Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 37
____FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
37
kennslustund í málvöndun og séu
að æfa samræðufærni sína við
næsta mann. Og ef lesandanum
stendur ekki á sama um persón-
urnar er það vegna þess eins að í
hann er innbyggð skyldurækin
samúð gagnvart mannverum sem
verða að þola óblíð örlög.
I þessu verki bregst það tvennt
sem ekki má bregðast samtímis,
stíll og persónusköpun. Verkið er
því stórgallað. Hitt er svo annað
að höfundur er kornungur og á
vafalítið eftir að skrifa betri bækur
en þessa.
Ekki get ég haft af Fosnes hrós
norskra gagnrýnenda og segi því
það eitt að það er engum rithöf-
undi hollt að vera hossað ótt og
títt fyrir gallað verk og síst þeim
sem er að taka fyrstu sporin á rit-
höfundarbraut. Hins vegar þykir
mér illt að geta ekki bent á neitt
það í verkinu sem ég telji bera vott
um umtalsverða hæfileika og tek
mér því í munn orð bresku aðals-
mannanna þegar þeir hirtu syni
sína: „Mér fellur þetta þyngra en
þér, drengur minn.“
Hannes Sigfusson þýðir verkið
og þýðing hans virðist afar vönd-
uð, en ég vil mótmæla hástöfum
notkun á þeirri ljótu sögn „yfir-
þyrmast“.
Kolbrún Bergþórsdóttir
/ ritdómi um bók Pascals Qu-
ignard „Allir heimsins morgnar“
urðu þau leiðu mistök að
stjörnugjöfféll niður. Afhrifning-
artóni greinarinnar mátti þó
ráða að verkið hefði hlotið hœstu
einkunn eða jjórar stjörnur og
reynist það rétt vera.
KB
Gildran ígildru
GILDRAN
STEINAR
★★
Gildran yrði fyrsta
hljómsveitin hér á landi
sem fengi poppfálkaorð-
una ef slík viðurkenning yrði tek-
in upp. Hljómsveitin hefur staðið
af sér mótlæti og tómlæti með
jafnaðargeði og úthaldi sem jaðrar
við þráa. Það eina sem hefur hald-
ið Gildrunni saman er að því er
virðist óþrjótandi spilagleði, ekki
frægð né formúur, því Gildran
hefur alltaf staðið í skugganum og
aldrei slegið almennilega í gegn
nema kannski núna með „Chic-
as“; óþolandi lagi í suðrænni
sveiflu sem er sú sveifla sem kem-
ur mér a.m.k. alltaf í fúlt skap. Að
þetta lag sé orðið vinsælasta lag
sveitarinnar segir lítið um Gildr-
una en þeim mun meira um von-
lausan smekk útvarpsplötusnúða
landsins.
„Út“ er fimmta plata Gildrunn-
Aðþetta lagsé orð-
ið vinsœlasta lag
sveitarinnar segir
lítið um Gildruna
en þeim mun meira
um vonlausan
smekk útvarps-
plötusnúða lands-
ins.
GUNNAR HJÁLMARSSON
ar og ekki stórt skref á þróunar-
braut sveitarinnar. Þeir eru á dóli
á gamalreyndum miðum en
tæknivinnan og spilamennskan
hafa aldrei verið betri. Góður liðs-
auki er Sigurgeir Sigmundsson
sem gefur Birgi frjálsar hendur og
næði með kassagítarinn.
„Chicas" er miðpunktur plöt-
unnar, kirfilega holað niður um
miðbikið. Á undan rúllar Gildran í
fyrsta gír yfir fimm ffekar daufleg-
ar ballöður. „Teymdu mig“, lag í
jólalegri þjóðlagastemmu, er
ágætt, svo og endurgerð lagsins
„Villtur", sem áður kom út á plöt-
unni Huldumönnum. Aðrar
baliöður vekja þó ekki upp annað
en syfju — sem er kannski allt í
lagi ef maður er búinn með
svefhpillurnar.
Eftir suðræna sveifluhelvítið er
eins og Gildrupiltar fái vítamín
eða spark í rassinn. Þeir taka sig
saman í andlitinu og fara í rokkið
af þónokkrum eldmóði, sem hef-
ur að vísu verið meiri á fyrri plöt-
um. Það er eins og Bubbi Mort-
hens endurholdgist í Birgi söngv-
ara í „Nútímakonunni", og drykk-
felldur andi Toms Waits svífur yf-
ir vötnum í „Allir út“. „í skjóli
nætur“ og „FFH“ eru einnig hinar
ágætustu lagasmíðar en lögin á Út
rísa þó ekki upp úr eldstó meðal-
mennskunnar. Þar liggur Gildru-
hundurinn einmitt grafinn; þeim
hefur örsjaldan tekist að komast
úr miðjumoðinu og nánast aldrei
á Út. Lögin þeirra eru flest hug-
myndalítið mall úr uppskriftabók
rokksins, sæmilega seðjandi og
næringarrík, en biðraðir myndast
ekki beint við pottana. Textagerð-
in er líka mallkennd og óþarflega
mikið hangið í ríminu með þeim
árangri að maður hefur oft ekki
hugmynd um hverju er verið að
reyna að koma á ffamfæri.
Hvað með það; áskrifendur
Samúeb og margir fleiri koma til
með að eiga góðar stundir með
Út. Gaman væri þó að Gildran
kæmist einhvern tímann úr eigin
gildru. Sú gildra heitir meðal-
mennska.
Gunnar Hjálmarsson
Harðhausarokk
Ministry
Psalm 69
Sire
★★★
^WWMinistry er tæknivæddur
^^Jdúett frá Chicago og tón-
fc^dfllistin minnir á stjórnlaus-
an valtara sem rúllar niður
brekku, þung og hættuleg. Al Jo-
urgensen er aðalgaurinn; hann
hefur hamast við tólin í mörg ár,
gefið út fullt af plötum og starfað
með óteljandi hljómsveitum þótt
Ministry hafi alltaf verið hans
helsta sveit. A1 er voðalegur leður-
töffari með speglasólgleraugu og
hörkulegt útlit og innræti. Ekki
maður sem maður vildi mæta í
dimmu húsasundi. Tónlist hans
er alltaf að þyngjast, „Psalm 69“ er
myrk og ógnvekjandi og einna
best heppnaða platan til þessa.
Mikið er lagt upp úr drífandi vél-
rænum trommutöktum, þunga-
rokksáhrifm heyrast vel á grað-
hestarokkslegum gítarriffunum
og raddimar eru reiðar og greini-
legt að A1 á margar óuppgerðar
sakir við heiminn.
Keyrslan heppnast í mörgum
tilfellum vel. „NWO“, „Hero“ og
titillagið „Psalm 69“ eru gegnheil
hörkustykki sem bifreiðaverk-
stæðiseigendur ættu að spila á
verkstæðinu til að ná fullum af-
köstum starfsmanna og lagið „Jes-
us built my hotrod" hlýtur að telj-
ast danslag hörkutólsins í ár. Þar
leggur sýruhausinn Gibby Haynes
úr Butthole Surfers þeim lið með
fyndnu innleggi. Stundum fer þó
allur djöfulgangurinn yfir strikið
eins og í hinu átta mínútna
„Scarecrow" sem minnir á lúðra
Almannavarna og er álíka
skemmtilegt.
Ministry: Rokk fyrir vandláta
harðhausa.
Gunnar Hjálmarsson
Mikið er lagt upp
úr drífandi vélrœn-
um trommutöktum,
þungarokksáhrifin
heyrast vel á grað-
hestarokkslegum
gítarriffunum og
raddirnar eru reið-
ar og greinilegt að
Al á margar óupp-
gerðar sakir við
heiminn.
GUNNAR HJÁLMARSSON
18.00 Fjörkálfar.
18.30 Litla eimreiðin. Bresk teiknimynd.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 ★ Auðlegð og ástríður. Áströlsk sápa.
19.25 ★ Sókn í stöðutákn. Breskt grín.
20.00 Fréttir.
20.35 Skuggsjá. Ágúst Guðmundsson segirfrá kvikmyndun-
um í bíóhúsum borgarinnar.
20.50 ★★ Eldhuginn.
21.40 Evrópuboltinn. Svipmyndir úr leikjum í Evrópumót-
unum í fótbolta.
22.05 Kristallandið. Norskur þáttur, byggður á kvikmyndum
og Ijósmyndum sem málarinn Edvard Munch tók og
notaði sem efnivið í verk sín.
23.00 Fréttir og skákskýring Helga Ólafssonar.
18.00 Sómi kafteinn.
18.30 Barnadeildin.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Magni mús.
19.25 ★ Sækjast sér um líkir
20.00 Fréttir.
20.35 Kastljós. Það var frí í sumar, enda gerðist þá sennilega
ekki neitt sem útheimti fréttaskýringar. En nú er
fréttastofan búin að setja sig í stellingar og þá fara
hlutirnirað gerast..
21.05 ★★ Sveinn skytta. „Göngehövdingen" er danskur
Hrói höttur. Flestir hljóta að vera sammála um að sá
enski sé betri. Frekar klunnalegt.
21.35 ★★ Matlock.
22.35 ★★★ Risinn. The Giant. Amerísk, 1956. Stórmynd
með mjög frægum leikurum. Meðal annars merkileg
fyrir þær sakir að sá stirðbusalegi Rock Hudson reyn-
ist betri leikari en James Dean, sem var ágætt kyn-
tákn en mjög slæmur leikari. Elizabeth Taylor er íðil-
fögur og karlmennin keppa um hylli hennar. Annars
er þetta fín mynd, epísk og löng — næstum þrír og
hálfur tími.
16.45 Nágrannar.
17.30 Með afa.E
19.00 Fréttir.
19.30 Michael Jackson. Bein útsending frá tónleikum stór-
stjörnunnar í Búkarest í Rúmeníu, af öllum stöðum.
Jackson dansar vel og lögin hans eru fín.
21.45 ★★★ Angist Amelíu. Something About Amelia. Am-
erísk, 1984. Sjónvarpsmynd sem fjallar um sifjaspell
og afleiðingar þeirra.
23.20 Sérsveitin.
16.45 Nágrannar.
17.30 Áskotskónum.
17.50 Litla hryllingsbúðin.
18.15 Eruð þið myrkfælin? Þáttaröð um barnahóp sem
skemmtir sér við að segja draugasögur.
18.30 Eerie Indiana. E
19.19 19.19
20.15 Eiríkur.
20.30 H Kæri Jón.
21.00 ★ Stökkstræti 21.
21.50 ★★ Við erum engir englar. We’re No Angels. Amer-
ísk, 1989. Hæfileikar Roberts de Niro njóta sín ekki
mjög I þessari gamanmynd um tvo smábófa sem
strjúka úr fangelsi og komast undan í dulargervi
presta.
23.35 ★ Lufthansa-ránið. The 10 Million Dollar Gelaway.
Amerísk, 1991. Segir ekki frá ungri konu sem vann
10 milljón dollara f lottói, heldurfrá bófum sem stálu
þeirri upphæð úrvöruskemmu Lufthansa-flugfélags-
insá Kennedy-flugvelli.
01.05 ★★ Flugnahöfðingínn. Lord of the Flies. Amerísk,
1990. Endurgerð breskrar myndar sem var byggð á
frægri bók eftir Nóbelsverðlaunahafann William
Golding. Hópur drengja hafnar á eyðieyju og innan
skamms er villimannseðlið farið að segja til sín. E
—TTIIIIMIifl—
LAUGARDAGUR
16.30 Kastljós. Endursýnt frá föstudegi. Nýjung. E 17.00
íþróttaþátturinn. Logi Bergmann Eiðsson sérekki um
þáttinn.
18.00 Múmínálfarnir.
18.25 Bangsi besta skinn.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 ★ Strandverðir.
20.00 Fréttir.
20.35 Lottó.
20.40 ★★ Leiðin til Avonlea. Ágætir þættir, en farnir að
þynnast.
21.25 Týndir i óbyggðum. Kanadísk, 1990. Engum sögum
fer af þessari kanadísku sjónvarpsmynd sem fjallar
um tvo unglingspilta sem villast f óbyggðum Kan-
ada. Fólk horfir semsagt á eigin ábyrgð.
23.00 Hljómar. Frá 1967.1 þættinum syngja og leika Gunni
Þórðar, Berti Jensen, Rúnar Júl og Elli Björns lög eins
og Þú og ég, Sveitapiltsins draumur, Hringdu og
Heyrðu mig góða, sem þá voru nýútkomin á þlötu.
Sviðið er skreytt blómum og líka gítararnir. E
23.25 ★ Suðurríkjabombur. Dixie Dynamite. Amerísk, 1976.
Tvær systur setja allt á annan endann í smábæ eftir
að löggan skýtur föður þeirra, sem er stórtækur
bruggari. Frekar'þykir þetta lítið spennandi eða
frumleg mynd.
SUNNUPAGUR
14.20 Kvikmyndastjórinn John Huston. Huston gerði stór-
merkar myndir, til dæmis Möltufálkann, Afríkudrottn-
inguna, Key Largo og Heiður Prizzis. Að auki var
hann töffari, kvennamaður, drykkjufélagi Bogarts og
gáfumaður. Það er skandall að svona þætti skuli val-
inn slíkur sýningartími!
16.20 Lífið sjálft er besta víman. Þáttur um fíkniefnaneyslu.
E
16.55 Mið-Evrópa. Fyrsti þáttur af þremur í frönskum
myndaflokki þar sem er rakin saga þessa heimshluta
frá aldamótum. Nú er fjallað um tímabilið til innrás-
arinnar í Pólland 1939. Lofar góðu.
17.50 Sunnudagshugvekja.
18.00 Ævintýri úr konungsgarði.
18.30 Sjoppan. Sænsk leikfangadýr fara á stjá.
18.40 Baugalína. Dönsk teiknimynd. E
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Ævintýri frá ýmsum löndum.
19.30 H Vistaskipti.
20.00 Fréttir.
20.35 Hvíti víkingurinn. Fyrsti þáttur af fjórum. Sjónvarps-
mynd Hrafns Gunnlaugssonar þar sem þess er freist-
að að kristna ísland. Stytt útgáfa sem var sýnd í bíó
fékk afleita dóma; nú er að sjá hvort stjónvarpsútgáf-
an er betri.
21.45 ★ Vínarblóð. Ekki lofar hann góðu þessi myndaflokk-
ur um valsakóngana Strauss. Fyrsti þátturinn var afar
hallærislegur; þegar slagsmálin brutust út í brúð-
kaupinu var komin ærin ástæða til að slökkva og
kveikja ekki aftur.
22.00 Minningartónleikar um Karl J. Sighvatsson. Áður sýnt í
þrennu lagi, nú í heild. E
17.00 Undur veraldar. Ævintýramaðurinn ferðast um auðnir
Ástralíu og skoðar náttúruundur.
18.00 Spánn í skugga sólar. Heimildaþánur í fjórum hlutum
umSþán. E
17.00 Skýjakljúfar. Um listina að byggja skýjakljúf. E
18.00 Á mörkum hins byggilega heims. Um gæsir og hlé-
barða á Indlandi. E
09.00 Með afa.
10.30 Lísa íUndralandi.
10.50 Súper Maríó-bræður. Samanber tölvuspilið.
11.15 Sögur úr Andabæ. Andrés önd með íslensku tali.
Gengur það?
11.35 Merlin. Spámaður-og seiðkarl.
12.00 Landkönnun National Geographic.
12.55 Bílasport. E
13.25 Visasport. E
13.55 Rowan Atkinson. Klukkutímaþáttur með þessum
snjalla gamanleikara, herra Bean. E
15.00 ★★ Þrjúbíó. Heima er best. Back Home. Bresk, 1990.
Væmin sjónvarpsmynd um tólf ára stúlku sem kem-
ur aftur heim til Englands eftir að hafa dvalið í
Bandaríkjunum öll stríðsárin. Heima gengur allt út á
skömmtunarmiða.
16.40 Gerð myndarinnar Unforgiven. Sem er vestri eftir og
með Clint Eastwood og hefur fengið afbragðsgóða
dóma.
17.00 Hótel Marlin Bay. Þar berjast menn í bökkum.
18.00 Popp og kók.
18.40 ★★ Addams-fjölskyldan.
19.19 19.19.
20.00 ★ Falin myndavél.
20.00 ★★ Morðgáta.
21.20 ★★ Heillagripur. The Object ofBeauty. Amerísk, 1981.
Allt í þessari mynd á að vera sniðugt og smart, plott-
ið, umgjörðin, leikararnir. Gallinn er bara sá að allir
eru svo uppteknir af smartheitunum að hugmyndin,
sem er ekki svo slæm, fellur um sjálfa sig.
22.55 ★★ Á mörkum lífs og dauða. Flatliners. Amerísk,
1990. Tímabil dulrænu myndanna stóð stutt, varla
nema svona ár. En þetta er ein afurð þess og verður
varla talin til mikilla listaverka.
00.35 ★ Fáleikar með feðgum. Proud Men. Amerisk, 1987.
Charlton Heston leikur karlmenni sem er fúlt út í son
sinn, þrælfullorðinn mann, fyrir að hafa klikkað á
tíma Víetnamstríðsins. Hann álítur soninn örgustu
heybrók. E
SUNNUDAGUR
09.00 Kormákur.
09.10 Regnboga-Birta.
09.20 Össi og Ylfa.
09.45 Dvergurinn Davíð.
10.10 Prins Valíant.
10.35 Maríanna fyrsta.
11.00 Lögregluhundurinn Kellý.
11.30 Blaðasnáparnir.
12.00 ★★ Engin áhætta, enginn gróði. No Deposit, No Re-
turn. Amerísk, 1976. Barnamynd frá Disney, í góðu
meðallagi. Tveir krakkar láta eins og sér hafi verið
rænt til að ná fundum móður sinnar. í einu hlutverk-
inu er David Niven. E
13.55 ítalski boltinn. Bein útsending.
15.50 Trompet-kóngarnir. E
17.00 Listamannaskálinn. Um Gabriel Garcia Marquez, Kól-
umbíumann, Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum,
blaðamann og vin Kastrós. E
18.00 Lögmál listarinnar.
18.50 ★★★★ Kalli kanína og félagar.
19.19 19.19.
20.00 ★ Klassapíur. Þreytandi, leiðinlegar, Ijótar og vitlausar
amerískar kerlingar í Flórída.
20.25 ★★ Lagakrókar. Eða L.A. Law. McKenzie og Brachman
mættir á nýjan leik.
21.15 ★ Ævintýri Heiðu. Courage Mountain. Amerísk, 1989.
Alveg óskiljanlegt framhald á ævintýrum Alpastúlk-
unnar Heiðu. Óskiljanlegast er að myndin skuli yfir-
leitt hafa verið gerð og það fyrir ekki nema þremur
árum. Heiða lendir í fyrri heimsstyrjöldinni og fer að
skjóta sig í karlmanni. Hann er leikinn af Charlie She-
en, sem veit ekki sitt rjúkandi ráð.
22.50 ★★ Arsenio Hall. Meðal gesta hans eru leikkonan
fagra Sean Young og Luke Perry, kyntáknið úr Vinum
og vandamönnum.
23.35 ★★★★ Seinheppnir sölumenn. Tin Men. Amerísk,
1987. Stórvel heppnuð gamanmynd þar sem allir
fara á kostum: Handritshöfundurinn og leikstjórinn
Barry Levinson (Rainman, Avalon) og leikararnir Ri-
chard Dreyfuss og Danny De Vito. Algjört möst. E
Við mælum með • Stórmyndinni Giant í Sjónvarpinu á fimmtudag. James Dean var kyntákn en vondur leikari... • John
Huston í Sjónvarpinu á sunnudag. Kvennabósanum og töffaranum hefur samt verið valinn hneykslanlegur sýningartími...
• Hvíta víkingnum í Sjónvarpinu á sunnudagskvöldið. Eru sjónvarpsþættirnir betri en bíómyndin? • Michael Jackson í
beinni útsendingu frá Búkarest á Stöð tvö á fimmtudagskvöldið. Hann dansar vel.
★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni