Pressan - 01.10.1992, Page 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
7
F Y R S T
F R E M S T
M E N N
fyofZ.
, 'o ^t>' b'
Jp ° C>, C'o/te
/ OO^ O o
. *o ^
'c/t> o
Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins
Sá semfékk okkur til að sœtta
okkur við kaupið
Hann Ási er að yfirgefa okkur!
Er furða þótt maður fái í mag-
ann við þessar íf éttir.
Hvað verðum um okkur án
hans Ása?
Hver kemur til með að tryggja
kaupmátt hinna lægst launuðu?
Hver passar upp á stöðugleik-
ann?
Hvað verður um þjóðarsáttina?
Og hver fæst til að tala við hann
Þórarin V., nú þegar Ási er farinn?
Ætlar Ási líka að hætta í ís-
landsbanka og hvað verður þá um
vextina?
Ég held að það síðasta sem
þjóðin þarfnast á þessum vondum
tímum sé óöryggi. Við vitum ekki
hvort þorskurinn er að yfirgefa
okkur, hvort krónan okkar er
nokkurs virði, hvort nokkur vill
líta við rafmagninu okkar, hvort
nokkur heldur vinnunni sinni um
næstu áramót. Óöryggið hefur
grafið sig djúpt niður í þjóðarlík-
amann og það er ekki á það bæt-
andi. Allra síst að hann Asi hætti.
Hvað gerist næst? Hættir Þórarinn
V. kannski líka?
Allt frá því Ásmundur kom
heim frá námi og kenndi þjóðinni
hvað verðbólga væri í Ríkissjón-
varpinu hefur þjóðin lagt traust
sitt á hann. Fyrst var hann bara
venjulegur ráðgjafi hjá Alþýðu-
sambandinu en síðar ráðlagði
hann alla forseta burt þar til hann
gat sjálfúr sest í forsetastól. Síðan
hefur hann leitt alþýðuna í leit
hennar að sómasamlegum kjör-
um. f það eina sinn sem hann
stjórnaði ekki samningaviðræð-
unum við vinnuveitendur fór allt í
hund og kött. Um leið og hann tók
forystu að nýju féll allt í ljúfa löð.
Éflaust eru til þeir menn sem
vilja meta árangur af störfum Ás-
mundar út frá því hversu mikið
hann fjölgaði krónunum í um-
slögum launþega. Þeir menn eru á
villigötum. Afrek Ásmundar felast
ekki í því. Honum tókst hins vegar
að sannfæra verkalýðinn um að
Hver kemur til með að tryggja kaupmátt
hinna lœgst launuðu? Hverpassar upp á
stöðugleikann? Hvað verður um þjóðar-
sáttina? Oghverfæst til að tala við hann
Þórarin V., nú þegarÁsi erfarinn?
því færri sem krónurnar í umslag-
inu væru því betur væri launþeg-
inn settur. Og eftir að lýðurinn fór
að trúa Ásmundi hefur honum
liðið betur. í stað þess að barma
sér yfir hversu aum laun hann fær
fagnar verkamaðurinn nú í hvert
sinn sem hann opnar umslagið og
sér að það er ekld hann sem mun
kollsteypa samfélaginu. Launin
hans munu ekki koma nýrri verð-
bólguöldu af stað. Þau munu ekki
vekja upp verðbólgudrauginn.
Þannig hefur Ásmundi tekist að
gera launamanninn glaðan á út-
Sorgunardögum. Það er afrek sem
fáirgetaleikið eftir._________
ÁS
Ein sjö árumyndavéla sem til eru í heiminum í Hafnarfirði
„Sannast að ára
er ekkert rugl“
Kunn athafnahjón úr Hafnar-
firði, þau Ægir B. Bessason og
Guðný Arnbergsdóttir, sem reka
Heilsubúðina þar í bæ, hafa ný-
lega fest kaup á svokallaðri áru-
myndavél, sem er ein sjö slíkra
sem til eru í heiminum. Sem
kunnugt er hefur það ekki verið á
allra færi að sjá árur. Það hefur
hingað til aðeins verið talið á færi
fólks með yfirnáttúrulega hæfí-
leika.
„Með þessu tæki sannast það
að ára er ekkert rugl. Myndavélin
sannar að það er til meira en
venjulegt mannsauga nemur,“
sagði Ægir í samtali við PRESS-
UNA.
Það fer ekki mikið fyrir þessu
merka tæki en aðferðin við að
greina áruna er að mæla með sér-
stökum nema, sem hendurnar
eru lagðar yfir, sveifluvídd orku-
sviðs líkamans. Með hjálp tölvu-
tækni er þessi sveifluvídd síðan
greind og umbreytt í þá liti sem
samsvara þessu orkusviði. Og á
meðan beðið er framkallast „pol-
aroid“-andlitsmynd með þeim lit-
brigðum í kring sem eiga við
hvern og einn. Þeir sem hafa til
dæmis sterkan appelsínugulan lit
eru taldir hafa lækninga-
mátt frá náttúrunnar
hendi, en eins getur litur-
inn táknað að sá sem hann
hefúr sé að vinna að bættri
heilsu sinni; gulur er tákn
um greind og styrk; grænn
um tengsl líkama og sálar
og breytingar í lífi einstak-
lingsins; blár er merki
ákveðni og ríkrar sköpun-
argáfú; íjólublár vitnar um
dulræna hæfileika; hvítur
um þroskaðan einstakling,
en ef rauði liturinn er áber-
andi er hann merki um æst
skap einstaklingsins, og svo
mætti lengi telja.
„Ég komst í kynni við
manninn sem smíðar áru-
myndavélina fyrir tveimur
árum í London og heillaðist
af þessari hugmynd, síðan
þá er ég búinn að velta því
fyrir mér að láta smíða
hana fyrir mig. Ég lét verða
af því í vor en fékk hana
ekki í hendurnar fyrr en
fyrir nokkrum dögum. Þar
sem ég hef einkaumboð
verður þetta eina vélin sem
Ægir og Guðný hafa einkaum-
boð fyrir árumyndavélina, en
hún er fokdýr að þeirra sögn.
Ef myndin prentast vel má sjá
bjarmann í kringum Jim Smart,
Ijósmyndara PRESSUNNAR.
Myndin kemur út í lit. Þeir litir
sem komu sterkast út hjá Jim
voru fjólublár og blár og lesi
hver í það fyrir sig.
til verður á íslandi. Uppskriffin að
henni er leyndarmál. Áuk þess er
hún svo dýr að það er ekld hægt
að fjöldaframleiða hana.“
Árumyndavélin er smíðuð af
kunnu vísindafyrirtæki í Banda-
ríkjunum og eftir því sem PRESS-
AN kemst næst er hún aðeins til í
þremur löndum í heiminum fyrir
utan Bandaríkin; í Sviss, Austur-
ríki og á íslandi.
Getur hver sent er komið og
látið mynda áru sína?
„Já, það geta allir gert og þetta
er ekkert dýrara en að láta taka af
sér passamynd.“
Sunnudagsopnun verslana
Guðvarður
Gíslason, veit-
ingamaður
Jóhannes
Gunnarsson,
form. Neyt.
ögmundur
Jónasson, for-
maður BSRB
„Það er fjöldinn allur af fólki
sem vinnur orðið sex daga vik-
unnar og þá frá níu til sex á laug-
ardögum, til dæmis fólk í ýmsum
þjónustugreinum, og kemst því
ekki til að versla nema í vinnu-
tímanum. Með tilliti til þessa
finnst mér þetta jákvætt. Það nei-
kvæða er hins vegar að með þessu
er verið að ryðjast, ég segi það
hiklaust, inn í friðhelgi heimilis-
ins með því að búa tii nýjar fé-
lagsmiðstöðvar sem heita Kringl-
an eða eitthvað annað. Fólk fer
líka orðið frekar á þessa staði en
að heimsækja söfri eða annað því-
líkt.“
„Neytendasamtökin telja eðli-
legt að afgreiðslutími verslana sé
frjáls og þama er vissulega verið
að auka þjónustu við neytendur.
Hins vegar er hætt við því að ef
aðrar verslanir fara að þessu
dæmi þá muni það til lengri tíma
litið leiða til hækkunar vöruverðs
vegna aukins kostnaðar sem
þetta hlýtur að valda.“
„Mér finnst þetta neikvæð þró-
un og ég fæ ekki séð þörfina fyrir
þetta. Án efa mun fólk versla svo
lengi sem verslanir eru opnar en
hins vegar bindur þetta af-
greiðslufólk við starf sitt, nema
verslunarrekendur fylgi þessari
þróun til enda og taki upp ein-
hverskonar vaktafyrirkomulag.
Eftir því sem fram hefur komið
frá afgreiðslufólki og samtökum
þess er það andvígt þessari þró-
un. Staðreyndin er sú að velflestar
verslanir eru opnar á laugardög-
um og oft framyfir venjulegan
vinnutíma í miðri viku og flest
fólk á því möguleika á að versla
utan vinnutíma síns. Þessari opn-
un fylgir aukinn kostnaður og
maður hefúr ekki séð að tilgang-
urinn með þessu sé að fjölga
störfum í greininni heldur er ver-
ið að auka vinnuálagið hjá þeim
sem fyrir eru og knýja fólk út í
meiri vinnu. Ef tilgangurinn væri
að fjölga störfúm þá sæi ég þarna
jákvæða þróun, en eins og málum
er skipað tel ég þetta neikvætt."
Guðlaugur
Bergmann,
verslunarm.
„Álit mitt á þessu er neikvætt.
Ég hef orðið var við að það er erf-
itt að finna leið til að hægt sé að
gefa starfsfólkinu frí á móti. Þá
getur orðið tilhneiging til þess,
sérstaklega eins og aðstæður eru
nú í þjóðfélaginu, að menn nýti
sér hræðslu fólks við að missa
vinnuna. Ég hef það fyrir satt að
verslunarrekendur hafi sagt við
fólk sem var óánægt með þetta:
Þá skalt þú bara leita þér að vinnu
annars staðar! Laugardagsopnun
er orðin almenn og ég tel að flest-
allt fólk geti nýtt sér hana. Sunnu-
dagsopnunin verður meira eins
og skemmtun og það er kannski
ekki nema kostur að fólk skuli
skemmta sér við að versla. Ég
held að eini ávinningurinn af
þessu sé fyrir Reykjavík — þá
kannski sérstaklega Kringluna og
Kringlusvæðið — að ná ein-
hverju fólki utan af landi. Það er
svona álíka og þegar við missum
viðskipti til Glasgow, Dublin eða
eitthvert annað.“