Pressan - 21.01.1993, Síða 22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. IANÚAR 1993
Vönduð vinna og gæði í prentun.
Langar og stuttar ermar, margir litir.
Hettubolir Húfur í mörgum litum,
Filmuvinnum myndir. Gerum tílboð í stærri verk,
Nýtt! Nýtt! Nýtti Nýtt! Nýtt!
Komdu með ljósmynd eðct teikningu og við
Ijósritum myndina á bol eða húfu fyrir þíg.
Smi&juvegur 10 • 200 Kópavogur
Sími 7 91 90 • Fax 7 97 88
Vandaöur og sparneytinn 5 dyrajeppi
mmuiuu i \j vv-iiuici vui inuu lvv^íiuii iiiiiopy imgu, yu iíw.
Vökvastýri - vandaöur búnaður
Gormafjöðrun á öllum hjólum, aksturseiginleikar i sérflokki.
Grindarbyggður - auðvelt að hækka bílinn upp.
Eyðsla frá 8 lítrum á 100 km.
$ SUZUKI
--////-----------
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 . SlMI 685100
s
L/ kipulagsbreytingar eru ráðgerðar í
menntamálaráðuneytinu í kjölfar þess að
Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri lætur
af störfum, en hann
verður 69 ára á þessu
ári. Ólafur G. Einars-
son ráðherra mun hafa
uppi hugmyndir um
aðskipta ráðuneytinu
upp í tvær einingar;
menntamál annars veg-
ar og menningarmál hins vegar. I dag eru
Qórir skrifstofustjórar í ráðuneytinu en
við þessar breytingar verður þeim fækkað
í tvo. Tveir verða því fluttir til. Til dæmis
er rætt um að Árni Gunnarsson, skrif-
stofustjóri Háskóla- og alþjóðadeildar,
verði gerður að ífamkvæmdastjóra bygg-
ingarnefndar um Þjóðarbókhlöðu. Einnig
er líklegt að Sólrún Jensdóttir, skrif-
stofustjóri skólamáladeildar, verður ekki
skrifstofústjóri eftir breytingarnar...
s
V^yífellt verður vart óánægju hinna fjöl-
mörgu sem spila í happdrætti hér á landi
með það hve mikið af vinningum er dreg-
ið út á óselda miða. Dregið var hjá Happ-
drætti Háskóla íslands um miðjan
mánuðinn og gekk aðeins annar af tveim-
ur stærstu vinningunum, trompmiði upp
á fimm milljónir króna, út. Þá voru sex af
átta vinningum upp á eina milljón hver
dregnir á óselda miða og sömuleiðis tveir
af fjórum vinningum upp á 1.250 þús-
und...
i DV voru í gær birtar niðurstöður
skoðanakönnunar blaðsins um fylgi
flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn galt þar
afhroð, þó ekki eins
mikið og ætla mætti af
töflunum og upplýsing-
unum sem fylgdu frétt
DV. Blaðið tók nefni-
lega upp á því fyrir
nokkrum mánuðum að
birta ekki réttar niður-
stöður skoðanakannana heldur nokkuð
sem það kallar kosningaspár. Haukur
Helgason aðstoðarritstjóri tekur niður-
stöður sjálfrar könnunarinnar og fellir
þær inn í formúlu sem ýmist dregur úr
eða eykur fylgi flokkanna í könnuninni.
Þannig hefði Sjálfstæðisflokkurinn fengið
17 þingmenn samkvæmt könnuninni en
fær aðeins 13 samkvæmt spánni. Þessi
íjórir þingmenn dreifast síðan þannig að
spáin lætur Alþýðuflokkinn fá einn, Al-
þýðubandalagið einn og Framsókn tvo.
Hugmyndin að baki þessu er að fylgi
Sjálfstæðisflokksins mælist alltaf meira í
könnunum en upp úr kjörkössunum.
Þannig hefur það verið undanfarin ár, en
kannski ekki þar með sagt að þannig
verði það alltaf...
ST að gekk ekki lítið á í kringum Pétur
H. Blöndal þegar hann leitaðist við að
kaupa SH-verktaka og semja um rúmlega
helmings niðurfellingu
á kröfum á fyrirtækið.
Samkvæmt eigin lýs-
ingum strönduðu
áform Péturs á Spari-
sjóði Hafnarfjarðar og
þá vegna „aðeins“ 5 til
12 milljóna króna, aðrir
kröfuhafar væru búnir að samþykkja
nauðasamningana. Kunnugir telja að slík-
ar upphæðir hafi ekki þurft að vefjast fyrir
Pétri, sem sagður er eiga eignir upp á 200
milljónir króna. Hann hafi einfaldlega
ætlað sér að græða á vandræðum SH en
orðið af þeim möguleika, meðal annars
með því að móðga forráðamenn spari-
sjóðsins...
ú mun vera ætlunin að hressa við
útgáfu sportveiðiblaðsins Á veiðum, sem
Fróði hf. hefur gefið út. Útgáfan hefur
gengið erfiðlega að undanförnu og nú
hefur Ólafur Jóhannesson, fréttamaður
á Stöð 2, tekið að sér að reyna að hleypa
lífi í blaðið, en hann hefur áður komið ná-
lægt útgáfu þess...
F
Jk~Jitt af mörgum þrotabúum í íslensku
fiskeldi hefur verið gert upp með stórum
skelli. Hér er um að ræða þrotabú Þverár-
lax á Seftjörn í Barðastrandarsýslu, sem
úrskurðað var gjaldþrota í nóvember
1990. Forgangskröfur upp á 1,7 milljónir
greiddust að fullu en aðeins liðlega 600
þúsund fengust upp í tæplega 70 milljóna
króna almennar kröfur. Áður höfðu eign-
ir verið innleystar, meðal annars af Fram-
kvæmdasjóði. Þverárlax var íjölskyldufyr-
irtæki Einars Guðmundssonar á Sef-
tjörn...
thlutað var framlögum úr Kvik-
myndasjóði fslands síðastliðinn föstudag
og hlutu Friðrik Þór Friðriksson og
Hilmar Oddsson
hæstu styrkina sem
kunnugt er. Hrafn
Gunnlaugsson sótti
um styrk til að fullvinna
mynd sína Hin helgu vé
og þótti mönnum það
tíðindum sæta að hann
skyldi ekki fá úthlutun, því þetta mun
vera í fýrsta sinn sem hann sækir um
styrk en fær ekki...
i Víkurfréttum er þess getið að Páll
Vilhjálmsson Grímssonar, fyrrum sveit-
arstjóra Vatnsleysustrandarhrepps og
bæjartækniffæðings í Keflavík, hafi ráðið
sig til starfa á Vikublaðinu, málgagni Al-
þýðubandalagsins. Páll var blaðamaður á
PRESSUNNI í ritstjóratíð Jónínu Leós-
dóttur og Ómars Friðrikssonar, en
einnig vann hann um tíma á Þjóðviljan-
um og DV. Á sínum tíma sótti hann um
lektorstöðuna sem Sigrún Stefánsdóttur
fékk...
LAUGAVEGI 45
101 REYKJAVÍK
SÍMI 627420
199293
-1-
kR 400. -
REIKNING.SNÚMER.
TÉKKI ÞESSI E R
AFSLÁTTUR Á _
45367
K R 0 N U R _
00. -
G I L D I R T I L :
pr. pr. NÝJA HÁRSTOFAN LAUGAVEGI 45.
(lA/uruxnÁAÁxiAv
HÉR FYRIR OFAN MÁ SJÁ HVE LENGI TILBOÐIÐ GILDIR
455709901+ 10< 110799794
ATHUGIÐ: EINUNGIS EIN ÁVlSUN GILDIR I HVERT SKIPTI.
Restaurant
Pizzeria
HAFNARSTRÆTI15
REYKJAVÍKSÍMI13340