Pressan - 01.10.1992, Side 35

Pressan - 01.10.1992, Side 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 35 ...... Gaííiano Liquore Galliano" — hinn ólýsanlegi Gallíanó-líkjör með hitabeltis-lakkr- iskeimnum, er um þessar mundir er mest seldi likjörinn íSvía- og Danaveldi. Gallíanó er fjörgamall. Hann var markaðssettur fyrst árið 1896 en náði ekki almennilegum vinsældum fyrr en fyrir fáeinum árum. Til Islands barst hann hins vegar ekki fyrr en á vordögum og er að ná nokkrum vinsældum meðal veitinga- húsagesta. Barþjónar hafa löngum verið hrifnir af Gallíanó, enda hefur hann verið í nánast hverri verðlaunahanastélsblöndunni afannarri undanfarin ár. Barþjónarnir sóttu það fast að íslendingar hæfu ~'i innflutning á honum, enda er það svo að barþjón- ar mega einungis keppa i alþjóðlegum keppnum með vini sem fæst i heimalandi þeirra. Nú eru menn að uppgvöta nýja blöndu; heitt Gallíanó-skot. Það er samsett úr tveimur sl af Gallíanó, tveimursl afkaffi og einum slaf léttþeyttum rjóma. Og takið eftir; þessu má alls ekki blanda saman! Til að það megi verða þarf nokkra lagni sem felst í að hella kaffinu iskeið sem liggur lárétt í glasinu eftir að líkjörnum hefur verið komið þar fyrir. ? Að blanda slikan sjúss á veitinga- * * !\A\ \ stað kostar heilar 82 krónur og því ætti hæfilegt útsöluverð fyrir eitt heitt skot að vera á bilinu 300 til 350 krónur, en ekki 550 krónur eins og á sumum veitinga- húsum. Gallíanó hefur marga aðra kosti og segja sumir að hann sé hreint gsjgjjggii \ .jM&P ofbragð á súrmjólkina. ' ^Barrofcff ‘Rjpmance Svo einkennilega sem það kann að hljóma er Valur, sá sem rekur Café Romance íyrir Herluf Clau- sen, kominn í beina samkeppni við sjálfan sig og jafnffamt Herluf. Hann hefur nefnilega opnað veit- ingastaðinn Barrokk og það að sögn á eigin spýtur, án nokkurrar aðstoðar Herlufs Clausen. Barrokk er til húsa á Laugavegi, þar sem áður var Pétursklaustur, og er, eins og Romance, hugsað sem athvarf fyrir þá sem vilja tala saman án þess að drukkna í há- vaðatónlist. Um helgar munu fyrst um sinn skemmta þeir Ri- chard Scobie og Hjörtur Howser. Staðurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, í barrokkstíl og þannig hannaður af listamannin- um Cheo Cruz sem fékk til þess ftjálsar hendur. f miðjunni er ar- inn, líkt og á Romance, en allt um kring íburðarmiklir sófar, borð og stólar og á veggjunum stór bar- rokklistaverk effir Cruz. Staðurinn er svo íburðarmikill að þeir sem þangað koma, hversu fagurlega sem þeir eru skreyttir, koma til með að falla í skuggann. Vika er síðan staðurinn var opnaður og að sögn Eh's Másson- ar, sem þar starfar, hafa gestir staðarins verið fremur vel til fara. Hægt er að kaupa þar drykki af ýmsum toga og mat af Trúba- domum, sem er við hliðina á Bar- rokk. Staðurinn er svo íburðarmikill að þeir sem þangað koma — hversu fagurlega skreyttir sem þeir eru — falla í skuggann. Það verður ekki sagt annað um Hallvrím Thorsteinsson en hann hafi náð auknumþroska ogauknum sjarma með aldr- inum. Á menntaskólaárum sínum ÍMT varHallgrímurþegar farinn að dútla við skriftir ogþessi mynd var tekin árið 1976þeg- ar skólapilturinn var við efnisöflun á vettvangi. Ekki er margt líkt með Hallgrími hinumyngri ogHallgrími hinum eldri nema hvað báðireru meðgleraugu ogstutti toppurinn hefurhaldið sér. Eða sér einhversvip með mönnunum? Hvíti víkingurinn í sjónvarp Hrafn Gunnlaugsson er löngu orðinn frægur fyrir kvikmyndir sínar og ekki síst þær sem eiga sér rætur í fornum sögum víkinga. Hvíti hrafninn hét sú síðasta, en eftir henni voru einnig gerðir íjór- ir klukkustundarlangir sjónvarps- þættir sem nú verða teknir til sýn- ingar í íslensku sjónvarpi og verð- ur sá fyrsti á dagskrá næstkom- andi sunnudag. Hvíti víkingurinn var umdeild mynd, eins og reyndar flestar myndir Hrafns, og um hana tölu- vert ritað og rætt. Sagan gerist á þeim tímum sem fslendingar vom heiðnir og fjallar um baráttu þeirra við valdagráðuga konunga sem vildu kristna bæði menn og konur. Líkt og fyrri myndir leik- stjórans geymir sögulegt baksvið einnig undiröldu ástarinnar, ást sem berst fyrir hreinleika sínum, tryggð og trúmennsku. Myndin segir ffá Aski, ungum manni sem sendur er í kristniboð til fslands, en slfk iðja var illa séð af íslend- ingum sem kusu að viðhalda tryggð sinni við eigin guði án af- skipta Hvítakrists. Askur er því hafður að háði og spotti í viðleitni sinni en á engra kosta völ þar sem ung og fögur eiginkona hans, Embla, er gísl Noregskonungs sem neitar að láta hana af hendi fyrr en hinn ungi sveinn hefur snúið Islendingum til trúar á hinn kristna guð. Bæði eru Askur og Embla peð í valdatafli konungs, sem reynir að fá þau til að svíkja sín innilegustu loforð við kærleik- ann. Hrafn tekur nokkra áhættu með því að velja unga og óreynda leikara í burðarhlutverk, þau Mariu Bonnevie og Gottskálk Dag Sigurðarson, en sjálfur segir hann: „Eg hef kosið að nota kornunga leikara í hlutverk Asks og Emblu vegna þess að þeir hafa eitthvað við sig sem flestir hafa glatað um tvítugt... tryllta glóð í augum... dulúðugt yfirbragð. Þeir em nægi- lega óreyndir til að halda að allt sé mögulegt. Um það fjallar Hvíti víkingurinn." Leikstjórinn fer með þessum orðum ekki fjarri sannleikanum. Meðal annarra sem fara með stór hlutverk eru Egill Ólafsson, Helgi Skúlason, Thomas Norström, Þorsteinn Hannessson, Bríet Héðinsdóttir og Jón Tryggvason. Þegar þrengir að er tímabært að huga því hvernig komast má hjá heimilislegu gjaldþroti. Töffa- orðið er hrísgrjón, hrísgrjón í öll mál er lausnin, að ekki sé talað um þegar hægt er að komast yfir ódýr hrísgrjón í kílóatali sem hægt er að nota í grauta jafht sem krydd- rétti. Gamli góði hrísgrjónagraut- urinn stendur alltaf fyrir sínu, en í hann má alls ekki nota rúsínur né rjóma ef fólk ætlar virkilega að spara. Aðeins má setja út á hann kanilsykur og kannski örlitla mjólk. í Kryddkofanum er hægt að fjárfesta í 10 kílóa hrísgrjóna- poka á 749 krónur, enn betra er að hægt er að kaupa þar 50 kílóa poka á 3.500, semsagt kílóið á 70 krónur, en ef keypt er eitt og eitt kíló kostar það 87 krónur og því sparast þarna 17 krónur á hvert kfló. ‘Tveiryjóðir og ódýrir ftrís- grjónaréttir að hætti Kristbjörns Harðarsonar, mat- reiðslumanns á Mávinum. og smjöri og soðin í tíu mínútur. Rauðsprettan og rauðlaukurinn eru skorin í fiína strimla og steikt á pönnu í smjöri í um það bil þrjár mínútur ásamt öllu kryddinu (nema saltinu sem fór í hrísgtjón- in). Þessu öllu er síðan blandað saman. Þá er það sett á disk, osti stráð yfir og sett undir grillið inni í ofni í um það bil tvær mínútur. Borið fram. Ofnbökuð villt grjón og ferskt grænmeti Hráefni 200 g villt grjón, 50 g smjör, 50 g paprika, 50 g sveppir, 50 g blað- laukur, 30 g steinselja, 4 brauð- sneiðar, 3 egg, 1 peli ijómi (ef vill má blanda saman mjólk og ijóma til helminga), 1 tsk. sellerísalt, 1 tsk. oreganó, 1 tsk. arómat. Aðferð Villigrjónin eru soðin í fimm- tán til tuttugu mínútur ásamt smjörinu og saltinu. Grænmetið er skorið í litla bita og blandað saman við soðin en þerruð hrís- grjónin. Brauðsneiðarnar eru sett- ar í botninn á olíusmurðu, eld- föstu formi og grjónin og græn- metið þar ofan á. Þá eru eggin, rjóminn og allt kryddið (fyrir utan saltið í hrísgrjónunum) slegin saman í skál. Eggjarjóma- blöndunni er hellt yfir gijónin. Þetta er sett í 140 gráða heitan ofn í fimm til tíu mínútur. Með báðum þessum réttum er gott að borða hvít- lauksbrauð og ísjaka- salat. Verði ykkur að góðu. Gratíneruð hrísgrjón með rauðsprettu og rauðlauk Hráefni 200 g hrísgijón, 200 g flökuð og roðlaus rauðspretta, 100 g rauð- laukur, 50 g smjör, 1 tsk. salt, 1 tsk. turmeric, 2 tsk. ar- ómat, 1 tsk. basil, 1 tsk. sítrónupipar. Aðferð Hrísgrjónin eru sett í sjóðandi vatn ásamt salti Hvíti vikingurinn fjallar um svikráð, ástir og valdafíkn. Myndaflokkurinn verður sýndur í sjónvarpi í fjórum klukkustundarlöngum þáttum. HAMINGJUFERÐ .Hugmyndin á bakvið þetta er að gefa hjónum og pörum taekifæri til að upplifa rómantikina og hafa það huggulegt," segir Villi Þór, rakari og gleðimaður. Villi Þór stendur núna um helgina fyrir eins konar hamingjuferð, ætlaðri hjónum og pörum, austur á Selfoss. Farið verður klukkan níu á föstudagskvöldið frá BSl, gist á Hótel Selfossi og komið til baka á sunnudag. Ferðin kostar 20 þúsund fyrir hjónin og innifalið er ferðir, gisting, morgunverðar- hlaðborð, þríréttuð kvöldmáltíð með víni og kaffi og koníaki, skoðunarferðir, kaffiborð, sundlaugarferðirog fleira. Villi Þórsegistþarna vera að nýta dauðan tlma I ferðamannabransanum og það sé meðal annars ástæðan fýrir þessu lága verði. Og svo verði þetta óumræðilega rómantískt og auðgandi fyrir andann. B I O B O R G I N Rush ★★ Fíknó eru líka bóhemar og fikta við eiturlyfjaneyslu. Dálítið skemmtilega hrá og stundum trú- verðug mynd. En aðalpersónurnar ná ekki að lifna við. Alfen3 ★★★★ Óhugnanlega spennandi, þótt óhugnaðurinn sé meiri en spennan. Batman snýr aftur Batman Re- turns ★★★ Augnakonfekt og pottþétt skemmtun, þrátt fyrir þunnan söguþráð. Samt erfitt að horfa á leikmynd í tvo tíma. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg þrátt fyrir augljósa hnökra. B I O H O L L I N Kaliforníumaðurinn California Man ★ Mynd sem hefði ekki átt að fara út fyrir fylkismörk Kalifornfu. Á hálum fs The Cutting Edge ★★ Dálítið sérhæft, ekki vantar klisjurn- ar. Hvítir geta ekki troðið. White Men Can't Jump ★★★ Glúrin mynd og oft stórsniðug um hvltan mann og svertingja sem iðka körfubolta á götum Los Angeles. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg unglingamynd en ef til vill ekki stórkostlegt kvikmynda- verk. Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru á aldrinum sjö til tólf ára. Tveir á toppnum 3 Lethal Wea- pon 3 ★★ Minni hasar og minna grín en I fýrri myndum en meira af dramatiskum tilburðum. HASKOLABIO Háskaleiklr Patriot Games ★★ Viðkunnanlegur Harrison Ford þarf að verja fjölskyldu si'na fýrir óðum írskum hryðjuverkamönnum. Stundum æsileg, en oftar stirð- busaleg. Fátt kemur á óvart; smá- smugulegheit eru helsti kostur reyfara eftir Tom Clancy, þegar þau vantar verður söguþráðurinn helsti fátæklegur. Svo á jörðu sem á himni ★★★ I heildina séð glæsileg kvikmynd og átakanleg. Varla hefur sést betri leikur I fslenskri bíómynd en hjá Álfrúnu litlu Ömólfsdóttur. Hefndarþorsti Reneaades ★ Spennumynd, full af klisjum og skytterli. Hvorki Kiefer Sutherland né Lou Diamond Phillips ná að gera daufa mynd betri. Gott kvöld, herra Wallenberg ★★★ Með skárri sænskum mynd- um I háa herrans tlð. Samt dálítið þunglamaleg. Veröld Waynes Wayne's World ★ ★ Gallinn er að húmorinn er ekki nógu geðveikur og of sjaldan fyndinn. Steiktir grænir tómatar Fried green tomatoes ★★★ Konumynd; um konur og fyrir konur. Góðir eig- inmenn láta undan og fara með. Kristófer Kólumbus ★ Ekki einu sinni Brando rís upp úr meðal- mennskunni. Eina spennan sem boðið er upp á er hvort Kólumbusi tekst að finna Ameríku — myndin er ekki fyrir þá sem vita hvernlg sú saga endaði. Ferðin til Vesturheims Farand Away ★★★ Rómantisk stórmynd, ákaflega gamaldags en oft stór- skemmtileg. Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru á aldrinum sjö til tólf ára. REGNBOGINN Hvftir sandar. White Sands ★ Flækjan I myndinni heldur ekki vatni. Þegar Mickey Rourke upplýs- ir að hann sé starfsmaður CIA fellur síðan allur botn úr. Rourke er fyrir löngu orðinn óþolandi og hér tekst honum að draga annars ágæta leikara, Defoe og Mastran- tonio, niður á sitt plan. Prinsessan og durtarnir ★★★ Myndin er talsett af mikilli kost- gæfni og ekkert til sparað. Að öðru leyti frekar meinlltið ævintýri. Varnarlaus Oefenseless ★★★ Ágætur þriller, þótt áhorfandinn sé stundum á undan söguþræðinum. Ógnareðli Basic Instinct ★★ Markaðsfræðingarnir fá báðar stjörnurnar. Lostæti Delicatessen ★★★★ Hugguleg mynd um mannát. STJORNUBIO Ruby ★ Allir aörir en Bandarlkja- menn eru sjálfsagt löngu búnir að fá sig fullsadda af samsæriskenn- ingum um morðið á Kennedy. Höfundar þessarar myndar reyna ekki einu sinni að hafa heila brú I sinni kenningu. Þeir virðast halda að maður kaupi hana þar sem hún tengist Kennedy (það bara hlýtur að hafa verið samsæri, kannski ekki alveg svona en að minnsta kosti einhvers konar). Queen's Logic ★★ Þetta er lík- lega þúsundasta myndin sem fjall- ar um endurfundi vinahóps, Þrátt fyrir næstum þvi-krísur I hjónallfi sumra vinanna um miðbikið er myndin marflöt. Ofursveítin Universal Soldier ★★ Fyrir stráka sem kannski pína kær- usturnar með. Börn náttúrunnar ★★★ Róm- aðasta íslenska bíómyndin. S O G U B I O Alíen3 ★★★★ Meistaralegur lokaþánur þessarar tríólóglu, gerir Batman-veröldina að hálfgerðu Lególandi. Ferðin til Vesturheims Far and Away ★★★ Nicole Kidman stelur senunni frá bónda sínum, Tom Cruise. Mjallhvft og dvergarnir sjö ★★★ Yfirleitt hugljúf, en nornin er býsna hræðileg og hefur valdið mörgum börnum andvökunótt- um.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.