Pressan - 06.05.1993, Qupperneq 21
í VONDUM MÁLUM
Fimmtudagurinn 6. maí 1993
PXESSAN 21
Hæstiréttur orðinn íhaldssam-
ari en áður og uppgangur heit-
trúaðra á valdadögum Ronalds
Reagans og Bush hefur aukið
þrýstinginn á afturhvarf til
gömlu daganna.
Kjósendur eru þverklofnir í
afstöðu sinni til samkyn-
hneigðra, rétt eins og þeir voru
til blökkumanna, en það er auð-
veldara að verja málstaðinn nú.
Það var erfitt að mótmæla rétt-
indum fólks með vísan til litar-
háttar þess, en um samkyn-
hneigð gegnir allt öðru máli,
sérstaklega í landi með sterkar
púritanskar hefðir. Stórum
hluta kjósenda nægir að fletta
upp í Biblíunni til að komast að
þeirri niðurstöðu að samkyn-
hneigð sé synd. Aðrir h'ta á hana
sem sjúkdóm sem megi og eigi
að lækna. Enn aðrir tala urn
„lífsstíT, sem fer í taugarnar á
þeim, og ætlast til þess að fólk
breyti einfaldlega háttum sín-
um.
í slíku andrúmslofti getur
reynst erfitt að ná fram alvöru-
úrbótum í mannréttindamálum
homma og lesbía, svo sem því
að samkynhneigð „hjón“ njóti
sömu réttinda og viðurkenning-
ar og gagnkynhneigð. Sérstak-
lega þegar í Hvíta húsinu situr
forseti sem ítrekað hefur sýnt að
honum er fátt betur gefið en að
reyna að hugnast öllum í við-
kvæmum málum.
Ritstjórí beitir blaði
sínu
Þó er líklega óhætt að slá
föstu að pólitísk áhrif homma
og lesbía séu komin til að vera.
Það eitt, að forsetinn skuli eiga
fund með þeim, er bylting á fá-
einum árum. Ronald Reagan og
hans lið hefðu líklega lamið
Biblíunni í hausinn á hverjum
þeim sem hefði látið sér detta
slíkt í hug.
Hommar og lesbíur eiga sér
líka sterkari talsmenn en áður
og á áhrifameiri stöðum. Einn
mesti fengur þeirra á síðari ár-
um er ritstjóri tímaritsins The
New Republic, áhrifamesta pól-
itíska tímarits Bandaríkjanna.
Sá heitir Andrew Sullivan, þrí-
tugur Harvard-menntaður
Breti, íhaldsmaður og hommi.
Hann hefur ekki einasta beitt
sér og tímaritinu einarðlega í
mannréttindamálum samkyn-
hneigðra, heldur er hann sjálfur
orðinn hluti af „kerfinu“ og hef-
ur náð viðurkenningu sem slík-
ur.
Menn eins og Sullivan munu
tryggja að deilan um réttindi
samkynhneigðra verður ofar-
lega á dagskrá bandarískra
stjórnmála næstu árin. Hörð
átök hafa átt sér stað í einstök-
um fylkjum, svo sem Oregon,
þar sem smábær einfaldlega
bannaði samkynhneigð innan
bæjarmarkanna, og í Minnes-
ota, þar sem samkynhneigðir
(og tvíkynhneigðir og kynsldpt-
ingar) fengu nýlega jafnrétti að
lögum á við aðra. Slík átök geta
á endanum reynst Clinton og
demókrötum vel, sem hefur
gerzt áður þegar málflutningur
heittrúarvængs repúblikana-
flokksins hrakti hófsamari kjós-
endur hans í burtu.
Karl Th. Birgisson
Bob Hattoy
Sérstakur tengiliður forset-
ans við samtök homma og
lesbía.
Ráttarhöld hafin íBCCI-málinu íNewYork
Fyrirmenn í fjármálasvindli
Tveir valdamestu lögmenn Bandaríkjanna sjá fram á
nokkurra ára fangelsi að afloknum réttarhöldum í
einum anga BCCI- málsins.
góðgerðarstofnunum sem
byggðu skóla, heilsugæslu-
stöðvar og menningarmið-
stöðvar víðs vega um heiminn
og naut til þess liðsinnis nafn-
kunnra leiðtoga á borð við
James Callaghan og Jimmy
Carter.
Abedi er dularfullur maður
og lýsti einu sinni muninum á
BCCI og vestrænum bönkum
svona: „Vestrænir bankar ein-
beita sér að því sýnilega, en við
leggjum áherslu á hið ósýni-
lega.“ Þetta átti eftir að rætast,
því helstu viðskiptavinir hans
voru karakterar sem þoldu
varla dagsins ljós.
Það er nefnilega varla til sá
alþjóðlegur glæpamaður sem
ekki var með viðskipti sín hjá
BCCI. Það var þægilegt af
tveimur ástæðum: bankinn var
með útibú um allan heim og
var heldur ekki þekktur fyrir að
forvitnast of mikið um undar-
legt fjárstreymi í gegnum
reikninga viðskiptavina. Bank-
inn var miklu frekar hjálplegur;
enginn banki „þvoði“ jafhmik-
ið af óhreinum peningum sem
Fyrir skömntu var tekinn
fyrir í réttarsal á Manhattan-
eyju einn merkilegasti anginn
af stærsta fjársvikamáli aldar-
innar, máli Bank of Commerce
and Credit International
(BCCI). Þar voru dregnir fýrir
rétt öldungurinn Clark Clif-
ford og skjólstæðingur hans og
félagi, lögmaðurinn Robert
Altman. Báðir eru þeir með
stærri nöfnum í bandarískri
yfirstétt, Clifford sem stjórn-
málamaður og einkaráðgjafi
margra forseta og Altman sem
undrabarn og gulldrengur í
fjármálaheiminum. Þeir eiga
yfir höfði sér nokkurra ára
fangelsisdóm fyrir brot á
bankalögum, svik og pretti sem
teygja anga sína um allan heim.
Afi demókrata-
flokksins
Clark Clifford mætti reyndar
ekki í réttarsalinn, enda 86 ára
gamall og nýkominn úr hjarta-
uppskurði. Saksóknarinn í
málinu, Robert Morgenthau,
sem sjálfur er 73 ára, segist þó
ætla að fá gamla manninn fyrir
rétt um leið og aðstæður leyfa,
hvað sem það kostar. Clifford
er enginn venjulegur sakborn-
ingur. Hann var varnarmála-
ráðherra í tíð Lyndons John-
sons og hefur verið náinn ráð-
gjafi allra forseta demókrata frá
því Harry Truman var og hét.
Á eyðimerkurgöngu demó-
krataflokksins frá 1968 (sem
valdatíð Jimmy Carters
breytti engu um) var Clifford
„afi“ flokksins, valdamikill lög-
maður með þræði um alla
stjórnsýsluna og fjármálaheim-
inn. Líklega má fullyrða að
enginn demókrati hafi verið
áhrifameiri í Washington sam-
fellt síðasta aldarfjórðung.
Viðbrögðin við kæru á
hendur honum voru enda eftir
því. Pamela Harriman, ný-
skipuð sendiherra Bandaríkj-
anna í París, og svipað fólk úr
sömu kreðsum sendi Morgent-
hau bréf til að votta um heiðar-
leika og heilindi Cliffords.
Harriman er einn af skjólstæð-
ingum Cliffords eins og reynd-
ar flestir sem einhvers mega sín
í eldri kynslóð demókrata. En
karaktervottorð flokksfélaga
dugðu skammt; til þess var
málið of umsvifamikið og að
því er virðist of vel undirbyggt
af hálfu saksóknara.
Pakistani kaupir
banka
Þeir Clifford og Altman ráku
stóran banka, First American
Bank, í Washington og er gefið
að sök að hafa leyft mönnum
tengdum BCCI að eignast
meirihluta í bankanum án vit-
undar bandaríska bankaeftir-
litsins og í trássi við bankalög-
gjöfina. Greiðslan til þeirra er
sögð hafa verið í formi láns,
sem þeir fengu frá BCCI-
mönnum til að kaupa hlutabréf
í bankanum, en voru svo keypt
aftur af þeim á mun hærra
verði. Sem sagt mútur.
Félagsskapurinn var enda
ekki gæfulegur. Stofnandi og
einn aðaleigandi BCCI var Ag-
ha Hasan Abedi, Pakistani með
brezkan ríkisborgararétt og
skrautlegan feril sem sagðist
ætla að búa til banka á heims-
mælikvarða og láta hann þjóna
þörfum þriðja heimsins. í
kringUm bankann hlóð hann
(iiiNsit/nmn:
PUESIDENT
.fl' > .fcf
ri J
AMEMOIR
OIjARK CLÍFPORI)
wni iuciiAiiimoi.iiiiooki:
RobertAltman
Súperlögmaður í heldur
vafasömum félagsskap.
þurfti að koma undan á þægi-
legan hátt. Á þeim lista eru
meðal annarra Medellín-eitur-
lyfjahringurinn, hryðjuverka-
maðurinn Abu Nidal og
Manuel Noriega.
Trausti rúinn
Árið 1977 beindi Abedi sjón-
um að fyrrum fjárlagastjóra
Carters, Bert Lance, sem
þurfti að segja af sér vegna íjár-
málahneykslis. Lance átti
banka í Georgíu, National Bank
of Georgia, sárvantaði peninga
og vildi selja. Abedi kom Lance
í samband við Ghaith Phara-
on, sem keypti bankann snar-
lega, en reyndist vera leppur
fýrir BCCI. Svipuðum aðferð-
um beitti BCCI gagnvart First
American Bank, nema hvað
þar voru lepparnir nokkrir og
Clifford og Áltman áttu ekki
bankann. Múturnar, sem þeir
eru sakaðir um að hafa þegið,
skipta tugum milljóna Banda-
ríkjadala.
Þeir félagar eru líka sakaðir
um að hafa logið að bankaeftir-
litinu, aðspuröir um hvernig
væri háttað tengslum BCCI við
bankann. Þá sögðu þeir BCCI
ekkert eiga í bankanum, en
ýmislegt bendir til að það hafi
ekki verið beinlínis sannleikan-
um samkvæmt.
Ogþað er einmitt trúverðug-
leiki Clarks Cliffords sem er ein
þungamiðjan í þessu máli. Þeir
eru margir sem eiga erfitt með
að trúa beinum ósannindum
upp á gamla höfðingjann. Clif-
ford notar þetta óspart sjálfum
sér til tekna. „Orð mín hafa
RobertMorgenthau
Saksóknarinn á Manhattan
sem ætlar að fá Clifford fyr-
irrétt, þóttþað verði hans
síðasta verk.
verið tekin trúanleg hér í ára-
raðir,“ sagði hann við nefnd
Bandaríkjaþings sem rannsak-
aði BCCI. „Ég bið ykkur að
gera slíkt hið sama.“
Það hefur farið minna fyrir
Robert Altman opinberlega, en
hann er eins konar uppeldis-
sonur Cliffords og hefur malað
gull sem lögmaður bæði á eigin
hæfileikum og tengslum gamla
mannsins inn í valdakerfið. í
félagslífi elítunnar eru engin
samkvæmi rómaðri en þau
sem Altman heldur ásamt eig-
inkonu sinni, leikkonunni
Lindu Blair, sem reyndar hef-
ur alltaf vakið meiri athygli fyr-
ir glæsileika en leikhæfileika.
Hátt fall og hratt
Orðstír Cliffords hefur beðið
CLARKCLIFFORD
Ráðgjafi og einkavinur
flestra Bandaríkjaforseta,
en sér nú fram á ströng
réttarhöld, hálfníræður
að aldri.
óbætanlegan hnekki. Það kom
bezt í ljós haustið 1991 þegar
hann gaf út endurminningar
sínar. Sú bók er ein glæsisaga
ungs manns sem varð strax
innsti koppur í búri demó-
krata, spilaði póker við Tru-
man á lestarferðum, neitaði
ráðherrastöðu hjá John F.
Kennedy, en var náinn einka-
ráðgjafi hans, varð varnarmála-
ráðherra Johnsons, en umfram
allt manns sem varð smám
saman sá sem hafði alla þræði
flokksins í höfuðborginni í
hendi sér.
Vel skrifuð bók og hefði átt
að rjúka út meðal þeirra sem
áhuga hafa á bandarískri sögu
og stjórnmálum. Nema hvað
BCCI- málið kom upp nokkr-
um vikum áður en bókin kom
úr prentun og hennar varð ekki
vart á metsölulistum. Það um-
fram annað lýsir hröðu og háu
falli manns sem lét peninga- og
valdafíknina draga sig í ógöng-
ur, þótt hann hefði fyrir löngu
orðið sér úti um yfrið nóg af
hvoru tveggja._____________
Karl Th. Birgisson
Bertolucci með stórmynd
ítalski leikstjórinn Bernardo Bertolucci ernú langt kominn við
gerð nýrrar stórmyndar, Littie Buddha, sem ráðgert er að frum-
sýna vestanhafs siðla árs. Með aðalhlutverk í myndinni fersá
fjallmyndarlegi Keanu Reeves, sem meðal annars lék I myndinni
My Own Private Idaho. Little Buddha segir frá ungum hjónum,
Bridget Fonda og Chris Isaak, sem komast að raun um að sonur
þeirra er liklegast endurholdgaður búddaprestur afhærri gráð-
um. Saman við söguna er fléttað goðsagnarkenndri frásögn af
prinsinum Siddhartha, sem leikinn er af Reeves. Ótrúlegur fjöldi
leikara og kvikmyndatökufólks hefur lagt hönd á plóginn við
gerð þessarar nýjustu stórmyndar Bertoluccis, en hann fékk sem
kunnugt er Óskarsverðlaunin árið 1987 fyrir hina mikilfenglegu
mynd sína The Last Emperor. Little Buddha var tekin í Nepal að -
fengnu samþykki Dalais Lama, andlegs leiðtoga búddatrúar-
manna. Mynd Bertoluccis þykir lofa mjög góðu og bandariska
tímaritið Entertainment álitur að hérséá ferð ein „mest töfr-
andi" mynd ársins.
Holiywoodstjörnur
horfa í aurinn
Það er greinilegt að það er ekki lúxuslifnaðinum fyrir að fara hjá
öllum kvikmyndastjörnunum í Hollywood, enda þótt peningarn-
ir geti varla beinlínis verið vandamál. Æ fleiri leikarar eru farnir
að leggja leið sína I sænsku IKEA- stórverslunina, sem er staðsett
örstuttfrá Walt Disney, Universal- og NBC-kvikmyndaverunum í
Burbank i Kaliforníu, en verslunin sú hefur hingað til fremur
laðað að sérþá sem minna hafa umleikis. Meðal þeirra sem sést
hefur til íIKEA i verslunarerindum eru Kevin Costner, sem sýndi~
húsgögnunum sérstakan áhuga, og Whoopi Coldberg, sem gekk
skrefi lengra og keypti sér heimilislegan sænskan hægindasófa.
Farrah Fawcett varsvo ánægð með sölumanninn sem aðstoðaði
hana í sænsku stór-
versluninni að hún
keypti þar mynda-
ramma og gafmann-
inurh áritaða mynd af
sjálfri sér. Og Tom
Hanks sleppti gjörsam-
lega fram afsér beislinu
þar á dögunum og hljóp á
milli hæða með innkaupa-
körfuna á undan sér.
Hegðan leikarans kom
nokkuð á óvart og
veltu margir vöngum
yfirþví hvort hann
hefði skyndilega fengið
útrás fyrir barnið i sjálf-
um sér, eða þá aðeins
verið að rifja upp hlut-
verk sitt í myndinni Big.
Draumórar kvenna
í sjónvarpsþætti
Imyndunarafli Bandaríkjamanna eru fá
takmörk sett en nýjasta hugarafkvæmi
þeirra er sjónvarpsþáttur sem sýnirýmsar
útfærslur á draumórum kvenna. Þátturinn
heitir Zalman King's RedShoe Diaries og hef-
ur hlotið fádæmagóðar viðtökur meðal
kvenna vestanhafs. Tekur hver einstakur
þáttur fyrir nýja sögu sem byggist á kynórum konu sem svarar
ímynduðum einkamáladálki. Framleiðendur andmæla öllum
ásökunum um klámfengi og fullyrða að einungis sé um erótík að
ræða. Rök þeirra felast íþviað karlmönnum bregði aldrei fyrir í
allri sinni nekt jafnvel þótt leikkonur þáttanna fái að vera á evu-
klæðum.
Nancy Friday, höfundur met-
sölubókarinnar Women On Top,
about women's sexual fantasies,
fagnar tilkomu þáttanna og seg-
irþá opna umræðu og auka
hugarflug bandarískra kvenn’a í
kynlifi. Fjöldi fólks er á öndverð-
um meiði og telur þættina til _
marks um að nú fái klám að
vaða uppi inni á heimilum fólks
án þess að nokkur fái rönd við
reist. Hvað sem öðru líður
streyma bréf, sem innihalda sög-
ur um kynóra kvenna, í tugatali
til framleiðenda þáttanna og
virðist ekkert lát ætla að verða -
á. Zaiman King, höfundur hand-
rita sem jafnframt skrifaði 9 1/2
Weeks og Witd Orchid, segir að
nóg sé til afefni fyrirliggjandi í
þá þætti sem enn bíða fram-
leiðslu.