Pressan - 10.09.1992, Page 36
36
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
• Sinfóníuhljómsveitin tekur þátt í
þingi ungra norrænna tónlistarmanna
og tónskálda sem nú er haldið í
Reykjavík. Á tónleikum þetta kvöld
stjórnar hljómsveitinni Bernharður
Wilkinson en á efnisskránni eru verk
eftir norræn ungmenni, Guðrúnu Ingi-
mundardóttur, Helge H. Sunde, Johan
Jeverud, Martin Palsmar og Jouhani
Nouroval. Þarna verður líka spilað verk
eftir Gérard Grisey, sem er Frakki og
heiðursgestur hátíðarinnar. Langholts-
kirkja kl. 20.
imnmiiMiii
• UNM-tónleikar, í tilefni þings
ungra norrænna tónlistarmanna. Nor-
rœna húsið kl. 20.30.
Leiklist
Gildran gaf nýverið út plötu
sem gengur undir því einfalda
nafni „Út“. Tónlistin kemur á
óvart, að minnsta kosti lagið
„Chicas“, sem eins og naftiið gef-
ur til kynna er í suðrænum stíl.
Lagið hefur ærlega slegið í gegn og
má leiða líkum að því að hljóm-
sveitin hafi tekið upp nýja tónlist-
arstefhu... eða er þetta bara sölu-
brella? „Þetta er eina lagið á plöt-
unni í þessum dúr og varð til í
gríni á æfmgu,“ segir Sigurgeir
Sigmundsson gítarleikari. „Gildr-
an hefur aldrei verið „hit-band“
en það er ákveðinn hópur sem
kaupir tónlistina okkar og hann
fer ekki ffá okkur. Margir halda að
lögin okkar séu eingöngu þunga-
rokk en því fer fjarri og við lítum
einfaldlega á þetta sem rokk. En ef
Meðlimir Gildrunnar segja tón-
list sfna vera fyrir alla — Ifka
húsmæður á besta aldri.
út í það er farið má segja að ég sé á
móti allri flokkun á tónlist yfirhöf-
uð og við viljum allt eins að 65 ára
gamlar húsmæður hlusti á okkur
sem aðrir.“
Tónlistin á plötunni er ekki
ósvipuð því sem Gildran hefur lát-
ið ffá sér fara hingað til, en þessi
er þó unnin á lengri tíma og má
segja að hún sé á vissan hátt fág-
aðri. Hljómsveitin ætíar síðan að
spila vítt og breitt um landið til að
fylgja útgáfunni eftir og meðlimir
hennar hlakka mikið til að hita
upp fyrir Jethro Tull seinnipartinn
í mánuðinum. „Við erum búnir
að bíða eftir þessu og hlökkum
mikið til.“ Tilhlökkunin fær vænt-
anlega sína fyrstu útrás á útgáfu-
tónleikunum á Púlsinum í kvöld.
• Norrænn skúlptúrhópur heldur
sýningu í Nýlistasafninu. Þetta eru
upprunalega nemendur frá ríkislista-
skólanum í Ósló sem hafa starfað
saman síðan 1988 og sýnt víða á
Norðurlöndunum. Hópurinn, sem
samanstendur af sjö listamönnum,
fimm konum og tveimur körlum,
sýndi I vor (Kaupmannahöfn, en nú er
röðin semsagt komin að Reykjavík.
Opiðkl. 14-18.
0 Ludwig Eikas er norskur listamað-
ur sem hefur gert röð grafíkmynda
þar sem hann túlkar verk meistara
Henriks Ibsen. Myndir þessar hanga
uppi í anddyri Norræna húss. Opið kl.
9-19.
0 Magnea Reynaldsdóttir sýnir
Ijóð í Gallerí II á Skólavörðustíg. Hún
hefur ekki áður birt Ijóð opinberlega,
en hefur fengist við Ijóðagerð frá
unga aldri. Opiðkl. 14-18.
0 Samsýning á Kjarvalsstöðum.
Þarna leggja í púkk ungir listamenn
(sem reyndar eru smátt og smátt að
færast á miðjan aldur); Kristján Stein-
grímur, íris Friðriksdóttir, Ragnar Stef-
ánsson og Ólafur Glslason. Síðasta
helgi. Til sýnis í húsinu eru líka teikn-
ingar eftir Alfreð Flóka og afstrakt
höggmyndir eftir Ásmund Sveinsson.
Opiðkl. 10-18.
0 Hafsteinn Austmann er einn
mestur afstraktmaður í Islenskri
myndlist og langt (frá nýgræðingur. Á
sýningu í listsalnum Nýhöfn í Hafnar-
stræti sýnir Hafstelnn málverk og
vatnslitamyndir sem hann hefur gert
slðustu þrjú árin. Opið kl. 14-18.
0 Kristín G. Gunnlaugsdóttir,
listakona norðlenskrar ættar, sýnir í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju qrafík-
myndir, teikningar og málverk frá og
með laugardegi. Sumt með trúarlegu
ívafi. Opið kl. 14-18.
0 Ólöf Sigurðardóttir opnar á
fimmtudag málverkasýningu í Gallerí
Úmbru sem er í gömlu húsi á Bern-
höftstorfunni. Opið kl. 12-18.
0 Donald Judd, einn frægasti lista-
maður sem nú er á dögum, sýnir
nokkur verk eftir sig í sýningarsalnum
Annarri hæð, sem er á Laugavegi 37.
Opið miðvikttdaga kl. 14-18 eða eftir
samkomulagi.
0 fslensk málverk hanga uppi í
Listasafni (slands, úr eigu safnsins. Á
kannski betur við þennan túristamán-
uð en jórdönsku kjólarnir. (sölunum á
neðri hæð gamla íshússins eru verk
eftir frumherja Islenskrar málaralistar, á
efri hæðinni eru nýrri verk, auk nokk-
urra verka frá útlöndum. Opið kl.
12-18.
0 Blöðum flett er sýning á breskum
bókverkum svokölluðum sem stendur
yfir I Listasafni fslands. Þarna eru verk
eftir 32 listamenn — þetta eru verk
þar sem er lagt út af bókarforminu.
Opiðkl. 12-18.
0 Æskuteikningar Sigurjóns. Elstu
myndirnar á sýningunni I Safni Sigur-
jóns Ólafssonar eru frá æskuárum
hans á Eyrarbakka, en flestar frá árun-
um 1924 til 1927 þegar hann stund-
aði nám I Iðnskólanum. Skemmtileg
sýning og svo er alltaf gaman að
koma I safnið á fallega staðnum I
Laugarnesinu, út viö Sundin blá. Opið
kl. 14-17.
SÝNINGAR
• Það var svo geggjað.
lÁrbæjarsafn er löngu hætt
lað snúast bara um moldar-
Ikofa og gömul hús, heldur
"llka um fólk, sumt I ekki allt-
of fjarlægri fortið. Til dæmis hippasýn-
ingin sem ber með sér andblæ áranna
1968 til 1972, þegar herbergi ung-
linga önguðu af reykelsi, allir gengu I
útviðum buxum og karlmenn voru
hæstánægðir með að skvetta á sig
Old Spice- rakspíra. Opiðkl. 10-18.
0 Húsavernd á fstandi. Aðalstræti
er sorglegt dæmi um þegar menn
vilja hvort tveggjá halda og sleppa,
vernda og rífa. Vissir hlutar Akureyrar
eru á hinn bóginn fagurt dæmi um
skynsamlega húsavernd. ( Bogasal
Þjóðminjasafns stenduryfir sýning þar
sem er rakin saga húsaverndar á (s-
landi. Opiðkl. 11-16.
ÞIÓNU5TU5ÍMI
KYNLÍF5IN5
Minnisvarði um Charcot
BRAND-
ARADAO-
BÓKIN
BÓK MÁN-
AÐARINS
Bók mánaðarins er
tvímælalaust Svarta
bókin sem gefin Hefiu-
verið út í nærri 45
þúsund eintökum,
og fæst ókeypis.
Áætiað er að gefa
hana út í 50 þús-
und eintökum
og fer hver að
verða síðastur að eignast
bókina þvl síðustu 5 þúsund
ókeypis eintökunum verður
dreift í bókaverslanir Ey-
mundsson næstu daga. Þetta
er því tvímælalaust ein vinsæl-
asta bók septembermánaðar.
Fyrsta nóvember íær svo bókin
verð því þá mun hún hækka úr
0 krónum í 880 krónur, eða
um 880%. Ætli Jóhannes viti af
þessu?
En hvað er svona merkilegt
við þessa bók? Svosem ekki
margt því þetta er einföld dag-
bók sem hefur þó óvenju-
marga laugardaga; allt að því
þrír laugardagar eru í viku
hverri. Hún er einnig uppfull af
aulabröndurum um ljóskur,
Hafnfirðinga og fleira fólk. Það
nýtilegasta við hana er senni-
lega það að hún er nothæf
undir minnispunkta.
Aðstandendur bókarinnar
eru félagarnir Tveir með öllu,
Bylgjumennirnir Gulli Helga
og Jón Axel.
Klassíkin
99-25-25, du, du, du, du, du,
du. 0 — alltaf á tali, jæja, ég reyni
aftur 99-25-25. Ansað: „Komiði
sæl og velkomin 1 kynfræðslu-
símann. Ég heiti Jóna Ingibjörg. í
kynífæðslusímanum leitast ég við
að svara spurningum um kynlíf
og skyld efni sem ég veit að vakna
hjá fólki á ýmsum aldri.“ Karl-
mannsrödd: „Farðu eftir leiðbein-
ingunum sem koma hér á eftir til
þess að nálgast það svið sem þú
vilt ffæðast um, en verð þjónust-
unnar er 66,50 mínútan. Þú ýtir á
einn fyrir umfjöllun um
getnaðarvarnir, tvo fyrir
umfjöllun um samkyn-
hneigð, þrjá fyrir kyn-
sjúkdóma, fjóra fyrir
umfjöllum um jákvæðar
hliðar kynlífs, fimm fyr-
ir unglinga og kynlíf og sex fyrir
kynlífsvandamál. Veldu núna!
Ýtt á takka númer 6. Karl-
mannsrödd aftur: „Ýttu á einn
fyrir almenna umfjöllun um kyn-
lífsvandamál, tvo fyrir bráðasáð-
lát...“
Ýtt á takka númer 4. Karl-
mannsrödd: „Ýtið á takka númer
eitt fyrir almenna umfjöllum um
jákvæðar hliðar kynlífsins, tvö fyr-
ir nauðsyn snertingar, þrjú fyrir
hættuminna kynlíf, fjögur fyrir
hjálpartæki ástalífsins, fimm fyrir
einkenni góðra ástarsambanda."
Ýtt á takka númer fimm. Jóna
Ingibjörg: „Hvað er merki um gott
ástarsamband? Við erum öll með
á hreinu hvað ber vott um gott
ástarsamband, hjónaband eða
sambúð. En fæst okkar spá í
hver eru einkenni á góðum
samböndum þar sem kost-
irnir yfirgnæfa gallana. Ef
laust mætti tína til
sem skipta málí ei
beggja, gott kynlíf, uppbyggfleg
rifrildi, hreinskUin tjáskipti...“
Hann unni íslandi og þar mun minningin um hann og skip hans lifa.
___ l Kæra Jelena. Þena vin-
, , sæla stykki byrjar aftur að
1 jrúlla eftir sumarfrí. Færri
________Ikomust en vildu slðasta
vetur, nú er hægt að bæta úr því. Sér-
deilis ágæt sýning; gott stykki, ung-
lingalandsliðið leikur vel og leikstjór-
inn veit hvað hann er að gera. Þjóð-
leikhúsið, litla svið, kl. 20.30.
0 Kæra Jelena. Mesta sigurstykki
síðasta leikárs. Þjóðleikhúsið, litla svið,
kl. 20.30.
Ókaypis
ac Á hinu háa Alþingi eru
þeir aö rífast um EES.
Þingpallar eru náttúrlega
orðlagðir fyrir hvað þeir
laða að sér skrítna pappíra, nef-
tóbakskarla, aldraða framsóknar-
menn sem hafa aldrei fest yndi á
mölinni og kannski fólk sem eng-
inn vill fá í heimsókn. Stundum
fyllast þeir líka af þungbúnum op-
inberum starfsmönnum, kennur-
um eða fóstrum sem telja sig berj-
ast í heilögum rétti. En þarna er
þó alltént húsaskjól og ákveðin
lágmarksskemmtun, sem getur
komið sér vel fyrir þann blanka
þegar ekki er hægt að slá lengur
fyrir kaffibolla.
Málþing
EM Hafið og ísiand. Vís-
Öindafélag íslands efnir til
||ráðstefnu þar sem verður
ÍÉreynt að komast til botns í
þessu mikilvæga máli, hafinu og ís-
landi. Norrœna húsið frá kl. 9.
• Bókmenntahátíð verður sett
þennan dag og stendur til 19. sept-
ember. Flestir gestanna eru norrænir,
þeirra á meðal Anne Cath. Vestly,
Klaus Rifbjerg og Torgny Lindgren, en
það koma líka alþjóðlegir höfundar:
Hans Magnus Enzensberger frá Þýska-
landi, Christoph Ransmayr frá Austur-
ríki, Pascal Quignard frá Frakklandi og
kannski Martin Amis frá Englandi.
Norrœna húsið kl. 17.
Myndlist
• Hringur Jóhannes-
PPBjE son málar skýrar og litrík-
rC.- ár myndir, einhvers staðar
á mörkum popplistar og
naturalisma. Hann er hagari á línur en
flestir íslenskir málarar og það er tals-
verður viðburður þegar hann opnar
sýningu I Norræna húsinu á laugar-
dag .Opiðkl. 14-19.
0 Listhús í Laugardal verður opnað
á laugardaginn. Þetta er nánast einka-
framtak Tryggva Árnasonar lista-
manns, en I húsinu eru vinnustofur
fyrir listamenn, myndmenntaskóli,
kaffi- og veitingastofa og sitthvað
fleira. Fyrstir til að sýna I húsinu eru
þeir Jón Reykdal, sem sýnir málverk,
og Leífur Breiðfjörð glerlistamaður.
0 Káre Tveter er norskur listamaður,
I talsverðu uppáhaldi hjá drottningu
Noregs, og málar norrænar vetrar-
stemmingar, úr kulda og einsemd á
Svalbarða. Myndir eftir Tveter voru
meðal annars valdar sem framlag Nor-
egs á heimssýninguna I Sevilla, en
hanga líka uppi I Hafnarborg I Hafnar-
firði. Opiðkl. 12-18.
0 Sigríður Asgeirsdóttir glerlistak-
ona er með sýningu I Listmunahúsinu
sem er I gamla Hafnarhúsinu. Flott-
asta gallerí í bænum. Opið kl. 14-18.
dauði, enda frægur maður í heimalandi sínu. Hann
hafði kannað Suðurheimskautið og líka Norður-ís-
hafið og naut ekki ósvipaðrar virðingar í heimaland-
inu og Shackleton á Bretlandi og Amundsen í Noregi.
Ekki spillti fyrir að hann var af góðum ættum, faðir
hans var ffægur læknir og einn helstur ffumkvöðull
nútímageðlækninga, en fyrri kona Charcots var dóttir
rithöfundarins Victors Hugo.
Frakkar hafa ekki gleymt Charcot og heldur ekki
íslendingar. f áratugi hefur staðið við suðurenda
jarðfræðideildarhúss Háskóla fslands látíaus minnis-
varði um Charcot, steinn og koparskjöldur, merkt
Ríkharði Jónssyni 1957. Á steininum stendur: Dr.
Jean Baptiste Charcot, fæddur í París 15.7.1867, fórst
með skipi sínu Pourquoi Pas? á Þormóðsskeri 16.9.
1936. Hann unni fslandi og þar mun minningin um
hann og skip hans lifa.
Því má svo bæta við að nokkrir skipverja Charcots
eru grafnir í Fossvogskirkjugarði. Það eru líkin sem
rak seint á land og voru því ekki flutt til Frakklands.
?• Caput-hópurinn, það
ieru hljóðfæraleikarar I yngri
Ikantinum, tekur þátt I þingi
________lungra norrænna tónlistar-
marírra og leikur verk eftir Atla Ingólfs-
son, Niels Martinsen, Tuomas Kante-
linen, Thomas Griberg, Jesper Koch
og Jon Oivind Ness. Langholtskirkja
kl. 20.30.
Nafn doktors Jean Charcots hefur
rifjast upp fyrir íslending-
um við frumsýningu
Svo á jörðu sem á
himni, kvik-
myndar Krist-
ínar Jóhann-
esdóttur.
Charcot er
þar ein að-
alpersón-
an, land-
könnuð-
urinn sem
fórst ásamt
skipshöfn
sinni á Mýr-
um í septem-
ber 1936.
Charcot var
Frökkum harm-
Meistarinn á leið til Bretlands
Á næstunni verður lagt í leikferð til Bretlands með verð-
launaverkið „Ég er meistarinn" eftir leikskáldið unga
Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttir, þó með öðrum leikur-
um en þeim sem fóru með rulluna i Borgarleikhúsinu. Þeir
sem taka við hlutverkunum eru Baltasar Kormákur er tek-
ur við aflngvari Sigurðssyni, Edda Heiðrún Backman leik-
ur hlutverk Elvu Óskar Ólafsdóttur og Gunnar Eyjólfsson
tekur við hlutverki Þorsteins Gunnarssonar. Leikstjóri
verður áfram Hallmar Sigurðsson. Undirleikari er Pétur
Jónasson.
Work
&
Turn
i