Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 4

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 Yfirburða- KIRKJUORGEL „Enn er kallað á peninga úr vösum almennings til að hœgt sé að kaupa orgel. Hugur manna stefnir hátt. Ekkert minna en yfirburðahljóðfœri dugir. En hverjum er þetta til dýrð- ar? ég spyr. Varla drottni alls- herjar. Honum er áreiðanlega nokk sama hvort orgelin í kirkj- um landsins eru risastór eða lít- il, svo fremi sem athafnir þœr sem haldnar eru þar innan dyra farafram í einlœgni oggóðum guðsótta Sigríður Pálsdóttir Jón Stefánsson, organisti i Langholtskirkju: „Það mega allir hafa sínar skoðanir á því hvort það sé við hæfi að kaupa kirkjuorgel í Langholtskirkju eða ekki. Og það er ekkert óeðlilegt við það að fólk sé ekki sammála um það. Staðreynd málsins er sú að þetta orgel sem Langhoits- kirkja er að kaupa er minna en í meðallagi stórt, eða 30 radda orgel. Það eru mörg miklu stærri kirkjuorgel til á landinu. Langholtskirkja er mikið not- uð undir tónleika og í raun með mesta tónleikaaðsókn á eftir Há- skólabíói. Þetta er eina kirkjan sem getur tekið inn alla Sinfón- íuhljómsveitina og því er fjár- mögnun á orgelinu að okkar dómi meira en einkamál safnað- arins.“ Bókaminnið BRESTUR „ Víkverja þykir vœnt utn að- alútibú Borgarbókasafnsins í Þingholtunum og þótti áncegju- legt að komast að því að safnið hefði verið tölvuvœtt á dögun- um. Að hans matifylgir þó sá galli þessu framfaraspori að nú fœr lánþegi aðeins einn lausan miða með dagsetningu skila- dags á bókunum og því er alltaf hcett við því að miðinn týnist eða minnið bresti. Er þess vegna viðbúið að núfjölgi rukkunar- miðunum, þar sem lestrarhest- ar eru sakaðir um að liggja á bókunum eins og ormar á gulli.a Víkverji Morgunblaðsins. Þórdís Þorvaldsdóttir borgarbókavörður: „Það er eins og með allt; það eru ekki alltaf allir ánægðir með allar breytingar. Áður en tölvuvæð- ingin kom til voru þykk spjöld í vösum aftan í bókinni en nú fær fólk lausan miða með dagsetn- ingu skiladags bókarinnar. Ef fólk vill ekki gleyma sér getur það einfaldlega sett þessa lausu miða í þessa sömu vasa og voru fyrir aftast í bókinni. Þeir sem glötuðu gömlu spjöldunum voru rukkaðir fyrir það en það er ekki gert ef þessi miði glatast. Svo getur fólk einfaldlega hringt eða komið á safnið til að sjá hvaða bækur það er með í láni og hve- nær það fékk þær að iáni..“ BlT YFIR BARNAEFNI „Ég varðyfir mig bit þegar ég sá pistil Hinriks Bjarnasonar í DV um talsetningu á efnifyrir börn. Sjálf á ég tvö börn sem fylgjast grannt með barnaefn- inu í Ríkissjónvarpinu. Meðal þess sem þau horfa á er Grall- araspóarnir. Það er nú búið að sýna 17 þœtti af 30. Ég hef ekki orðið vör við að þeir hafi verið talsettir þótt þeir hafi verið þýddir en það er allt önnur saga. Samt sem áður fullyrðir Hin- rik Bjartiason að íslenskt tal hafi „verið sett við allt erlent efni fyrir yngstu börnin allan þann aldarfiórðung sem sjón- varpið“ hafi starfað. Ég held að hann hljóti að rugla þarna sam- an talsetningu ogþýðingu texta, sem auðvitað er tvennt ólíkt. “ Hinrik Bjarnason, inn- kaupastjóri Sjónvarpsins: „Sú fullyrðing mín að efni fyrir yngstu kynslóðina, þ.e. forskóla- bömin, sé talsett stendur óhögg- uð. En hvað varðar þætti eins og Grallaraspóana, Tomma og Jenna, Villa spætu og svo ffam- vegis lítum við á allt það efni sem fjölskylduþætti, enda hefur það sýnt sig að það er fólk á öll- um aldri sem horfir á þessa þætti. Einnig reynist oft erfitt að Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ B E S T Það sem er best við Krist- ján er hreinskilni hans; maður getur alltaf treyst þvi að hann komi fram- an að manni, hversu leiðinlegt sem það getur svosem verið. Hann mjög duglegur málsvari atvinnugreinar sinnar og fer vel ofan í öll mál sem að honum eru rétt. Stærsti kostur hans er þó sennilega sá að hann hefur ekki þanið út app- aratið LÍÚ i þau 20 ár sem hann hefur starfað þar. V E R S T Kristján er harðdrægasti sérhagsmunasinninn á landinu. Hans stærsti galli er sá að hann er ein- ráður. talsetja ameríska þætti þar sem annars vegar þyrfti að setja inn tal og blanda svo saman við hljóðeffekta sem oft eru í þess- um teiknimyndum. Á hinn bóginn eru hugmynd- ir uppi um að setja inn sögu- menn í bæði leiknar myndir og teiknimyndir fyrir börn og hafa jafnframt það upprunalega tal sem fyrir er í myndinni. Sögu- maður myndi þá í meginatrið- um segja frá því sem fer persón- um myndanna á milli, líkt og góður faðir eða móðir myndi gera.“ Engar konur, TAKK Nýlega kom í Ijós að konurfá ekki aðgang að Flugbjörgunar- sveitinni. „Við teljum okkur ekki vera aðgera lítið úrkonum með því að hafa þetta fyrir- komulag." Jón Gunnarsson, formaður Flugbjörg- unarsveitarinnar. Stefanía Traustadóttir hjá Jafnréttisráði: „Okkur hafa borist tvær athugasemdir fá konum sem vildu inn í Flug- björgunarsveitina en fengu ekki aðgang á grundvelli kynferðis síns. Við hjá Jafnréttisráði höf- um óskað eftir skýringum hjá sveitinni en okkur hafa engar borist enn. Við bíðum því frek- ari skýringa. Við vitum ekki enn hvort um brot á jafnréttislögum er að ræða, en þar kveður skýrt á um að öll mismunun á grund- velli kynferðis sé óheimil. Eina sem leyff er í lögunum er tíma- bundin mismunun til að rétta hlut kvenna.“ F Y R S T F R E M S T KJARTAN ÖRN KJARTANSSON PRESSAN/JIM SMART er leyfishafi McDonald’s á Islandi en fyrirtækið fær ekki óskalóð sína í nýja miðbæn- um. Kjartan er þó ekki búinn að gefa upp vonina um að fá góða lóð undir veitinga- staðinn sem hann vill helst opna næsta vor. ■ Bíðum eftir nýrri lóð Hvaða gerið þið nú? „Ég hef í sjálfu sér ekkert til að sækja um nú. Okkur hefur ekki verið gefinn kostur á neinum öðr- um lóðum en því er ekki að leyna að þessi lóð við Listabraut var okkar fyrsti kostur. Ég vona bara að ráðamenn í borginni sjái sér fært að leysa vanda okkar, en okk- ur hefur verið tekið vel hjá flest- um.“ Hvencer höjðuð þið hugsað ykkuraðopna? „Það var ætlunin að opna næsta vor og til að það megi verða verðum við að fá svar sem fyrst. Það er heppilegt að opna á vorin en þá er til dæmis ferðamanna- straumurinn í hámarki. Það er óskað eftir lóð fyrir svokallað „drive thru“ og til þess var þessi lóð mjög heppileg. Það er reynsla þeirra erlendis að það er mestur vöxtur í slíkum afgreiðslum.“ Til að opna ncesta vor yrðuð þið að hafa hraðar hendur? „Já, en við erum líka tilbúnir að fara af stað um leið og við fáum lóð. Við vitum nákvæmlega hvernig húsið og umhverfið eiga að líta út og Ingimundur Sveins- son arkitekt hefur fallist á að að- stoða okkur við hönnun hússins.“ En íslenska nautakjötið — er það ekkert vandamál? „Við vorum búnir að fá grænt ljós á það. Það eru ákveðin slátur- hús sem verða samþykkt og þar verður kjötið skorið og valið á sér- stakan hátt. Út úr því eiga að koma ekta gæðanautahamborgar- ar. Kjúklingaiðnaðurinn á íslandi er kominn skemmra á veg en æskilegt væri, enda orðið fyrir skakkaföllum í gegnum tíðina. Við höfum þó fundið samstarfs- aðila. Ég tel að koma McDonald’s hingað verði án efa til þess að hafa góð áhrif á landbúnaðinn og einn- ig matvælaiðnaðinn hér. Alis stað- ar þar sem ég þekki til er McDon- ald’s-stöðunum vel tekið og ég vona að svo verði einnig hér.“ Hver kemur til með að eiga staðinn? „I mínu tilfelli verður um að ræða íslenskt fyrirtæki en undir eftirliti móðurfyrirtækisins. Það skilur mest eftir sig í landinu og færir okkur þekkingu. Gert er ráð fyrir að á staðnum verði um 90 manns á launaskrá og ef vel geng- ur er hugsanlegt að fleiri slíkir staðir rísi. Ég vona að það verði grundvöllur fyrir fleiri McDon- ald’s stöðum, en fyrst er að koma þeim fyrsta upp!“ Á RÖNGUNNI TVÍFARAR Augnablik Eysteinn! Þarftu endilega alltaf að setjast í uppáhaldsstólinn minn? Þcer eru báðar í ihaldssamara lagi, bjargvcettirnar tvcer, Einar Oddur Kristjánsson útgerðarmaður og Jim Taggart rannsóknar- lögregluþjónninn skoski. Þeir koma hvorfrá sínum afkima heimsins, eru vanir verkstjórn og báðir eiga til að vera hvassyrtir og segja meira en þeir cettu að gera. Síðast en ekki síst eru þeir báðir haldnirþeim leiða sið að líta stórt á sig ogþykjast vita öll- um öðrum betur um öll mál milli himins ogjarðar. En burtséð frá innrcetinu eru þeir Einar Oddur og Mark McManus, sem leikur Taggart, hreint skuggalega líkirí útliti. Skolleitt hárið er farið að þynnast ögn og báðir eru þeir eilítið rauðbirknir með tekið andlit og undir litlum hvikulum augunum gefur að líta bauga þeirra, sem bera áhyggjur heimsins. Meira að segja eyrun eru eins og hvorugur hefur orð á sérfyrir að vera góður hlust- andi.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.