Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 27

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 27 smaa letrið Svala Lárusdóttir í Gallerí Ný- höfn, Brynja Nordquist og Rut í Gullfossi. Þær sem komust á blað yfir þær best klæddu vom; Sigurlaug M. Jónasdóttir, Þórunn Högna- dóttir förðunarlistamaður, Margrét Rós módel þykir töff og hugmyndarík, Fanney Kristjáns- dóttir, Ragna Sæmundsdóttir, fyrrum fyrirsæta, Bryndís Bjama- dóttir, sigurvegari Elite ’92, Sig- riður Vala Þorsteinsdóttir (Sigga Vala), Hildur Hafstein fyrirsæta, Lilja Pálmadóttir kaupsýslukona, Anna Margrét Jónsdóttir, flug- freyja og fyrirsæta, og Guðrún Ingólfsdóttir í Klöru. Umdeild en oft nefnd var til dæmis Elín Hirst, fféttamaður á Stöð 2. Deilt var á það að hún kynni að klæða sig fyrir sjónvarp en væri ekki jafnsmekkleg utan þess, en á hinn bóginn var sagt að þrátt fyrir að hún verslaði í versl- uninni 17 liti hún út eins og hún væri alltaf í fokdýmm merkjum. Bera Nordal, forstöðumaður Listasafns íslands, var einnig um- deild, annars vegar var sagt að hún væri klassísk og kynni að klæða sig og hins vegar að hún væri stöðnuð. Kristín Jóhannes- dóttir þótti flestum fremur „dull“ en öðrum þræði hefði henni fárið mikið fram í klæðaburði. Þrátt fyrir að Dóra Einarsdóttir sé í hópi þeirra verst klæddu fékk hún hrós fyrir að vera bara hún sjálf í klæðaburði. En umdeildust, eins og sjá má, er Björk Guð- mundsdóttir, sem lendir báðum megin borðsins og er í tíunda sæu bæði yfir þær best klæddu og verst klæddu. Allir höfðu skoðun á henni. í hópi þeirra verst klæddu sem komust þó ekki á topp tíu er Kvennalistinn eins og hann legg- ur sig. „Þær em allar jafnlitlausar í klæðaburði,” sagði einn dóm- nefndarmanna. Unnur Steins- son, fegurðardrottning og flug- freyja, og Kristín Stefánsdóttir förðunarfræðingur em orðnar „al- gjörar kerlingar” miðað við ung- an aldur, Herdís Þorgeirsdóttir þykir hafa klæðaburð mislukkaðs femínista, Ásta Ólafsdóttir í Kjallaranum fékk það á sig að ekki væri á henni að sjá að hún ræki tvær tískuverslanir; hún hefði margt til að bera en feldi það undir miður fallegum fatn- aði, Anna Ringsted hjá Fríðu frænku þykir einnig heldur ilia til fara og væri best geymd í forn- gripaverslun að mati eins dóm- nefhdarmanns. Haff var á orði að borgarstjórafrúin, Steinunn Ár- mannsdóttir, myndi sóma sér vel í þeirri sömu forngripaverslun. Þá var sagt um rithöfundinn Vigdísi Grímsdóttur að hún væri ótrú- lega hallærisleg miðað við hvað hún gæti verið smart, Dóra Takefusa þykir hreint og beint „drusluleg“ og Laufey Bjarna- dóttir „hallærisleg”, Stefanía Traustadóttir félagsfræðingur fékk það á sig að vera jafnsam- hengislaus og lífsskoðanir hennar. Aðrar sem einnig voru nefndar em þær Guðrún Tryggvadóttir, Helga Guðrún Johnson, Andrea Gyifadóttir, Svanhildur Kaaber, Ingibjörg Rafnar og Hlín Agn- arsdóttir. Rósa Ingólfsdóttir. „Það er hreint magnað að horfa up hana." Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem vilja verða alvörukarlmenn. Að hætti þeirra eru þær stuttar. Alvörukarl- menn leggjast ekki I lestur. DRYKKJA Ekki lognast út af. Ekki æla; nema til þess að tæma mag- ann til að geta haldið drykkjunni áfram. Ekki gerast þvoglumæltir. Segið fáeinar slagsmálasögur. Það er leyfilegt að rota drykkjufélagann þegar líða fer á kvöldið. FADMLÖG Sjá [ÞRÓTTIR GRÁTUR Aldrei nokkurn tímann. Ekki undir neinum kringumstæðum. Ekki vegna andláts einhvers í fjöl- skyldunni. Ekki vegna hnífs í kviðar- holinu. Eina tilfellið sem leyfir að tár myndist í öðru auganu er þegar uppáhaldsknattspyrnumaðurinn spilar kveðjuleikinn sinn. Tár má þó myndast í báðum augum ef það er sparkað í punginn á þér. HEILSA Farðu aldrei til læknis eða á slysavarðstofuna og leggstu aldrei inn á spítala. Ef þú færð slag skaltu halda áfram að drekka og láta sem þú kjósir heldur að nota aðeins aðra .hliðina á líkamanum. Ef þú skerð af þér þumalinn með vélsög — þá það. Þú kemst að minnsta kosti að því til hvers einangrunarlímband er notað. Ef einhver reynir að keyra þig á spítala eftir að þú hefur fengið slag skaltu slá hann. (Síðustu orð Johns Wayne voru: .Fjandinn hirði dauðann og lungnakrabbann sem hann ríður á.') Valgerður Matthías- dóttir.„Eral- gerlega úti. Hún er stöðnuð." ÁstríðurThorar- ensen forsætis- ráðherrafrú. „Gjörsamlega litlaus í klæða- burði og gerir ekkerttil að vega upp mann sinn, sem er enn verri í klæða- burði en hún." Jóhanna Sigurðardóttir. „Hún gerir ekkert til að fríska upp á sig. Er litlaus frá hvirfli til ilja." Kolfinna Baldvins- dóttir. „Það er ótrúlegt að horfa uppá hana. Hún hefur misheppn- aðan sundurgerð- arlausan stíl, er hreint og beint púkó." Dóra Einarsdóttir. „Er þreytt Doris Day en hefursinn stíl — furðutécjjyg samsettaf$áf?PyÉ Lilja í Cosmó. „Hún hefur staðnað, viskósdrottn- ingin sjálf." ÍÞRÓTTIR Þegar þú ert í hópi ann- arra karla sem eru klæddir í sams- konar búning er kjörið tækifæri til að kyssa, faðma og klappa á rass. Ástæðan er sjálfsagt sú að flestir karlar eru hommar inn við beinið og kjósa fremur selskap annarra karla en kvenna. En ef einhver svo mikið sem ýjar að þessu við þig skaltu nef- brjóta hann. KOSSAR Sjá ÍÞRÓTTIR KYNLÍF Þú ert annaðhvort of drukkinn eða of vitlaus til að njóta kynlífs. En því minna sem þú nýtur þess; þeim mun meira skaltu tala um það: Þið hefðuð átt að sjá til mín í gær, ha, ha, ha. MATARÆÐI Kjöt, sígarettur, kjöt, brennivín, kjöt, bjór og kaffi. Um af- leiðingarnar; sjá: HEILSA. SLAGSMÁL Allur tími hentugur. Og öll tilefni nægjanleg. Sláið aldrei konu. Eða barn. Eða strætó. Sláið aldrei prest nema taka af honum kragann fyrst. (Ef hann er biskup skulið þið taka hattinn af honum líka.) Prestar svara höggum yfirleitt með því að segja; ofbeldi leiðir ekki til neins. (Eðlilegt svan.En þessa, séra?") Kristín Jóhann- esdóttir. „Ef hún er að lýsa persónuein- kennum sínum með klæða- burðinum þá er hún heldurA „dull" karakufl Sissa Ijós- myndari. „Maður þakk- ar Guði fyrir að hún stendur ekki hinum megin við Ijós- myndavél- ina." Björk Guðmunds- dóttir söngkona. „Samhengislausen skemmtilega púkó; Dómnefndina skipuðu þau Marta Bjarna- dóttir kaupmaður, Sigursteinn Másson fréttamaður, Guðmundur Karl Friðjóns- son í Kjallaranum, Lína Rut Karlsdóttir förðunarfræðingur, Biggi hárgreiðslu- meistari hjá Jóa og félögum ásamt fagur- kerum afPRESSUNNI.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.