Pressan - 21.01.1993, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. JANÚAR 1993
E R L E N T
21
Úkraínski stangarstökkvarinn
Sergei Bubka hefur ráðið sér Iff-
vörð vegna hótana rússnesku
mafíunnar í Berlín.
heimsmetið í stangarstökki sex
sinnum árið 1991 — og allt lítur
út fyrir áframhaldandi sigur-
göngu.
Þetta virðist rússneska mafían
líka vita, enda hefur hún hótað
honum bæði h'fláti og mannráni ef
hann lætur ekki af hendi hluta af
tekjum sínum. Enginn sem stend-
ur Bubka nálægt fæst til að viður-
kenna þetta opinberlega, en
Bubka hefur ráðið sér lífvörð og
býr í rammgerðri íbúð. „Mafían
hótar öllum sem eiga peninga," er
haft effir ónafngreindum heimild-
armanni.
Bandarísk lögregluyfirvöld
meta áhrif rússnesku mafíunnar
svo mikil að hún verði innan fárra
ára umsvifamestu alþjóðaglæpa-
samtökum í heimi. Bandaríkja-
rnenn óttast blóðug átök Rússa og
ftala ef kemur til árekstra og upp-
gjörs á milli þeirra. f millitíðinni
vonast þeir til að fjölga rússnesku-
mælandi lögreglumönnum og
vonast helst eftir að fá þá ffá FBl
og CIA, sem þeir segja að geti nú
fækkað á vaktinni í kringum rúss-
nesku sendiráðin.
Rússneska mafían
breiðir úr sér
Það sem þau
vildu sagt hafa
Árið 1992 var eitthvertþað
skringilegasta ár sem liðið hefur í
bandarísku þjóðlífi og pólitík. f til-
efni þess birtir bandanska vikurit-
ið U.S. News and World Report
eftirminnilegustu ummæli ársins
1992 — eða þau sem hefðu í það
minnsta verið eftirminnileg hefðu
þau verið sögð. Hér eru nokkur
dæmi:
George Bush um
fjölmiðla: „Þeir
eru eins og geld-
ingar í kvennabúri.
Þeir vita hvernig á
að gera það, sjá það gert á hvetj-
um degi, en geta það ekki sjálfir.”
AJ Gore um Dan
Quayle: „Hvert á
hann nú að beina
stnum marg-
brotna skorti á
hæfileikum?“
Barbara Bush um James Bak-
er. „Ef hann segist styðja eitthvað
í prinsippinu þýðir það að hann
ætlar aldrei að hrinda því í fram-
kvæmd.“
George Schultz um James Bak-
en „Tvö lönd kváðust bæði eiga
sömu kúna. Á meðan annað tog-
aði í hausinn og hitt í halann, þá
mjólkaði Jim Baker hana.“
Henry Kissinger mn hógværð-
ina: „Ef ég hefði verið viðstaddur
Sköpunina þá hefði ég haff nokkr-
ar góðar uppástungur."
Bob Kerrey um Jerry Brown:
„Hann myndi höggva rauðviðar-
tré, stíga svo upp á stubbinn og
halda ræðu um nauðsyn náttúru-
verndar.“
Boris Jeltsín um
hvort GorbatsjofF
væri versti óvinur
sjálfs sín: „Ekki á
meðanégerálífi.“
Gennifer Flowers um kynlíf:
„Af allri kynferðislegri brenglun
er sb'rlífið sú undarlegasta.“
Lafði Díana um Karl Breta-
prins: „Hann er ástfanginn af
sjálfum sér, en er ekki viss um að
það sé gagnkvæmt.“
Karl Bretaprins um Díönu:
„Henni finnst of seint að fá óskir
sínar uppfylltar umsvifalaust."
Woddy Aflen um
striðið á milli
kynjannæ „Hugs-
unarleysiðervopn
karlmannsins,
hefnigimin konunnar.“
Kevin Costner um frægðina:
„Það góða við að vera ffægur er að
þegar fólki leiðist maður þá held-
ur það að það sé því sjálfu að
kenna.“
Balagula komst til valda þegar
Evsei Agron, forveri hans, var
skotinn til bana.
þekktist svo loks á flugvellinum í
Frankfurt árið 1989. Þaðan var
hann fluttur til Bandaríkjanna þar
sem hann fékk samtals átján ára
fangelsisdóm og situr nú í strangri
öryggisgæslu í fangelsi í Lewis-
burg í Pennsylvaníu. Hann stend-
ur á fimmtugu og getur reiknað
með að verða látinn laus til
reynslu eftir tvö ár.
STANGARSTÖKKVARIFÆR
SÉRLÍFVÖRÐ
En rússneska mafían heldur
áffam án Balagula. Hún er nú far-
in að teygja arma sína til Evrópu,
til dæmis Þýskalands og Póllands,
og þá ekki síður til heimalandsins,
Rússlands, sem er nú gósenland
fyrir þessa tegund riðskipta. Þýsk
yfirvöld hafa sett á stofn hundrað
manna sérsveit innan lögreglunn-
ar til að rannsaka og ná tökum á
rússnesku mafíunni, sem þegar er
talin bera ábyrgð á blóðugum af-
tökum á fínum veitingastöðum í
Berh'n. Pólitík flækist reyndar fýrir
Þjóðverjunum í þessu starfi. Yfir-
menn mafi'unnar og flestir glæpa-
mannanna eru nefhilega gyðingar
og það auðveldar þýsku lögregl-
unni ekki störfin á tímum sem
þessum.
Rússneska mafi'an er búin að
koma sér kyrfilega fyrir í Berlín, ef
marka má fféttir þýskra dagblaða.
Fyrir skömmu skýrðu þau ffá til-
raunum hennar til að kúga fé út úr
úkraínska stangarstökkvaranum
Sergei Bubka. Hann flutti nýlega
til Berlínar og hefur þénað um-
talsverðar upphæðir í auglýsinga-
samningum og fyrir árangur sinn
í stangarstökkinu. Honum hefur
gengið óhemjuvel — hann sló
Páfi dregur
saman seglin
Jóhannes Páll II páfí hefur átt við heilsuleysi að striða eftir að hann
greindist með æxli i ristli sl. sumar og að sögn nánustu samstarfs-
manna hans bendir allt til þessað hann rými stólinn sinn innan árs.
Æxlið, sem var orðið á stærð
við appelsinu, varfjarlægt
eftir að hafa fengið að
vaxa óáreitt í tvö ár. Siðan
hefur dregið mjög afpáfa
og Ijóst aö hann er ekki
heill heilsu. Afþeim sökum
hefurhann nú neyðst til að
draga saman seglin,
minnka mjög við sig vinnu
og aflýsa opinberum heim-
sóknum til annarra landa
sem voru fyrirhugaðará
þessu ári. Þannig er til dæmis
ekki lengur á döfínni hjá hon-
um að fara iheimsókn til
Moskvu. Eitt er það þó sem páfa
hefur lengi dreymt um, en það er
að Ijúka ævistarfinu með heimsókn
til Jerúsalem. Innan skamms gengst
páfí undir nýja lyfjameðferð, sem
hann samþykkti þó aðeins með þvi
skilyrði að meðferðin yrði stutt.
Honum kæmi ekki til
hugarað reyna að
hefta útbreiðslu sjúk-
dómsins, lífhans væri
Ihöndumguðs.
Bandarísk yfirvöld standa ráðþrota gagnvart
uppgangi rússnesku mafíunnar og segja hana
hættulegri og bráðum öflugri en þá ítölsku. Hún
hefur líka komið sér fyrir í Evrópu, þar sem
þýska lögreglan býst nú til varnar.
Ef það var nokkuð sem ungir
athafhamenn lærðu fljótt í gömlu
Sovétríkjunum var það að bjarga
sér með braski; svartamarkaðs-
sölu, smygli, mútum, fjárkúgun-
um og ofbeldi. Kerfið þoldi þetta
innan vissra marka, enda var neð-
anjarðarhagkerfið metið til helm-
inga á við það sem sást á yfirborð-
inu og átti yfirstéttin ekki lítið
undir þessu fyrirkomulagi. En
sumir fóru yfir strikið og fóru í
fangelsi. Fengu þunga dóma, jaín-
vel á sovéskan mælikvarða.
Upp úr 1970 snerist lukkuhjól-
ið mörgum slíkum fanganum í
hag. Þá var slökun í samskiptum
austurs og vesturs og Bandaríkja-
menn lögðu mikla áherslu á lausn
pólitískra fanga í Sovétríkjunum,
ekki síst gyðinga. Og mörgum var
sleppt. En KGB hlýtur að hafa
brosað í kampinn, því umtals-
verður fjöldi þeirra var harðsvír-
aðir glæpamenn, aldir upp í sov-
éska neðanjarðarhagkerfinu. Þeir
fóru til Bandaríkjanna og mynd-
uðu kjarnann í rússnesku mafí-
unni, Organizatsiaya, sem
bandarísk yfirvöld segja nú að sé
að verða öflugri og auðugri en sú
ítalska.
ir skotárás annars rússnesks ma-
fíuforingja. Næstu skotárás lifði
hann ekki af— tvö skot í höfuðið
af stuttu færi — og þá tók við
veldinu næstráðandi hans, Marat
Balagula.
Balagula kom til Bandaríkjanna
árið 1977 til að freista gæfunnar,
en hafði haft það ágætt í Sovétríkj-
unum sem svartamarkaðsbrask-
ari. Hann reis fljótt til metorða í
„Litlu Ódessu" í New York og átti
mikið undir ótímabæru andláti
Agrons — hlaut hásætið að hon-
um látnum.
Eins og margir innflytjendur er
HARÐSVÍRAÐIR GLÆPA-
MENN
Að mati FBI eru nú um 300
virkir meðlimir í rússnesku mafí-
unni, sem stjórnar í reynd lífi
meira en 40.000 rússneskra gyð-
inga sem hafa komið sér fyrir í
Brighton Beach-hverfinu í New
York. Rússarnir þykja harðsvír-
aðri, ofbeldisfýllri og hættulegri en
ítalskir starfsbræður þeirra. „John
Gotti er eins og kórdrengur við
hliðina á þessum náungum," er
haft eftir alríkislögreglumannin-
um Harold Bibb, sem lengi hefur
barist við mafíur af ýmsum upp-
runa. Og lögreglan stendur nánast
ráðþrota gagnvart þeim -— skortir
fé, rússneskumælandi mannskap
og þekkingu á innviðum rúss-
neska samfélagsins sem hefur
myndast í borginni.
Yfir þessu samfélagi ríkti þar til
1985 Evsei Agron, þekktur beggja
vegna Atlantshafsins sem sá sem
hélt öllum þráðum rússneskra
innflytjenda í hendi sér. Hann var
bissnissmaður, átti olíufélög,
dreifingarfýrirtæki og fjölda bens-
ínstöðva. Það var þó aðeins fram-
hliðin á undirheimastarfsemi sem
velti milljörðum dala árlega í fjár-
svikum, eiturlyfjasmygli, einkum
á heróíni, og „venjulegri" fjárkúg-
un. Agron var rúmlega fimmtugur
og óhugnanlegur útlits, enda lam-
aður öðrum megin í andlitinu eft-
Mafíuforinginn Marat Balagula situr nú í bandarísku fangelsi.
Balagula ágætlega menntaður,
með háskólagráðu í stærðffæði og
hagfræði. Undirmenn hans eru
verkfræðingar og vísindamenn og
tala sumir nokkur tungumál. Þeir
stýra „fyrirtækinu“, en til harka-
legri verka eru notaðir tattóverað-
ir sadistar eða fyrrum ísraelskir
hermenn sem hafa lært að vinna
verk sín án þess að spyrja margra
spuminga.
ALÞÝÐUDÓMSTÓLARNIR í
NEWYORK
Balagula hafði höfuðstöðvar
sínar á veitingastað sínum,
Ódessu, sem rússneskir innflytj-
endur sækja í stórum stíl. Matur-
inn er rússneskur; lambalifur,
kavíar, stroganoff-buff og vodka-
flaska á hverju borði. Eftir lokun
er stundum réttur settur á efri
hæðinni; alþýðudómstóll sem
sækir fýrirmynd sína til Sovétríkj-
anna þar sem fólk flutti mál sitt
fyrir áhrifamönnum í stað þess að
leita til ríkisdómstóla. Þar sitja
mafíuforingjar í hálfmyrkvuðum
sal, skera úr deilum og ákveða
refsingar sem stundum er fram-
fýlgt umsvifalaust. Og þegar lög-
reglan spyr er svarið undantekn-
ingarlaust: „Ja nesjevo ne tsnaju"
— „ég veit ekki neitt“.
Balagula var loks handtekinn
árið 1986 fýrir krítarkortasvik sem
þó skilaði aðstandendum ekki
nema tæpri milljón dala. Hann
var fundinn sekur og reyndi að fá
lögmanninn fræga, Alan Dersho-
witz, til að áfrýja fyrir sig. Þegar
Dershowitz neitaði að múta dóm-
aranum flúði Balagula land,
þremur dögum áður en refsing
hans var tilkynnt.
Ofangreindum Harold Bibb
tókst að rekja slóð hans til Suður-
Afríku, en Balagula tókst naum-
lega að sleppa við handtöku —
með mútum. Hann fór til Sierra
Leone, þar sem hann keypti sér
diplómatapassa og naut gestrisni
rússnesks-ísraelsks yfirmanns ör-
yggisgæslu Momoh forseta.
Næstu þrjú árin ferðaðist hann til
36 landa í öllum heimsálfum, en
Misnotuð í súkkulaðiauglýsingu
Það á ekki af þeim að ganga,
Karli Bretaprinsi og Díönu
prinsessu.
Eins og tæpast hefur farið
framhjá nokkrum manni hafa
þau hjónakomin mátt þola mis-
kunnarlausa umfjöllun breskra
fjölmiðla síðustu mánuði vegna
samskiptaerfiðleika sinna og
skilnaðar að borði og sæng í kjöl-
farið. Nýlega bættist fyrirtækið
Nestlé í hóp þeirra sem hafa haft
vandamál þeirra hjóna að féþúfu.
f auglýsingum fýrirtældsins
um Kit-Kat-súkkulaði, sem ný-
lega birtust í dagblöðum í bresku
nýlendunni Hongkong, var not-
uð mynd af Karli og Díönu og
stóð undir henni: „Have a break,
have a Kit-Kat“, eða „Taktu þér
pásu og fáðu þér Kit-Kat“! Aug-
lýsingin féll ekki í góðan jarðveg
hjá öllum blaðalesendum og voru
það einkum Bretar búsettir í
Hongkong sem þótti myndbirt-
ingin fádæma ósmekkleg. Báru
þeir fram kvörtun við forráða-
menn Nestlé-fýrirtækisins, sem
sáu sér þann kost vænstan að
kippa myndinni af Karli og Dí-
önu út úr Kit-Kat-augJýsingaher-
ferðinni.