Pressan


Pressan - 06.05.1993, Qupperneq 27

Pressan - 06.05.1993, Qupperneq 27
M Y N D L I S T Fimmtudagurinn 6. maí 1993 PRESSAN 27 ROMAN SlGNER Tvær tunnur, viður, gúmmímottur, eldiviður, hvellhetta, tréstigi, uppákoma í Weissbad 1988. Langflest verka Svisslendingsins Signers krefjast náttúrulegs umhverfis. LISTASAFN ÍSLANDS OG UMHVERFI UNDIRLAGT Ljóðlína Steins Steinarr „Kannske hefur þú aldrei verið til“ öðlast nýtt lífá sýningu setn Listasafn ís- lands og umhverfiþess er hluti afog.hefst 8. maí. Alls taka þátt ísýningunni átta listamennfrá Norður- löndunum, Ítalíu ogSviss. Þeir eru GiovanniAn- seltno, Finn Naur Petersen, Finnbogi Pétursson, Ulf Rollof, Roman Signer, Bente Stokkem, Steina Vas- ulka ogMaariu Wirkkala. Sýningin nefnist Borealis 6þvíhún ersú sjötta í röðinni Borealis, sem þýðir norðlœgur. Þar er ætlunin að sýnafjölbreytnina og sköpunargleðina í norrœtmi umhverfislist sem og höggmyndalist samtímans. Fyrsta Borealis-sýningin var hefðbundin farandsýning, önnur fallaði um nor- rœn eftii og var réttfyrir utan Osló. Sú þriðja var í Málmey þar sem þemað var málverk og landslag. Borealis 4fórfratn íLouisiana-safninu í Danmörku og voru þar sýnd staðbundin umhverfisverk og sú fimmta fallaði um efnið ogáhrifþess. Sýningþessi tnun standayfir til 20. júní. GlOVANNlANSELMO Eittþekkasta og athyglisverðasta nafn sýningarinn- ar er ítalinn Giovanni Anselmo, sem er bæði elstur myndlistarmannanna og hefur haldið flestar sýningarnar. Hér sést afar athyglisvert verk eftir hann: Nafnlaust verk sem snýr í norður. STEINA VASULKA Er fædd á íslandi en býr íSanta Fe íMexíkó. Hún er myndbandagerðarmaður„á mörkum aflvæðingar og rafvæðingar". UM HVAÐTALA LEIKARAR?... Hrafn Gunnlaugssor er ennþá á allra vörum þó að raddirnar um af rek hans um ævina, og ekki sís vina hans, fari lækkandi. j þessum árstíma ríkir jafnar mikil spenna í röðum leikar; vegna þess að nú fer fram verk efnaval stóru leikhúsanna fýiT* næsta leikár og hlutverkin ert um það bil að raðast niður á þ; sem leikstjórarnir hafa trú á Mikið er um það skrafað oj skeggrætt hverjir hljóta stærsti bitana og hver leikari af öðrun mátar hvert stóra hlutverkið a öðru í huganum. Um það ei einnig rætt hve vel tókst til hj; báðum leikhúsunum á síðast; leikári, en þó einkum og sér lagi hjá Þjóðleikhúsinu. Þá eri einnig á allra vörum leikaraefn in átta sem síðasta laugardaj voru valin úr sextán mann; hópi sem gengið hafði í gegnu^ súrt og sætt saman. Leikarai lýsa allflest- ir ánægju sinni með ráðningu V i ð a r s Eggerts- sonar sem leikhús- stjóra hjá Leikfélagi Akureyrar og aðrir samgleðjast Guðjóni Peder- sen sem hefur fengið boð un að fara til Finnlands að leikstýr; Stræti. Þá er enn verið að vel^ fyrir sér bíómyndum sumars ins. Mesta stemmningin er þó kringum umræðuna urn kvik- myndahátíðina í Cannes; er þangað ætla fjölmargir leikarai og aðrir aðstandendur Sódómr Reykjavíkur að flykkjast. f hóp inn sem ætlar utan hafa þeg%- bæst Ingvar Þórðarson, sen fór með framkvæmdamál Sód ómu, og að öllum líkindun Sóley ELíasdóttir leikkona. Of fleiri eiga án efa eftir að bætast hópinn. Kvikmyndahátíðin Cannes ku vera einhver ævin- týralegasta kvikmyndaháííi sem haldin er um gervalla ver- öld, segja leikarar. ffv'&rg U'&ýna ecs£a . . . „Þvíþeir eru svo skemmtilega eitr- aðir. Það lýsir sér íþví að á mín- útufrestifœ ég þriggja sekúndu- brota einbeit- ingu. “ SJÓN MYNDLIST Kjarvalsstaðasyrpa KJARVALSSTAÐIR DAÐI6UÐBJÖRNSSON SVAVA BJÖRNSDÓTTIR LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR SÆMUNDUR VALDIMARSSON OUNNAR J. ÁRNASON Um þarsíðustu helgi var margt um manninn á Kjarvals- stöðum, enda voru fjórar sýn- ingar opnaðar samtímis. Aliar verðskulda þær athygli þannig að ég sé mig knúinn til að minnast á þær hverja fyrir sig. Daði Nú vill svo til að undirritaður skrifar formála að sýningarskrá fyrir sýningu Daða Guðbjörns- sonar þannig að ég á í nokkrum erfiðleikum með að bæta nokkru við. Það er þó ljóst að þetta er viðamesta sýning Daða ffá upphafi. Hann sýnir í vest- ursalnum þrjátíu og sjö mál- verk. Þetta er stór sýning en varla tímamótasýning. Það má ffekar líta á hana sem hápunkt á þró- unarferli sem hefúr átt sér stað á undanförnum árum. Kunn- uglegum stefjum úr fyrri myndum bregður fyrir. En krafturinn er enn meiri en áð- ur, margar myndanna gneista og glæringar fijúga um mynd- flötinn. Kímnigáfan og fjörið hafa sannarlega ekki yfirgefið Daða, en einnig má greina þunga undiröldu í myndum eins og „Krákur yfir akri“. Það er svo margt að gerast í myndunum að það getur verið erfitt að einbeita sér að hverri mynd fýrir sig á svo stórri sýn- ingu. Hyggilegast er að velja sér fáeinar myndir og gefa sér ú'ma til að skoða þær vel. Takið effir myndunum „Ný kvenímynd", „Astsælir penslar“ og „Who’s affaid of red, yellow and blue“. Svava Stílhreinasta sýningin, á því er engin vafi. Sex einingum, nokkurn veginn jafhstórum, er raðað á vegginn gegnt dyrun- um í austursalnum. Það er allt og sumt, en þó er salurinn alls ekki tómlegur. Hlutföllin milli myndraðarinnar og salarins ganga upp á áhrifaríkan hátt. Svava Björnsdóttir hefur þá sérstöðu meðal íslenskra myndlistarmanna að nota pappamassa í verk sín. Hún formar litsterkan massann í mót og í þessu tilfelli tvö stykki sem eru lögð saman eins og samloka. Formin eru byggð upp á einföldum og reglulegum einingum. Öll verkin eru sam- hverf um tvo ása og hver mynd um sig er einlit. Samkvæmt lýs- ingunni mætti ætla að þau væru ströng og hörð í forminu en eru reyndar furðu frjálsleg, enda mýkt í útfærslu formanna og í hrjúfleika pappans. Mynd- irnar koma fyrir sjónir eins og stækkanir og tilbrigði við um- búðaböggla sem maður gæti rekist á í daglegu lífi. Það er eins og þær séu til þess gerðar að umlykja eða innihalda eitt- hvað. Það er ekki aðeins að þær pakki inn, heldur geyma, vernda og þar af leiðandi búa yfir einhverju. Myndirnar hafa eitthvað að fela, en þannig að allir sjái til. Sæmundur fslendingar hafa haff sérstakt dálæti á listamönnum sem eru náttúrubörn í listinni og hafa „Hvar á sú meðhöndlun orða og tungumáls, sem við köllum Ijóð, heima? Sú hugsun lœðist að manni að Ijóðabókin sé ekki eins hlutlaus og eðlilegur vett- vangur og ætla mœtti. “ því tekið Sæmundi Valdimars- syni opnum örmum. Þegar Sæ- mundur kom fyrst ffam taldist hann til nævra listamanna, en ég efast um að sú nafnbót sé viðeigandi lengur. Á ganginum milli salanna standa þrjátíu og þrjár fígúrur, tálgaðir rekaviðardrumbar sem Sæmundur hefur farið næmum höndum um og blásið lífi í. Mannamyndirnar búa yfir sér- stökum þokka sem er í senn viðkvæmur og harðgerður. Mörg bráðskemmtileg tilbrigði við mannslíkamann koma fyrir þar sem saman fer mikil ein- földun í búk og útlimum en áhersla á atriði eins og augu og geirvörtur. Hárgreiðslan er í sumum tilvikum stórbrotin. Það er þröng á þingi á gang- inum og fi'gúrurnar keppa um athygli. Það hefði farið betur á því annaðhvort að hafa færri myndir eða gefa þeim meira pláss og huga betur að fyrir- komulagi þeirra. Linda Það hefúr ekki farið ffamhjá neinum að Kjarvalsstaðir hafa fengið ljóðskáld til samvinnu við sig og verið með ljóðasýn- ingar á göngunum. Stundum hefur þetta tekist mætavel og gefið ljóðunum nýja mynd- ræna vídd, þar sem form og hlutföll ljóðanna fá aukið vægi. Linda Vilhjálmsdóttir fer aðrar leiðir. Hún hefur tekið ljóð úr ljóðabókum sínurn Blá- þráður og Klakabörnin, svipt þau sínu verndaða athvarfi í ljóðabókunum og búið um þau í umhverfi sem yfirleitt telst fjandsamlegt afurðum ljóðlist- arinnar, m.ö.o. umbúnaði sem við þekkjum betur í heimi fjöl- miðla, auglýsinga og verslunar. Afleiðingin er sú að maður þarf að einbeita sér sérstaklega að ljóðunum, því truflunin er tölu- verð. Á fimm myndbandsskjám skiptast glæsilegar þulur ríkis- sjónvarpsins á að lesa upp ljóð Lindu, einkar vel eins og búast hefði mátt við. Uppi á vegg renna nokkur ljóð í gegnum ljósaskilti, af þeirri gerð sem víða má sjá í búðargluggum. Á sama vegg er sjálfsali, sem á stendur; „Ljóð í lausasölu", verð 2 x 50 kr. Hugmyndin að nota boðskiptatækni ýmiss konar í listrænum tilgangi er ekk?* óþekkt. En í þessu samhengi gefur notkun þeirra tilefni til umhugsunar. Hvar á sú með- höndlun orða og tungumáls, sem við köllum ljóð, heima? Sú hugsun læðist að manni að ljóðabókin sé ekki eins hlutlaus og eðlilegur vettvangur og ætlT* mætti. Ef við ályktum sem svo að ljóðið eigi ekki, frekar en annars staðar, heima sem prentað mál í bók, hlýtur sú spurning að vakna hvort form- ið, ljóðabókin og nánar tiltekið blaðsíðan, hafi ekki nokkur áhrif á hvers konar ljóð eru bú^ in til í dag og hvernig við lesum þau? En það má jafhffamt skilja þetta sem áskorun og ákall: Gefið ljóðinu líka pláss!

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.