Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 9

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 9 Kaup Skandia á verðbréfasjóðum Fjárfestingarfélags íslands SJODIRNIR VORU OFMEINRlH 100 MILLJON Hluthafar í Fjárfestingarfélaginu islandsbanki hf. 35,1% I Burðarás hf. (Eimskip) 27,3% Lífeyrissjóður verslunarmanna 10,6% Hörður Jónsson 6,8% Tryggingamiðstöðin hf. 2% Lífeyrissjóður verksmiðjufólks 2% Jón Gunnar Stefánsson 1,4% !; Iðnlánasjóður 1,4% | Sindra-Stál hf. 1% Sundagarðar hf. 0,7% í Aðrir 11,7% Við vinnu við hálfs árs uppgjör á verðbréfasjóðum Fjárfestingarfélagsins sem Skandia Island keypti fyrr á árinu hefur komið fram að staða sjóð- anna var önnur og mun verri en talið var við kaupin. Er rætt um að þar geti skeikað um 100 milljónum króna, sem er ríflega helmingur af sölu- verðinu. Undanfarna daga hafa sænskir fulltrúar frá Skandia verið að fara yfir kaupin og verður ákvörðun um aðgerðir tekin fljótlega. Undanfarna daga hafa fulltrúar frá sænska tryggingafélaginu Skandia verið að fara yfir reikn- inga verðbréfasjóða Fjárfestingar- félags Islands. Sem kunnugt er keypti dótturfyrirtæki Skandia, Skandia Island, sjóðina í mars síð- astliðnum. Nú iiggur íyrir hálfs árs uppgjör sjóðanna og samkvæmt heimildum PRESSUNNAR hefur komið í ljós að staða sjóðanna var önnur og mun verri en gefið var upp við söluna. Eftir því sem komist verður næst liggur fyrir að um var að ræða 100 milljóna króna ofrnat á sjóðunum. Þetta stafar fyrst og fremst af því að á bak við sjóðina stóð mikið af kröfum sem ekki hafði verið gengið að heldur voru þær ávallt bókfærðar sem eign. Síðan þegar nánar var eftir þeim gengið kom í ljós að litlar tryggingar stóðu á bak við þær. Nú hefur Skandia Island farið fram á endurmat á afskriftaþörf sjóðanna með tilliti til þess að söluverðið verði endurskoðað eða kaupunum jafnvel rift. SKANDIA STAÐGREIDDI SJÓÐINA Þegar ákveðið var að selja verð- bréfasjóðina var fyrst í stað leitað hófanna hjá öðru verðbréfafyrir- tæki, Kaupþingi, og áttu sér stað óformlegar viðræður þar um. Það var hins vegar Skandia Island sem keypti verðbréfasjóðina í mars síðastliðnum og greiddi fyrir það 186,5 milljónir króna. Kaupin gengu hratt fyrir sig og komu nokkuð á óvart. Skandia tók við verðbréfasjóð- unum 1. apríl og var gengið þann- ig frá kaupunum að um stað- greiðslu var að ræða. Var öll upp- hæðin greidd með ávísun til Fjár- festingarfélagsins. Það tók síðan hluta kaupverðsins, 10 prósent eða 18,6 milljónir, og setti inn á sérstakan geymslureikning. Báðir aðilar samþykktu að þessi upp- hæð yrði notuð til að endurmeta kaupin og átti reikningurinn að standa til 1. júní 1993. Ljóst má hins vegar vera að þessi upphæð dugar engan veginn til að jafna þann ágreining sem nú er kominn upp. Þessi sala á verðbréfasjóðum var um margt óvenjuleg. Um var að ræða sölu á umsýslu með verð- bréfasjóðunum ljórum og Frjálsa lífeyrissjóðnum. Einnig voru seld tæki og innréttingar og húseign Fjárfestingarfélagsins' í Kringl- unni. Salan á verðbréfasjóðunum miðaðist auðvitað við ákveðna gengisskráningu sem sýndi meðal annars ávöxtun þeirra. Skandia tók við þessari skráningu og hefur Gísli Örn Lárusson, forstjóri Skandia ísland: Rétti forráða- mönnum Fjárfestingarfélagsins 186,5 milljóna króna ávísun 1. apríl en vill ríflega helming þess til baka. því þá skyldu að greiða út úr sjóð- unum samkvæmt því gengi. Það segir sig sjálft að ef ekki hefur ver- ið búið að færa afskriftir inn í þessa skráningu hefur gengi sjóð- annaverið ofhátt. FRJÁLSILÍFEYRISSJÓÐUR- INN HELSTA VERÐMÆTIÐ Verðbréfasjóðir Fjárfestingarfé- lagsins gengu í gegnum niður- færslu í ágúst í fyrra sem kunnugt er. Ennþá fást ekki skýr svör um hver hlutur Bankaeftirlits Seðla- bankans í þeirri niðurfærslu var, en að sögn Þórðar Ólafssonar, forstöðumanns Bankaeftirlitsins, var niðurfærslan „í samvinnu við okkur“. Gengi verðbréfasjóðanna var þá fellt um 2,5 til 4,5 prósent, sem gerði að verkum að þeir sjóð- ir bjuggu við minnsta ávöxtun af verðbréfasjóðunum í fyrra. I kjöl- far þessa varð Fjárfestingarfélagið sjálft að afskrifa 12,3 milljónir í „umsýsluþóknanir“. Athyglisvert var að sjóðirnir voru fljótir að ná sér á strik og strax þrjá síðustu mánuðina í Guðmundur H. Garðarsson, stjórnarformaður Fjárfestingar- félagsins: Líklegt að næsta aðal- fundar Fjárfestingarfélagsins bíði að ákveða hvort félagið verður leyst upp. Riftun á kaup- samningi við Skandia gæti breytt því. fýrra sýndu þeir ríflega 8 prósenta ávöxtun samkvæmt upplýsingum ffá Fjárfestingarfélaginu. En helsta eign Fjárfestingarfé- lagsins og það sem talið var eftir- sóknarverðast var Frjálsi lífeyris- sjóðurinn. I árslok 1991 voru 2.153 félagar skráðir í sjóðinn og heildarverðmæti eigna um 1.070 milljónir. Þessi sjóður var nokkuð óumdeilanleg eign enda enginn ágreiningur um hann. STOFNUÐU FÉLAG UM VERSTU KRÖFURNAR En áður en salan á verðbréfa- sjóðunum fór fram var stofnað nýtt dótturfyrirtæki Fjárfestingar- félagsins, Takmark hf. Það var stofnað í desember 1991. Hlutafé er ein milljón króna og á Fjárfest- ingarfélagið 55 prósent og Féfang 45 prósent. Stjórn félagsins skipa Sigurður R. Helgason, Kjartan G. Gunnarsson og Friðrik jóhanns- son. Þetta félag hafði það hlutverk að gera verðbréfasjóðina auðselj- anlegri og voru verstu kröfur þeirra teknar og settar þar inn. Takmark var látið kaupa verðbréf af verðbréfasjóðunum fyrir 300 milljónir króna. Sampykktu eig- endur Takmarks að gangast í ábyrgð fyrir þessari upphæð en Takmark er ekki rekið sem verð- bréfafyrirtæki. Inn í Takmark voru valin verðbréf sem „einhvem tíma tekur að innheimta, þrátt fyr- ir að tryggingar séu taldar í lagi“ — eins og segir í skýrslu stjórnar- fonnanns, Guðmundar H. Garð- arssonar, í síðustu ársskýrslu. í samtali við PRESSUNA sagði Guðmundur að innheimta á þess- um verðbréfum hefði í raun orðið betri en menn þoruðu að vona. FYRIRVARIVEGNA TUG- MILLJÓNA KRÖFU FRAM- KVÆMDASJÓÐS Nú má segja að Fjárfestingarfé- lagið sé rekið sem eignarhaldsfé- lag, en á síðasta ári voru seldar ýmsar eigur félagsins, eins og eignarhlutur í Eignarhaldsfélagi Verslunarbankans hf. og í Eim- skipafélaginu. Söluverð þessara hlutabréfa nam 7,6 milljónum króna. Helsta verðmæti í félaginu nú er væntanlega kaupleigufyrirtækið Féfang, en þar á Fjárfestingarfé- lagið 66,5 prósent. I síðasta árs- reikningi var Féfangshluturinn skráður á ríflega 200 milljónir. Rétt eftir söluna á verðbréfasjóð- unum voru hafnar viðræður við Kaupþing um sölu. Þær gengu ekki upp né viðræður við spari- sjóðina, sem hófust strax á eftir. Að sögn Guðmundar eru engar viðræður í gangi núna um sölu á Féfangi. I síðasta ársreikningi gera end- urskoðendur athugasemdir vegna dómsmáls. Fjárfestingarfélagið hefur átt í málaferlum við Fram- kvæmdasjóð vegna sjálfsskuldar- ábyrgðar félagsins á lánafyrir- greiðslu til Vogalax hf. I fyrra féll undirréttardómur þar sem Fjár- festingarfélaginu er gert að greiða 22 miBjónir króna. Stjórn Fjárfest- ingarfélagsins ákvað að áfrýja dómnum til Hæstaréttar, en í árs- lok nam krafan 26 milljónum króna og var ekki færð í ársreikn- inga félagsins þótt gerð væri grein fýrirþessari skuldbindingu. RÆTT UM AÐ LEYSA FÉ- LAGIÐ UPP Á NÆSTA ÁRI Á síðasta ári varð tap Fjárfest- ingarfélagsins rúmar þrjár millj- ónir króna. Það var fýrsta tapárið í sögu félagsins, en urn leið hefur félagið tapað yfirburðastöðu á markaðinum. Félagið er elsta verðbréfafýrirtæki landsins en það var stofnað árið 1971. Nú hafa hlutabréf þess verið tekin af skrá hjá Verðbréfaþingi íslands þannig að félagið er fyrst og fremst eign- arhaldsfélag. Fyrir nokkrum árum hafði Fjárfestingarfélagið um 70 pró- senta hlutdeild en í fýrra var hún komin niður í 30,8 prósent. Eftir því sem komist verður næst hafa hluthafar uppi hug- myndir um að leysa félagið upp og reyndar hefur slík umræða verið í gangi í nokkurn tíma innan stjórnar Lífeyrissjóðs verslunar- manna. Flestum þykir nú ljóst að til slíks muni koma á miðju næsta ári, en það er auðvitað bundið því að kaupin við Skandia standi. S igurdur MárJónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.