Pressan - 21.01.1993, Page 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. JANÚAR 1993
Upplausn í herbúðum Víkings
Leikmenn flýja
tugmílljóna skuldir
Arnar Grétarsson verður
Mikil upplausn ríkir nú í her-
búðum knattspyrnudeildar Vík-
ings eftir átök undanfarinna
vikna. Gífurlegar skuldir hvíla á
deildinni og að sögn Jóhannesar
Sœvarssonar, formanns knatt-
sp’Tnudeildarinnar, er nettóupp-
hæð þeirra um 22-23 milljónir
króna.
Margir telja stöðu Víkings
dæmigerða fyrir íþróttafélögin og
segja mikinn samdrátt styrktarað-
ila og óhóflegar launagreiðslur til
leikmanna orsökina. fþróttafélög-
in séu þeir aðilar sem fyrst fmni
fyrir samdrætti í atvinnulífinu, þar
sem vinveitt fyrirtæki skeri fyrst á
styrkitilþeirra.
ÓSPART BOÐIÐ í LEIK-
MENN VÍKINGS
Nýkjörin sjórn knattspyrnu-
deildar Víkings hefur orðið að
grípa til mikilla sparnaðarráðstaf-
ana vegna slæmrar fjárhagsstöðu
félagsins og meðal annars hafa
launagreiðslur til leikmanna verið
skornar niður um allt að 70 pró-
sentum. Leikmenn hafa tekið
þessu misvei og er þegar brostinn
flótti í liðinu. Þannig hafa Helgi
Björgvinsson og sóknarleikmað-
urinn snjalli Helgi Sigurðsson
skipt yfir í Fram. Þá eru sam-
UM HELGINA
Fl MMTUDAGU R
Handb. 1. deild kvenna
Ármann - ÍBV kl. 18.30.
Vestmannaeyjastúlkurnar
eru líklegri til að bera sigur
úr býtum í þessum leik,
enda eru Ármannsstúlkurn-
ar í fallbaráttunni.
Karfa 1. deild kvenna
KR-ÍSkl. 18.30.
LAUGARDAGU R
Frjálsíþróttir kl. 11. ís-
landsmótið í atrennulaus-
um stökkum innanhúss.
Mótið fer fram í Baldurs-
haga.
SUNNUDAGUR
Karfa úrvalsdeild
Grindavík - Snæfell kl.
20.00. Hér má búast við
hörkuslag mjög jafnra liða.
Njarðvík - Haukar kl.
20.00. Haukar hafa leikið
betur í vetur, en Njarðvik-
ingar eru þó allir að koma
til. Gaman verður að fylgjast
með einvígi þeirra Rodneys
Robinson og Johns Rodes,
útlendinganna í liðunum.
Tindastóll - Breiðablik kl.
18.00. Þrátt fyrir að blikarnir
séu langneðstir í sínum riðli
eru þeir sigurstranglegri.
Ástæðan er vitanlega nýi
útlendingurinn þeirra, Joe
Wright, sem skorar yfir 50
stig að meðaltali í leik.
KR - Skallagrímur kl.
20.00. Skallagrímsmenn
virðast vera í stuði þessa
dagana. Þeir sigruðu Snæ-
fell í síðasta leik og eru til
alls líklegir. Hins vegar teflir
KR fram nýja útlendingnum
sínum, Keith Nelson, í fyrsta
sinn og því erfitt að spá um
úrslitin.
Atli Einarsson: Fjöldi knatt-
spyrnufélaga hefur hinn eld-
fljóta sóknarmann í sigtinu, þ.á
m. Stjarnan.
kvæmt heimildum PRESSUNN-
AR Ijórir aðrir leikmenn í byrjun-
arliðinu alvarlega að íhuga félaga-
skipti. Mörg knattspyrnufélög
voka nú yfir Víkingsliðinu eins og
hrægammar og bjóða í bestu leik-
menn félagsins.
BROTTHVARF LOGA DREG-
UR DILK Á EFTIR SÉR
Óánægja leikmanna Víkings er
þó ekki einungis sprottin af launa-
lækkunum, heldur einnig vegna
brotthvarfs Loga Ólafssonar,
þjálfara liðsins. Síðasta verk fyrri
stjórnar knattspyrnudeildarinnar
var að gera samning við Loga þess
efnis að hann tæki að sér þjálfim
liðsins í eitt ár til viðbótar og full-
yrðir fyrrum stjórnarmaður að
með þessum samningi hafi Logi
verið ódýrasti þjálfarinn í fyrstu
deild. Hin nýja stjórn, kosin síð-
astliðið haust, gat hins vegar ekki
sætt sig við samninginn, og í byrj-
un þessa árs bauð hún Loga nýj-
an. Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR hljóðaði hann
upp á um það bil helmingi lægri
laun en fyrri samningur og því gat
Logi ekki unað. Vegna
þessarar óánægju Loga leit
stjómin svo á að hann væri
ekki lengur þjálfari Vík-
ings. Hún bauð honum
aldrei samningaviðræður,
aðeins óaðgengilegan
samning, og ætla menn út
ffá því að stjómin hafi ekki
hafi annað í hyggju en að
losa sig við Loga. Sjálfur er
hann ósáttur við þessa
framgöngu stjórnarinnar,
telur hana hafa brotið á sér
og hyggst leita réttar síns.
Þess má geta að árslaun
þjálfara í fyrstu deild eru
samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR á bilinu
1,5-3 milljónir króna og
vitað er að grunnlaun Loga
voru lág, en bónusgreiðsl-
ur ríflegar.
Margir telja hina nýju
stjóm Víkings hafa gert afdrifarík
mistök í samskiptum sínum við
Loga og því sé komið los á leik-
menn félagsins. Áður hafði yfir-
gnæfandi meirihluti leikmanna
lýst yfir ánægju sinni með að Logi
héldi áfram að þjálfa liðið og þar
að auki var stjómin búin að semja
við þá alia um launagreiðslur fyrir
næsta keppnistímabil. Það er því
ljóst að leikmennimir hefðu hald-
ið áfram að leika með félaginu,
þrátt fyrir launalækkun, ef af
brotthvarfi Loga hefði ekki orðið.
Meðal þeirra sem nú sitja í stjórn
félagsins eru Jóhann Sœvarsson,
lögfræðingur og formaður, Gylfi
Sigfússon ritari og Jóhann Þor-
varðarson hagfræðingur. Sá síð-
asmefndi er, samkvæmt heimild-
um PRESSUNNAR, umdeildur
og talinn ráða meiru í núverandi
stjóm en staða hans innan hennar
gefi til kynna.
SLÆM STAÐAENGIN
NÝMÆLI
Ljóst er að fyrri stjórn hefur
skilað af sér slæmu búi. Þó ber
heimildamönnum PRESSUNN-
AR saman um að við hana sé ekki
alfarið að sakast, þar sem stjómin
sem kosin var árið 1987 tók einnig
við miklum skuldum. Þá vora þær
10-12 milljónir króna, en ársvelt-
an um 6 milljónir. Nú er ársveltan
um 24 milljónir króna og brúttó-
skuldir samkvæmt mati nýju
stjórnarinnar um 30 milljónir
króna (22-23 milljónir nettó).
Fyrri stjórn telur skuldirnar ein-
hverju lægri og samkvæmt árs-
reikningi 1991 vora þær taldar 16
milljónir króna. Hlutfallslega era
skuldir því lægri
nú en þegar
gamla stjórnin
tók við. Munur-
inn á nýju
stjórninni og
þeirri gömlu er,
að mati fyrrum
stjórnarmanns,
að nýja stjórnin
hleypur með
slæma stöðu í
fjölmiðla, sem
hin gerði ekki. Formaður fráfar-
andi stjórnar var Gunnar örn
Kristjdnsson endurskoðandi og
mun hann hafa ráðið mestu í
stjórninni. Gunnar örn er meðal
annars endurskoðandi KSÍ. Vara-
formaður stjómarinnar var Björn
Tryggvason læknir og gjaldkeri
Hörður Sverrisson viðskiptaffæð-
ingur.
Ein af meginástæðum þess hve
knattspyrnudeild Víkings er illa
stödd er Stuttgart-ævintýri stjóm-
ar Víkings árið 1983. Þáverandi
formaður deildarinnar var Guð-
geir Leifsson. Þá stóð stjómin fyrir
því að fá þýska stórliðið Stuttgart
til að leika hér á landi við Víldng
og úrvalslið þekktra knattspyrnu-
kappa ffá Evrópu. Það er
skemmst ffá því að segja að vegna
vonskuveðurs komu einungis ör-
fáar hræður á leikina og milljóna-
tap varð á ævintýrinu. Tapið lenti
alfarið á knattspymudeildinni og
mun það enn vera þungur baggi á
henni.
Það er því auðvelt að gera sér í
hugarlund erfiðleikana sem stjórn
Víldngs þarf að mæta með núver-
andi skuldir, þegar félagið burðast
enn með afleiðingar áratugargam-
als Stuttgarts-ævintýris!
EKKERT EINSDÆMI
Slæm fjárhagsstaða Víkins er
ekkert einsdæmi. Svo virðist sem
fyrstudeildarfé-
lögin í knatt-
spyrnu, og
reyndar einnig í
handknattleik,
hafi spennt
bogann allt of
hátt í greiðslum
til leikmanna og
raunar öðrum
kostnaði, en
fyrir um fimm
árum vora leik-
mannagreiðslur svo til óþekkt fyr-
irbæri. Þessar greiðslur, sem sagð-
ar era nema á bilinu 250 þúsund
til 1,5 milljónir króna á leikmann
yfir keppnistímabilið, eru nú
orðnar að víta-
hring fyrir fé-
lögin. Þau
keppast við að
bjóða hvert í
annars leik-
menn og
spenna þannig
upp verðið á
leikmönnum
sínum. Þau
neyðast til að
greiða leik-
mönnunum
svipað og önnur
lið bjóða þeim, vilji þau halda
þeim. Augljóst er að langfæst hafa
félögin nokkur efiii á þessu. Þótt
slæm staða Víkings sé orðin að
fjölmiðlamáli þarf hún engan veg-
inn að vera verst. Viðmælendur
PRESSUNNAR hafa bent á fleiri
lið sem svipað er ástatt um og hafa
knattspyrnudeildir Vals og KA
meðal annars verið nefiidar í því
sambandi.
Ekki er hægt að benda á neinn
einn aðila sem komið gæti Víkingi
til hjálpar. Hjá Val tók yfirstjórn
félagsins málin í sínar hendur nú
fyrir skömmu með því að láta
knattspymudeildinni í té 10 millj-
ónir króna. Hjá Víkingi eru hins
vegar erfiðleikar í fleiri deildum,
sem bindur yfirstjórnina í báða
skó. Þar má nefna að handknatt-
leiksdeild félagsins er afar illa
stödd, en skuldir hennar nema
um 15-20 milljónum króna.
Jónas Sigurgeirsson
Helgi Björg-
vinsson erfar-
inn í Fram.
Helgi Sigurðs-
son, eitt mesta
efni Víkings, er
farinn yfir í
Fram.
áfram í Breiðabliki, enda með
hagstæðan samning.
Knattspyrna
Liðsfíotti úr
Breiðabliki
Breiðablik, sem féll sem
kunnugt er niður í 2. deild síð-
astliðið sumar, hefur orðið fyr-
ir miklum skakkaföllum und-
anfamar vikur þar sem margir
leikmenn hafa yfirgefið félagið.
Tveir blikar, þeir Reynir
Björnsson og markaskorarinn
góðkunni Steindór Elísson,
hafa gengið í raðir hins Kópa-
vogsliðsins, HK, sem leikur í 3.
deild. Þá hefur Rögnvaldur
Rögnvaldsson skipt yfir í
Stjömuna og Hilmar Sighvats-
son hefur tekið að sér þjálfun
liðs Aftureldingar. EiríkurÞor-
varðarson, varamarkvörður
liðsins, hefur ákveðið að leika
ekki með liðinu næsta sumar
og óvíst er um framtíð Villums
Þórssonar hjá félaginu. Enn-
fremur ganga þær sögur fjöll-
unum hærra að sóknarleik-
mennirnir Grétar Steindórs-
son og Jón Þórir Jónsson séu á
förum frá félaginu.
Besti leikmaður Breiðabliks
í, fyrra, landsliðsmaðurinn
Amar Grétarsson, hefur hins
vegar gert samning við félagið
og sömu sögu er að segja af
Vali Valssyni og júgóslavneska
markverðinum Cardaklija.
Ljóst er að undirskrift Arnars
Grétarssonar hefur ekki verið
Breiðabliki að kostnaðarlausu,
þótt hann sé alinn upp hjá fé-
laginu. Nokkur lið vora á hött-
unum eftir honum, meðal ann-
ars Vestmannaeyjar, og er sagt
að þeir hafi boðið Arnari 1,8
milljónir króna fyrir eins árs
samning. öraggt er að Breiða-
blik bauð Arnari ekki svo háa
upphæð en á meðal stuðnings-
manna Breiðabliks hafa tölur á
bilinu 1,3-1,6 milljónir króna
verið nefndar.
GERVIHNATTASPORT
FIMMTUDAGUR
18.30 Evrópuknattspyrnan Scre-
ensport Fallegustu mörkin og
helstu úrslitin í evrópsku
knattspyrnunni.
19.00 Körfuknattleikur Eurosport
Bein útsending frá leik í Evr-
ópukeppninni.
20.30 Hollenski boltinn Screen-
sport Senn fáum við að sjá
tvíburabræðurna ofan af
Skaga spreyta sig í hollensku
knattspyrnunni.
21.00 Spænska knattspyrnan
Screensport
22.00 Franska knattspyrnan
Screensport
FÖSTUDAGUR
10.00 Skíði Eurosport Bein útsending
frá heimsbikarmótinu í skíða-
íþróttum sem haldið er í
Austurríki. Hér fáum við að sjá
fremstu skíðakonur heims
bruna niður brekkurnar.
13.00 Tennis Sky Sports Sýnt frá
fimmta degi opna ástralska
tennismótsins.
16.00 Risatrukkar Screensport Svip-
myndir frá keppni risatrukka
sem haldin er í Michigan í
Bandaríkjunum.
18.30 NBA-Qör Screensport
22.30 Keila Screensport
LAUGARDAGUR
11.15 Skíði Eurosport Bein útsending
frá keppni karla á heimsbikar-
mótinu í skíðaíþróttum.
Tomba, Girardelli og Accola
bítast að öllum líkindum um
sigurinn.
11.30 NBA-Qör Screcnsport
13.00 NBA-boltinn Screensport Sýnt
frá leik Portland Trail Blazers
gegn Seattle Supersonics.
18.00 Knattspyrna Sky Sports Sér-
stakur þáttur um bresku bik-
arkeppnina. Fjallað sérstak-
lega um leiki fjórðu umferðar,
sem fram fer fyrr um daginn.
19.00 Skiðastökk Eurosport
SUNNUDAGUR
11.00 Hnefaleikar Screensport
12.30 Skiðastökk Eurosport Hér sjá-
um við alla bestu skíðastökkv-
ara heims reyna með sér á
ftalíu. Skyldi einhver þeirra ná
að fljúga yfir 100 metra mark-
ið?
17.05 Skíði Eurosport Nýjustu fréttir
frá heimsbikarkeppninni í
skíðaípróttum.
18.00 Körfuknattleikur Screensport
Bein útsending frá leik (pýsku
úrvalsdeildinni.
21.00 Knattspyrnuveisla Screensport
Sýnt úr helstu stórleikjum í
spænsku, frönsku og portú-
gölsku deildarkeppninni.
Magnús Sigurðsson handknattleiksmaður
Stefni ótrauöur
á HM 93
Magnús Sigurðsson, vinstri-
handarskytta frá Selfossi, sem nú
leikur með Stjörnunni í Garða-
bæ, er meðal markahæstu leik-
manna fýrstu deildarinnar. Hver
stórleikurinn hefur rekið annan
hjá honum og má fullyrða að
Magnús hafi verið jafnbesti leik-
maður Stjömunnar í vetur. Eins
og kunnugt er trónir Stjaman nú
á toppi deildarinnar.
Magnús, sem nú er 22 ára,
hefur leikið með Stjörnunni í
þrjú ár. Fyrsta ár hans hjá félag-
inu var slakt, en síðan hefur leið-
in legið upp á við. Forráðamenn
félagsins telja hann framtíðar-
vinstrihandarskyttu landsliðsins,
en hvað finnst Magnúsi, er hann
inni í myndinni hjá landsliðs-
þjálfaranum?
„Já, ég held ég sé það núna. Ég
var valinn í leildnn gegn Egypt-
um hér í október og hef æft með
liðinu síðan. Tók bæði þátt í
mótinu í Danmörku og í leikjun-
um gegn Frökkum eftir jól.“
Þú varst valinnfyrir nokkrum
drum í landsliðið en síðan ekki
söguna meirjyrr en nú. Hvað
gerðist?
„Ég var fyrst valinn í landsliðið
af Bogdan um jólin 1989, en fékk
lítið að leika með. Ég æfði með
landsliðinu hluta ársins 1990, en
datt úr liðinu eftir það og kem nú
inn á nýjan leik eftir rúmlega
tveggja ára hlé. Ég veit eiginlega
Hin 194 sm háa stórskytta
Magnús Sigurðsson hefur
blómstrað í vetur.
ekki hvað kom fyrir mig, en ég
spilaði bara illa, bæði með
Stjömunni og landsliðinu. Nú er
það sem betur fer yfirstaðið og ég
stefhi ótrauður á að komast á
HM ’93, sem haldið verður í Sví-
Þjóð.“