Pressan - 21.01.1993, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR PKESSAN 21. JANÚAR 1993
B f Ó
POPP VEITINGAHÚS BARIR
POPP
FIMMTUDAGUR
• Sú Ellen er komin
á koppinn hjá Gauk á
Stöng fram á sunnu-
dagskvöld. Hana
skipa meðal annars Steinar gít-
arleikari, Guðmundur söngvari,
Ingvar hljómborðsleikari og Halli
bassaleikari, sem Guðmundur
Jónsson úr Sálinni mun renna
hýru auga til.
• Andrea & Kjartan, eða þau
Andrea Gylfadóttir söngkona og
Kjartan Valdimarsson píanóleik-
ari, skipa góðan dúett sem verð-
urá Blúsbarnum.
• Hermann Ingi yngri er Ey-
japeyi og hreint ágætur trúba-
dor sem verður á Fógetanum.
FOSTU DAGUR
• Sú Ellen spilar annað kvöldið
í röð á Gauk á Stöng og ekki það
síðasta.
• Trix er ísfirsk grúppa, enda Is-
firðingar sem eiga sitt árlega
kvöld á Hótel (slandi; Sólarkaffið.
• Hljómsveit hússins heitir
sveitin, skipuð þeim Ragga
Bjarna og Evu Ásrúnu Alberts-
dóttur, sem spilará Ölveri.
SUNNUDAGUR
• Af lifi og sál verður með
míníkombakk á Gauknum í
kvöld en hljómsveitin hefur ver-
ið í pásu frá því í haust. Hún er
nú breytt og ekki síst bætt.
Söngkonan er hætt, hljóm-
borðsleikarinn er mættur aftur
og nýr saxófónleikari hefur bæst
í hópinn.
• Haraldur Reynisson trúba-
dor lýkur helginni á Fógetanum.
SVEITABÖLL
• Sálin hans Jóns mfns heldur
trylltan dansleik á Tveimur vin-
um ( kvöld, enda fer hver að
verða síðastur að sjá hljómsveit-
ina í heilu lagi.
• Bogomil helgi verður á Púls-
inum í kvöld og á morgun, en
þeir félagar ku nú vera með nýtt
prógramm. Þeir eru þó alltaf
samir við sig drengirnir, því sem
fyrr elska þeir kvenfólk út af líf-
• Dans-blúsband er hljóm-
sveit Dans fiðluleikara Cassidy
og félaga sem kveinar á Blús-
bamum.
• Rokkvalsinn er rafmagns-
nikkuhljómsveit sem verður á
Rauða Ijóninu.
• Guðmundur Rúnar, hafn-
firski snillingurinn á hjólinu,
verðurá Fógetanum.
LAUGARDAGUR
• Sú Ellen verður sjálfsagt í
sparihamnum í kvöld á Gaukn-
um eftir að hafa hitað vel upp
tvö síðustu kvöld.
• Stjórnin losar um stjórnar-
taumana og sýnir sitt rétta and-
litáTveimurvinum.
• Sveiflur & skíðaferðir verða
á Berlín og byrjar gleðin klukkan
12 á hádegi. Þar verður kynntur
drykkurinn Cointreau on lce en
síðan er ferðinni heitið til skíða-
brekku a la Berlín. Þegar komið
er í bæinn er fólkinu gefinn
kostur á að skipta á skíðaskóm
og ballskóm. Klukkan 19 verður
svo tekið vel á móti öllum með
fordrykk og skíðapottrétti og
mun gleðin standa fram á nótt.
Miðaverð er 2.300.
• Bogomil Font enn með
sama prógrammið og í gær. Þeir
halda áfram að skemmta á Púls-
• Hljómar leika aftur saman
eftir gott jólafrí. Shady Owens er
aftur komin til landsins og ætlar
einnig að taka nokkrar sveiflur
með Kuba Libra, þ.e.a.s. Rúnari
Júlíussyni og félögum.
• Dans-band er blúsband sem
verður aftur á Blúsbarnum.
• Rokkvalsinn skemmtir enn
og aftur á Rauða Ijóninu.
• Guðmundur Rúnar hinn
heimsfrægi verður einhverra
hluta vegna á Fógetanum.
FIMMTUDAGUR
• Edinborg, Kefla-
vík: Hreystimannafé-
lagið frá Vestmanna-
eyjum skemmtir.
FOSTUDAGUR
0 Edinborg, Keflavík fær til
liðs við sig hljómsveitina Sjö-
und, einnig frá Vestmannaeyj-
• Þotan, Keflavík verður með
FS-ball og Nýdanska.
• Inghóll, Selfossi: Arnold
Bryan Cruz er diskótekari kvölds-
ins. Helena og Nanna dansa. Öll-
um er boðið upp á Sambvca og
barþjónarnir taka Elvis-lag í
karaoketækinu.
• Við félagarnir, Vestmanna-
eyjum fáum til liðs við okkur
hljómsveitina Hálft í hvoru, sem
skipuð er þeim Eyjólfi Kristjáns-
syni, Gísla Helgasyni, Inga Gunn-
ari Jóhannssyni og Örvari Aðal-
steinssyni.
• Sjallinn, Akureyri verður
með Gal í Leó og pöbba-
stemmningu um helgina og því
er ókeypis inn.
LAUGARDAGU R
• Höfði, Vestmannaeyjum:
Hálft í hvoru færir sig af Félög-
unum yfirá Höfðann.
• Inghóll, Selfossi: Sfðan
skein sól skemmtir. Þeir sem
mæta í teinóttu fá bók og plötu
í verðlaun. Tequilaklukkutími
verður fyrripart kvölds. Garðar
Vilhjálmsson hinn sterki býður
fólki upp á sjómann á þúsund-
kall. Þeir sem ná að vinna kapp-
ann fá frftt að drekka fyrir sig og
vini sína allt kvöldið.
• Edinborg, Keflavík verður
enn og aftur með Sjöund frá
Vestmannaeyjum. Það verður
þvf sannkölluð Eyjastemmning í
Keflavík um helgina.
• Sjallinn, Akureyri: Gal f Leó
og ókeypis inn.
BARIR
Sú var tíðin að drykkjumaður
PRESSUNNAR þurfti í engu að
kvíða lokun skemmtistaða,
þar sem ávallt mátti reiða sig
á vínstúkur næturklúbba eftir
klukkan þrjú. Nú er hún
Snorrabúð stekkur. Nætur-
klúbbarnir allir, sem blómstr-
uðu síðastliðinn vetur, eru
horfnir með öllu, sem er afar
miður. Ekki svo að skilja að
drykkjumaðurinn sakni næt-
urklúbbanna sjálfra eitthvað
sérstaklega. Flestir voru þeir
svona mitt á milli þess að vera
verbúðareldhús og búlla. Einn
skar sig þó úr og var likari því,
sem vænta má af nætur-
klúbbi, enda var honum lokað
með lögregluvaldi fyrir margt
löngu. Enginn þarf þó að
segja drykkjumanninum það
að hann sé einn um áfengis-
löngun eftir klukkan þrjú um
helgar, eins og sést á því
hversu erfiðlega dyravörðum
gengur að reka liðið út á slag-
inu. Yfirleitt er það að mjat-
last út til að minnsta kosti
hálffjögur. Eigendur löglegra
skemmtistaða gera sér glögga
grein fyrir eftirspurn markað-
arins og sumir hafa gert sitt
besta til að anna henni. Þann-
ig eru nokkrir barir i Reykja-
vík, sem í raun og sann eru
opnir til fjögur-hálffimm hafi
kúnnarnir á annað borð
áhuga á frekara sumbli. Hins
vegar gæta eigendurnir þess
vendilega að loka inngöngu-
dyrunum stundvíslega klukk-
an þrjú og draga jafnvel fyrir
glugga og deyfa Ijós, því ein-
hversstaðar úti í myrkrinu
sveimar eftirlitið um á Löd-
unni. En hvenær linnir þessari
vitleysu? Hvenær hætta hinir
umhyggjusömu borgarar í
barnfóstruleiknum að skipta
sér af því hvar og hvenær ann-
að fólk kýs að leita á náðir
Bakkusar konungs? Innst í
hjarta þessa liðs er hinn nag-
andi ótti um að aðrir eigi
skemmtilegri daga en það
sjálft. Það er sérkennilegt að
vita til þess að á sama tíma og
um valdataumana — jafnt hjá
ríki sem borg — halda sjálf-
skipaðir málsvarar athafna-
frelsis og frjálslyndis, skuli
enginn sinna frelsi veitinga-
nianna til þess að ráða versl-
unartíma sínum sjálfir eða
frelsi neytenda til þess að
njóta nautna sinna. Drykkju-
maður PRESSUNNAR skorar á
kollega sína um land allt að
mótmæla harðlega þessu of-
ríki bindindisfasistanna með
því að sitja sem allra lengst á
börum eftir lokun, drekka sem
allra mest áfengi utan lögboð-
ins verslunartíma og reka út
úr sér tunguna í hvert sinn
sem þeir mæta Þorsteini Páls-
syni dómsmálaráðherra á
götu.
Ólafur Jónsson er hugmyndafræðingurog klúbbstjóri hins nýstofnaða Bíóklúbbs.
Skapa stemmningu í bíó
Fimm hundruð manns, sextán
ára og eldri, fá aðgang að nýstofn-
uðum bíóklúbbi Sambíóanna sem
kalla má for- forsýningarklúbb að
erlendri fyrirmynd. „Klúbbfélag-
arnir fá í raun að sjá meira en for-
sýningar því forsýningarnar hafa
verið í viku áður en myndin er
frumsýnd. í þessum klúbbi sýn-
um við myndirnar jafnvel tveimur
eða þremur vikum fyrir forsýn-
ingar,“ segir Ólafur Jónsson,
klúbbstjóri og hugmyndafræðing-
ur hins nýstofnaða Bíóklúbbs, en
Ólafur hefur löngum verið mikill
áhugamaður um kvikmyndir.
„Sextán ára aldurstakmarkið
kemur til af því að við viljum vera
vissir um að allir klúbbfélagar geti
fengið að sjá allar okkar myndir.
Að auki komum við til með að
velja stíft inn í klúbbinn því við
viljum að myndimar spyrjist rétt
út.“
Klúbbur þessi er ekki endan-
lega kominn á koppinn en fýrsta
forsýningin var engu að síður fyrir
um viku á spennumyndinni Und-
er Siege, sem verður sýnd fljótlega
í Sambíóunum. Nýjustu kvik-
mynd Madonnu, Body of Evi-
dence, sem þurffi að klippa vem-
lega til að taka af svokallaðan
„klámstimpil“, og kvikmyndina
Scent of a Woman, með A1 Pacino
í aðalhlutverki, ber að öllum lík-
indum næst fyrir augu klúbbfé-
laga. Ætlunin er að sýna 8 til 12
stórmyndir í Bíóklúbbnum á
hverju ári.
Árgjaldið er átta hundruð
krónur, sem er eingöngu þjón-
ustugjald, því félagar þurfa að
borga sig inn á hverja sýningu.
Fyrir hverja forsýningu fá allir
klúbbmeðlimir bréf með tilkynn-
ingu um myndina og að auki sér-
útgáfu af Bíóblaðinu, þar sem
myndin er kynnt í máli og mynd-
um. „Þetta tryggir að sýningin fer
ekki framhjá neinum og menn
verða dálítið upplýstir um mynd-
ina, leikarana og jafnvel slúður af
tökustöðum áður en þeir sjá hana.
Meginmarkmiðið er að skapa fi'na
stemmningu á sýningunum."
Kvikmynd Louis Malle,
Body ofEvidence, með
þeim Madonnu og Willem
Dafoe í aðalhlutverkum,
verður að öllum líkindum
nœsta stórmynd sem klúbb-
félagarfá að berja augum.
Úr henni þurfti að klippa
töluvert svo húnfœri úr
flokki NC-17, sem hefur á
sér klámstimpil, í R-flokk,
sem er fyrir 16 ára og eldri.
Áreynslulaust afmœli
„ Vemmilegt og vinalegt vœlukjóapopp
hefur alltafverið fóstbrœðrunum hug-
leikið. “
MAGNÚS OG JÓHANN
AFMÆLISUPPTÖKUR
MJ-UPPTÖKUR/STEINAR
★★
Það eru liðin tuttugu ár
sfðan fyrsta plata þess-
ara syngjandi félaga
kom á markaðinn. Dúettinn
starfaði mest á árunum
1971-1974 og naut þónokkurrar
hylli. Árið 1974 bættu þeir á sig
spilafélögum og stofnuðu
Change sem átti að slá í gegn á
alþjóðavísu. Þrátt fýrir að útvíði
Change-gallinn sé hápunktur í
sögu íslenskra hljómsveitagalla
lét frægðin á Bretlandi standa á
sér og Changeplöturnar voru
rakkaðar niður í erlendum blöð-
um. Magnús og Jóhann hafa
starfað saman og hvor í sínu lagi
síðan; Magnús gefið meira út og
næstum því samið nýjan þjóð-
söng, sem er nógu útbelgdur og
fullur þjóðrembu til að þóknast
kotþjóðinni. Jóhann hefur reynt
ýmislegt fyrir sér; off lífgað upp á
söngvakeppnir með nærveru
sinni og speglagleraugunum og
slegið í gegn með Helgu Möller í
diskóbandi Gunna Þórðar Þú og
ég auk margs annars.
Vemmilegt og vinalegt vælu-
kjóapopp hefur alltaf verið fóst-
bræðrunum hugleildð. Þeir hafa
náð noklcurs konar fullkomnun í
þessari deild poppsins. Tónlistin
er áreynslulaus, máttlaus og
mjúk og, þegar þeim tekst best
upp, mjög grípandi. Þannig er
hið klassíska „Blue Jean Queen“
besta lag plötunnar, þótt það hafi
komið út fýrir sextán árum á sól-
óplötu Magnúsar Still Photo-
graphs. Þetta er vel samin ballaða
sem gengur fullkomlega upp. Það
er dálítið skrýtið að kalla plötuna
Afinælisupptökur því aðeins þrjú
gömul lög eru á henni ef popp-
fræðin bregst mér ekki; áður-
nefndur gallabuxnadrottningar-
söngur auk „Sail on“ og „Mary
Jane“ eftir Jóhann. Önnur lög eru
ný og voru upptökumar gerðar á
Púlsinum, lifandi án áheyrenda.
Nýju lögin em nokkuð misjöfn,
frá góðu efni eins og lögunum
„Ástin og lífið“ og „Jenný“ yfir í
vont efni eins og „Vegalaus böm“
og „Amazon"; þar fer væmnin
langt yfir strikið.
SpÚiríið er ágætt, þótt einlitt sé
á köflum. Hammondleikur Jóns
Ólafssonar er spennandi að
vanda, en það ber kannski of
mikið á honum hér. Magnús og
Jóhann eru sem áður skínandi í
mjálminu, þessi tónlist mundi
ekki virka án skræku og vel
smurðu raddanna þeirra. Þær,
áreynsluleysið og oft á tíðum
góðar lagasmíðar gera þessa
plötu að ágætum kosti fyrir
svefninn í skammdeginu.
Gunnar Hjálmarsson