Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 14

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 Staða SÍS er mun verri en ársreikningar gefa til kynna EIGWFE SAMBANDSINS OFMETIDIIM MILLJABO Laugalækur 2a, öðru nafni Sambandshúsið. Sambandið metur fermetrann á fimmtán þúsund krónur í reikningum sínum. Samband íslenskra samvinnu- félaga hefur gengist í ábyrgðir fyr- ir dótturfyrirtæki sín fyrir tæpan milljarð króna. Líkur eru taldar á að Sambandið þurfi á endanum að greiða um helming þessara skulda, þær sem komnar eru til vegna Verslunardeildarinnar (nú Miklagarðs hf.) og Jötuns hf. Sambandið átti í árslok í íyrra 1.467 milljónir í eigin fé. Þegar tekið er tillit til áðurnefndra ábyrgða, 240 milljóna króna rekstrartaps fyrstu átta mánuði þessa árs, 120-150 milljóna króna skuldbindinga SfS vegna eftir- launagreiðslna, ótryggra skulda dótturfyrirtækja við það og líklegs ofmats á eignum er ljóst að raun- veruleg eiginfjárstaða Sambands- ins er mun verri en ársreikningar gefa til kynna og vel hugsanlega neikvæð. HÁLFUR MILLJARÐUR í HÆTTU VEGNA ÁBYRGÐA f skýringum við ársreikninga Sambandsins kemur fram að SÍS hefúr undirgengist miklar ábyrgð- arskuldbindingar fyrir hönd dótt- urfyrirtækja sinna og skyldra fyr- irtækja. Þessar tölur koma ekki fram í eiginlegum reikningum Sambandsins, en raunveruleikinn að baki þeim getur gerbreytt nið- urstöðutölum reikninganna. f útskýringunum segir að „ábyrgðarskuldbindingar, sem ekki koma á annan hátt fram í ársreikningnum, [nemi] 960 milljónum króna í árslok 1991. f sumum tilfellum eru fleiri aðilar en Sambandið í ábyrgð fyrir við- komandi skuldbindingu“. Sam- kvæmt upplýsingum PRESS- UNNAR er hér um að ræða ábyrgðir sem einkum eru til komnar vegna fjögurra fyrirtækja: Verslunardeildarinnar (Mikla- garðs hf.), Jötuns hf., Samskipa hf. og íslenskra sjávarafurða hf. Þetta eru ábyrgðir á erlendum lánum sem gengið var frá í gegnum skrif- stofu SÍS í Lundúnum, en hún annaðist fyrir hönd SfS að miklu leyti samskipti við lánardrottna þar. Þeir, sem hafa kynnt sér reikn- inga Sambandsins grannt, telja ekki mikla hættu á að ábyrgðir vegna Samskipa og fslenskra sjáv- arafúrða falli á SÍS. í fyrra tilfellinu er um að ræða lán með veði í skipakosti Samskipa, en lánar- drottnar vildu baktryggja sig með því að fá ábyrgð Sambandsins líka, vegna óvissu um stöðu sam- steypunnar í kjölfar uppskiptingar hennar. Helmingur ábyrgðanna, um 500 milljónir, er hins vegar til kominn vegna viðskipta Verslun- ardeildarinnar og Jötuns hf. Bróð- urparturinn mun eiga rætur að rekja til innflutnings á vegum Verslunardeildar, en ábyrgðir Sambandsins vegna hans voru verulegar, sérstaklega eftir að Verslunardeildin hóf viðskipti við Austurlönd fjær. Kunnugir telja að litlar líkur séu á að þessum fyr- irtækjum takist að standa við skuldbindingar sínar og ábyrgð- irnar muni því falla á Sambandið. ÓTRYGGAR SKULDIR DÓTTURFYRIRTÆKJA Um síðustu áramót námu skuldir dótturfyrirtækja Sam- bandsins við það 1.114 milljónum króna. Þetta voru rúmlega áttatíu prósent veltufjármuna Sam- bandsins ári 1991. Þessar 1.114 milljónir eru til komnar vegna viðskiptaskulda dótturfyrirtækja og beinna lána Sambandsins til þeirra. Sigurður Markússon, stjórnar- formaður Sambandsins, vildi ekki gefa upp hvernig þessar skuldir skiptust á dótturfyrirtækin, en sagði hreyfmgu á þessum reikn- ingum í báðar áttir, þ.e. að fýrir- tækin greiddu skuldir og Sam- bandið lánaði þeim áffam. Þessar skuldir hækkuðu um 144 milljón- ir frá árinu 1990, sem þýðir að lánin voru þeim mun meiri en endurgreiðslur til SfS. Leiða má líkur að því að Sam- bandið þurfi ekki að lána stönd- ugustu fyrirtækjum sínum, svo sem Islenskum sjávarafurðum, Samskipum hf. og Regin, verulega fjármuni. Auk þeirra eru stærstu dótturfyrirtæki SfS Mikligarður,

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.