Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 13

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 13 Einn ávið Framhalds- og sérskólanemar leiklistarnemi tólf laganema Hver leiklistarnemi kostar 1,5 milljónir á ári og hver bændaskólanemi 1,3 milljónir. Hver nemandi í lagadeild Háskólans kostar „aðeins“ 136 þúsund á ári. Það kostar 1,5 milljónir króna á ári að halda uppi kennslu íyrir hvem hinna 20 nemenda Leiklist- arskóla fslands og það kostar á bilinu 1 til 1,3 milljónir að kenna hverjum nemanda í Bændaskól- unum á Hvanneyri og á Hólum og í Garðyrkjuskóla ríkisins. Þetta em dýmstu framhaldsskólanem- endur landsins. Til samanburðar má neftia að rekstrarkostnaður á bak við hvern nemanda í laga- deild Háskóla íslands er 136 þús- und krónur á ári og í viðskipta- og hagfræðideild 153 þúsund krónur áári. BÆNDASKÓLANEMINN KOSTAR 1,3 MILLJÓNIR ÁÁRI Hér er miðað við tölur yfir rekstrarkostnað úr fjárlögum 1992 og skráðan nemendafjölda í viðkomandi skólum eða deildum. Háskólinn nýtur vitaskuld hag- kvæmni stærðarinnar, en það breytir ekki hinu, að kostnaður- inn við að kenna leiklistamema á einu ári er hinn sami og að kenna 11 til 12 laganemum eða 10 vænt- anlegum viðskipta- og hagfræð- ingum. Munurinn verður reyndar enn meiri ef stofiikostnaði er bætt við og áætlaðar sértekjur dregnar frá, en þá stendur eftir hrein fjárveit- ing hvers árs — framlag skatt- borgaranna. Þá verður kostnaður- inn á bak við hvem Ieiklistamema nær óbreyttur, en hver laganemi lækkar í 115 þúsund og viðskipta- og hagfræðineminn í 130 þúsund. Ef mönnum líkar ekki saman- burðurinn á nemendum Leiklist- arskólans og nemendum þessara deilda Háskólans má geta þess að það kostar svipað á ári, miðað við hreina fjárveitingu, að kenna ein- um nemanda í Bændaskólanum á Hvanneyri eða á Hólum og það kostar samanlagt að kenna einum verkfræðinema, einum laganema, einum hjúkrunarfræðinema og einum lyfjafræðinema. Innan Háskólans eru það að- eins nemendur tannlæknadeildar sem komast upp fyrir stall nem- enda Bændaskólanna — það kostar 1,5 milljónir á ári að mennta hvern tannlæknanema, en 1,3 milljónir miðað við nettó fjárveitingu. AÐ VERAÍRÉTTU RÁÐUNEYTI Athugun PRESSUNNAR á kostnaði við að halda uppi kennslu í framhaldsskólum lands- ins leiddi í ljós verulegan kostnað- armun, þegar rekstrarkostnaði er deilt upp í fjölda nemenda, með eða án stoftikostnaðar og sér- tekna. f Leiklistarskóla fslands eru aðeins 20 nemendur, en sam- kvæmt fjárlögum yfirstandandi árs er rekstrarkostnaður skólans rúm 31 milljón króna og rekstrar- kostnaður á hvern nemanda því um 1.555 þúsund krónur. Sama talan er á bak við hvern tann- læknanema á ári. f Bændaskólun- um á Hvanneyri og á Hólum er samtals 131 nemandi og kostar það í ár 162,4 milljónir samanlagt að halda uppi kennslu þeirra. Það gerir um 1.240 þúsund krónur á hvern nemanda. í raun skera þessir skólar sig al- gerlega úr hvað kostnað á nem- anda varðar. Leiklistarskólinn heyrir undir menntamálaráðu- neytið, en bændaskólarnir og Garðyrkjuskólinn hafa þá sér- stöðu að heyra undir landbúnað- arráðuneytið. f flestum ffarn- halds- og sérskólum er launa- kostnaðurinn langstærsti út- gjaldaliðurinn, gjarnan 60 til 80 prósent af heildargjöldum. í bændaskólunum eru launin hins vegar undir helmingi kostnaðar- ins gagnvart öðrum gjöldum, þar með talið viðhaldi og stofhkostn- aði. LIST AMAÐURINN Á BEKK MEÐ VERKFRÆÐINGNUM Sá skóli sem í fljótu bragði virð- ist koma næstur úr röðum al- mennra framhaldsskóla og sér- skóla er Myndlista- og handíða- skóli íslands. Þar eru 187 nem- endur skráðir og rekstrarkostnað- ur áætlaður um 100 milljónir króna í ár. Rekstrarkostnaður á bak við hvern nemanda í þeim skóla er því um 533 þúsund krón- ur. Til samanburðar má nefna að það kostar á ári um 564 þúsund að kenna hverjum verkfræði- nema. Á hinn bóginn ber að geta þess að áætlaðar sértekjur Mynd- lista- og handíðaskólans eru nær 40 milljónir og miðað við að sú tala standist (eins og fjárlögin sjálf) lækkar kostnaðurinn á bak við hvern nemanda niður í um 350 þúsund. Með sömu forsend- um lækkar verkfræðineminn í 478 þúsund. ÞRÍR LÖGFRÆÐINGAR Á BAK VIÐ HVERN KOKK Næstur í röð dýrustu fram- halds- og sérskóla reyndist Hótel- og veitingaskólinn með sína 100 nemendur í framreiðslu og mat- reiðslu. Það kostar samkvæmt fjárlögum í ár 40,6 miUjónir að kenna þessum verðandi þjónum og kokkum eða um 406 þúsund krónur á mann. Þetta er um leið hrein fjárveiting, því ekki er gert ráð fyrir stofnkostnaði eða sér- tekjum á fjárlögum. Rekstrar- kostnaður á bak við hvern þessara nemenda er svipaður og á bak við hverja þijá laganema. f öllum þessum samanburði gætir hagkvæmni stærðarinnar og það sést vel þegar almennir fram- haldsskólar eru skoðaðir. Þannig er Fjölbrautaskólinn í Breiðholti með aUs 2.330 nemendur, en sam- kvæmt fjárlögum er rekstrar- kostnaður þar áætlaður 294,1 miUjón króna eða Uðlega 126 þús- und krónur á nemanda. Og kostn- aðurinn á bak við hvern hinna 1.410 nemenda Menntaskólans við Hamrahlíð reyndist tæplega 123 þúsund krónur. í Mennta- skólanum á fsafirði eru 303 nem- endur og kostnaður við hvern þeirra liðlega 190 þúsund krónur. Loks má nefna að kostnaðurinn á bak við hvem hinna 288 nemenda Menntaskólans á EgUsstöðum er tæplega 200 þúsund krónur. Friörik Þór Guðmundsson Skóli Nemendur Kostnaður á nemanda rekstur fráríki Háskólinn 5.478 308.000 261.000 Þar af: TannlæknadeUd 53 1.556.000 1.319.000 LæknadeUd 340 753.000 638.000 RaunvísindadeUd 535 697.000 591.000 VerkfræðideUd 265 564.000 478.000 Lyfjafræðideil & lyfsala 84 496.000 420.000 GuðfræðideUd 89 463.000 392.000 Sjúkraþjálfun 115 270.000 229.000 Hj úkrunarfræðideUd 439 228.000 193.000 HeimspekideUd 1.330 205.000 174.000 FélagsvísindadeUd 1.061 159.000 135.000 Viðskipta- og hagfræðideUd 760 153.000 130.000 LagadeUd 407 136.000 115.000 Skóli Nemendur Kostnaðurá nemanda rekstur frá ríki LeUdistarskólinn 20 1.555.000 1.530.000 Bændaskólinn Hólum 52 1.304.000 1.252.000 Bændaskólinn Hvanneyri 79 1.197.000 968.000 Garðyrkjuskólinn 42 1.152.000 1.243.000 Myndlista- og handíðaskólinn 187 533.000 347.000 Hótel- og veitingaskólinn 100 406.000 406.000 Samvinnuháskólinn 93 373.000 357.000 Tækniskólinn 498 340.000 335.000 Fósturskólinn 245 X 270.000 274.000 Iðnskólinn í Reykjavík 1.870 193.000 187.000 Iðnskólinn I Hafiiarfirði 296 187.000 183.000 Skóli Nemendur Kostnaður á nemanda rekstur fráríki Menntask. á EgUsstöðum 288 198.000 224.000 Menntaskólinn á fsafirði 303 191.000 218.000 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 500 170.000 182.000 Flensborg 533 167.000 170.000 Menntaskólinn á Akureyri 640 157.000 167.000 Menntaskólinn í Kópavogi 510 156.000 241.000 Menntaskólinn við Sund 840 149.000 156.000 Fjölbrautaskólinn við Ármúla 768 147.000 154.000 Verslunarskóli íslands 1.284 143.000 141.000 Menntaskólinn í Reykjavík 895 138.000 146.000 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 2.330 126.000 121.000 Menntaskólinn við Hamrahlíð 1.410 123.000 119.000

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.