Pressan - 06.05.1993, Side 28

Pressan - 06.05.1993, Side 28
28 PRESSAN BALDUR B Æ NDAHATARI DAGSKRÁIN FIMMTUDAGURINN 6. MAÍ RÚV 18:50 19:00 19:30 20:00 20:30 *"50:35 20:45 21:15 22:05 23:00 ! STÖÐ 2 ! 16:45 Nágrannar 17:30 Með Afa £ 19:19 19:19 j 20:15 Eiríkur w20:35 Stöðvar 2-deildin Barist um (slandsmeistaratitil- inn í beinni útsendingu. 21:15 Maíblómin4:6 22:10 Aðeinseinjörð 22:25 lllurásetningur Tabloid Críme 23:55 Stúlka til leigu ThisGirlforHire 01:30 ★★ Gegn vilja hennar Without Her Consent 03:05 Dagskrárlok FOSTU DAG U R I N N 7. MAÍ RUV 18:50 ★19:00 19:30 20:00 20:30 20:35 20:45 ^1:10 22:05 23:40 00:30 Táknmálsfréttir Ævintýri Tinna Bamadeildin7:?3 Fréttir Veður Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva Kynnt lögin frá Slóven- íu, Finnlandi og Bosniu Blúsrásin 1:13 Garparog glæponar ★★★ Susie og Simpson Elton John á tónleikum Útvarpsfréttir í dagskrár- lok STÖÐ2 J6:45 Nágrannar t7:30 Rósa 17:50 Meðfiðring ítánum 18:10 Ferð án fyrirheits 4:13 18:35 NBA-tilþrif £ 19:19 19:19 20:15 Eiríkur 20:35 ★ Ferðast um tímann 21:30 Hjúkkur2:22 ^!2:00 ★ Ein geggjuð She's Out ofControl 23:35 (hálfum hljóðum Whispers 00:55 Síðasti uppreisnarsegg- urinn BlueHeat 02:40 Banaráð Deadly Intent 04:05 Dagskrárlok ' LAUGARDAGU R 1 N N T 8. MAÍ RÚV 09:00 Morgunsjónvarp barn- anna: Sómi kafteinn, systrasaga í fjöllunum, litli íkorninn Brúskur, Nasreddinog töfra- læknirinn og Kisuleik- húsið. ^10:40 Hlé I 16:00 Iþróttaþátturinn Bein út- sending í handknattleik. 18:00 Bangsi bestaskinn 14:20 18:25 ★★★Tíðarandinn 18:50 Táknmálsfréttir 19:00 ★★ Strandverðir /4:22 20:00 Fréttir 20:30 Veður •«0:35 Lottó 20:40 Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva Kynntlög Bretlands, Hollands, Króatíu og Spánar 20:55 Hljómsveitin 1:13 21:45 Forboðnarnætur Forbidden Nights ^23:20 ★★ Nýirbandamenn Another Pair ofAces 00:50 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok ★★★★ Pottþétt ★★★ Ágætt ★★ Lala ★ Leiðinlegt gömurlegt Táknmálsfréttir Babar 12:26 Hvutti 5:6 Fréttir Veður Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva Lög Svíþjóðar, írlands og Lúxemborgar kynnt (slandsmótið íhand- knattleik Bein útsending Upp, uppmín sál 8:16 Stórviðburðir aldarinnar Heimsstyrjöldin síðari Ellefufréttir og dagskrár- lok STÖÐ2 09:00 10:30 10:50 11:15 11:35 12:00 13:00 13:30 12:55 16:30 18:00 18:55 19:05 19:19 20:00 20:30 21:20 22:55 00:25 02:10 03:40 SÝN Með Afa Sögurúr Andabæ Súper Maríó-bræður Ævintýri Villa og Tedda Barnapíurnar5:73 Úr ríki náttúrunnar Eruð þið myrkfælin? ★ Skíðasveitin SkiPatrol ■kirk Guð blessi barnið GodBlesstheChild Stöðvar 2-deildin Barist um (slandsmeistaratitil- inn í beinni útsendingu. Popp og kók Fjármál fjölskyldunnar £ Réttur þinn £ 19:19 ★ Falin myndavél 23:26 Á krossgötum Crossroads8:12 kk Hudson Hawk ★★ Syrgjandi brúður The Bride in Black kkk Réttlæti True Believer Síðasti stríðskappinn Last Warrior Dagskrárlok svn 17:00 Hverfandi heimur 18:00 Borgarastyrjöldin á Spáni 6:6 19:00 Dagskrárlok SUNNUPAGURINN 9. MAÍ RUV 09:00 Morgunsjónvarp barn- anna: Heiða, öfundsjúki ormurinn, þúsundog ein Ameríka, lífiðá sveitabænum og Felix köttur. 10:40 Hlé 17:35 Sunnudagshugvekja 17:45 Á eigin spýtur Skjól- veggursmíðaður 18:00 Jarðarberjabörnin 2:3 18:30 Fjölskyldan í vitanum 18:55 Táknmálsfréttir 19:00 Simpson-fjölskyldan 19:30 Roseanne 2:26 20:00 Fréttir 20:30 Veður 20:35 Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva Kynnt lögin frá Kýpur, ísrael og Noregi 20:45 ©Húsið í Kristjánshöfn 21:10 Þjóð í hlekkjum hugar- farsins 2:4 Heimilda- mynd um þversögnina sem einkennt hefur ís- lensktatvinnulíf. 22:20 Kjarnakona Superdame 23:50 Gönguleiðir 00:10 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok STÖÐ2 0 09:00 Skógarálfarnir 09:20 Magdalena 09:45 Umhverfisjörðinaí80 draumum 10:10 Ævintýri Vífils 10:35 FerðirGúlivers 11:00 Kýrhausinn 11:20 Einafstrákunum 11:40 Kaldir krakkar 12:00 Evrópski vinsældalistinn 13:00 NBA-tilþrif 13:25 Stöðvar2-deildin 13:55 (talski boltinn 15:45 NBA-körfuboltinn 17:00 ★ Húsið á sléttunni 17:50 Aðeinseinjörðf 18:00 ★★★60mínútur 18:50 Mörkvikunnar 19:19 19:19 20:00 Bernskubrek 20:24 20:30 Hringborðið 6:7 21:20 ★★ Á miðnætti Memories of Midnight 22:55 CharlieRoseog Norman Lear Spjallþáttur 23:45 Havana 02:05 Dagskrárlok SYN svn 17:00 Hafnfirsk sjónvarpssyrpa 17:30 Dulspekingurinn James Randi 2:6 18:00 Dýralíf 19:00 Dagskrárlok Barnalegar alhæfingar sem lýsa best vinnubrögð- um handritshöfundar - segirPáll Pétursson þingmaður um sjónvarpsþáttinn Þjóð í hlekkjum hugarfarsins PÁLL PÉTURSSON „Þátturinn var svosem eins og ég bjóst við hjá Baldri Hermannssyni." Það sem vekur furðu mína öllu heldur er að þjóðin skyldi lifa af og tímgast, en allir vita hvernig farið var með vinnu- mennina; ekki höfðu þeir tækifæri til að auka kyn sitt. Tilvera stúlkna var litlu skárri; þær urðu margar úti á vergangi eftir að búið var að barna þær. Óþokkarnir virð- ast svo hafa komist af. Þá gleymist í þessum þætti að minnast á þau áhrif sem verslun og vald embættis- manna höfðu á lífskjör á ís- landi.“ Aðspurður kveðst Páll fast- lega reikna með því að ætlun Baldurs hafi verið að vega að bændastéttinni. „Ég hef hins vegar ekki trú á því að orðstír hennar bíði verulegan hnekki af „fræðiverkum“ hans, því þetta lýsir fyrst og fremst vinnubrögðum hans sjálfs — nú og Menningarsjóðs út- varpsstöðva, sem styrkti verkefnið." f heild þótti Páli þátturinn miður áhugaverður og tæknivinna öll í lágmarki. Sú skoðun hans kemur þó ekki í veg fyrir að hann ætli að horfa á næstu þætti. „Ég horfi sjálfsagt á þá ef ég hef tæki- færi til, en ég þekki skoðanir Baldurs — sem og dóm- greind hans — og mun því ekki leggja á mig stórkróka til að fylgjast með þeim.“ Orðstír bænda- stéttarinnar beið ekkihnekki Ekki þykir ólíklegt að bændastéttin sé ósammála söguskoðun Baldurs og var Páll Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins og ötull talsmaður dreifbýlisins, spurður um álit. „Þátturinn var svosem eins og ég bjóst við hjá Baldri Hermannssyni; mér fannst alhæfmgar hans fremur barnalegar og ég er ósammála ýmsu sem þarna kom fram,“ sagði Páll. „Hitt veit ég að framin hafa verið margvísleg glæpaverk á ís- landi, svo sem tíundað var en það hafa sjálfsagt til vondir menn í á öllum tímum. Síðastliðinn sunnudag var sýndur fýrsti þáttur af fjórum undir yfirskriftinni Þjóð í hlekkjum hugarfarsins. Nefndist hann Trúin á mold- ina og hefur án efa valdið því að bændur landsins hafa við- haft miður sæmilegt orð- bragð um handritshöfund þáttanna, Baldur Her- mannsson. Þótti hann held- ur alhæfingaglaður í fram- setningu sinni og mátti skilja á þættinum að nauðganir hefðu verið stundaðar á hverjum einasta sveitabæ til forna auk þess sem látið var að því liggja í frásögn Baldurs að íslenskir vinnumenn hefðu iðkað mök við búfénað í tíma og ótíma, sem og hver við annan. I því sambandi var Skagafjarðar reyndar sérstak- lega getið og látið að því liggja að saurlifnaður hefði verið óvenjuútbreiddur þar um slóðir. Sumir halda því fram að fordóma hafi gætt í orða- vali Baldurs, en hann mun hafa fallið í sömu gryfju og Agnes nokkur Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblað- inu, sem sætti ámæli fýrir að brúka orðið kynvilla. Mikilvæg viðspyrna við allri lyginni Gísli Gunnarsson var titl- aður sagnfræðilegur ráðgjafi þáttarins og jafnframt nefnd- ur „jöfur íslenskrar sagn- fræði“. Hann var inntur eftir því hvort hann gengist viÖ barninu. „Nei, það geri ég ekki, en hins vegar skal ég kannast við að hafa hjálpað til við fæðinguna. Ég afneita getnaðinum og meðgöngunni en ég hjálpaði til við að barnið kæmist nokkurn veginn óskaddað út úr fæðingunni. Það sem ég gerði var að benda Baldri Hermannssyni á ýmis rit og að því loknu las ég yfir handritið og gerði þá mínar athugasemdir. Baldur fór eftir sumum þeirra en öðrum ekki. Þá tók hann einnig upp við mig einnar og hálfrar stundar viðtal og úr því birtist urn það bil tuttugu sekúndna bútur. Þetta eru þau atriði sem ég kom ná- lægt.“ Hefurðu fengið viðbrögð við þœttinum? „Utan sagnfræðinnar eru viðbrögðin yfirleitt jákvæð, en innan hennar eru þau fremur neikvæð. Auðvitað er þátturinn einhliða, en þetta er ekkert meira einhliða en op- inber söguskýring sem flestir íslendingar hafa fengið um hina samstæðu þjóðarfjöl- skyldu í tímans rás, þar sem allir hjálpuðu öllum og svo framvegis — sem er hauga- lygi. Og fýrir almenning, sem ekki hefur lesið sér verulega til í sagnfræði, er þessi þáttur mjög mikilvægur. Mitt mat á þættinum er að hann sé mik- ilvæg ögrun og viðspyrna við allri þeirri lygi sem búið er að hella yfir fólk.“ Hvernig kanntu við titil- inn „jöfur fslenskrar sagn- frœði“ eins og Baldur nefndi þig íþœttinum? „Tilfinningarnar eru mjög blendnar. Annars vegar hef ég gaman af því sem húmor, en hins vegar sé ég að þetta getur orðið tilefni til að gera dálítið grín að mér og því er ég nokkuð beggja blands í þess- um efnum.“ Gísu Gunnarsson „Mitt mat á þættinum er að hann sé mikilvæg ögrun og viðspyrna við allri þeirri lygi sem búið er að hella yf- irfólk." BÍÓMYNDIR HELGARINNAR Fyrst eru það góðu fréttirnar. Á föstu- dagskvöld er á dagskrá Sjónvarpsins þriggja stjörnu bandarísk sjónvarps- mynd, Sudie and Simpson; áleitin mynd sem gerist í suðurríkjum Ameríku á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Segir þar frá samskiptum tólf ára hvítrar stúlku og blíðlynds blökkumanns, sem ásakaður er um glæpsamlegt afthæfi. Myndataka Marios De Leo þykir ein- stök. Tvær myndir aðrar eru þess um- komnar að hljóta þrjár stjörnur; God Bless the Child og True Believer, sem báðar eru sýndar á Stöð 2 á laugardag. Mun sú fýrri vera ákaflega hjartnæm en nær því þó að vera raunsæ og segja átak- anlega sögu móður sem neyðist til að taka þá ákvörðun að láta frá sér dóttur sína. Hin seinni er amerísk „hugsjóna- mynd“ um slunginn verjanda sem ber hag lítilmagnans fyrir brjósti. James Woods sýnir prýðisleik. Slæmu fréttirnar eru hins vegar þær að Bruce Willis gengur laus á laugar- dagskvöldið á Stöð 2. Sumir hafa að vísu gaman af honum en það verður að teljast prívat vandamál viðkomandi. Ski Patrol Fimmtudagurinn 6. maí 1993 Skúlavarpið Draumadag- skrá Skúla Helgasonar „Sjónvarpið er eitt af þessum heim- ilistækjum sem geta verið gagnleg í hófi en stórhættuleg þegar þau fara að taka völdin afhúsbændunum. I samræmi við þetta hafha ég alger- lega morgunsjónvarpi í allri mynd. Mér finnst það álíka fáránlegt og að byrja daginn á að stinga hausnum of- an í ruslatunnu. Nei, gefið mér þá frekar aðeins meira af AB-mjólk. Morgunsjónvarp er bara fýrir iðju- lausa forstjóra og þeim er engin vor- kunn. 18.00 Skúlavarp hefst klukkan sex og ekki mínútu fýrr með uppbyggi- legu barnaefirii, stuttum inn- lendum leikþáttum, teikni- myndum um Ástrík gallvaska og heimspekistund fýrir erfingja hinna erlendu skulda þjóðarinn- ar. 19:00 Sérfræðistundin. Innlendur fræðsluþáttur um afrek ís- lenskra fræði- og hugvitsmanna í ólíkum vísindagreinum. 19:30 Fréttamagasín. Fréttir dagsins, mannlífsmyndir og umfram allt fréttaskýringaþáttur í umsjá sér- fróðra frétta- eða fræðimanna. 20:15 Skemmtiþáttur. Innlendur, með lifandi tónlist, hressilegri menn- ingarkrítík, kvikmyndaumfjöllun og spurningakeppni, svo eitt- hvað sé nefnt. 21:00 Á höggstokknum. Umræðu- og fréttaskýringaþáttur í anda Vil- mundar heitins Gylfasonar þar sem pólitísk dægurmál eru meðhöndluð af þekkingu og mátulegri framhleypni gagnvart silkihúfum þjóðfélagsins. Með öðrum orðum; þáttur þar sem topparnir eru slegnir af þegar þeir hafa til þess unnið. 21:45 MontyPython. Úrval af skemmti- þáttum þessara óborganlegu Breta. 22:00 Hreyfimynd kvöldsins. fslenskt og erlent, nýlegt og klassískt, með meiri áherslu á sígildar myndir, því hinar eru jú til á mynd- bandaleigum. 23:45 Tónlistarþáttur. Heimildamyndir um hetjur rokksins í bland við hljómleikaupptökur. 00:45 Bíómynd. Þriller eða „cultmynd" fýrir nátthrafna. Spurt er: Hvenær hefur Skúli tíma til að elda mat og þvo upp? er endursýnd á Stöðinni hinn sama dag og ber sérstaklega að varast þá mynd. Að endingu má ítreka að hauskúpa hefur lengi loðað við Húsið á Kristjánshöfn, sem Sjónvarpið sýnir á sunnudagskvöld- um, og felast engar ýkjur í þeirri ein- kunnagjöf. Njótið helgarinnar.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.