Pressan - 06.05.1993, Síða 7

Pressan - 06.05.1993, Síða 7
F R ETT I R Fimmtudagurinn 6. maí 1993 PRESSAN 7 Kristín er fjögurra bama móðirsem reynthefur tilþrautarað fá föðuryngsta barnsins síns tilað sinnaþví án þess að tilraunir hennarhafi borið árangur. Móðirin telurafskiptaleysi föðurins hafa haftsýnileg áhrifá drenginn; hann dregursig gjarnan í Mé, er uppreisnargjarn og situr lengi miður sín þegar faðir hans kemur ekki á umsömdumtíma. Dæmi Kristínar mun síst vera einstakt en hún segist tilbúin að berjastlengi fyrir sjálfsögðum umgengnisrétti barnsins við föðursinn. PRESSAN/JIM SMART Fjögurra ára drengur nýtur ekki umgengni við föður sinn Af hverju vill pabbi ekki hitta mig? Þegar barn fæðist óskilgetið eða foreldrar þess slíta samvistir er það í allflestum tilfellum und- ir forsjá annars aðilans. Börn sem alast upp hjá einstæðu for- eldri eiga þó skýlausan rétt, samkvæmt íslenskum lögum, til að umgangast forsjárlausa for- eldrið en stundum vilja verða meinbugir á framkvæmd þess. Fjölmörg dæmi eru um að barn fái ekki að hitta foreldri sitt vegna þess að forsjáraðilinn reynir með einhverjum leiðum að koma í veg fýrir það og sætir viðkomandi þá dagsektum. Það sem minna er talað um, en er síst sjaldgæfara, er þegar for- sjárlausa foreldrið tregðast við að umgangast barn sitt þrátt fýrir tilraunir forsjárforeldris til að koma á samskiptum. Engar sektir eru viðhafðar og engin leið er til að koma á þeim eðli- legu samskiptum sem barn á rétt til samkvæmt íslenskri laga- setningu. Einhverjir gætu haldið því fram að barni sé varla gerð- ur greiði með því að láta það til einstaklings sem ekkert vill með það hafa, en séu slík mál ígrunduð frekar vaknar sú spurning hver réttur barnsins sjálfs er til eðlilegrar umgengni við foreldra sína. Umgengnisréttur sjáfísagður Kristín er íslenskur ríkisborg- ari en hafði búið erlendis um nokkurra ára skeið þegar hún flutti til íslands árið 1984. Fimm árum eftir heimkomuna eign- aðist hún fjórða barn sitt með manni sem verið hafði vinnu- veitandi hennar um skeið. Mað- urinn var kvæntur og tveggja barna faðir, sem kom þó ekki í veg fyrir loforð af hans hálfu þess efnis að ófædda barnið mundi hvorki líða efnahagsleg- an né félagslegan skort af hans hálfu þegar þar að kæmi. Hann stóð við fátt eitt af því sem lofað var — staðreynd sem margir einstæðir foreldrar kannast við. „Ég vissi frá upphafi að full- komin samskipti milli feðganna væru óraunhæf þar sem maður- inn átti aðra fjölskyldu. Mér var því ljóst að drengurinn fengi minni athygli frá föður sínum en þau börn sem hann átti fyrir, en grunaði ekki að hann gengi með öllu á bak orða sinna,“ seg- ir Kristín. „Loforðin sem hann gaf syni okkar ófæddum stóðust ekki raunveruleikann og mað- urinn hafði ekkert samband við drenginn fýstu æviár hans, þrátt fýrir tilraunir af minni hálfu. Ég taldi það rétt drengsins að eiga lágmarkssamskipti við föður sinn og tel það algert siðleysi gagnvart barni að það fái ekki að umgangast foreldri sitt. Á stundum hef ég meira að segja velt því fyrir mér hvort enginn faðir sé ekki betri en hálfur!“ Kristín segir aðstæður í kringum barnsburðinn hafa verið erfiðar en mikið gekk á þegar drengurinn fæddist og maðurinn krafðist sönnunar faðernis með blóðprufu. Álagið var af þeim sökum mikið á fjöl- skyldu hans og slitnaði upp úr hjónabandinu nokkru síðar. Aframhaldandi samband milli Kristínar og barnsföður hennar var þó aldrei til umræðu. Svik í kjölfar loforða Um skeið gekk foreldrunum brösulega að eiga samskipti og dregur Kristín ekki dul á að áfengisvandamáli, sem hún átti við að stríða, hafí að einhverju leyti verið um að kenna. Víð- tækur stuðningur frá félags- málayfirvöldum hjálpaði henni þó að yfirstíga versta hjallann og var henni þá ráðlagt að hafa ekki samband við barnsföður sinn um nokkurt skeið þar sem þau hefðu átt í vondum erjum. I framhaldi af því var henni boð- in stuðningsfjölskylda, sem veitti henni ómælda aðstoð. „Slík lausn er þó aðeins tíma- bundin og kemur aldrei í stað samskipta við föður.“ Kristín og barnsfaðir hennar náðu síðar sáttum en hann hélt uppteknum hætti gagnvart drengnum; hringdi sjaldan, heimsótti hann stopult og sveik hann þegar samið hafði verið um að hann tæki hann til sín á tilteknum tíma. Ástæðurnar sagði faðirinn meðal annars húsnæðisleysi, mikið vinnuálag og tímaskort. „Ég hef reynt allar leiðir; verið skilningsrík og gos- ið eins og eldfjall en allt til einskis. Það sem ég hef farið ffam á fyrir hönd barnsins er að hann heyri í föður sínum stöku sinnum og fái að sjá hann eða heimsækja af og til. Það hefur ekki gengið eftir. Svik hafa komið í kjölfar loforða og höf- um við mæðginin beðið klukkustundum saman eftir föðurnum án þess að hann léti sjá sig. Drengurinn hlakkar ætíð til og verður fýrir djúpstæðum vonbrigðum þegar faðir hans birtist ekki á tilsettum tíma. Sú spurning verður sífellt áleitnari hvernig einstaklingur það verð- ur sem svikinn er og logið er að.“ Áhrif alls þessa á drenginn telur Kristín þegar hafa komið í ljós. Hann dregur sig gjarnan í hlé, verður þungur í kringum framangreindar uppákomur, gerist uppreisnargjarn og er far- inn að pissa undir á ný. Að auki talar hann um að „pabbi sinn sé vondur“ og „mamma sín ljót“. Til að auka ekki á vanlíðan barnsins reynir Kristín, gegn eigin sannfæringu, að bera í bætifláka fýrir barnsföður sinn og réttlæta gjörðir hans með einhverjum hætti. „Mig langar síst af öllu til að verja trúnaðar- brot föður hans, en get lítið annað gert til verndar barninu. Hann finnur nú þegar mikið fýrir ástleysi föður síns, rétt orð- inn fjögurra ára, en ekki má vanmeta mikilvægi föður- ímyndarinnar. Það er ekki hægt að bæta fýrir missinn að nokkr- um árum liðnum. Skaðinn er þegar skeður.“ Ekki hægt að skikka foreldri til umgengni Svo virðist sem torvelt sé að fá foreldri til að umgangast barn sitt hafi það ekki vilja til þess. Þó segir í barnalögum: „Nú er for- sjá barns aðeins í höndum ann- ars foreldris, og á barnið þá rétt á umgengni við hitt foreldra sinna, enda er foreldri skylt að rækja umgengni og samneyti við barn og hlíta nánari skilmál- um, er að því lúta. Ef sérstök at- vik valda því að mati dóms- málaráðuneytisins, að um- gengni barns við foreldri sé andstæð hag þess og þörfum, getur ráðuneytið kveðið svo á, að umgengnisréttar njóti ekki við.“ Framkvæmd þessarar lagasetningar virðist hins vegar erfið. „Sýslumannsembættið veitti mér þær upplýsingar að engin leið væri að fá forsjárlausa foreldrið til að umgangast barn sitt gegn eigin vilja. Eini mögu- leikinn er að senda inn bréf með ósk um æskilega umgengni og einnig hafa þjóðkirkjan og fjöl- skyldudeild Félagsmálastofnun- ar einhverja milligöngu í mál- um sem þessu. Réttur barnsins virðist þó ekki jafhafdráttarlaus og að er látið liggja í lögum landsins." Af þeim sökum telur Kristín að almennt ábyrgðarleysi gagn- vart börnum sé jafnalgengt og raun ber vitni og réttur barna liggi oftlega milli hluta í forsjár- deilum og erjum foreldra. „Vanræksla í þjóðfélaginu er stórkostleg og allt of algengt að börn séu notuð á vígvelli hjóna- skilnaðar og í deilumálum. Fjöldi barna hefur orðið illa úti af þeim sökum, en það er þagað um þetta og látið að því liggja að þetta sé ekki til. Ég óska barni mínu betri tilveru og tel mig þurfa að vernda hann gegn skakkaföllum sem vanræksla af þessu tagi veldur. Fyrst og ffemst vil ég þó að réttur barns- ins nái fram að ganga og fyrir- byggja að þessi barátta haldi endalaust áfram. Ég hyggst ekki gefast upp, barnsins vegna, og hvað sem öllu öðru líður verður einnig að gera ráð fyrir þeim möguleika í lífinu að maður geti fallið frá og að eðlilegt sé við slíkar kringumstæður að barnið eigi tilkall til föður. Kjarni máls- ins snýst um rétt barnsins sjálfs til umgengni við foreldra sína og það verður að segjast eins og er að afar erfitt er að svara spurningu fjögurra ára barns sem segir: „Áf hverju vill pabbi ekki hitta mig?“ Telma L. Tómasson Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri sifja- deildarsýslumanns- embættisins Umgengni í þágu hagsmuna barns „í lögum er kveðið á um rétt barna til umgengni við það for- eldri sem ekki fer með forsjá þess og skal ákvarða umgengni eftir því sem hentar best hags- munum barns. Jafnvel þótt barn hafi rétt á að umgangast foreldra sína getur það tæplega verið í þágu þess að þvinga foreldri til samskipta við það ef foreldrið vill það ekki og mér vitanlega hefur ekki verið kveðinn upp slíkur úrskurður. Væntanlega yrði slíkt mál rannsakað gaum- gæfilega, jafnvel með umsögn frá barnaverndarnefnd, ef upp kæmi sú staða að barn vildi hitta foreldri sitt en það sinnti því í engu.“ Þuríður segir það ekki óal- gengt að foreldri sem fer með forsjá barns setji af stað um- gengnismál og krefjist þess að hinu foreldrinu verði ^ert að sinna skyldu sinni. „I öllum þeim tilfellum sem ég þekki til hefur fundist lausn á málum og ósjaldan er eitthvað annað sem veldur því að foreldri sinnir ekki barni sínu, til dæmis samskipta- erfiðleikar við hitt foreldrið. í öllum tilfellum sem um um- gengnismál er að ræða hefur embættið samband við það for- eldri sem óskað er eftir að eigi að umgangast barn, við skrifum því eða boðum það til okkar og bendum á skyldur þess til að rækja umgengni við barn. í framhaldi af því komumst við að afstöðu þess til umgengn- istillagna forsjáraðilans og fallist viðkomandi ekki á tillöguna fá- um við aðrar á móti. Ef ekki næst samkomulag er málinu ráðið til lykta á þann veg að úr- skurðað er í því, stundum að undangenginni umsögn barna- verndarnefndar. f úrskurði er nákvæmlega tiltekin tilhögun umgengninnar og ef foreldri sætir því ekki getur það skotið úrskurði sýslumanns til dóms- málaráðuneytisins.“ Ef forsjárlausa foreldrið held- ur uppteknum hætti gagnvart barninu bendir það til þess að það vilji ekki umgangast það. Engin úrræði eru til að þvinga það til umgengni á grundvelli þess sjónarmiðs sem að ffaman greinir, að slíkt geti ekki verið í þágu hagsmuna barns. Þuríður Árnadóttir DEILDARSTJÓRI Ekki óalgengt að foreldri sem fer með forsjá barns setji afstað umgengnismál og krefjist þess að hinu for- eldrinu verði gert að sinna skyldu sinni.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.