Pressan - 06.05.1993, Síða 10
10 PRESSAN
Skrautlegt bókhald aflagðrar heildsölu dregið upp úr skúffu
SÖLUFÚLK KRAFIB UM
GAMLAR OG UPPGERDAR
SKULDIR
Um tuttugu einstaklingar,
sem íyrir tveimur til þremur
árum tóku að sér farandsölu á
Gold Star-símsvörum og
- símtækjum íyrir heildsöluna
Kristal hf. í Reykjavík, hafa að
undanförnu fengið á sig inn-
heimtukröfur frá Lögþingi
vegna meintra óuppgerðra
skila. Innheimtutilraunir þess-
ar hafa mætt hörðum við-
brögðum, enda telur fólkið sig
skuldlaust og geta í mörgum
tilvikum sannað það með
kvittunum. Ákveðið hefur ver-
ið að hætta öllum innheimtu-
tilraunum í ljósi þessa, en ljóst
er að um nokkrar milljónir
króna var að tefla.
Lögþing: Stöndum
ekkií neinu Þjóð-
lífsmáli
Hlutafélagið Kristall var
stofnað í mars 1990 af Ágústi
Kristmanns stórkaupmanni
og fleiri einstaklingum og
gerði út hátt í fimmtíu farand-
sölumenn, sem buðu upp á
símsvara og símtæki. Fyrir-
tækið var síðan selt í október
síðastliðnum og fékk nýtt
nafn, I.Á.-Hönnun hf., með
aðsetur á Akranesi. Hins vegar
varð eftir í gamla fyrirtækinu
bókhald, sem illa gekk að
henda reiður á. Eigendur
Kristals fengu Lárus Val-
bergsson til að reyna að koma
þessum málum á hreint og var
það hann sem fól Lögþingi að
annast innheimtuna. Inn-
heimtan fór síðan fram í nafni
Kristals, þótt fyrirtæki með því
nafni væri ekki lengur til.
„Okkur var einfaldlega falið
að innheimta útistandandi
kröfúr, sem samkvæmt gögn-
um virtust fyllilega réttmætar.
Ekkert í bókhaldinu benti til
þess að viðkomandi einstak-
lingar hefðu gert skil á sínum
málum, en í ljósi harðra við-
bragða við innheimtubréfum
okkar höfum við ákveðið að
hætta öllum innheimtutil-
raunum. Við ætlum ekki að
standa í neinu Þjóðlífsmáli,“
sagði Jón Ingvar Pálsson, full-
trúi hjá Lögþingi, aðspurður
um málið.
Hann sagði ennfremur að
það fólk, sem hefði getað sýnt
fram á uppgjör með kvittun-
um, hefði verið beðið afsök-
unar og að þeir sem hefðu
ekki slík gögn þyrftu ekki að
óttast frekari innheimtutil-
raunir af Lögþings hálfu. „Við
sendum þessi mál nú til baka
til kröfueigenda, höfúm engan
áhuga á kröfúm sem eiga ekki
rétt á sér.“
Innheimtu hætt en
engin skil á hundr-
uðum simsvara
Ágúst Kristmanns vildi lítið
tjá sig um mál þetta í samtali
við PRESSUNA, sagði ein-
faldlega að fyrirtækið væri
löngu selt og að ábyggilega
hefði verið eitthvað um úti-
standandi kröfur. Hann vísaði
á Ólaf Garðarsson lögfræðing
í því sambandi, en ekkert kom
fram um að Ólafúr ætti hlut að
umræddum innheimtutil-
raunum.
Lárus Valbergsson sagði á
hinn bóginn að undir lok
rekstrar Kristals hefði sér verið
falið að reyna að koma rugl-
ingslegu bókhaldi fyrirtækis-
ins á hreint. „Eftir að hafa
hreinsað til eins og hægt var
voru um tuttugu mál eftir þar
sem bókhaldið benti ekki til
fúllra skila. Ég fór til Lögþings
og okkur samdist um að þeir
mundu athuga stöðu þessara
mála og fá fólkið til að gera
grein fyrir sínum málum,“
sagði hann. Síðar í gærdag til-
kynnti hann PRESSUNNI að
eftir samtal við eigendur Krist-
als hefðu menn orðið ásáttir
um að láta innheimtumál
þessi niður falla. „Hitt er ann-
að mál að þetta voru engan
veginn tilhæfulausar inn-
heimtutilraunir. Það liggur
fyrir að aldrei voru gerð skil á
hundruðum símsvara. Það er
á hreinu að eitthvað af þessu
fólki nýtur góðs af því að það
var óráðsía í bókhaldi fýrir-
tækisins."
Friðrik Þór Guðmundsson
ÁGÚST Kristmanns stórkaupmaður
Einn stofnenda og skráður framkvæmdastjóri Kristals hf., sem bauð upp á Gold Star-
símsvara og -simtæki. Fyrirtækið var í fyrra selt upp á Akranes og hlaut nýtt nafn, en út
frá götóttu bókhaldi gamla fyrirtækisins hafa um tuttugu fyrrum sölumenn fengið há-
ar kröfur á sig. Þeim verður nú kastað út í hafsauga.
Sýslumaðurinn í Reykjavík herðir aðgerðir gegn skuldurum sem hunsað hafa boðun
■ ■ r
LOGMENN FÆRBIR MEB VALDITIL SYSLUMANNS
Sýslumannsembættið í
Reykjavík ákvað nýlega, í ljósi
ört fjölgandi fjárnámsmála í
aðfarardeild þess, að herða
aðgerðir gegn þeim aðilum
sem hafa fengið á sig fjölda
krafna en hunsað tilkynning-
ar um að mæta og gera grein
fyrir málum sfnum. Þessar
hertu aðgerðir fela í sér að í æ
ríkari mæli hefur embættið
beðið boðunardeild lögregl-
unnar að finna viðkomandi
aðila og færa þá með lögreglu-
valdi til sýslumanns.
Sýslumaður: Þetta
er mikið vandamál
Jón Skaftason, sýslumaður
í Reykjavík, staðfesti í samtali
við PRESSUNA að í aðfarar-
deild embættisins væru mörg
tilvik um fjárnámsþola, sem
fengið hefðu löglegar tilkynn-
ingar og ættu ekki eignir sem
vitað væri um og mættu ekki
þegar til hefur staðið að taka
mál þeirra fyrir. „Þetta er
mikið vandamál og það má
tala um hertar aðgerðir. Sam-
kvæmt lögum getum við æskt
aðstoðar lögreglunnar til að
finna þessa aðila og færa þá
hingað. Heimildin var til, en
sannleikurinn er sá að beiðn-
unum hefur fjölgað gífurlega
eftir dómsvaldsbreytingarnar
á síðasta ári, en þá stækkaði
umdæmi okkar talsvert um
leið og málum hefur fjölgað
að öðru leyti,“ sagði Jón.
Einn viðmælandi blaðsins
benti á að þegar menn létu
ekki sjá sig væri það gjarnan
til að koma í veg fyrir árang-
urslaust fjárnám, en effir slíka
niðurstöðu er hægt að krefjast
gjaldþrotaskipta yfir viðkom-
andi.
PRESSAN hefur áreiðan-
legar heimildir fyrir því að
ákveðið hafi verið að hefjast
handa með þá sem hafa fjölda
beiðna á sig og um leið að líta
sérstaklega til „svörtu sauð-
anna“ í lögfræðingastéttinni.
PRESSAN hefúr þannig vitn-
eskju um að á síðustu vikum
hafi ekki færri en þrír lög-
fræðingar verið færðir til
sýslumanns með lögreglu-
valdi.
Gísli:21 beiðniá
aðeins sjö mánuð-
um
Einn þessara lögfræðinga
er Helgi Rúnar Magnússon,
GÍSU GÍSLASON LÖGFRÆÐING-
UR Færður með lögreglu-
valdi til sýslumanns og
krafinn svara um fjölda
skulda upp á samtals 9 til
Wmilljónir.
en um hans mál hefur
PRESSAN áður fjallað ítar-
lega. Annar er Gísli Gíslason,
sem var færður til sýslumanns
með lögregluvaldi síðasta
föstudag og fékk þá vikuffest
til að ganga ffá sínum málum.
Blaðið hefur fengið það
skjalfest að ffá því í september
síðastliðnum hafi sýslu-
mannsembættinu borist 21
fjárnámsbeiðni á Gísla.
Nokkrar þeirra eru tvíteknar,
þar sem þær eigur sem áður
hafði verið bent á reyndust
yfirveðsettar og því gagns-
lausar. Hér með talið eru tvær
bifreiðir sem Gísli benti á,
fjögur tölvuauglýsingaskilti og
tveir „gufusjóðarar“. Tvær
minniháttar beiðnir voru að
auki affurkallaðar.
Eftir standa fimmtán ófrá-
gengnar fjárnámsbeiðnir upp
á nærri 9 milljónir króna.
Megnið af þessum kröfum
mun vera vegna persónulegra
ábyrgða hans í tengslum við
rekstur hlutafélaganna Berlín-
ar hf. og Rómar hf., sem voru
í eigu hans og Sveins E. Úlf-
arssonar veitingamanns.
Þessi félög, ásamt Bikar hf.,
sem Gísli átti aðild að, ráku á
tímabili veitingastaðina Berlín
og Pisa. Þá var Gísli annar
stofnenda og skráður pró-
kúruhafi fyrir hlutafélagið
Reykvískar veitingar hf., sem
varð gjaldþrota og eignalaust
gagnvart kröfum upp á 23
mílljónir króna.
Friðrik Þór Guðmundsson
Fimmtudagurinn 6. maí 1993
SlGURÐUR HELGASON forstjóri Flug-
leiða. Fyrirtækið „á" uppsafnað og
yfirfæranlegt skattalegt tap upp á
2,8 milljarða króna. Á síðustu fimm
árum hafa þrjú ár komið út með
samtals um 2 milljarða hagnaði en
tvö ár hafa komið út með alls um
400 milljóna króna tapi. Hið upp-
safnaða tap er því að stofni til
margra ára gamalt.
Uppsafnað og yfirfær-
anlegt skattalegttap
Sex millj-
arðar hjá
tólf fyrir-
tækjum
Við skoðun PRESSUNNAR á afkomu
yfir tuttugu fyrirtækja á verðbréfaþingi eða
opnum tilboðsmarkaði með hlutabréf
kom í ljós að tólf þeirra eiga yfirfæranlegt
og uppsafnað skattalegt tap upp á tæplega
6 milljarða króna. Sömu fyrirtæki hafa á
hinn bóginn komið út með yfir tveggja
milljarða hagnað alls á síðustu fjórum ár-
um.
Skattalög heimila fyrirtækjum að yfir-
færa tap eins árs yfir á næsta ár til að draga
úr skattgreiðslum. Ljóst er að hið yfirfær-
anlega tap getur dregið úr og jafnvel stöðv-
að tekjuskattsgreiðslur margra fyrirtækja
mörg ár fram í tímann.
Þau tólf fyrirtæki sem um ræðir eru
Eimskip, Flugleiðir, íslandsbanki, Islenska
útvarpsfélagið (Stöð 2/Bylgjan), Vátrygg-
ingarfélagið, Grandi, KEA, Marel, Eignar-
haldsfélag Alþýðubankans, Jarðboranir,
Tollvörugeymslan og Sæplast.
Uppsafnað tap þessara fyrirtækja nem-
ur alls 5,7 milljörðum, en þá er þess að
gæta að uppsöfnunin er langmest hjá Flug-
leiðum eða 2,8 milljarðar. Næst koma fs-
landsbanki með rúman milljarð, KEA með
550 milljónir, Grandi með 530 milljónir og
íslenska útvarpsfélagið með 440 milljónir.
Eimskipafélagið er með yfirfæranlegt
skattalegt tap upp á 130 milljónir, en Eim-
skip tapaði í ár 41 milljón eftir að hafa sýnt
að meðaltali 360 milljóna króna hagnað að
núvirði sex undanfarandi ár.
Afkoma sömu fyrirtækja síðustu fjögur
ár sýnir enda að gamalt tap er lengi að af-
mást í skattalegu tilliti. Ef litið er til ann-
arra en Flugleiða kemur í ljós að sömu fyr-
irtæki og „eiga“ yfirfæranlegt skattalegt tap
upp á 3,0 milljarða högnuðust um 1,8
milljarða á síðustu fjórum árum.
HörðurSigurgestsson
forstjóri Eimskipafélagsins. Fyrir-
tækið „á" yfirfæranlegt skattatap
upp á 130 milljónir. Tapaði 40
milljónum í fyrra en sex árin þar á
undan varð hreinn hagnaður upp
á um 2,2 milljarða alls, að núvirði.