Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 26
BÆKUR 8í BIT
26 PRESSAN
Fimmtudagurinn 6. maí 1993
BÍÓIN
HÁSKÓLAB ÍÓ
Jennifer er næst Jennifer
eight ★★ Það má hafa gam-
an af smartri kvikmyndatöku,
trixum til að gabba áhorfend-
ur og Hitchcock-andrúminu í
myndinni. Gallinn er hins
vegar sá að sagan er nánast
út í hött.
Flodder í Ameríku Flodder in
i Amerika ★ Hollenskur imba-
kassi í bíó.
Vinir Péturs Peter's Friends ★
Kenneth Branagh býður upp
á allan matseðilinn; alkóhól-
isma, ungbarnadauða, gjálífi,
hjónaerjur, brostna drauma
ásamt óheyrilegu magni af
þeim söknuði eftir æskunni
sem slær fólk fimm árum eftir
að það lýkur námi. Þegar
einn vinurinn upplýsir að
hann sé með HlV-veiruna
hverfur skáldskapurinn end-
anlega úr sögunni og útvatn-
að vandamálakjaftæðið verð-
ureitteftir.
Kraftaverkamaðurinn Leap
of Faith ★★ Steve Martin er
fyndinn. Hann skyggir á alla
aðra leikara og tekst meira að
segja að draga athygli áhorf-
enda frá væminni og frekar
bjánalegri sögu myndarinn-
Howards End ★★★ Bók-
menntaverk gert að góðri
bíómynd.
Elskhuginn The Lover ★★★
Hugljúf saga um ást og losta.
Karlakórinn Hekla ★ Vond
mynd og metnaðarlítil.
LAUGARÁSB ÍÓ í
Flissi læknir Dr. Giggles ©
Laugarásbíó er musteri
vondra mynda. Samkvæmt
fréttum stendur það til bóta.
En Flissi læknir skánar ekkert
við það. Honum er ekki við
bjargandi.
Hörkutól
Fixing the Shadow ★
Svala veröld Cool World ★★
Nemo litli ★★★ Falleg
teiknimynd.
REGNBOGINN I
Siðleysi Damage ★★★
Mynd um þingmann sem ríð-
ur sig út af þingi. Jeremy Ir-
ons leikur af feiknakrafti. Það
er Ijóst að þingmaðurinn
heldur ekki við tengdadótt-
urina bara vegna þess að
hann langar til þess heldur
vegna þess að hann getur
ekki annað. Hann rústar lífi
sínu um leið og hann frelsar
sig. Kynlífssenurnar eru helst
til langar — að minnsta kosti
fyrir þá sem hafa misst eitt-
hvað úr endalausri runu ríð-
ingamynda að undanförnu.
Hinir hafa byggt upp þol.
Ferðin til Las Vegas Hon-
eymoon in Vegas ★★ Það má
vel hlæja að þessari mynd;
sérstaklega örvæntingu Nic-
holasCage.
Englasetrið ★★ Þokkaleg
gamanmynd frá frændum
vorum Svíum.
Chaplin ★★ Myndin sem
fékk menn til að spyrja sig
hvort Chaplin hefði í raun
verið nokkuð fyndinn.
Miðjarðarhafið Mediterr-
aneo -kirk Indæl mynd.
SAMBÍÓm \
Skíðafrí í Aspen Aspen Extr-
eme
Handagangur i Japan Mr.
Baseball
Hoffa ★ Ef áhorfandinn
þekkir mannkynssöguna vel
er örlítill möguleiki á að hann
fái botn í myndina. Þeim hin-
um sama leiðist þó án efa
jafnmikið og hinum sem ekk-
ert vita, því myndin hefur
engu við að bæta sem hann
veit ekki þegar. Gervið á Nic-
holson er brillíant.
Ávallt ungur Forever Young
★ ★ Flugmaður vaknar eftir
★★★★ Pottþétt
★★★ Ágætt
★★ Lala
★ Leiðinlegt
®Ömur!egt
að hafa legið í frosti í hálfa
öld. Frumlegt? Nei. Líkast til
er þetta áttunda myndin
með þessum söguþræði á
undanförnum fimmtán mán-
uðum. Eini kosturinn við
myndina er lágstemmdur
leikur Mels Gibson.
Stuttur Frakki ★★★ Stjörn-
urnar þrjár segja til um stöð-
una í hléi. Eftir hlé rennur
myndin út í sandinn og tapar
einni ef ekki tveimur af
stjörnunum. En það er margt
gott í myndinni og þá sér-
staklega Frakkinn stutti. Án
hans hefði myndin sjálfsagt
orðið venjuleg íslensk ærsla-
og aulahúmorsmynd.
Konuilmur Scentofa Woman
★ ★★ Leikur Als Pacino og
Chris O'Donnel er eina
ástæðan til að sjá myndina
því sagan í myndinni ereilítið
púkaleg þroskasaga.
Háttvirtur þingmaður The
Distinguished Gentleman ★
Eddie Murphy á ágæta
spretti en alltof fáa til að
halda uppi þessari gleði-
snauðu gamanmynd.
Hinir vægðarlausu Unforgi-
ven ★★★★ Frábær mynd
um áhrif ofbeldis á ofbeldis-
manninn.
Ljótur leikur The Crying
Game -kkirk Kemur jafnvel
útlifuðum bíófríkum á óvart
og fær þau til að gleyma sér.
Elskan, ég stækkaði barnið
Honey, I Blew Up the Kid ★★
Óhæf nema öll fjölskyldan
fari saman í bíó. Gamanmynd
fyrir börnin. Hryllingsmynd
fyrirfullorðna.
Bambi ★★★★ Þó ekki væri
nema vegna sagnfræðilegra
ástæðna er skylda að sjá
Bamba reglulega.
3 ninjar ★ Fyrir tilvonandi
vandræðaunglinga.
STJÖRNUBÍÓ I
Helvakinn III Hellraiser III ★
Viðbjóðurinn er yfir línuna
eins og í fyrri myndunum
tveimur; Hellraiser og Hellbo-
und. Hellraiser er þessara
þriggja mynda þó skást því
þrátt fyrir allt er hún ágætis
hrollvekjuafþreying.
Hetja Accidental Hero irk-k
Þrátt fyrir yfirþyrmandi leið-
indi persónunnar tekst Dust-
in Hoffman ekki að eyði-
leggja söguna með ofleik
eins og honum hættir til.
Galdur myndarinnar liggur í
handritinu og frásagnargleði
leikstjórans.
ÓBÆRILÆ’G WllÆÐSLA
VIÐ TÓMT DAWGÓLFIÐ
Þeir ansa ekki spurningunni: „Geturðu ekki spilað eitthvað annað, eitthvað skemmtilegra.“ I þeirra heimi skiptir takturinn mestu máli og fólk kemur í þennan heim til að
finna taktinn. Þetta eru ff amsæknustu plötusnúðar bæjarins og fara ótroðnar slóðir. En hræðast þeir aldrei tómt dansgólfið?: Maggi í Rósenbergkjallaranum: Ég hugsa
aldrei út í það, ég pæli bara ekki í því. Ég þarf það ekki. Ég hef bara góðar plötur og spinn þetta saman, enda þarf að
—ða miklum pening í nýjustu plötur. Trance og ambient verður tónlist sumarsins. Leon í Casablanca: Nei, ef
hætta er á því spila ég bara eitthvert vinsælt lag. Annars fer það eftir því hvar ég er að spila. Stundum þarf ég
-'nungis topp 40 en á reifum gengur öll nýja tónlistin, ogþá er gólfið aldrei tómt. Þetta verður
techno-sumar.
BÓKMENNTIR
Til aðdáenda Magnúsar Ásgeirssonar
Á dögunum lét ég undan
löngun, sem ég hef lengi alið í
brjósti, og keypti mér tveggja
binda ritsafn hins frábæra
ljóðaþýðanda Magnúsar Ás-
geirssonar, sem Kristján Karls-
son gaf út fyrir Helgafell árið
1975. Þar eru affast í síðara
bindi nokkur Ijóð, sem Kristjáni
tókst ekki að finna hinn erlenda
höfund að. Ég hygg, að ég hafi ef
til vill komið auga á höfund
þriggja þeirra ljóða, og vildi
vekja athygli aðdáenda Magn-
úsar á þeim.
Eitt ljóðið er svo í þýðingu
Magnúsar:
Aflandráðum vexekki
vegsemd!
Hve verður það sannað?
Er landráðin hafa heppnast,
þd heita þau atmað.
Mér sýnist ekki betur en
þetta sé eftir Sir John Haring-
ton, enskan hirðmann, sem
uppi var frá 1561 til 1612. Á
ensku hljóðar það svo:
Treason doth never prosper,
what’s the reason?
For if it prosper, none dare call
it treason.
Tvö önnur smáljóð í þýð-
ingasafhi Magnúsar eru, að því
er mér virðist, eftir danska ljóð-
skáldið Piet Hein, sem fæddist
árið 1905. Annað er svo:
Óeigingirni
er með sanni
yndisleg dyggð
hjá öðrum manni.
Þetta ljóð er raunar til í ann-
arri þýðingu, eftir Helga Hálf-
danarson (sjá bók hans, Erlend
ljóð frá liðnum tímum), og er
þar svo:
Ósérhlífni
í öllum vanda
er besta óskin
öðrum til handa.
Hitt smáljóðið, sem er líka
eftir Piet Hein og er ófeðrað í út-
gáfu Kristjáns Karlssonar,
þýddu þeir Magnús Ásgeirsson
og Tómas Guðmundsson í sam-
einingu, er þeir voru ritstjórar
Helgafells. Það hljóðar svo í
þeirri þýðingu:
í hálfkœringi um hugskot mín
er hláleg þekking oft á sveimi:
að lífið sé tvö lokuð skrín,
sem lykla hvort að öðru geymi.
Þetta ljóð hefur Helgi Hálf-
danarson líka þýtt, og er það
þar svo:
Með hálfuglotti erhugsun mín
í hring um þennan grun á
sveimi
að lífið sé tvö lokuð skrín
sem lykla hvort að öðru geymi.
Höfundur er dósentí stjórn-
málafræði og formaður stjórn-
ar Þýðingasjóðs.
POPP
Erisk — og stolt afþví
SUEDE
SUEDE
★★★
SAINTETIENNE
SOTOUGH
★★★★
Þegar „hæpaðasta“ hljóm-
sveit í heimi gefur út fyrstu
stóru plötuna eru ansbmiklar
líkur á að maður verði fyrir ein-
hverjum vonbrigðum. Ég tala
nú ekki um ef hljómsveitin
leggur lítið annað til rokkmál-
anna en að föndra lítillega við
gömul fræði sem David Bowie
og The Smiths eiga heiðurinn
af.
Ég er að tala um Rúskinn.
Þeir voru ekki einu sinni búnir
að gefa út tón á plötu þegar þeir
birtust á forsíðu Melody Maker
undir fyrirsögninni „Besta
band á Bretlandi". Það segir
kannski meira um snilligáfu-
þrot í ensku rokki en gæði Sue-
de, því þegar allt kemur til alls
er tónlistin ekkert annað en
ágætt popp og hvorki fyrirboði
nýrra tíma né tónlistarleg
sprengja.
Suede hafði gefið út þrjú
smáskífúlög áður en stóra plat-
an kom út. Allt frábær lög,
virkilega nautnalegt rokk með
þessu ómeðvitaða heilaþvottar-
frumefni sem er nauðsynlegt.
Lögin eru líka laus við að kom-
ast á ælustigið eftir ítrekaða
hlustun — það er töggur í
þeim. Þessi þrjú, „Animal Nitr-
ate“, „Metal Mickey“ og „The
Drowners", standa upp úr sem
fyrsta flokks rúskinn. Hin átta
eru ekki slæm, þótt nokkur
hljómi eins og uppfylling. „Mo-
ving“ er t.d. fínt rokk og ballöð-
urnar, sem eru nokkrar, eru
mjúkar og sætar, þótt alltaf
glitti í einhvern öfúguggalegan
djöfúlgang bakvið glysið.
Saint Etienne á það sameig-
inlegt með Suede að vera ensk
hljómsveit og stolt af því, vera
vinsæl og vera dálítið á kafi í
enska klámbransanum. Það er
eitthvað „saucy“ við bæði
böndin — þegar þau halda upp
á afmælið sitt væri viðeigandi
að veislan færi ffam í klámbúllu
í Soho. Saint Etienne fara þó
lengra aftur í áhrifaleit, allt aft-
ur í sjöunda áratuginn, og færa
ffam mun ferskari og ffumlegri
samsuðu.
Sveitin státar af söngkon-
unni Söru Cracknell, sætri syk-
urmey sem minnir einna helst
á Dönu sem söng í Júróvisjón
fyrr á öldinni. Annars eru það
þeir poppbræður Bob Stanley
og Pete Wiggs sem sjá um að
semja og spila. Þeir eiga langt
dund í skúrnum að baki og því
vel að velgengninni komnir.
Lagið „You’re in a bad way“ fór
með þá á toppinn — unaðslegt
lag — og nokkur önnur eru á
svipaðri bylgjulengd. Hljóm-
sveitin er þó á köflum tilrauna-
kenndari, sum lögin nokkuð
erfið í byrjun, en uppskera
eyrnanna margföld þegar upp
er staðið.
„So tough“ er önnur breið-
skífa bandsins, beint og glæsi-
legt framhald af frumsmíðinni
„Fox base alpha“. Hér blandast
merkilegustu danstónlistarffas-
ar nútímans; „sixtís“-sakleysi
og „seventís“-hallærislegheit.
Hljómsveitin hefur einstaklega
djúpan skilning á því hvað gerir
popp að góðu poppi. Lögin eru
full af góðgæti, önglum sem
undirmeðvitundin bítur á, án
þess þó að verða rotuð af leið-
indum með ítrekaðri hlustun
(er ég eini maðurinn sem ælir
þegar helvítis sænska topplagið
kemur á í útvarpinu?). Uff,
þetta var nú kannski einum of
heví; það sem ég er að reyna að
segja er að Saint Etienne er frá-
bært band og platan rosalega
góð — þú út í búð!