Pressan - 06.05.1993, Side 9
F R ETT I R
Fimmtudagurinn 6. maí1993
PRESSAN 9
sem í umþrættri bók var ætlun-
in að rekja æviatriði úr lífi aðal-
stefhdu [Maríu], er snerti per-
sónu hennar sjálfrar, verður að
fallast á það sjónarmið hennar,
að frásagnarmáti bókarinnar
skipti verulegu mál, einkum í
ffásögnum af örlagaríkum eða
viðkvæmum atburðum úr lífi
hennar, en ff am hefur komið að
um grundvallarskoðanamun
málsaðila var að ræða í þessu
efni. Því bar henni að fá nokkru
ráðið um með hvaða hætti sagt
væri ffá. Verður að telja, að ffá-
sagnarmáti geti oft verið það
samofinn efnisfrásögninni og
persónuleika viðmælanda, að
vart verði sundur skilið. Segja
má því, að þar sem tveir voru
höfundar, hafi báðir aðilar orð-
ið að vera sammála um ffásagn-
armáta.“
Höfuðágreiningur-
inn um frásögn af
nauðguninnií New
York
Það blasir við að höfuð-
ágreiningur þeirra virðist hafa
staðið um með hvaða hætti ætti
að segja frá árás þeirri og
nauðgun sem María varð fyrir í
New York í september árið
1976. Um þessa skelfilegu lífs-
reynslu tjáði María sig í hrein-
skrlnu viðtali við Heimsmynd í
september árið 1986. Taldi
Gullveig að þær hefðu orðið
sammála um ffásögn af þessum
atburði, en í málflutningi Maríu
kom ffam að hún taldi ffásögn-
inna allt annars eðlis en viðtalið
sem hún gaf á sínum tíma í
Heimsmynd, eins og kemur
ffam annars staðar á síðunni.
Umritaði sex sinnum
bréf til föður Maríu
En þetta var ekki það eina
sem orsakaði ágreining. Þau
Gullveig og Steinar báru því við
Þráinn Bertelsson
formaður Rithöfundasambandsins
„Ég kann ekki að tjá mig um
þetta einstaka mál vegna
vanþekkingar minnar á því.
Að auki finnst mér það held-
ur ekki í mínum verkahring
að tjá mig um lögfræðileg
málefni. Ég hef hins vegar
sjálfur töluverðan áhuga á
stöðu þeirra sem taka að sér
að skrifa ævisögu, því mér
finnst hún heldur bágborin.
Yfirleitt er gengið á hlut skrá-
setjara ævisagna þegar kem-
ur að því að greiða ritlaun.
Þeir fá ekki greitt samkvæmt
töxtum rithöfundafélagsins,
heldur eiga að skipta þessum
peningum með sögumanni
eða viðfangsefhi sínu. Þessu
er allt öðruvísi farið en hjá
myndhöggvurum sem
fengnir eru til að gera brjóst-
mynd af mikilmenni. Fyrir
það fær myndhöggvarinn
ákveðna upphæð. Þar þekk-
ist ekki svo ég viti að sá sem
brjóstmyndin er af og mynd-
höggvarinn skipti peningun-
um sín á milli.“
að íslenskukunnáttu Maríu
hefði verið mjög ábótavant og
því hefði þurft að hafa mikil
inngrip í ritun bókarinnar.
Þessu hafnaði reyndar lögmað-
ur Maríu, Eiríkur Tómasson
hæstaréttarlögmaður.
I málflutningi Maríu kemur
hins vegar fram að hún hafi
fljótlega orðið vör við að til stóð
að breyta mjög frásagnarstíl
hennar. Tók hún sem dæmi að
Gullveig hefði umritað bréf
Maríu til föður síns einum sex
sinnum. Þetta bréf skrifaði Mar-
ía þegar hún var ung og var eitt
af fyrstu atriðunum sem tekin
voru fyrir í ævisögunni.
Segir María að þegar á ævi-
söguna leið hafi komið æ betur í
ljós að Gullveig hafði allt aðrar
hugmyndir um hana en María,
„...fyrst og fremst vegna þess
að aðalstefnandi hafi lagt ríka
áherslu á að fjaila ítarlega um
viðkvæm persónuleg mál aðal-
stefndu [Maríu] með þeim
hætti sem hún gat alls ekki sætt
sig við“.
Guiiveig kallaði
Maríu óllum illum
nöfnum
Það er ljóst að þær gátu ekki
unnið saman að bókinni og
þegar fór að nálgast skil slitnaði
endanlega upp úr því. Kom
fram að þegar Marfa kom til
landsins í águst 1991 hefði allt
verið komið í óefni milli hennar
og Gullveigar. Kom fram í mál-
flutningnum að Gullveig hefði
komið heim til Maríu „...og í
stað þess að bjóða hana vel-
komna til landsins hafi aðal-
stefnandi [Gullveig] byrjað á því
að atyrða hana með ærumeið-
andi ummælum sem ekki séu
eftir hafandi. Inntakið í um-
mælunum hafi þó verið það að
vinna við bókina væri komin í
eindaga og hér eftir væri það
hún, þ.e. aðalstefnandi [Gull-
veig], sem réði ferðinni“. Ann-
ars staðar í málflutningnum
kom frarn að eftir þetta hefði öU
„kurteisi“ verið úr sögunni.
Málsaðila greinir reyndar
mjög á um hvað mikið af bók-
inni var búið þegar upp úr sUtn-
aði. Á þessum tíma taldi María
að einngis tveir kaflar hefðu
verið frágengnir milli þeirra.
Það var bréfið til föður Maríu,
frásögn af æskuárum hennar í
Djúpuvík og síðan hafi María
með semingi lagt blessun sína
yfir þátt um Fegurðarsam-
keppni Islands árið 1961, en
þann kafla skrifaði Gullveig í
þriðju persónu. Mótmælti því
María þeim fullyrðingum Gull-
veigar að sjö af átta stærstu köfl-
um bókarinnar hefðu verið
samþykktir af báðum málsaðU-
um.
Krafa Maríu byggð-
ist á því að hún hefði
90.000 krónur á dag
Þær Gullveig og María lögðu
fram háar skaðabótakröfur
hvor á aðra. Gullveig byggði
sína kröfu á því að hún hefði
hætt vinnu sem ritstjóri Nýs lífs,
en þar hafði hún 278.440 krón-
ur fyrir hvert tölublað sem verk-
taki. Gerðu hún og Fróði hf.
kröfu upp á tæplega eina og
hálfa milljón króna, meðal ann-
ars vegna kostnaðar við ferða-
lög Maríu til íslands og ff á.
María gerði á móti háa
skaðabótalaöfu, sem var reikn-
uð út frá því að hún hefði mjög
háar tekjur sem tískuljósmynd-
ari. Kemur ffam í rökstuðningi
að María ætlar sér um 8.000
franska franka á dag í laun eða
um 90.000 krónur. Samtals var
skaðabótakrafa hennar upp á
720 þúsund franka og þrjár
milljónir að auki eða upp á um
ellefu milljónir króna.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
„Ég þekki ekki málsaðila eða
tildrög nema úr blöðunum,
en svona utan ff á séð virðist
þetta mál alveg fáránlegt og
hvorki Fróða né Gullveigu til
sæmdar. Það snýst í rauninni
um það hvort lff Maríu Guð-
mundsdóttur sé í eigu Fróða
og Gullveigar eða hennar
sjálfrar! Þótt Gullveigu hafi
mistekist að lýsa dramatísk-
um atburðum úr lífi Maríu
Guðmundsdóttur með þeim
efnistökum sem María gat
sætt sig við er ekki þar með
sagt að hún eigi eitthvað inni
hjá Maríu. Ekki fer ég að
rukka neinn þótt mér mis-
takist að skrifa bók. Hafi
María fengið einhveria fyrir-
framgreiðslu hjá Fróða er
sjálfsagt að hún borgi það.
Én þetta fólk á ekki krónu
meira hjá henni. Frekar að
það væri öfugt miðað við þá
armæðu sem hún hlýtur að
hafa haft af þessu öllu. Blaða-
mannafélagið og rithöfunda-
sambandið ættu að huga að
ieiðum til að vernda fólk fyrir
svona ævisöguriturum.11
Lögmaður Gullveigar, Viðar
Már Matthíasson hæstaréttar-
lögmaður, hafhaði þessari kröfu
fyrir dómi og benti Gullveig á að
María hefði haft litlar tekjur
sem ljósmyndari og tekjur
hennar af því hverfandi. í raun
kvað dómarinn aldrei upp úr
um réttmæti þessara atriða því
hann hafnaði bótakröfum
kvennanna beggja alfarið, enda
taldi hann beggja sök hvernig
málin hefðu þróast. f niður-
stöðu sinni segir dómarinn að
þó að augljóst sé að Gullveig
hafi verið ráðrík um efni og efn-
istök blasi einnig við að María
hafi verið fullfljót að gefa sam-
starfið og sáttaumleitanir upp á
bátinn.
Auk þess synjaði dómarinn
Gullveigu um staðfestingu á
kyrrsetningarbeiðni hennar á
eignum Maríu hér á landi.
Sömuleiðis hafnaði hann skaða-
bótakröfu Maríu vegna meints
skaða af völdum þessarar sömu
kyrrsetningar.
Á Barrokk í afmæli Brynju Nordquist um páskana.
Brynja Nordquist, María Guðmundsdóttir, Guðrún Möller
ogJóna Lárusdóttir.
Sigurður MárJónsson
og Guðrún Kristjánsdóttir