibráðarinnar er
hafinn. Skólasetningar og grá Esja
eru ekki það eina sem einkennir
haustið. Þá gengur hreindýra- og
gæsaveiðitímabilið í garð og er
þess jafnan Ibeðið með mikilli
óþreyju. Ekki aðeins af veiði-
mönnum neltlur einnig af unn-
endum villibráðar, sem nú geta
fengið glænýja hreindýra- og
gæsasteik á ýmsum veitingastöð-
um borgarinnar, matreidda af
mikilli kúnst.
Ýmis tilbrigði eru við matseld-
ina á gæsakjöti en ákveðin hefð
virðist vera fýrir matreiðslunni á
hreindýrakjöti. Á Kaffi Óperu er
boðið upp á framandlega heiða-
gæs með kínverskum fjallasvepp-
um fyrir 2.550 krónur og Aust-
fjarða-hreindýr með sveppum í
púrtvínsbættri gráðostasósu fyrir
2.950 krónur. A Hótel Holti eru
gæsabringumar bornar ffam með
rifsberja- og döðlusósu og kosta
2.775 krónur. Hreindýrasteikin á
þeim bæ er einnig með gráðosta-
sósu og seld á 3.190 krónur. Á
Grillinu á Hótel Sögu er annars
vegar boðið upp á hreindýrasteik í
ijómasósu og hins vegar með púr-
tvínssoði. Gæsabringan er borin
ffam í villibráðarsósu og em allir
réttirnir á 2.700 krónur. Á Hótel
Óðinsvéum er gæsabringan
pönnusteikt með rauðvínsberja-
sósu á 2.300 krónur og heilsteikta
gæsin maríneruð í kryddlegi, á
2.450 krónur.
Þótt unnt sé að fá hreindýra- og
gæsasteik á nokkrum veitinga-
stöðum 1 Reykjavík allan ársins
hring er kjötið að sjálfsögðu lang-
best nýtt og því mest ásókn í villi-
bráðina í kringum veiðitímabilið,
frá september og fram í febrúar.
Eiga sumir matsölustaðir sér fasta
viðskiptavini sem sólgnir eru í
hreindýra- og gæsakjöt og láta sig
því aldrei vanta f villibráðarveisl-
una.
Ferðin til Vesturheims Far and
Away ★★★ Rómantísk stórmynd,
ákaflega gamaldags en oft stór-
skemmtileg. Nicole Kidman stelur
senunni frá bónda sínum, Tom
Cruise, sem á í erfiðleikum með
írskan framburð. Það er ekki oft að
Hollywood gerir svona myndir nú-
orðið.
Batman snýr aftur Batman Re-
turns ★★★ Augnkonfekt og ágæt
skemmtun, þrátt fyrir þunnan
söguþráð. Samt erfitt að horfa á
leikmynd í tvo tíma.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg þrátt fyrir augljósa
hnökra.
Tveir á toppnum 3 Lethal Wea-
pon 3 ★★ Minni hasar og minna
grín en í fyrri myndum en meira af
dramatískum tilburðum.
B I O H O L L I N
Hvítir geta ekki troðið. White
Men Can't Jump ★★★ Glúrin
mynd og oft stórsniðug um hvítan
mann og svertingja sem iðka
körfubolta á götum Los Angeles.
Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir
fjölskyldur þar sem börnin eru á
aldrinum sjö til tólf ára.
Höndin sem vöggunni ruggar.
The Hand that Rocks the Cradle
★ ★★ Ansi spennandi mynd um
vitstola barnfóstru.
Tveir á toppnum Lethal Weapon
★★ Minni hasar og minna grín en
í fyrri myndum, en meira af dram-
atískum tilburðum.
HASKOLABIO
Svo á jörðu sem á himni ★★★ í
heildina séð glæsileg kvikmynd og
átakanleg. Varla hefur sést betri
leikur í íslenskri bíómynd en hjá
Álfrúnu litlu Örnólfsdóttur.
Ár byssunnar Year of the Gun
★★ John Frankenheimer var eitt
sinn með efnilegri leikstjórum, síð-
an hefur hann gert myndir í með-
allagi og þar fyrir neðan. Þessi er í
meðallagi.
Rapsódía í ágúst Rhapsody in
Agustirkic Kurosawa- mynd með
Richard Gere í aðalhlutverki. Hug-
Ijúf og heillandi.
Falinn fjársjóður Pay Dirt ★★
Dálítið dellukennt grín og því mið-
ur dellukennd spenna einnig.
Nokkrir góðir smásprettir leikar-
anna ná ekki að halda myndinni á
floti. Hún sekkur eins og steinn í
lokin.
Steiktir grænir tómatar Fried
green tomatoes ★★★ Konumynd;
um konur og fyrir konur. Góðir eig-
inmenn láta undan og fara með.
LAUGARASBIO
Ferðin til Vesturheims Far and
Away ★★★ Rómantisk stórmynd,
ákaflega gamaldags en oft stór-
skemmtileg. Nicole Kidman stelur
senunni frá bóndanum, Tom Cru-
ise, sem á í erfiðleikum með irskan
framburð. Það er ekki oft að Holly-
wood gerir svona myndir núorðið.
Ameríkaninn American Me ★ ★
Einföld, gamaldags, þokkalega
sterk, en minnir á köflum á
fræðslumynd í sjónvarpi. Það er
erfitt að vera Mexíkómaður.
Hringferð til Palm Springs Ro-
und Trip to Heaven H Allt að því
óbærileg leiðindi.
Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir
fjölskyldur þar sem þörnin eru á
aldrinum sjö til tólfára.
■imiiiMBii
Varnarlaus Defenseless ★★★
Ágætur þriller, þótt áhorfandinn sé
stundum á undan söguþræðinum.
Sam Shepard er aðgerðalítill leikari
að vanda.
Ógnareðli Basic Instinct ★★
Markaðsfræðingarnir fá báðar
stjörnurnar. Annað við myndina er
ómerkilegt.
Kolstakkur ★★★★ Mögnuð
mynd; hæg, seiðandi og falleg.
Besta myndin í bænum.
Lostæti Delicatessen ★★★★
Hugguleg mynd um mannát.
Homo Faber ★★★★ Mynd sem
allir verða að sjá.
Biskup í vígahug H Á ekkert er-
indi á opinberar sýningar.
STJORNUBIO
Ofursveitin Universal Soldier ★★
Mynd um karlmenni, fyrir stráka
sem kannski pína kærusturnar
með. Schwarzenegger gerir þetta
allt miklu betur.
Náttfarar Sleepwalkers ★★ Það
er orðið langt síðan tekist hefur að
búa til almennilega mynd eftir
sögu Stephens King. Þessi tilraun
er með því skárra af afurðum síð-
ustu ára. Hún mun gleðja hörð-
ustu unnendur hrollvekja.
Óður til hafsins The Prince of Ti-
des ★★★ Nick Nolte heldur
myndinni á floti.
Börn náttúrunnar ★★★ Rómað-
asta íslenska bíómyndin.
KBim
Veggfóður ★ ★★ Fjörug og
skemmtileg unglingamynd en ef
til vill ekki stórkostlegt kvikmynda-
verk.
Batman snýr aftur Batman Re-
turns ★★★ Augnkonfekt og ágæt
skemmtun, þrátt fyrir þunnan
sög'uþráð. Samt erfitt að horfa á
leikmynd í tvo tíma.