Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 23
NEYTENDAMAL
Fimmtudagurinn 6. maí 1993
PKfSSAN 23
ÞVERSKURÐUR BARMENNINGAR Á ÍSLANDI
Það var miklum vandkvæðum bundið að koma þessu korti á koppinn. Einsog sést vildu barirnir allir skora í bláhornið vinstra megin. Hvað skverið varð-
ar má segja að Mímisbar hafi lent á stönginni og Sólon íslandus skjóti framhjá. Það sem gerir Keisarann meira hipp en Glaumbar er að það er lifsreynsla
að fara inná Keisarann! Maður gengur að engu sem gefnu þar inni. Stóra spurningin er: Hver slapp síðast út afHrauninu?Aftur á móti er betra að fara á
Glaumbar til að hitta virka íþróttamenn sem drekka gin og tónik, velta sér upp úr fegurðarsamkeppnum og bera Ijósakort írassvasanum. Þeir finnast
ekki iðka dansmennt uppi á 22 eða niðri í Rósenberg. En síðan hafa gestir Rósenberg — sem eru á móti ríkisstjórninni og hyggja á flug inn í framtíðina á
Visa- og Júró-töfrateppum — ekki þá lífsreynslu sem þarftil að setjast niður inná Romance og röfla á tvöföldum hraða.
BARIRNIR í BÆNUM
Þvílfkur munur að hafa alla þessa bari að
hverfa til þegar dægrastytting er annars veg-
ar, eða ætti að nota næturlenging. Fjöldinn
— ekki fjölbreytnin — í fyrirrúmi, og við
nánari athugun kemur í ljós að það er ekki
frumleika fyrir að fara þegar skemmtana-
hald er annars vegar. Vilja íslendingar bara
fá sitt með sem fæstum tálbeitum og
minnstum tilþrifum? Samt virðast kynlífs-
kynningarbæklingar með upplýsingum um
68 nýjar stellingar seljast best.
Hvernig má það vera að flestir barir stíli
uppá sama kúnnahópinn? Getur það verið
að vertarnir séu haldnir ranghugmyndum
um hvernig drykkjuhola eigi að líta út? Á
hún bara að vera stílíseruð framlenging á
stofunni heima mínus börnin? Eða líta út
einsog bar á austurrísku skíðahóteli með
fjöldasöng og jóðli? Er sjálfsímynd okkar
byggð á því að við viljum bara ennþá fá okk-
ar hamsa, vodkakók og lýsi? Sönnun fyrir
því að flestar drykkjuholur líta eins út er
þetta hvimleiða ráp íslendinga milli bara í
leit að gleðinni. Svo virðist sem barirnir séu
svo áþekkir í útliti að fólk fari baravillt og
muni ekki stundinni lengur hvaðan það var
að koma eða hvert það er að fara. Og síðan
snýst þetta ráp uppí meting og enginn virð-
ist maður með mönnum nema hafa tekist
að kanna að minnsta kosti fimm bari fyrir
þrjú og vera ennþá standandi.
Eina sem hægt er að segja á þessu
stigi er: „Gus“ sé lof fyrir þennan
aukaafgreiðslutíma
því nú lengist .....
ráptími íslend-
inga um gleð-
innar dyr.
POPP
FIMMTUDAGURINN
6. MAÍ
• Hlunkarnir eru hressir og
kátir trúbadorar, eða segjast
vera það. Þeir spila á Plúsn-
um.
• Bogomil Font og Millj-
ónamæringarnir eru enn
jafnsólgnir í kvenfólk. Þeir
eru nú loks komnir í haust-
haminn eftir að hafa verið í
sumarstuði um tíma. Gaukur
á Stöng bíður þeirra.
• Haraldur Reynisson
trúbador hefur tekið sér ból-
festu á Fógetanum.
FOSTUDAGURINN
7. MAÍ
• Gal í Leó endurtaka sig á
Plúsnum frá síðasta laugar-
dagskvöldi. Kvenfólk fær frítt
inn en allir aðrir óvæntan
glaðning.
• Hermann Ingi fetar í fót-
spor Haralds á Fógetanum.
• Dansbandið er hljómsveit
sem ku hafa verið vinsæl
meðan Snekkjan í Hafnarfirði
var og hét. Það er farið að slá
í þá en takturinn heldur sér
enn. Sveitina skipa Sveinn
Guðjónsson, Halldór Olgeirs-
son, Gunnar Þór Jónsson og
Páll E. Pálsson.
• Neistar og Hjördís Geirs-
dóttir og Hrókar verða
væntanlega með sveitaballs-
stemmningu á Hótel (slandi.
Þar er harmonikkuhátíð í
kvöld og mikiðfjör.
• Karaoke-keppni fjölmiðl-
anna verður á Tveimur vin-
um í kvöld. Þeir sem áhuga
hafa á að sjá athyglissjúkt
fólk í ham drífi sig á Tvo vini.
• Blúsbrot raðar brotunum
saman á Blúsbarnum um
helgina. Vignir Daða og fé-
lagar eru í góðu formi.
• Magnús Einarsson er ein-
hver besti gítaristinn af þeim
trúbadorum sem ganga laus-
ir. Hann verður á Feita
dvergnum framyfir helgi.
• KK-band skemmtir þeim
gestum Ömmu Lú sem vilja
fá sér þríréttaða máltið á
1993 krónur.
LAUGAR DAG U RIN N I
8. MAÍ
• Rokkabillíband Reykja-
víkur leikur rokkabillí á
Plúsnum og enn og aftur er
frítt inn fyrir kvenfólk. Það
verður þá ekkert nema kven-
fólká Plúsnum.
• Rúnar Þór og hljómsveit í
Firðinum í kvöld.
• Guðmundur Rúnar,
trúbadorog listamaður, er
hafnfirskur og verður á sínum
heimabar í Hafnarfirði, nánar
tiltekið Nillabar.
• Geirmundur Valtýsson er
enn í syngjandi sveiflu á Hót-
el íslandi. Ætli hann sé ekki
kominn með fína maga-
vöðva?
• Blúsbrot heldur áfram að
tína upp brotin á Blúsbarn-
um; þar sem fullorðna ást-
fangna fólkið er.
• Hermann Ingi frá Lyngi á
Fógetanum sem fyrr.
• Magnús Einarsson, fána-
beri Rásar 2 og langskóla-
genginn trúbador, á dvergn-
um feita.
SUNNUDAGURINN
9. MAÍ
• Jet Black Joe verður í
hörkupartíi á Gauk á Stöng
ásamt Levi's-liði. Partíið hefst
snemma og endar seint, og
það meira að segja á sunnu-
dagskveldi.
• Haraldur Reynisson fer
nú í föt Hermanns á Fógetan-
um.
• Magnús Einarsson Það
fara fáir í fötin hans. Hann
verður síðasta sinni að sinni á
Feita dvergnum.
SVEITABÖLL
FOSTUDAGURINN
7. MAÍ
• Sjallinn, Akureyri: Bog-
omil Font og hinir hommarn-
ir heilla skvísurnar. Sjallakráin
oþin, sem þýðir að það er
ókeypis inn.
• Vagninn, Flateyri: Rúnar
Júl og Cuba Libre leika á
besta staðnum á landinu,
þeim hinum sama og KK-
band hélt útgáfutónleika sína
á.
• Við félagarnir, Vest-
mannaeyjum fáum í heim-
sókn Svartan pipar, enda tími
til kominn. Það er óþolandi
að hafa bara salt.
• Sjallinn, (safirði fær til sín
pena, velklædda drengi úr
Nýdanskri, sem kunna ekkert
með stóla að fara.
• Gjáin, Selfossi: Rúnar Þór
og félagar taka rispu.
LAUGAR DAG U RIN N I
8. MAÍ
• Hótel Akranes: Stjórnin
lemur á strengi, ber á tromm-
ur og þenur raddbönd.
• Vagninn, Flateyri: Rúnar
Cuba Libre sjálfsagt aldrei
betri, enda á besta vertshúsi
landsins.
• Sjallinn, Akureyri: Bog-
omil Font og Millarnir aftur
og Sjallakráin ennþá opin.
• Hótel Selfoss: Skemmtun
Labba í Mánum er svo vinsæl
að ákveðið hefur verið að
endurtaka hana í kvöld og
næsta laugardagskvöld. Geiri
Valtýs má fara að vara sig!
• Við félagarnir, Vest-
mannaeyjum: Svartur pipar
kemur Eyjapeyjunum til að
hnerra, enda mikið kvef að
ganga íEyjum.
• Sjallinn, (safirði: Nýdansk-
irenn á ný.
• Gjáin, Selfossi: Hljómsveit
Stefáns Pé flugmanns
skemmtir.