Pressan - 17.12.1992, Qupperneq 16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. DESEMBER 1992
B 16
„Stíll Kristínar hefur
oft verið skilgreindur
sem barnslegur. Hann
er það eu um leið er
hann aldrei einfeldn-
ingslegur. “
Ástin verður
hentistefna
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR
SVARTIR BRÚÐARKJÓLAR
MÁLOG MENNING 1992
★ ★
OKristín Ómarsdóttir er
ein snjallasta skáldkona
okkar af yngri kynslóð
skáldkvenna. í fyrra sendi hún frá
sér bráðskemmtilega bók, Einu
sinni sögur, og í ár kemur út fyrsta
skáldsaga hennar, Svartir brúðar-
kjólar.
Sagan segir frá hjónunum
Hjálmari og Sólveigu og börnum
þeirra, Ingibjörgu, Signýju, Fjólu
og Jóhanni. Amman Karlotta
kemur einnig við sögu og á mörg
gullkorn í bókinni eins og þessi:
„Nú er ég orðin svo þreytt að ég
hef enga ánægju af neinu lengur
nema dónaskap... Stelpur mínar
passiði ykkur á að fara ekki var-
hluta af dónaskap í lífi ykkar“ og
„... ég er meðmælt því að fólk
yfirgefi hvert annað því fólk á ekki
að gera það sem er auðvelt heldur
það sem er erfitt".
Allar persónurnar eru í leit að
ást og finna hana en þá venjulega
aðeins skamma stund, stundum
hjá persónu af sama kyni. Ástin
verður nokkuð í ætt við henti-
stefnu, seglum er hagað eftir vindi
og menn þjóna duttlungum sín-
um og náttúrlega kynhvötinni.
Það eru djarfar og ögrandi kynlífs-
lýsingar í þessari sérstæðu bók.
Samtöl í verkinu eru mörg og
löng, á hversdagsmáli. Stundum
finnst lesandanum að hann sé að
fylgjast með leikurum á sviði fara
með ruilur sínar. Frásagnarað-
ferðin er einföld, blátt áfram, laus
við allt nostur, sumum kann að
virðast hún virka kuldalega.
Stfll Kristínar hefur oft verið
skilgreindur sem barnslegur.
Hann er það en um leið er hann
aldrei einfeldningslegur. Tilgerðar
verður aldrei vart hjá skáldkon-
unni.
Bókin er 255 blaðsíður og hún
er of löng. Þetta hefði orðið skín-
andi verk hefði það verið stytt um
þriðjung. Á svo mörgum blaðsíð-
um sem raun er á er efnið teygt og
togað og lesandinn þreytist á ein-
faldri ffásagnaraðferð sem reynd-
ar er ólík þeirri sem flestir höf-
undar notast við, en verður til
lengdar blæbrigðalaus og fullein-
hæf. Lesandinn fer að þrá tilbreyt-
ingu í stflinn.
Svartir brúðarkjólar er að mínu
mati ekki jafn gott verk og Einu
sinni sögur en hefði auðveldlega
getað orðið það hefði verkið verið
þétt með með því að kippa út
köflum. En skáldkonan má vel við
una og lesendur sömuleiðis.
Margt er afar vel gert í verkinu og
það er þess virði að það sé lesið.
Þetta verk breytir í engu þeirri
skoðun minni að Kristín Ómars-
dóttir sé ákaflega mikið efni og
hugsanlega hæfileikamesta skáld-
konan okkar af yngri kynslóð
skáldkvenna.
Lesendur ættu ekki að láta káp-
una fæla sig frá en hún er hreint
ótrúleg, svo ljót er hún.
Kolbrún Bergþórsdóttir
ALLT NEMA
PÍKUPOPP
Kolrassa krókríðandi er að
mínum dómi sú hljómsveit sem
hleypti ferskasta gustinum inn í
heldur rykfallinn íslenskan tón-
listarheim á árinu. Hljómsveitin
sigraði með yfirburðum í hinum
árlegu músíktilraunum og hefur
bætt rosalega á sig á árinu hvað
varðar spilamennsku, samæfingu
og lagasmíðar. Með öflugri mark-
aðssetningu mætti vel koma þeim
áfram erlendis, svo ég tali nú eins
og viðskiptafræðingur. Blaða-
menn ensku músíkpressunnar
sem voru á Eldborgarhátíðinni í
sumar hrifust að minnsta kosti
mest af Kolrössu og litu varla við
öðrum böndum.
Stelpurnar eru fjórar og allar
sautján ára; Elísa M. Geirsdóttir
fiðlar og syngur með heiðskírri'
englarödd sem stundum snýst
upp í Lindu Blair í „Særinga-
manninum"; villingurinn hún
Ester Ásgeirsdóttir, sem halda
mætti að hefði fæðst með bassann
í lúkunum; Sigrún Eiríksdóttir gít-
arleikari — hugmyndarík og klár;
og hin taktvísa Birgitta M. Vil-
bergsdóttir. Þær voru allar mættar
á kaffihúsið nema sú síðasttalda.
„Við vorum stelpnagengi í
Keflavík löngu áður en Kolrassa
var stofnuð," segja stelpurnar.
Þær tala allar í belg og biðu og
löngu síðar á ég í vandræðum
með að greina sundur raddirnar á
segulbandinu. „Við vorum kallað-
ar Zeppelin-gengið þvf við ffluð-
um allar Led Zeppelin. Þetta var
auðvitað áður en þeir komust í
tísku. Við gerðum ekki margt
merkilegt, hlustuðum á tónlist og
héldum átorgíur hver heima hjá
annarri; átum þar til við stóðum á
blístri. Við vorum að drepast úr
leiðindum, en við þekktum stráka
í hljómsveitum og héngum oft yfir
þeim. Þeir voru síðan hjálplegir
með græjur og æfingahúsnæði
þegar við stofnuðum hljómsveit.
Fyrst hétum við „Menrí', en mjög
snemma kom upp fyla í þvl bandi
og við urðum óvinkonur í átta
mánuði, töluðumst varla við. Á
því tímabili opnuðust augu okkar
fyrir breska „indí“-rolddnu og
ýmsu öðru. I dag hlustum við á
nánast hvað sem er nema kántrí
og píkupopp. Kolrassa er blanda
úr sjö milljón hljómsveitum."
Hlustið þið á önnur kvenna-
bönd?
Stelpur kinka kolli. „Já, banda-
ríska sveitin L7 er mjög góð og eitt
frábært kvennaband kemur frá
Japan, Shonen Knife, við elskum
þær. Stærsti draumur okkar er að
spila með þeim! Grýlurnar voru
góðar á sínum tíma, en sem betur
fer fyrir okkur eru engar kvenna-
sveitir í gangi hérna í
dag. Við værum ekki
svona góðum bissness]
ef það væri fullt ai
þeim.“
Fáið þið aðra með■
höndlun afþvt þið erm
kvenkyrts?
„Líklega já, og það er|
eðlilegt. Okkur finnst]
ekkert rangt við það að
stelpur spili rokk, alls|
ekki, en þar sem við er-
um eina kvennabandið|
fáum við miklu fleirij
tækifæri en strákabönd.
Svo erum við líka að|
spila tónlist sem fáir|
aðrir spila.“
Hver var þessi Kol
rassa sem þið nefnil
ykkureftir?
„Hún kemur úr þjóð-
sögunum. Það var stelpal
sem hét Helga sem var
rænt af tröllum. Til að
sleppa dulbjó hún sig
sem tröllskessuna
Kolrössu krókríðandi;
velti sér upp úr tjöruj
setti á sig fjaðrir og reið berbakt til
byggða."
Heimatilbúið
stelpurokk
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI
DRÁPA
SMEKKLEYSA
★★★
Það var tónleikaupplifun
ársins þegar ég sá
iKolrössu í fyrsta sinn á
sviði fyrir nokkrum mánuðum.
Ég átti von á ýmsu miðað við um-
talið, en ekki svona rosalega þéttu
tónleikabandi. Mér leiðast tuggur,
en þær gefa strákunum ekkert eft-
ir nema síður sé. Það sem Kolrass-
an hefur lfka fram yfir önnur ný
bönd er að tónlist þeirra er heima-
tilbúin — ekki aðkeypt úr nýjasta
rokkpöntunarlistanum — heldur
hefur stúlkunum tekist að skapa
mjög svo sérstakan stfl sem hlýtur
að teljast vel af sér vikið hjá svo
ungu fólki. Hljómur Kolrössu er
sérstakur og liggur einhvers staðar
á milli Risaeðlunnar (kátínan og
fiðlutónarnir), Þursaflokksins
(þjóðlagablærinn), Red Hot Chili
Peppers (fönktilhneigingar Ester-
ar bassaleikara) og enskrar
draumarokknýbylgju (brenglaðir
gítartónar og danstrommutaktar).
Tónlist Kolrössu er þó ekkert
drullumall; þetta smellur allt sam-
an hjá þeim í eðlilegan rokkkögg-
ul.
Það hefur tekist ágætlega til
með upptökurnar, hljómurinn er
að vísu fullslípaður; skemmtilegra
hefði verið að nálgast meir tón-
leikafflinginn með hrárri hljómi,
en þetta sleppur fyrir hom. Lögin
eru misgóð, „Myrkrið" og „Synir
Kolrössu" eru lítið annað en upp-
fyiling, en hin lögin fimm eru
mjög góð. Áræðni, kraftur og þó-
nokkur frumlegheit einkenna
þessi lög, svo og gott vald á snið-
ugum melódíum. Það er erfitt að
forðast hallærislegheitin þegar
reynt er að blanda saman þjóð-
lagatónlist og rokki, en Kolröss-
unum tekst það á skemmtilegan
hátt. „Vögguvísan“ þeirra er ang-
urvær og flott, og „Móðir mín í kví
kví“ magnað lag.
Kolrassa krókríðandi er ung
hljómsveit og fýrsta platan þeirra
því geysivel heppnuð. „Drápa“ fer
íéttilega inn á minn lista yfir fimm
athyglisverðustu og bestu plötur
ársins. Ef sveitin fær að þróast
áfram og stelpurnar missa ekki
áhugann má ekki bara búast við
góðri plötu næst heldur barasta
meistarastykki!
Gunnar Hjálmarsson
rrm “TL-Wi.'M 1
Eintök Flytjandi Titill Útgefandi
1 5.591 Bubbi Von Steinar
2 3.945 KK Bein leib KK/Japis
3 3.619 Sálin hans )óns míns Þessi þungu högg Steinar
4 2.562 Ný dönsk Himnasending Skífan
5 2.543 )et Black )oe Jet Black Joe Steinar
6 2.270 Eric Clapton Unplugged Steinar
7 1.699 Ymsir Minningar 2 Skífan
8 1.697 Diddú Sópran Skífan
9 1.365 Megas Þrír blóbdropar Skífan
10 1.347 Stóru börnin Hókus pókus Steinar
Vikusala Flytjandi Titill Útgefandi Vikur
1.466 KK Bein leib KK/Japis 6
$ 1.345 Bubbi Von Steinar 7
864 Ný dönsk Himnasending Skífan 5
$ 858 Sálin hans )óns míns Þessi þungu högg Steinar 6
660 )et Black )oe Jet Black Joe Steinar 8
660 Diddú Sópran Skífan 4
650 Ymsir Minningar 2 Skífan 5
A 585 Stóru börnin Hókus Pókus Steinar 7
476 Freddy Mercury Freddy Mercury Skífan 2
+ 440 Eric Clapton Unplugged Steinar 13
i> 420 Ýmsir Grimm sjúkheit Steinar 4
* 398 Egill Ólafsson Blátt blátt - Skífan 4
Upplýsingar hér eru byggtxtr á sölutölum frá 12 verslunum, öllum verslunum Skifunnar, Steinars og lapis. Ætla má aö 40-5096 af áœtlaöri
heildarsölu fari fram í þessum búöum. Heildarsalan tekur miö aí fjölda vikna í sölu, sölutölum úr fyrrnefndum verslunum og upplýsingum
frá útgefendum eöa dreifingaraöilum. Tölurnar taka aöeins til diska, sem útgefnir hafa veriö íhaust. prissan/am