Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 11
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 6. maí 1993
PRESSAN 1 1
Kaupendur dvalarréttarsamninga suður í Portúgal
Fá ekki afsal og hótað
Qártapl ef þeir greiða
ekki upp
ERIK JENSEN Voru að íhuga að hætta að selja á Domino Do Solog selja þess ístað á Flórída.
Svo virðist sem brögð séu að
því að einstaklingar sem fjárfest
hafa í portúgalska íbúðahótel-
inu Domino Do Sol fái ekki afsal
fyrir eignum sínum þrátt fyrir
mikla eftirgangsmuni. Auk þess
stendur fólk nú frammi fyrir því
að halda áfram að borga eða
tapa ella þeim peningum sem
það hefur lagt til verkefnisins.
í síðustu PRESSU var um-
fjöllun um Framtíðarferðir hf.
og sölustarfsemi tengda dvalar-
réttaríbúðum í Portúgal. f fram-
haldi af því hefur mikill fjöldi
fólks haft samband við blaðið
og lýst aðstæðum sínum og
skoðunum.
Borgaði upp í fyrra-
sumar en nefur ekki
fengið afsal ennþá
„Það er ljóst að það eru
margir hlutir sem ekki passa
inn í þessa mynd,“ sagði Sævar
Lúðvíksson, sem keypti hlut í
Domino Do Sol í júní síðasta
sumar. Hann keypti eina viku á
330.000 krónur. Hann sagðist
hafa lokið við að greiða þetta
síðar um sumarið en ekki feng-
ið neitt afsal í hendurnar þrátt
fyrir að í samningnum segði að
hann ætti að fá slíkt afsal þrem-
ur mánuðum eftir lokagreiðslu.
„Ég verð að játa það að ég
varð hissa þegar ég sá að þetta
var leiga til 99 ára. Eg sá hvergi á
pappírunum að þetta væri leiga
þegar ég skrifaði undir,“ sagði
Sævar. Hann sagðist einnig hafa
rekið sig á að ekki væri einfald-
ur hlutur að leigja réttinn ef
hann gæti ekki notað hann, eins
og væri reyndin hjá sér nú.
Hann væri þúinn að komast að
því að nánast ómögulegt væri
að nota skiptiréttinn í Banda-
ríkjunum. „Ég vil þó taka ffarn
að Domino Do Sol er glæsilegt
hótel með ofboðslega skemmti-
legum íbúðum."
Mundirðu borga þetta verð i
dag efþújjárfestir þarna?
„Ég væri til í að greiða helrn-
inginn af verðinu en ég vona að
tiikoma EES lækki fargjöld,"
sagði Sævar. Hann sagðist helst
vilja selja hlut sinn nú en sæi öll
tormerki á því, þar sem fram-
boðið væri mikið.
I svipaðan streng tekur Ámi
Bergmann, búsettur á Akur-
eyri. Hann sagðist hafa beðið
eftir afsali síðan í janúar og ný-
lega ítrekað þessa kröfu sína.
„Þegar þetta gekk í gegn úti stóð
maður í þeirri trú að verið væri
að kaupa fasteign. Nú les maður
að þetta hafi bara verið dvalar-
réttur,“ sagði Ami.
Einn ánægður viðskiptavinur
hafði þó samband. Var það
Már Elísson verslunarmaður,
sem keypti dvalarrétt í janúar
úti á Kanaríeyjum. Þar keypti
hann tvær vikur á 650 þúsund
krónur og sagði að um væri að
ræða fimm stjörnu „klassastað“
sem hann hefði grandskoðað.
Fékk bréffrá Dom-
ino Do Sol um að
borga eða tapa ella
því sem hann hefur
greitt til þessa
Þá hefur.blaðamaður upplýs-
ingar frá öðrum kaupanda frá
síðasta sumri, sem hætti að
greiða í nóvember þegar að-
stæður hans breyttust. Síðan
hefur hann gert ítrekaðar til-
raunir til að fá endurgreitt.
„I póstinum í gær [þriðju-
dag] kom bréf frá Portúgal sem
reyndar var á íslensku,“ sagði
þessi kaupandi, sem baðst und-
an því að nafn hans kæmi fram.
„Þar segir að ef ég greiði ekki
innan fimmtán daga verði
samningnum við Domino Do
Sol rift og þeir haldi eftir öllum
greiðslum sem þegar hafa bor-
ist.“ Viðkomandi sagðist frekar
eiga von á að hann mundi sætta
sig við skellinn nú en að halda
áfram að borga og reyna að selja
síðar.
Þá er rétt að geta þess að enn
og aftur er kominn upp ágrein-
ingur um hvort verið sé að selja
fasteignir eða ekki. Viðskipta-
vinirnir halda því ffarn að þeim
hafi verið sagt það en Framtíð-
arferðamenn neita því í dag. í'
ljósi þess eru forvitnileg um-
mæli sem höfð eru eftir Brynj-
ólfi Sigurðssyni, sölustjóra
Framtíðarferða, í Morgunblað-
inu 23. mars síðastliðinn. Um-
mælin voru í tengslum við ffétt
um að samgönguráðuneytið
væri að skoða Framtíðarferðir:
„Við seljum fasteignir í Portú-
gal. Málið snýst um það að fólk
fjárfestir í hóteli í Portúgal og
hefur búseturétt þar í ákveðnar
vikur. Það fær afsal og er síðan
þinglýstur íbúðareigandi með
búseturétti. Þetta tiltekna hótel
er innan RCI þannig að íbúðar-
eigandinn verður sjálfkrafa fé-
lagi í RCl, sem er alþjóðlegur fé-
lagsskapur með höfuðstöðvar í
London. Við sjáum ekki um að
skipuleggja neinar ferðir eða
panta gistingu eða neitt slíkt.
Við rekum því ekki ferðaskrif-
stofu.“ Nokkru síðar sóttu
Framtíðarferðir um ferðaskrif-
stofuleyfi.
Sigurður Már Jónsson
Fréttatilkynning norska neyt-
endaráðsins.
Norska
neytendaráðið
Gaf út viðvör-
un vegna sölu
á dvalarréttar-
íbúðum
PRESSAN hefur undir hönd-
um fréttabréf frá norsku Neyt-
endasamtökunum eða Neyt-
endaráðinu sem gefið var út fyrr
á árinu. Þar er beint mjög
sterkri viðvörun til neytenda
vegna „Time-share“-samninga,
sem þeir segja varasama. Segir í
tilkynningunni að fólk eigi ekki
að skrifa undir slíka samninga
fyrr en það viti nákvæmlega um
réttindi og skyldur.
Neytendaráðið hafi á síðustu
mánuðum fengið marga slíka
samninga í hendurnar frá von-
sviknu fólki sem sér eftir því að
hafa undirgengist vafasama
samninga um dvalarrétt fyrir
sunnan. Viðvörunin er sett
fram í fjórum liðum:
1. Vondir samningar.
Samningarnir nýta sér van-
þekkingu kaupenda. Samning-
arnir fela í sér margvíslegar fjár-
hagslegar skyldur fyrir kaup-
endur en fá réttindi. Það eru svo
mörg vafaatriði þeim samfara
að Neytendaráðið getur ekki
annað en varað við þeim.
2. Óprúttin sölustarfsemi.
Það er ljóst að þessi sölustarf-
semi er mjög ýtin og gengur
eins langt og unnt er í því að
nýta sér ókunnugleika fólks.
Margir láta undan söluáróðrin-
um vegna þeirrar sálfræði sem
þar er beitt. Hefur Neytenda-
ráðið sterklega á tilfinningunni
að margir skrifi undir án þess
að vita hvað þeir eru að gera.
3. Ekki hagkvæmt.
Neytendaráðið hefur fengið
dæmi um hagkvæmni þessara
kaupa. Það hefur dæmi um
konu sem keypti tvær vikur fyr-
ir fjórum árum. Hún borgaði
fyrir það 900.000 krónur. Hún
þurfti að borga um 45.000 krón-
ur á ári í ýmsan kostnað. Auk
þess þurfti hún að kaupa ferð
fram og til baka á hverju ári á
ákveðnum tíma. Þessi kona tel-
ur að hún væri mun betur sett ef
hún hefði keypt sér árlega ferð
suður á hefðbundinn máta.
4. Óspennandi vara.
Neytendaráðið telur að
„Time Share“ sé ekki spennandi
valkostur. Það sé í raun mun
skynsamara að leggja peninga í
banka en að „fjárfesta“ í þessum
íbúðum.
Að lokum ráðleggur Neyt-
endaráðið fólki sem skrifað hef-
ur undir samninga að greiða
ekki meira inn á þá fyrr en það
hafi fengið nánari upplýsingar.
Fjórirfyrrverandi sölumenn með harðarásakanir
Tllbúnir samningar notaðir til að lokka viðskiptavini
I síðustu viku röktu tveir
fyrrverandi sölumenn hjá
Domino Do Sol hvernig sölu-
starfsemin kæmi þeim fyrir
sjónir. Það voru þeir Friðrik
Brekkan og Ólafur Ragnars-
son. Sögðu þeir að söluaðferð-
irnar byggðust á margvíslegum
blekkingum.
Nú liggur fyrir framburður
tveggja sölumanna í viðbót
sem snúið hafa baki við þess-
um söluaðferðum. Er hann í
flestum atriðum samhljóða
framburði Friðriks og Ólafs.
Jón Pálsson starfaði suður í
Portúgal frá 1. júní til 28. októ-
ber á síðasta ári. Þá kom hann
heim og var ætlunin að hann
hæfi störf hér heima. Sagðist
hann hafa hætt við það þegar
hann sannfærðist um að vinnu-
brögðin væru ekki í lagi. Sagð-
ist hann í öllum atriðum styðja
frásaghirTfiðriks óg ólafs’3
Gretar Harðarson
Hugmyndin sniðug en virkar
ekki sem skyldi.
„Ég veit hvernig þetta fór í
Vale Navio en þar var allt í
kaldakoli eftir að yfirmaðurinn
"s'takk af með alla peningana.
Friðrik Brekkan
Hætti vegna óánægju með
söluaðferðir
Síðar kom í Ijós að sumar íbúð-
irnar á samningunum voru
ekki til,“ sagði Jón. Hann sagð-
ist einnig hafa orðið vár við áð
ÓLAFUR RAGNARSS0N
Segist hafa staðið lengi í þeirri
trú að þeir væru að selja fast-
eignir
nöfn starfsmanna og ættingja
þeirra hefðu verið hengd upp á
töflu hjá Framtíðarferðum til
'að láta líta út fyrir að fleíri
JÓN PÁLSS0N
Látið líta út fyrir að fjöldi fólks
hafi keypt sig inn í Domino Do
Sol.
samningar hefðu verið gerðir.
Þetta hefur PRESSAN fengið
staðfest hjá öðrum heimilda-
mártni. ' ■
Gretar Harðarson sagðist
hafa verið sölumaður á einum
fjórum mismunandi stöðum í
Portúgal, sem þó hefðu allir
sérhæft sig í að selja dvalarrétt.
„Ég skipti í fjórgang vegna þess
að ég hélt að þetta væri betra
annars staðar, þar til ég áttaði
mig á því að þetta gekk ekki
upp. Hugmyndin er sniðug en
virkar ekki sem skyldi. Þetta sé
ég betur í dag. Ég áttaði mig
ekki á þessu fyrr en ég var
kominn heim og ætlaði að fara
að starfa fyrir þá hér heima í
Framtíðarferðum og átti með
þeim fund. Það kom fram á
þeim fúndi að til stæði að hætta
að selja á Domino Do Sol og
selja íbúðir á Flórída í staðinn.
Þetta eitt segir manni að fyrir-
tækið er ekki á vegum Domino
Do Sol,“ sagði Gretar.