Pressan - 10.09.1992, Page 39
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
39
Framhald afblaðsíðu 37.
Annað verkið sem heitir „ígildi“ er blár
vinnugalli með sjö litlum hvítmáluðum
trébútum sem passa vel í vasa. Samlíking-
in við gjaldmiðil kemur óneitanlega upp í
hugann, að Ólafur hugsi sér þessa kassa
sem gjaldmiðil fyrir einhver ótiltekin list-
ræn verðmæti. Þetta er sannarlega
óvenjuleg hugmynd, því oftast lítum við
svo á að listaverk standi íyrir listræn verð-
mæti sem við skynjum í verkinu sjálfu. En
listaverk geta verið ígildi verðmæta sem
ekki er beinlínis hægt að skynja í verkinu,
t.d. geta þau haft sögulega eða félagslega
þýðingu o.s.frv. Það eru þessir ytri þættir
sem Olafur einbeitir sér að, og þess vegna
losar hann sig við alia innri byggingu og
samsetningu verksins, til að beina athygl-
inni að öðrum þáttum sem hafa áhrif á
verðmætasköpun í myndlist.
Það eru spennandi hugmyndir þarna á
ferðinni og það verður fróðlegt að fylgjast
með hvernig Ólafur vinnur úr þeim. Hins
vegar verður þessi sýning hugmyndum
hans varla mikið til ffamdráttar, uppsetn-
ingin er of „passíf'. Það er í sjálfu sér ekk-
ert athugavert við það að flest ef ekki öll
verkin hafa verið sýnd áður, en í þessu til-
felli verður útkoman sú að verkin virka
eins og ígildi sjálffa sín, þ.e. þau standa
fyrir verk og hugmyndir Olafs Gíslasonar.
011 verkin sem voru á sýningunni í Gaílerí
einn einn eru þarna til staðar, m.a. lista-
verk fyrir kaffivél, sem stóð úti á gólfi í
galleríinu undir kaffivél með rjúkandi
kaffi fyrir gesti, en stendur hér án kaffivél-
ar! Sama er að segja um verk sem var gert
fyrir farangursgeymsluna í tilteknum Su-
baru hér í bæ, en er nú án Subaru. Þær
torræðu hugmyndir sem hann er að fást
við krefjast yfirvegaðri framsetningar en
hér er til að dreifa.
Ragnar Ingólfsson byggir verk sín líka
á kassalaga einingum, sem eru þó marg-
brotnari að aliri gerð. Allir eru þeir jafn-
stórir, gerðir úr blikkumgjörð, ílangir,
með litaðri glerrönd, þar sem á hafa verið
prentaðar ýmist setningar á ensku eða
samhverf munstur og tákn. Einingarnar
eru hluti af „byggingarkerfi fyrir mynd-
list“. Hægt er að raða einingunum upp að
vild, allt eftir kringumstæðum hverju
sinni. Tvö dæmi um slíka uppröðun eru á
sýningunni. Þetta hljómar ágætlega. En
svo spyr maður sjálfan sig: Byggingarkerfi
til að byggja hvað? Hvaða möguleika býð-
ur byggingarkerfið upp á? Maður gæti
haldið að áletranimar væru lykillinn að
óvæntum möguleikum, en það er erfitt að
sjá það, enda eru setningarnar ósamstæð-
ar og út í hött, eins og t.d. „God is a dog“,
og „This is not a statement“. Áletranimar
virðast satt að segja vera frekar léttvæg
viðbót við byggingarkerfið. Ég gæti jafn-
vel ímyndað mér að einingamar nytu sín
best einar sér, eða fáeinar saman.
Kristján Steingrímur notar líka málm,
en verldn hans em þó myndrænust. Þau
em gerð úr fjórum þáttum; málmplötu,
munstri sem er sandblásið í plötuna, mál-
uðum gmnni og áprentuðum hlutamynd-
um. Hann stillir saman, á skemmtilegan
hátt, efnisföstum eiginleikum og óefnis-
kenndum. Hann dregur fram málminn,
bókstaflega með því að beygla hann fram
og sandblása inn í hann munstur. Hluta-
myndirnar eru eins og óljósar minningar
sem fljóta ofan á yfirborðinu. Ólíkir hlutar
myndarinnar eru annaðhvort á leiðinni
inn í eða út úr myndinni. En verkin njóta
sín varla nógu vel í svo stómm og opnum
sal, lokaðra umhverfi mundi henta þeim
betur.
Verk frisar Friðriksdóttur hafa sér-
stöðu á sýningunni að því leyti að þau búa
yfir útgeislun og hlýju. I einu verki er raf-
magnshella og í öðm tvö hitaelement sem
senda varmageisla sína í átt að áhorfend-
um. Það er allsérkennilegt að verða fyrir
jafnlíkamlegum áhrifum af myndlistar-
verki, sérstaklega þar sem þau eru af
ósýnilegum völdum. Á gólfinu er verk
sem bjargar samt hinum frá því að detta
niður á það plan að vera lítið annað en
sniðug hugdetta, en það samanstendur af
stórum og massífum steinsteypuhellum
og inni í þeim miðjum eru litlar, ofnar
blómamyndir. Af þessum verkum að
dæma er fris að spenna til hins ýtrasta
andstæðurnar milli hins kalda og óhagg-
anlega og hins heita og óstöðuga, í bók-
staflegri merkingu í fyrrnefndu verkun-
um en í táknrænni merkingu í því síðast-
nefnda. Það verður gaman að sjá hvernig
hún vinnur frekar úr hugmyndinni.
Þegar vel tekst til með samsýningar þá
styðja ólík verk við bakið hvert á öðru og
góð stemmning myndast, en yfirbragðið á
þessari sýningu er frekar þungt og dæmið
gengur ekki nógu vel upp.
Gunnar J. Ámason
HAFNARSTRÆTI15
REYKJAVÍKSÍMI13340
FRI4R HEIMSENDINGAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR
PÖNTUNARSÍMI
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grensósvegl11
— þjónar þór allan sólarhringlnn
Hljómsveit
Rúnars Þórs
leikur fyrir dansi.
Mætum hress á góöan
dansleik
skemmta föstudag
og laugardag
OPHD 23.00-03.00
Snyrtilegur klæbnaöur,
20 ár
NILLABAR
Hreystimanna-
félagiö
skemmtir um helgina.
Meiriháttar gaman.
Frábær stemmning
OPIÐ 18.00-03.00
Snyrtilegur klæbna&ur,
20 ár
STRANPGÖTU 30 j SÍMI650123
Opið föstudags- og
laugardagskvöld
ki. 11-03
H A M
tónleikar fimmtudagskvöld
SILFURTÓNAR
útgáfutónleikar föstudagskvöld
BOGOMIL FONT
laugardagskvöld
Kuran Swing
sunnudagskvöld
Aðaíríttir
Skötuscísteiffmeðfersku grœnmeti í
estragon rjómasósu.
990.-
Cjfjáð„tfiai“ fjúfíingabtinga meðeggjanúðfum
og fivítfaufssásu
‘Kr. 1.590.-
Cjriffaður famftafiryggur borinn jram meðrósin
piparsoði' og sefjurótar- œtiþistfamaufi.
%r. 1.490,-
Iris Guðmundsdóttir syngur
fyrir matargesti ásamt djasstríói
Einars Braga laugardagskvöld
Opið föstudags- og
laugardagskvöld
sími 689686
Cjríffuð nautafinjggsneið með sbaffottulauíj
sveppum, ferstjum baunutn og madeirasósu.
%r. 1.890.- "