Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 29

Pressan - 01.10.1992, Blaðsíða 29
PRESSAN m . ■■ Á undanförnum mánuðum hefur tæknivinnsla PRESSUNNAR verið tölvuvædd. Frá því blaðamenn slá inn texta sinn á ritstjórn PRESSUNNAR og allt þar til prentfílmurnar eru keyrðar út í Prentsmiðjunni Odda fer öll vinnsla blaðsins fram á tölvum. Textanum er raðað inn á blaðsíður í tölvum, ljósmyndir eru settar á tölvutækt form og þannig inn á síðurnar á skjánum og blaðið er síðan sent í prentsmiðju á tölvudiskum. Þessi tölvuvæðing eykur möguleika í hönnun blaðsins, býður upp á hraðari vinnslu og þar af leiðandi ferskara efni og dregur auk þess úr kostnaði við vinnsluna. í dag er PRESSAN komin lengra í tölvuvæðingu en nokkurt annað blað eða tímarit á íslandi. í félagi við samstarfsaðila okkar munum við halda þeirri forystu. m @Fyrirsögn @ <D*1 *PO,Ö,0,0,0,0(g ")\ DP36*F"HelveExtCompressed"> @Fyrirsögn = Hverjum er illa vi<221> hverja? Meginmál @ <D*j*PO,8.5,0,9.5,0,0,G*(0, ") \ T-5P9*F"MinioMM_367 wt 510 wd 9 op"> @Meginmál = <234> sko<221>anak<154>nnun sem Sk<135x234>S ger<221>i fyrir PRESS- UNA var f<151>lk me<221>al annars spurt a<221> <223>v<146> me<221> hva<221>a <146><223>r<151>ttaf<142>lagi <223>a<221> Blaðamenn skrifa greinar sínar á PC-tölvur af ýmsum stærðum og gerðum og nota til þess ritvinnsluforritið WordPerfect 5.0, sem er í senn öflugt og þjált í meðförum. Þeir hafa einn- ig aðgang að töívupóstkerfinu cc:mail til þess að senda skilaboð innanhúss. Blaðamenn auð- kenna fyrirsagnir, meginmál og aðra greinar- hluta eftir því sem við á. Með því að ýta á einn hnapp í WordPerfect vista blaðamenn greinar sínar inn á sameigin- legan gagnamiðil, sem samstundis prentar þær út á prentara hjá prófarkalesara. Gagnamiðillinn er af gerðinni Handok 386 og notar nethug- búnaðinn Novell Netware 3.11, en sjálft netið er EtherNet, sem er óhemju hraðvirkt og ör- uggt. Prófarkalesari leiðréttir greinar og sendir þær því næst í orðskiptingu, en til þess er notað for- ritið Saxa frá Hugmóti, sem Ingólfur Helgi Tryggvason skrifaði. Þrátt fyrir strangar og flókn- ar reglur íslenskrar orðskiptingar skiptir Saxa um 99% orða rétt og tekur auk þess tillit til und- antekninga. Eftir orðskiptinguna tekur annað forrit við og „þýðir" textann yfir á „tungumálið" XTags, sem umbrotsforritið Quark XPress les og gerir því kleift að brjóta textann um jafnóðum, það er að segja texti, sem blaðamaður merkti sem fyrir- sögn, birtist með viðeigandi letri á síðu, megin- mál með sínu letri, myndatextar með sínu og svo framvegis. Ef þurfa þykir eru myndir leiðréttar í forritinu PhotoShop 2.01 frá Adobe, en það er jafn- framt notað mjög mikið við ýmiss konar mynd- skreytingar, sem og við myndfalsanir þær, sem birtast í Gulu Pressunni endrum og eins. Þessar myndir eru vistaðar sem EPS (Encapsulated PostScript) og eru seinna staðsettar innan um texta í umbrotsforritinu Quark XPress. Þegar útlitshönnuðum berast myndir frá blaðamönnum eru þær skimaðar inn jafnharð- an á Microtek ScanMaker 600ZS frá ACO, sem getur skimað inn bæði svarthvítar myndir og í lit. Skiminn er tengdur við Macintosh Quadra 900 frá Apple-umboðinu, sem er með 19“ Raster Ops-skjá, sem sýnir ríflega 16 milljónir lita í einu. Að þessari vinnu lokinni hefst aðalvinnan, sem felst í því að raða saman á síðu öllum þeim þáttum, sem samtvinnast á henni: texta, Ijós- myndum og gröfum. Þessi vinna fer öll fram í Quark XPress, en segja má að það sé eina umbrotsforritið, sem uppfyllir þær nákvæmu kröfur, sem gerðar eru til umbrots dagblaða. Skýringarmyndir og gröf ýmiss konar eru gerð í forritinu Aldus FreeHand 3.1. Þessi vinna, líkt og öll önnur vinna í hönnunardeild, er unnin á Macintosh Quadra-vélar. Sum gröf og erlendar fréttir einnig eru sótt með Light- speed 2400-mótaldi um Gagnanet Pósts og síma frá erlendum gagnabönkum, en PRESSAN hefur rétt á efni frá fréttastofunni Knight-Ridder. Þegar hverri síðu er lokið er prentuð út loka- próförk á Linotype 600-leysiprentara frá ACO, en hann prentar út á A3 síður í hárri upplausn. Athugað er hvort myndir eru á réttum stöðum og eins farið yfir stafsetningu og málfræði. Þegar leiðréttingu er lokið eru síðan og þær myndir, sem á henni eru, vistaðar á svonefndan Syquest-disk frá Tölvustofunni. Hver slíkur diskur rúmar 42Mb og komast að jafnaði 3-6 síður fyrir á hverjum þeirra, en það er misjafnt eftir því hversu margar og stórar myndir eru á hverri síðu. Þessi diskur er sendur til Prentsmiðj- unnar Odda til útkeyrslu. í Prentsmiðjunni Odda er hver síða kölluð upp í Quark XPress og send á svonefnda PostScript-brú frá Scitex. Þar er hún „þýdd" yfir á það mál, sem Scitex-búnaður Odda skilur, en það er fullkomnasta litgreiningar- og út- keyrslusamstæða á íslandi. Viðkvæmar litsíður eru kallaðar upp á Scitex- skjá, þar sem unnt er að sjá nákvæmlega hvern- ig hver síða lítur út í einstökum prentlitum, en í litprentun er notast við litina blátt, rautt, gult og svart. Á þessum skjá er hægt að gera lokaleið- réttingar á lit og myndum ef þarf. Loks er blaðið prentað og rennur út úr prent- vélinni tilbúið til lestrar, en við tekur pökkun og dreifing til áskrifenda, sölubarna og lausasölu- staða. ' Þessar filmur eru síðan skeyttar saman og auglýsingum skeytt inn á eftir þörfum. Þetta er í fyrsta og eina skiptið, sem mannshöndin kemur nærri. Þessar lokafilmur eru svo „plötuteknar" sem kallað er, en þær plötur eru settar í sjálfa prentvélina. Loks er síðan „keyrð út" á Raystar-ljóssetn- ingarvél, ein filma fyrir hvern prentlit. Leikí enn vafi á því hvernig einstök síða muni koma út í prentun er hún prentuð á Iris- sprautuprentara, sem prentar á hvaða pappír sem er. Þetta hefur þann kost að hægt er að prenta út próförk á dagblaðapappír með litlum tilkostnaði og þannig fara nærri um hvernig síðan muni líta út í prentun. ►Tölvustofan ® JJdDI PRESSAN ÍApple-umboðið

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.