Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 30
30
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
ÍÞRÓTTIR
Enskir aðdáendur Erics Cantona
duttu í það og fundu ekki húsið
sem hann fæddist í.
Goðið
Cantona
Aðdáendur fótbolta-
stjarna leggja oft mikið á
sig og telja ekki eftir sér
langar ferðir til að reyna
að nálgast goðin. En ekki
eru allar ferðir til fjár. Það
fengu nokkrir ákafir aðdá-
endur franska landsliðs-
mannsins Erics Cantona,
sem nú leikur með Leeds,
að reyna. Nokkrir enskir
Leeds-áhangendur, sem
dá Cantona meira en flest
annað, ætluðu að gera sér
ferð til Stuttgart í síðustu
viku til að sjá leik Eng-
landsmeistaranna og
Þýskalandsmeistara
Stuttgart. Áður en til
Stuttgart var haldið var
meiningin að koma við í
París og sjá húsið sem
snillingurinn fæddist í. En
það fór á annan veg. Eng-
lendingar drukku sig
blindfulla í París, fundu
ekkihúsið sem Cantona
fæddist í og misstu af
leiknum. Þeir voru samt
þokkalega ánægðir með
ferðina þvi þeir töldu sig
hafa verslað í sama mat-
vörumarkaði og Cantona
verslar iðulega i...
Gervihnattasport
JBJH'lM-lll
13.00 Keila Screensport. At-
vinnumenn (keilu á ferð.
17.03 FjölbragSaglima Sky
Sports. Skyldi það vera til-
fellið að þetta sé allt fyrir-
fram þaulskipulagt?
22.30 Fótbolti Sky Sports. Leikir
héðan og þaðan og falleg
mörk.
■RKFRÍgUÆWJiR
11.30 Borðtennis Eurosport.
Það getur verið glettilega
gaman að horfa á borðt-
ennis eins og snillingarnir
spila það.
16.00 Akstursfþróttir Euro-
sport. Fjölbreytt syrpa af
allra handa mótorsporti.
21.30 Vaxtarraekt Eurosport.
Sumir hafa gaman af
þessu. Vöðvafjöll pósa.
TKiWK'WMiWMiMfVUH
11.30 Amerískur f ótbolti Scre-
ensport. Ameriski fótbolt-
inn vakti lukku þegar hann
var sýndur á Stöð 2 um ár-
ið. Reglurnar eru enda ekki
eins flóknar og virðist við
fyrstu sýn.
12.00 fþróttir á laugardegi
Sky Sports. Fimm tlma
þáttur, fótbolti fær mikið
pláss.
17.00 Tennis Eurosport. Bein út-
sending frá Basel I Sviss.
13.00 Fótbolti Sky Sports. Bein
útsending frá leik I úrvals-
deildinni ensku.
14.00 Parfs-Mosku-Bejing-
rallfið Screensport. Þessi
keppni virðist endalaus.
17.00 Golf Screensport. Frá Vol-
vo-túrnum í Evrópu.
Hverjum er illa
við hverja?
I skoðanakönnun sem SkáfS
gerði fyrir PRESSUNA var fólk
meðal annars spurt að því með
hvaða íþróttafélagi það héldi og
jafnframt hvaða íþróttafélagi því
væri sérstaklega í nöp við. Niður-
stöðurnar eru forvitnilegar.
Þeim sem halda með Þór á Ak-
ureyri er mest í nöp við KR-inga.
Þetta kemur kannski einhverjum
á óvart og fyrirffam hefðu margir
búist við því að Þórsurum væri
verst við nágranna sína í KA.
Skýringin á þessari biturð út í KR-
inga er sjálfsagt sú að Vesturbæ-
ingarnir höfðu betur en Þórsarar í
baráttunni um Evrópusæti í
knattspyrnu nú nýskeð.
KR-ingum er hins vegar verst
við Frammara og þarf það engum
að koma á óvart í sjálfu sér því
KR-ingum hefur, þar til í sumar,
gengið bölvanlega að vinna Fram-
mara í knattspyrnu. Það kemur
aftur dálítið á óvart að enginn
stuðningsmaður KR nefndi Val
sem það félag sem honum væri
mest í nöp við. Valur og KR eru
nágrannafélög og oft hefur virst
heldur stirt á milli áhangenda lið-
anna.
Frammarar gjalda KR-ingum
líku líkt og hatast helst við Vestur-
bæjarliðið.
VÍKINGAR EKKIENN FYRIR-
GEFIÐFH
Valsmönnum er hins vegar
meinilla við Víkinga ef marka má
könnunina. Skýringin er ekki auð-
fundin en Valur og Víkingur eru
nokkurn veginn hlið við hlið og
sennilegast liggur skýringin þar.
Víkingar telja FH-inga sína
helstu óvini. Af hverju er ekki gott
að segja. Sem líklega skýringu má
þó benda á að Andri Marteins-
son, leikmaður með FH í fótbolta,
er uppalinn hjá Víkingum. Andri
er mjög góður leikmaður og er í
landsliðinu og sennilegast hafa
Víkingar ekki fyrirgefið Hafnfirð-
ingum fyrir að stela Andra frá
þeim.
Skagamönnum er verst við KA
ffá Akureyri. Nærtækasta skýring-
in er sú að KA-menn slógu ÍA út
úr bikarnum í knattspyrnunni í
sumar og unnu þá Iíka í deildinni.
Stuðningsmönnum Breiðabliks
er helst í nöp við Stjörnuna úr
Garðabæ. Hér virðist nágranna-
rígur á ferðinni en áhangendur
Stjörnunnar voru ekki í vafa um
að Breiðablik væri hið versta félag.
Þessi lið tvö mætast í annarri deild
fótboltans á næsta tímabili og
væntanlega verður hart barist þar.
Fylkismönnum er líka séríega
uppsigað við Blika. Aðdáendur
Árbæjarliðsins nefndu helst
Breiðablik er þeir voru spurðir
hvaða klúbbur færi mest í taug-
arnar á þeim.
Þannig er nú það. Þrátt fyrir að
rígur sé milli liða höfum við verið
blessunarlega laus við slagsmál og
annars konar vandræði margvís-
Með hvaða íþróttafélagi heldur þú?
Víkineur
Breiðablik
Valur
Stjarnan BBWWWWWjl
KR mHBHBHHHHHHHBHBB
FHMMHHHBHnH
Þór, Akureyri!
ÍBK
ÍAI
KR|
Frami
BreiðablikB
FHg
Stjarnanl
KAfe
Víkingur
ÍR
Selfoss
ÍBK
Hvaða íhróttafélagi er þér í nöp við?
Vinsældir og óvinsældir
eru sýndar sem hlutfall
af vinsælasta eba
óvinsælasta félaginu.
PRESSAN/AM
leg sem oft eru fylgifiskar rígsins
erlendis. Kannski er rígurinn ekki
eins djúpstæður hér og meira á
léttu nótunum. En öllu gamni
fylgir nokkur alvara.
Vegna tafa í fótboltanum er
Boltinn ekki nema
helming tímans í leik
Frændur okkar Dan-
ir hafa hingað til ekki
átt heimsfræga tennis-
spilara og þeir hafa
verið pínulítið svekktir
yfir því, ekki síst þegar
Svíar framleiða tennis-
stjörnur á færibandi.
En nú eygja Danir von
um að þeim takist að
eignast tenniskappa i
fremstu röð. Hann
heitir Kenneth Carlsen
og er nítján ára. í
febrúar síðastliðnum
var hann númer 893 á
heimslistanum en síð-
an hefurhann tekið
örum framförum og er
nú númer 104á listan-
um yfir bestu spilara
heims og á hraðferð
upp á við.
Það er vanþakklátt starf að vera
knattspyrnudómari. Það þekkja
þeir sem reynt hafa. Alþjóðaknatt-
spyrnusambandið (FIFA) vill
hefja dómarastarfið til vegs og
virðingar og samræma dómgæslu
í heiminum. „Við þurfum að út-
rýma því að í einu landi gildi aðrar
reglur en í öðru,“ segir ítalinn og
fyrrum dómarinn Paolo Casarin,
aðalráðgjafi FIFA í dómgæslumál-
um. Þeir hjá FIFA telja að reglurn-
ar eigi að vera augljósar; brot sé
brot og ekkert með það. Geð-
þóttaákvarðanir dómara séu þarf-
lausar. Eins á það að vera með
notkun spjaldanna gulu og rauðu.
Ákveðnar reglur eiga að gilda um
hvenær skal grípa til þeirra, dóm-
arinn á ekki að þurfa að vega það
og meta í hvert sinn. Dómgæslan
á að vera sú sama og túlkunin sú
sama hvort sem leikur fer ffam á
íslandi, í Englandi eða í Mexíkó.
Takist þetta batnar alþjóðleg
knattspyma til muna og allt ann-
að yfirbragð verður á mótum eins
og heims- og Evrópumeistara-
mótum, segja þeir hjá FIFA.
FIFA vill að dómurum verði
gefinn kostur á að helga sig knatt-
spymunni meira en nú er mögu-
legt. Þeir fái meiri umbun og verði
jafnvel hreinir atvinnudómarar.
Og það á að yngja upp í dómara-
stéttinni. Elsti dómarinn sem
kemur til með að dæma í heims-
meistarakeppninni í Bandaríkjun-
um 1994 verður 45 ára, fimm ár-
um yngri en þeir elstu í keppninni
1990.
Casarin hefur skoðað og greint
ítölsku fyrstu deildina síðustu tvö
ár — dómarar í henni fá á milli
þrjár og sjö milljónir króna hvert
tímabil í uppbót vegna fjarvem ffá
aðalvinnu — og einnig heims-
meistarakeppnina árið 1990.
Könnun hans sýnir að þrautþjálf-
Dómgœslan léleg
Við erum yfirleitt að spilafyrstaflokks
handbolta með annarsflokks dómgœslu.
Öfugt við Norðmenn ogDani, sem hafa
lengi leikið annarsflokks handbolta með
fyrstaflokks dómgœslu.
Dómgæslan í handboltanum
er mér alltaf hugleikin. Ég hef off
gagnrýnt hana, því hún gæti ver-
ið miklu betri, að mínu mati.
Við erum yfirleitt að spila
fyrsta flokks handbolta með ann-
ars flokks dómgæslu. öfugt við
Norðmenn og Dani, sem hafa
lengi leikið annars flokks hand-
bolta með fyrsta flokks dóm-
gæslu. Af hverju?
Nú fá dómarar greitt fyrir að
dæma leiki og er það bæði sann-
gjarnt og gott mál — en hvað
kemur á móti? Hvernig er undir-
búningi dómara háttað? Em þeir
sjálffáða varðandi hann eða gilda
einhverjar reglur þar um? Hafa
þeir eitthvert aðhald? Hvað með
eftirlitsdómara? Þeir mæta jú á
leikina, en ef þeim mislíkar, hvað
þá? Gera þeir eitthvað? Gerist
það ekki alltof oft að dómarar em
að dæma sinn fyrsta leik á vetrin-
um í fyrstu leikjum fslandsmóts-
ins? Það yrði handboltanum til
framdráttar ef þessi mál væru
skoðuð ff á gmnni.
f framhaldi af þessu langar
mig til að fjalla aðeins um dóm-
gæsluna, eins og hún kom mér
fyrir sjónir, í þeim þremur leikj-
um fslandsmótsins sem ég hef
séð.
Haukar - ÍBV — dæmdur af
Gunnari Viðarssyni og Sigur-
geiri Sveinssyni: Dómgæsla afar
slök. Dómararnir notuðu flaut-
una til að koma sér út úr vand-
ræðum. Þeir flautuðu á allt og
virtust ekki þekkja leikinn nógu
vel.
Sóknarbrot voru þeim hulin
ráðgáta — þeir dæmdu undan-
tekningarlaust liðinu sem var
með boltann í hag. Þeir voru
heppnir að leikurinn var alltaf
ójafn og aldrei myndaðist nein
spenna. Ekki dómarar til að
dæma stórleiki, að mínu mati.
Víkingur - Þór — dæmdur af
Gísla Jóhannessyni og Hafsteiw
Ingibergssyni: Mér fannst þeir
frekar hliðhollir Víkingum og
gera óþarfa mistök, til dæmis
voru rangir skrefadómar áber-
andi í tvígang. Hafsteinn og Gísli
eiga samt að geta orðið góðir
dómarar með nægum verkefn-
um. Þeir hefðu gott af því að
skoða sjálfa sig á myndbandi til
að losna við augljósar stingandi
vitleysur, en inn á milli voru þeir
góðir.
ÍR - Víkingur — dæmdur af
Gunnari Kjartanssyni og Úla
Ólsen: Þarna var langbesta dóm-
gæslan. Þeir Gunnar og Óli voru
bestir í úrslitakeppninni í fyrra,
að mínu mati, og taka nú vel upp
þráðinn. Þeir iétu fara lítið fyrir
sér — voru fljótir að dæma. Stað-
co,ning var þó slæm í tvígang, til
dæmis var ljótt brot eftir hraða-
upphlaup Víkinga en dómaramir
stóðu þá í sömu línu og sáu ekki
brotið. Þeir létu einnig fara ffam-
hjá sér þegar einn ÍR-ingurinn
beitti hinu svokallaða júgóslav-
neska bragði — það er hlutur
sem verður að útrýma strax úr
boltanum.
Ég er viss um, að allir meðlim-
ir útvarpsráðs eru með stúdents-
próf. Þeir sýndu þó að þeir fylgj-
ast ekki með og hafa ekkert vit á
íþróttum með því að hafna Loga
Bergmann Eiðssyni, einum af
okkar bestu íþróttafréttamönn-
um. Enn einu sinni setur þetta
ráð niður. Útvarpsstjóri sýndi
hreinan aumingjaskap með því
að breyta ekki þessari fáránlegu
niðurstöðu. Þetta er svona svipað
og ef einn áhorfandi kæmi og
segði þjálfara hvernig lið hans
ætti að vera skipað í næsta leik —
nema hvað útvarpsráð er greini-
lega ekki einu sinni áhorfandi.
Útvarpsstjóri hefur kannski
hugsað: Dæmið ekki og þér mun-
uðekkidæmdirverða.
Höfundur er handknatlleiksþjáltari.
aðir atvinnumennirnir í knatt-
spyrnu hafa náð að koma þeim
tíma sem boltinn er í leik niður í
59 mínútur. Hver leikur er 90
mínútur og boltinn því ekki í leik
31 mínútu, meðal annars — og
kannski aðallega — vegna út-
spekúleraðra aðferða aðtvinnu-
mannanna við að tefja tímann. Og
ekki nóg með það; 20 prósent af
þessum 59 mínútum, tæplega tíu
mínútur, er boltinn í höndum
markmannanna. Úti á vellinum er
knötturinn því ekki nema 49 mín-
útur, sem er rétt rúmlega annar
hálfleikurinn. Það er því ekki
furða þótt forvígismenn knatt-
spyrnunnar í heiminum telji sig
þurfa að gera eitthvað.
Markvarðarreglan svokallaða
var liður í viðleitninni til að draga
úr töfum, fleira þarf trúlega að
gera og sjálfsagt batnar knatt-
spyrnan nái FIFA að samhæfa
störf dómara í heiminum.
, ■ Menn eru endalaust
aö velta fyrir sér nýju
reglunum t fótbolta
sem kveða á um að markmaður
megi ekki taka boltann með
höndum fái hann boltann frá
samherja. Oamla markmanns-
kempan Peter Shilton er einn
þeirra sem pælt hafa i þessu.
Hann veltir upp þeirri spurn-
ingu hvort markmaður megi
koma út úr vítateignum, taka
þar við boltanum og leika hon-
um inn i teig og taka hann upp
með höndum. Það er að segja;
samherji sendir boltann aftur,
markmaðurinn hleypur út úr
vítateignum og tekur við bolt-
anum áöur en boltinn kemur
inn i teiginn, markmaðurinn
leikur þá boltanum inn i teiginn
og tekur hann upp með hönd-
um. Má þetta? spyr Shilton.
Reglurnar segja líka að mark-
maðurinn megi ekki handieika
boltann þegar honum er leikið
af samherja TIL BAKA. Sumir
hafa snúið útúr þessu og spurt;
en efboltanum er leikið fram?
Leikmaður er með boltann upp
við endamörk en markmaður
er i vítateignum og stendur
framar á vellinum en leikmað-
urinn. Má þá senda á mark-
manninn og hann taka boltann
með höndum? Boltanum yrði
þá leikið FRAM völlinn en ekki
til baka. Það þarf varla að taka
fram að þeir sem svona tala eru
ekki par hrifnir afþessum regl-
um.