Pressan - 06.05.1993, Qupperneq 2
FYRST & FREMST
PÉTUR BLÖNDAL. Engin kreppa hjá honum. Græddi 18millj-
ónir á einni viku. FRIÐRIK PÓR FRIÐRIKSSON. Á toppi landa-
korts evrópskrar kvikmyndagerðar.
MARGRA MANNA
MAKI SLAPPAR AF
í ÁSTRALÍU
Guðmundur Hallvarðsson er Ijölhæfur
maður. Hann er þingmaður og sem slíkur í
heilbrigðis- og trygginganefhd og sjávarút-
vegsnend þingsins, auk þess að vera í stjóm At-
vinnuleysistryggingasjóðs og varamaður í
stjórn Vestnorræna þingmannaráðsins. Hann
er varaborgarfulltrúi og sem slíkur formaður
hafharstjórnar, stjórnarmaður í byggingar-
nefnd aldraðra, varastjórnarmaður í húsnæðis-
nefnd og stjórnarmaður í Fiskimannasjóði
Kjalarnesþings. Hann er formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur og til skamms tíma varafor-
maður Sjómannasambands íslands. Hann er
varaformaður Sjómannadagsráðs, situr í
barnaheimilasjóði Sjómannadagsráðs, er
stjórnarmaður í Lífeyrissjóði sjómanna, er for-
stjóri Hrafhistu í Hafharfirði og situr í stjórn
hjúkrunarheimilisins Skjóls. Sem stendur er
hann hins vegar ferðalangur í Ástralíu. Þar er
hann staddur í ffíi ásamt konu sinni og Hann-
esi J. Valdimarssyni hafnarstjóra og frú. Fríið
kom í kjölfar opinberrar heimsóknar þeirra fé-
laga til að skoða ástralskar hafnir á kostnað
Reykjavíkurhafnar. Á sama tíma missir hann af
öllum látunum sem félagar hans standa nú í til
að mótmæla ánauðugum kvótakaupum sjó-
manna, fyrir utan að missa af lokaspretti
þingsins. En miðað við öll þau hlutverk sem
Guðmundur gegnir veitir honum auðvitað ekki
af því að komast í ffí og það sem lengst ff á
skarkalanum heima. Því má bæta við að á
fundi farmanna í Sjómannafélagi Reykjavíkur
um síðustu áramót var lögð fr am tillaga um að
Guðmundur gæfi ekki kost á sér til áframhald-
andi formennsku í félaginu í ljósi þess að hann
hefði brotið lög félagsins. Tillögunni var vísað
til stjórnar og trúnaðarmannaráðs.
GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON Slappar af íÁstralíu á meðan Sjómannasam-
bandið berstgegn kvótakaupum sjómanna.
2 PRESSAN
Í ÞESSU BLAÐI
4
Kjötskurður að hætti fornmanna
6
Ekkert eftirlit í Menningarsjóði
Hannes Hólmsteinn ríkisstarfsmaður
Steingrimur: Lax, lax, lax
7
Andlegt ofbeldi sinnulausra feðra
10
Fyrirtæki græðaá skattatapi
Löggan handtekurlögmenn
Rukka það sem búið er að borga
n
Fleiri fyrrum sölumenn Framtíðar-
ferða
12 & 13
Ömmi og Bensi i eina sæng?
Kapítalið í Islandsbanka
Hrafn um Denna
Össurum Þorstein
14
Tiska
16
Samkvæmislífið
18
Hrafn um PRESSUNA
20 & 21
Hommar og lesbíurí USA
Spilltiryfirstéttarmenn
Bérégovoy hinn nýdauði
22
Cyberpunk?
23
Hvardrekkurþú?
24&25
Fólk sem yrkir i laumi
26
Vinýllinn blifur
27
Myndlist
Sjón
28
Baldur Hermannsson enn og aftur
29
PRESSUIiðið í handbolta
31
CULA PRESSAN
NYTT SOFTÍS-
ÆVINTYRI I UPP-
SIGLINGU?...
Pétur Blöndal og aðrir eig-
endur Tölvusamskipta brosa
breitt þessa dagana. Tölvufor-
ritið Skjá-fax sem fyrirtækið
hefur sett á markaðinn, en það
sendir símbréf á milli tölva og
gerir hin eiginlegu Fax-tæki
óþörf, virðist ætla að slá í gegn.
Þegar hefur komið fram að fyr-
irtækið hafi gert samkomulag
við Microsoft þar sem forritið er
sýnt á heljarstórri ráðstefnu
sem það stendur fyrir í Banda-
ríkjunum. Þá er fyrirtækið einn-
ig með ýmsa samninga í burð-
arliðnum, meðal annars við
gosdrykkjarisann Pepsi Cola.
Söluáætlanir Tölvusamskipta
hafa gengið eftir undanfarna
mánuði, en heildarsalan er yfir
fjórar milljónir króna á mánuði
og fer vaxandi. Þess má geta að
framlegð í hugbúnaðarfyrir-
tækjum er mjög há svo að
dæmið lítur vel út hjá þeim
Tölvusamskiptamönnum. Hins
vegar verður að benda á að
hvergi er meiri áhætta í hluta-
bréfakaupum en í fýrirtækjum
sem þessu, þar sem verðmætin
eru eingöngu bundin í þekk-
ingu starfsmanna.
HLUTABRÉFA-
GENGIÐ HÆKK-
AR ORT________________
Gengi hlutabréfanna í Tölvu-
samskiptum fer ört hækkandi.
Á einni viku hefur það hækkað
úr fjórum í sjö, sem er hreint
ótrúlegt. Stærsti eigandi Tölvu-
samskipta hf. er Þróunarfélag
íslands með um það bil 23 pró-
senta hlut en stærsti einstak-
lingurinn í hópi hluthafa er fjár-
málaspekúlantinn og stærð-
ff æðidoktorinn Pétur Blöndal,
sem á tæplega fimmtung í fyrir-
tækinu. Verðmæti hlutabréfa
Péturs eru á nafnvirði sex millj-
ónir króna og á einni viku hafa
þau því hækkað um heilar 18
milljónir, eða sem nemur einu
góðu einbýlishúsi, og verður
það að teljast nokkuð gott. Sjálf-
ur býst Pétur við að þau hækki
enn meira á næstu dögum og er
þetta því huggun harmi gegn
fyrir Pétur, þar sem hann hefiir
tapað einhverjum upphæðum á
gjaldþroti SH-verktaka.
Aðrir stórir hluthafar í Tölvu-
samskiptum eru Ásmundur
Skarphéðinsson, höfundur
sjálfs Skjá-fax-forritsins, og
kona hans, en þau eiga um 11
prósent hlutafjár. Þeirra hlutur
hefur því hækkað á einni viku
um sem nemur tæpum 10 millj-
ónum króna. Þá er Björn Rú-
riksson, flugmaður, ljósmynd-
ari, rithöfundur og viðskipta-
fræðingur, einnig stór hluthafi,
en hann á um 6 prósent hluta-
fjár. Heildarfjöldi hluthafa í
Tölvusamskiptum er tæplega
70.
HALLGRIMUR
THORSTEINS-
SON: HÆTTUR,
FARINN?_____________
Eftir fárra mánaða störf sem
fréttastjóri Bylgjunnar hefur
Hallgrímur Thorsteinsson
látið af því starfi. Sjálfur segir
hann alltaf hafa staðið til að vera
sín í starfinu yrði endurskoðuð
að nokkrum tíma liðnum og
hann muni væntanlega eiga aft-
urkvæmt á Bylgjuna fyrr en var-
ir. Við heyrum hins vegar að
brotthvarf hans hafi verið
skyndilegt og óvænt og uppi
hafi orðið fótur og fit þegar
fréttastjórinn sást ekki lengur.
Vitað er að Hallgrímur hefur
áhuga á að starfa við dagskrár-
gerð frekar en fréttastjórn, en
um eftirmann hans á fréttastof-
unni er allt óráðið enn.
AÐSTOÐAR NÚ
TOM HANKS
Greint var frá því í PRESS-
UNNI fyrir viku að Hallur
Helgason, framleiðslustjóri
Sódómu Reykjavíkur, nú starfs-
maður Sigurjóns Sighvats-
sonar í LA, væri aðstoðarmað-
ur hjartaknúsarans Toms Cru-
ise. Herma fregnir að samstarf-
ið við Tom Cruise hafi verið
með eindæmum gott; hann sé
sérstaklega vinalegur og húmo-
risti góður. Því samstarfi er um
það bil að ljúka en næsta þætti
leikstýrir ekki öllu ófrægari leik-
ari, sem telst þó fremur til
þeirra kómísku. Það er hrokk-
inhærði leikarinn Tom Hanks
sem leikstýrir næsta sjónvarps-
þætti í sömu þáttaröð og nafni
hans Cruise leikstýrði einum
þætti í. í síðustu viku rétti svo
Hallur Steven Soderberg
hjálparhönd. Hann er þekktast-
ur fyrir leikstjórn sína á kvik-
myndinni Sex, lies and video-
tapes sem hlaut gullpálmann í
Cannes árið 1989.
FRIÐRIK ÞÓR
UNDIR MIKILLI
PRESSU________________
Velgengni kvikmyndarinnar
Barna náttúrunnar hefur gert
það að verkum að höfundurinn,
Friðrik Þór Friðriksson, er
nú í hópi allra virtustu starfandi
kvikmyndagerðarmanna Evr-
ópu. Myndin, sem gengur fyrir
fullu húsi í Þýskalandi um þess-
ar mundir, hefur auðveldað
Friðriki að útvega sér evrópska
styrki og annað fjármagn til
áframhaldandi kvikmyndagerð-
ar. Hann hefur nú þegar hafið
undirbúning nokkurra nýrra
kvikmynda og mun sú fyrsta
bera nafnið Bíódagar. Þar sem
Friðrik er nú kominn á toppinn
á landakorti hinnar ört vaxandi
evrópsku kvikmyndagerðar
bíða margir fræðingarnir
spenntir eftir næstu afurð hans.
Þar af leiðandi er Friðrik nú
undir mikilli pressu, mun meiri
en hann hefur áður kynnst, en
eins og menn muna bjuggust
fáir við að gengi Barna náttúr-
unnar yrði jafngott og raun ber
vimi.
ÁSTA.R. VER
SIGRUNU STEF-
ANSDOTTUR
Víst þykir að Hrafn Gunn-
laugsson, framkvæmdastjóri
Sjónvarps, beri engan sérstakan
hlýhug til Sigrúnar Stefáns-
dóttur fréttamanns. í viðtali við
Fimmtudagurinn 1.maí1993
PRESSUNA á dögunum sagðist
hann hafa neitað fréttaviðtali
við hana á þeim forsendum að
hann teldi hana ekki geta fjallað
hludaust um mál sitt þar sem
hún hefði verið meðal klapp-
liðsins á þingpöllum. Ásta R.
Jóhannesdóttir mótmælti
þessum ummælum Hrafns á út-
varpsráðsfundi og sagði að
hann hefði opinberlega lýst van-
trausti á fféttamann Sjónvarps í
umræddu viðtali vegna þess
sem hún tæki sér fyrir hendur í
fh'tíma sínum.
lALLGRÍMUR TH0RSTEINSS0N. Gufaði upp. HA^LUR HELGASON. Hefurekki töluyfirallt fræga fólkið sem hann hittir. TOMCRUISE. Bæði Ijúfur og fyndinn. SlG-
-..... AS “ " ..................... -.............
RÚN STEFÁNSDÓTTIR. Klappaði i frítímanum.
kvenfólkinu.
\STA R. JÓHANNESDÓTTIR. Mótmælti Hrafniá útvarpsráðsfundi. HRAFN GUNNLAUGSSON. Fær ekki frið fyrir
UMMÆLI VIKUNNAR
„Ég var ekki með sjálfri
mér, þetta kom mér svo á
óvart. Ég skalf og nötraði
þegar ég uppgötvaði að
verið var að kalla upp
nafn mitt. “
Svala Björk Arnardóttir fegurðardís
Hvaðmcð
brunarústa-
vörður?
„Þegar þjóðminjavörð-
ur varðveitir þjóðminj-
ar með þeim endemum
að hægt er að taka þær í
nefið, getur hann ekki
haldið áfram að vera
þjóðminjavörður.“
Helgi Hjörvar, áhuga-
maður um varðveislu.
Þá á bara
Davíð eftir
að hlæja
„Bæði Heimir og Hrafn
svöruðu fyrir sig á léttu
nótunum og höfðu auð-
sjáanlega gaman af.“
Sigurður Guðmundss
hrekkjalómur.
Vfirburðarök
„Ég benti á að 10 dagar væru ekki langur tími
miðað við 40 ár og var á það fallist.“
Kristinn Kristmundsson, fjölmiðlafíkill og
skólameistari.
íþrótta-
lýsing
ársins
„Athyglisvertvar
bað sjá að fléttað var
saman lágbragði
við hábragð, en
fléttan hófst á því;
— að sóttur var
hælkrókur fyrir
báða með vinstri,
en breytt í utanfót-
arhælkrók með
hægri.“
Þorsteínn
Einarsson forni
Var brosið þá
svona hávært?
„Hún hvorki stappaði,
æpti né orgaði.“
Vinnuvinir Sigrúnar
Stefánsdóttur