Pressan - 21.01.1993, Side 30
4-
3. tbl 4. árgangur
-
Hlín segir að gínan, sem hún kallar Bárð, sýni sér ekki sama af-
skiptaleysið og eiginmaðurinn þótt Bárður segi ekki margt. „Það er
hjartalagið sem ræður," segir Hlín.
35 ára kona á Seltjarnarnesi
SEGIST ÁSTFANGIN
AF GÍNU OG VILL
SKILNAÐ FRÁ EIG-
INMANNINUM
Þótt hann segi ekki margt þá skilur hann mig, - segir Hlín
Tryggvadóttir, 35 ára gamall snyrtifræðingur, en hún
varð ástfangin af útstillingargínu í Kringlunni.
Seltjamarnesi, 21. janúar.
„Hún er kexrugluð,“ segir
Friðrik Lárusson, 37 ára bif-
reiðavirki, um eiginkonu sína,
Hlín Tryggvadóttur, eftir að
Hlín fór fram á skilnað til að
geta gifst gínu í versluninni
Sautján í Kringlunni. Hlín kall-
ar gínuna Bárð.
„Þótt aðrir sjái það ekki þá veit
ég að Bárður elskar mig,“ segir
Hlín. „Hann er blíður og skiln-
ingsríkur þótt hann segi ekki
margt,“ bætir hún við.
Hlín segist hafa orðið ástfangin
af Bárði þegar hún var að versla
fyrir jólin. „Þegar ég var að skoða í
gluggann sá ég hann skyndilega
stara á mig og ég kiknaði í hnjálið-
unum. Þetta var ást við fyrstu
sýn.“
„Ég ansa þessu ekki,“ segir
Friðrik, eiginmaðurinn. „Þetta er
bara enn ein tiktúran í konunni til
að vekja á sér athygli. Síðast fór
hún í Myndlista- og handíðaskól-
ann og þóttist vera listamaður. Þá,
eins og nú, vildi hún að ég tæki
betur eftir sér.“
Fráskilin hjón í Grafarvogi
DEILA UM FOR-
RÆÐI HUNDS
Hugsanlegt að annað hjónanna fái forræðið en
hitt umgengnisrétt aðra hverja helgi og hálfan
mánuð að sumri, - segir Finnur Baldvinsson
dómari.
Gummi sýndi hundinum
aldrei raunverulegartilfinn-
ingar. Hann notaði hann
bara í gönguferðir til að
fitna ekki, - segir Bára Er-
lingsdóttir, en hún á í for-
ræðismáli út af hundi sínum
og fyrrum eiginmanns síns,
Guðmundar Daníelssonar.
Stórtíðindi í trúarlífi íslendinga
ÓLAFUR
SKÚLASON
GEKK í
KROSSINN
„Þótt mér hafí aldrei fundist mikið í Ólaf spunnið
þá höfnum við engum,“ segir Gunnar
Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins.
Reykjavík, 21.janúar.
Ólafúr Skúlason, biskup yfir
Islandi, er genginn í Krossinn.
Þessi frétt kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti yfir íslensku
þjóðkirkjuna í gær.
„Auðvitað eru þetta váleg tíð-
indi,“ sagði ónefndur prestur í
samtali við GULU PRESSUNA.
„Kirkjan hefur átt í ýmsum vand-
ræðum að undanfömu; til dæmis
í sambandi við Keflavík, kirkju-
garða Reykjavíkur, Víghól og svo
framvegis. Við máttum ekki við
þessu.“
„Mér líður vel og ég hélt að
sannkristnum mönnum væri það
fýrir mestu,“ sagði Ólafur í samtali
við GULU PRESSUNA. „Ég sé
ekki að svo mikið hafi breyst. Þótt
ég fari á samkomur í Krossinum
get alveg verið áfram biskup. Ef
prestarnir vilja get ég litið inn í
venjulegar messur annað slagið.“
„Þetta er guðsverk," segir
Gunnar Þorsteinsson, forstöðu-
maður Krossins. „Þótt sála Ólafs
sé ekki veigameiri en sála okkar
smæsta bróður þá er alltaf gaman
þegar týndur sonur snýr aftur. Ég
slátraði ekki kálfi þennan dag en
ég fékk mér þó kálfasteik um
M
„Ég bara frelsaðist. Er eitt-
hvað merkilegt við það?"
segir Ólafur Skúlason bisk-
up. Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR byrjaði
hann að tala tungum á
fundi þar sem hann ætlaði
að tala um fyrir Gunnari
Þorsteinssyni og fór síðan
með honum á samkomu.
kvöldið."
Prentarar í Gutenberg neita að prenta EES-samninginn
PRENTARAR NEITA
AÐ PRENTA EES
Teljum eðlilegt að fresta prentun samningsins um viku, þar sem þetta mál hefur klofið
þjóðina, - segir Sigurbergur Aðalsteinsson prentari.
Hækkun útgjalda til
vegamála vegna ófærðar
Arfur frá
síðustu
stjórn
- segir Davíð Oddsson.
Reykjavík, 20. januar.
r--- ■ i Á Alþingi
| í gær lýsti
Bj D a v í ð
*«.■ ‘fwTsf Oddsson
^ l.....QS forsætisráð-
Sr'JFÉ herra því yf-
jggyw1"'' Æ ir að aukin
wm Æ útgjöld til
iibh IH—■ vegamála
vegna mikils snjómoksturs í
ófærðinni að undanförnu
væru arfur frá síðustu ríkis-
stjórn.
„Það var einfaldlega lítið sem
ekkert mokað í tíð síðustu
stjórnar," sagði Davíð. „Það
þarf því engan að undra þótt
moksturinn lendi á okkur.“
Stjórnarandstaðan mót-
mælti þessu og sagði að engin
ástæða hefði verið til að moka
þar sem tíðin hefði verið góð.
„Þetta eru týpískar mótbárur
stjómarandstöðunnar,“ svaraði
Davíð. „Þar sem ég þekki til
safnast það upp sem ekki er
fjarlægt.“
Reykjavfk, 21. janúar.
Allt er nú aftur orðið óvíst
um hvort íslendingar taka þátt
í Evrópska efnahagssvæðinu
eftir að prentarar í prentsmiðj-
unni Gutenberg neituðu að
prenta samninginn eftir að
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, skifaði undir hann.
„Okkur fmnst að þessi samn-
ingur hafi klofið þjóðina svo að
eðlilegt er að fara að öllu með
gát,“ segir Sigurbergur Aðalsteins-
son, prentari og trúnaðarmaður
starfsfólks Gutenbergs. „Ef við lít-
um aðeins til okkar vinnustaðar
þá eru þrír prentarar fylgjandi
samningnum, fimm á móti og
tveir geta ekki gert upp hug sinn.
Eftir sem áður telja átta eðlilegt að
þjóðin fái að segja skoðun sína í
þjóðaratkvæðagreiðslu, svo ljóst
er að jafnvel þeir sem eru fýlgjandi
samningnum vilja þjóðarat-
kvæði.“
„Ég vil benda á ákveðin for-
dæmi í þessu máli," segir Sigur-
bergur. „Til dæmis neitaði
Stjáni í Odda að prenta „Brósa"
og „Léttlynda og lausgirta" um
árið."
Sigurbergur benti á að það
hefði áður komið fýrir að prentar-
ar neituðu að prenta ýmis verk.
„Stundum hefur komið inn á borð
til okkar þvílíkur dónaskapur að
við, sem fjölskyldufeður, höfum
ekki treyst okkur til að standa að
honum.“
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra sat á fundi með
prenturunum í Gutenberg í nótt.
Samkvæmt heimildum GULU
PRESSUNNAR bauð hann þeim
að halda blaðamannafimd í næstu
viku þar sem þeir gætu lagt fram
greinargerð og útskýrt afstöðu
sína. Tilboð þetta er bundið því að
prentaramir haldi áfram að vinna
við samninginn.
„Ég veit ekki,“ sagði Sigurberg-
ur í morgun. „Auðvitað viljum við
koma sjónarmiðum okkar fram,
en það er ekki víst að fólkið í
pökkunardeildinni taki því þegj-
andi að pakka samningnum. Mér
hefur heyrst á því að það hafi
fengið áskoranir um að leggja nið-
urvinnu.“
LITSALA ----- ll
útsalan ífullum gangi
15 - 50% afsláttur
verslun með gjafavöru
Borgarkringlunni, sími 682221
i
T