Pressan - 06.05.1993, Page 4

Pressan - 06.05.1993, Page 4
4 PRESSAN ÞESSI ÞUNGU H Ö G G Fimmtudagurinn 6. maíl993 þarna væri eðlilegs öryggis gætt og það færi betur um bát- ana þar en úti á berangri þar sem þeir voru áður. Það er álitamál hvort það mat var rétt eftir á að hyggja. Hér var alls ekki um vanrækslu að ræða. Þess vegna fmnst mér þessi krafa ekki eiga rétt á sér.“ Hermönnsson fyrir afspyrnulélegan þátt sem þó fékk sagnfræðinga til að tala opinberlega um íslandssöguna. veðurffegnirnar skammast ég mín ekkert íyrir að læra af Stöð 2, en í þessu tilfelli er það nú svo að Sjónvarpið hafði verð- urfregnirnar í þessu formi fyrir mörgum árum, raunar held ég áður en Stöð 2 hóf útsending- ar. Á þeim sama tíma höfðum við tvo fféttaþuli, ef við tækj- um nú upp á því að hafa þá tvo að nýju yrðum við sjálfsagt sakaðir um að herma eftir Stöðinni. Eitt munum við taka upp eftir Stöð 2 í sumar, við hyggjumst senda hljóð fféttanna út á Rás 2, eins og hljóð frétta Stöðvar 2 er sent út á Bylgjunni. Margir hafa óskað eftir þessari þjón- ustu og því verðum við við þeim óskum án þess að skammast okkar hætishót þó að keppinautar okkarog koll- egar hafi gert það á undan." debet VILHIÁLMUR EGILSSON kredit „Það er mjög gott að eiga samstarf við Vilhjálm og það er sérstaídega áberandi hve auðvelt hann á með að setja hlutina ffam á skiljanlegan hátt. Það er allt greinar- gott sem frá honum kemur, enda er hann mjög skýr maður,“ segir Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna, sem starfað hefur náið með Vilhjálmi að verslunarmálum. „Vilhjálm- ur er mjög hæfur maður með mikla félagsmálareynslu. Hann hefúr einnig góða nrenntun, sem nýtist honum vel, og hann er séður. Þá er Vilhjálmur effirminnilegur persónuleiki," segir Birgir Rafn Jónsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna. „Vilhjálmur er hörkuduglegur, einlægur og hreinn og beinn,“ segir Steingrímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjármála- ráðherra og náinn samverkamaður Vilhjálms. „Hann er drengilegur og ábyrgðarfullur þingmaður sem vill landi sínu og þjóð vel,“ segir Þórhallur Ásmunds- son, ritstjóri Feykis og gamall félagi Vilhjálms úr fótboltanum með UMSS. „Vilhjálmur er ve! mennt- aður maður og dugmikill, enda gegnir hann fúllu starfi ásamt starfi þingmannsins," segir flokksbróðir hans úr sama kjördæmi, Pálmi Jónsson. „Hann er dreng- ur góður,“ segir Stefán Guðmundsson þingmaður, sem þekkt hefúr Vilhjálm frá blautu bamsbeini. Skýr og drengilegur þingmaður — eða ósamkvœmur þjónn þriggja herra? Vilhjálmur Egilsson, þingmaðurog fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs, hefur verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu vegna sjávarútvegsstefnu stjórnvalda, en hann er annar tveggja i hinni svokölluðu Tví- höfðanefnd. „Hann hlýtur oft að eiga í erfiðleikum með að greina á milli starfsins sem hann situr annars vegar í sem framkvæmdastjóri og hins vegar að vera þingmaður. Þetta hlýtur að skarast og hann þarf því að hafa samkomulagsleiðinar vísar,“ segir Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna og samstarfs- maður Vilhjálms í hagsmunagæslu verslunarinnar. „Vilhjálmur er mjög ósamlcvæmur sjálfum sér í störfum sínum. Þetta er staða sem aldrei myndi h'ðast annars staðar. Annars vegar að veita hagsmunasamtökum forstöðu og hins vegar þurfa að lúta pólit- ískum vilja. Þú getur ekki þjónað tveimur herrum samtímis og því síður þremur,“ segir Birgir Rafn Jónsson, formaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna. „Hann á það til að ætla sér um of, það er hans stærsti galli,“ segir Steingrímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sem unnið hefur náið með Vilhjálmi. „Hann er fullhallur undir markaðshyggjuna fyrir minn smekk,“ segir Þór- hallur Ásmundsson, ritstjóri Feykis, sem lék knattspyrnu með Vil- hjálmi á Króknum á yngri árum. „Hann mætti helst þroska betur dómgreind sína, en það á reyndar við um fleiri þingmenn,“ segir Pálmi Jónsson, þingmaður og flokksbróðir Vilhjálms. „Þær erlendu fræðikenningar sem hann hefur lært vill hann, eins og fleiri fé- lagar hans, heimfæra upp á íslenskt þjóðfélag. Eins og nú háttar í þjóðfélaginu sýnir það sig að þær standast einfaldlega ekki. Menn verða að þekkja sérstöðu Islands,“ segir Stefán Guðmunds- son Framsóknarþingmaður. Hvala- markaður minnsta mál „/umrœðunni um vœntanleg- ar hvalveiðar Islendinga hefur lítið verið rœtt um markaðs- setningu þessara afurða. Ég tel ekki miklar líkur á að margir verði til að kaupa hval — ekki einu sinni Japanir sem eiga nóg með sig íþessum efn- um.“ Jóhann Þorsteinsson DV Kristján Loftsson, fram- kvæmdastjóri Hvals hf.: „Það verður að reyna á það þegar þar að kemur en ég á ekki von á því að markaðs- setning hvalkjöts verði vand- kvæðum bundin. Það kemur ekki í ljós hvernig muni ganga fyrr en við höfum vöruna und- ir höndum og ég vil leyfa mér að segja eins og Daninn: Den tid, den sorg.“ Þjóðminja- vörður fastur í sessi „Ég, Helgi Hjörvar, krefstþess að þjóðminjavörður segi taf- arlaust af sér. Ástœðan er hverju tnamsbarni augljós: vítaverð vanrœksla Þjóð- minjasafits hefur kostað menningarsögulegt slys, sem aldrei verður bœtt. Báta- minjasafn íslendinga er brunnið, mikilsverðurþáttur minjasögu glataður.“ Helgi Hjörvar í Morg^inblaðinu Guðmundur Magnússon þjóðminjavörður: „Við- brögð mfn em þessi. Ef for- stöðumaður opinberrar stofn- unar gerist sekur um vítaverða vanrækslu í starfi þá tel ég að hann eigi að víkja úr embætti. Ég held hinsvegar að það væri mjög ósanngjarnt að halda því fram að bygging bátaskýlis Þjóðminjasafhsins í Kópavogi haustið 1991, rúmu hálfú ári áður en ég kom hér til starfa, hafi verið dæmi um slíka víta- verða vanrækslu. Það var mat þeirra sem að henni stóðu að Ekki verð- ur aftur snúið „Þarfnú endilega að herma eftir strákunum á Stöð 2 í sambandi við veðurfréttimar? Þetta er ömurlegt. Og setja svo einn einmanafréttamann í fréttalesturinn með grafalvar- legum sovéskum svip ogjarð- kúluna á bakinu? Maður verður hreinlega örþreytturaf þvíað horfa á manninn bera þessi ósköp á bakinu útallan fréttatímann. —Égóskaein- dregið eftir því aðfá aftur andlitin þrjú brosandi eins og áður var háttur á hjá þeim á RÚV. Áþetta berað líta sem ábendingu til einkavinastjóra Sjónvarpsins.“ Sólveig (DV Bogi Ágústsson, fréttastjóri Ríkissjónvarpsins: „De gustibus non est disputand- um. Smekkur fólks er misjafn og það verður sjálfsagt seint gert svo öllum líki. Þetta eru þó fyrstu neikvæðu ummælin um nýju sviðsmyndina sem ég heyri, ég hef heyrt í mörgum sem hafa lýst ánægju með hana og þannig virðist sem fólki líki hún vel. Hvað várðar Uppreisn kjötiðnaðarmannsins Hvernig verkmennt getursannað sannleiksgildi íslendingasagna „Bókin er um þessa hluti sem menn hafa verið að hæðast að sem ýkjum í íslendingasögum, sum sé mannvígalýsingar, og leitast svona heldur við að rétta hlut fornmanna í vígfimi. Það sem rak mig til að skrifa bókina var að í samræðum við þokka- lega menntað fólk barst Gísla saga Súrssonar eitt sinn í tal og þessi vinsæla tískukenning um að íslendingasögur séu skáld- skapur. Fólk tók sem dærni þessi högg í lokabardaga Gísla, að þau væru fáránlegar ýkjur. Ég áttaði mig hins vegar á því, bæði af vist minni í sveit og vinnu minni við kjötskurð, að það væri bara tepruskapur að halda að þetta væri ekki hægt. Líkaminn er ekkert stál, hann er deigur,“ segir Snorri Freyr Hilmarsson, höfundur bókar- fyrstu sýn færast brosviprur yfir andlit þegar bókin er skoðuð en við nánari athugun kemur í Ijós að hér er háalvarleg bók á ferð. Það dugir enginn tepruskapur þegar þessi bók er lesin. Snorri Freyr nýtir sér innsæi verka- innar Um sannleiksgildi íslend- ingasagna frá sjónarhóli kjöt- iðnaðarmannsins. „Ég byggi þessa bók ffekar á reynslu kjöt- iðnaðarmannsins en skurð- læknisins," segir Snorri, sem vinnur á leikmyndadeild Sjón- varpsins þegar hann er ekld að hugsa um kjötskurð. Og það eru orð að sönnu. Við fólks á faglega hluti. „Hefði Sigurður Nordal haft vit á því að hlusta á staðkunn- uga bændur í Hrafnkelsdal hefði hann getað sparað sér mikil mistök, sem voru að dæma dalinn eyðidal frá upp- hafi vega. Síðan sannaðist að bændur hefðu haft rétt fyrir sér, en hann rangt. Þar með féll svo sem skáldsagnarkenningin. En út frá sjónarhóli kjötiðnaðar- mannsins held ég að niðurstað- an sé sú að íslendingasögur séu ekki skáldsögur, sama hvað annað þær eru.“ Lítum á stutt dæmi úr bók- inni: Fyrsturfellur sporh undurinn Njósna-Helgi ogfellur hann í tvennt... um miðjuna ofan við mjaðmarhöfuð, og um háls- inn... þar er hryggurinn einn veruleg fyrirstaða. Utan um kviðarholið liggja til þess að gera frekar þunnir en breiðir vöðvar. Þykkastir bak- og magavöðvar, lítið um stífar sin- ar og liðbönd nema næst hryggnum. Inni í holinu eru svo innyflin og fer þar mest fyrir meltingarveginum, þörmunum, sem lítt eru festir... Lag sem gengur inn frá síðunni á því greiða leið eftir þunnum vöðv- unum... Þessi staður, hryggur- inn milli brjóstkassa og mjaðmagrindar, er sá sami í raun og veru og kjötiðnaðar- menn hafa löngum valið sér fyr- ir upphafsskurð þegar hluta skal sundur kindarskrokk og hakka, vegna þess hve hnífur gengur þar skjótt í gegn.“ Nauðsynlegar upplýsingar fyrir þá er vilja öðlast réttan skilning á vígaarfleifð okkar. En er nauðsyn á þessari bók í dag? „Já, ég held að hún eigi brýnt erindi á þeirri forsendu að menntir og öll svona umræða í dag er að verða sérffæði og sér- hæfingu að bráð. Þetta á að sýna að það eiga allir erindi inn í bókmenntir og heimspeki, — hvort sem þú ert kjötiðnaðar- maður eða rektor.“ Tímabær bók um allt sem þú vildir vita um hvernig höggva á mann og annan. Bókin er hand- innbundin í 110 eintökum og fæst hjá höfúndi. Einar Ben

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.