Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 28

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 28
28 VÍSIR fjarðaæi/ýum fi/ir og nú. rikti i huga hans — því að niað- ur ljóssins kom til hans — til hans — Vasile, sem hafði rænt krossi af gröf hins látna. En hvað var það, sem sonur guðs bar á herðum sér, eitthvað dökt og næstum ferlegt....... Hann bar kross sinn. Kristur bar einnig sinn kross, livers vegna, ó, hvers vegna? .... Svo léttilega gekk Hann yfir snjóbreiðuna, að það var eins og krossinn hvíldi með engum þunga á herðum lians, en Va- sile mundi enn Jive þungur tré- krossinn liafði hvílt á herðun- um og hann verkjaði enn í þær. Hin bjarta, lýsandi vera stað- næmdist ekki lijá hinum unga hermanni, en Vasile sá i svip liið engilhreina kærleikstillit augna hans .... hægt, stöðugt hélt Mannsins sonur áfram að sofandi hermönnunum, sem Jágu i linipri kringum lcaJda öskuna, og Hann nam staðar mitt á meðal þeirra — og Vasile sá — sá með eigin augum, er Guðs sonur tók kross sinn og Jagði á kalda öskuna, en þegar i stað gaus upp björtum eld- tungum, sem umvöfðu kross- inn, uns liann var sem logandi hlys! Kristur hafði borið til þeirra sinn eigin kross, til þess að þeir sem land sitt vörðu frysi ekki í hel. Það, sem eftir þetta gerðist, mundi Vasile að eins óljóst — en iá knjánum hafði hann skrið- ið að hinum heilaga eldi — á knjánum — og svo hafði liann hnigið meðvitundarlaus niður við líknareldinn..... * ❖ Dagur var runninn. Hver hermaðurinn á fætur öðrum valcnaði. Þar sem verið liafði köld aska um nóttina var nú eldrauð glóð og það fóru hitastraumar um þá alla og þeir gæddust af nýju orlai lífs- ins og veðurofsinn og harkan nóttina áður voru sem vofur ógnarsýnar, er horfin var...... Hver einstakur þeirra hvarf af landi svefns og drauma yfir i virkileikann í fagnaðarskapi — eins og eitthvað dásamlegt hefði gerst, þeiin var svo notalega hlýtt og gleðin í hugunum tak- markalaus og skýranleg. Jafn- vel i augum hinna fölleitu og þunglyndislegu fanga var ann- arlegur ljómi..... Scurtu tók til máls og reyndi að tala sem valdmannslegast. — Hann kallaði á VasiTe — hafði hann óhlýðnast fvrirskip- unum? Hafði hann hrent kross- inum meðan yfirmaður hans svaf ? Nei, nei! Þarna lá krossinn, P»latey.jahhreppur á | Breiðafirði hefir sína sérstöðu að því leyti að takmörk hans ná hvergi til lands, heldur samanstendur hann eingöngu af 7 eyjum bygð- um og svo ótölulegum grúa stórra og smárra eyja óbygðra sem skiftast milli hygðu ejý- anna. Hann er þvi eins og heim- ur út af fyrir sig, lega lians er sem næst miðjum Breiðafirði og er því frá öllum eyjum langt til lands. Fólkið í þessum eyjum liefir því löngum liáð harða haráttu fyrir tilveru sinni þótt þær eyjarnar séu gjöfular á marga lund, hefir þó þrátt fyr- ir alt orðið að heimta gæði þau með harðneskju. Þarna í þessum lilla heimi hefir þróast margvísleg menn- ing, sem skiljanlegt er, ef hugs- að er til spakmæla Hávamála, „lítilla sanda litilla sæva“ o. s. frv. Þar liafa og þróast ýmsir siðir og venjur, sem ef til vill eru þó sumir aðfluttir, en liafa að minnsta kosti geymst þar öðrum stöðum betur. Með því að nú eru tímar byltinga á svo mörgum sviðum, má telja víst að ýmsar þær venjur er fyrrum þóttu prýða, verði nú að rýma fyrir nýjum siðum, getur það vart talist goðgá þótt eitthvað af því gamla sé rifjað upp, jafnvel þólt það verði ekki merkilegt falið. í eftirfarandi línum verð- ur leitast við að gera grein fyrir einum þætti þessa máls: hátíða- siðunum. Undirbúningur. l’ndirbúningur undir jólaliá- tíðina liófst venjulega ekki fyrr en þrem fjórum dögum fyrir jól; voru þá bakaðar allskonar eins og fallinn hermaður, sem breiðir út faðminn, og viðkross- inn lá Vasile á knjánum, með spentar greipaT og liorfði á ný- risna morgunsólina.... Scurlu gerði krossmark fyrir brjósti sér. „Vasile,“ kallaði liann, „hvað sér þú í morgunroðanum ?“ Vasile sneri sér við og leit til haíis — og það var dásamleg birta í augum lians — en Iiann svaraði engu — og Scurtu fékk aldrei að vita, hvaða sýn Vasile sá hverfa inn í morgunroðann. A. Th. þýddi úr ensku. kökur. Efnið í baksturinn þurfti ekki að sækja að, því heimilin hirgðu sig upp vor og liaust með forða þann er nægja átti árið út; mun það hafa verið gert vegna þess að aðal vörur komu í verslanir á þeim tíma og svo vegna hins, að oft gat verið ó- hægl um aðdrætti að vetri til vegna isalaga, sem oft teptu samgöngur að meira eða minna leyti svo tímum skifti. Heimil- in voru þá undir það húin að vera sjálfúm sér nóg yfir vetur- inn hvað sem að höndum hæri. Með jólaundirbúningnum liófst að miklu leyti jólagleði barn- anna. Jóladraumurinn langi var að verða að veruleika. Reyndar byrjuðu hörnin að búa sig undir jólin með jólaföst- unni, en sá undirbúningur var í jiví fólginn að skrifa upp jóla- sveinana, þ. e. að skrifa upp alla jiá gesti er að garði báru á föstunni, en þetta átti svo aftur að verða eina jólaskemtunin og skal nánar vikið að því síðar. A Þorláksmessu liófst svo liið reglulega annríki, og ])á fyrst koiiist jólaspenningurinn i al- gleyming lijá börnunum, ]>aii voru j>á boðin og búin til hvers, sem vera vildi; þau Iijálpuðu til við að fægja lampa og hnífa- pör, fara hverskonar snúninga og svo notuðu þau hvert tæki- færi, sem gafst til að stinga saman nefjum um það, sem þeim var ríkast í huga, hvað þau myndu fá í jólagjöf, livort þau inyndu lclæða jólaköttinn, hvernig jólatréð yrði skreytt og því um likt. Á Þorláksmessu var j>að ófrávíkjanlegur siður að hafa skötustöppu á borðum til miðdags, og þótti hin mesta goðgá ef út af var brugðið. Helst átti skatan gð vera vel kæst, en það var gert á þann hátt, að hún var grafin i þang- haug eða hyrgð i auðum fjós- bás í moðbing; við þessi skilyrði náði hún að úldna vel og þóíti hún þá liið mesta hnossgæti. Hjá fólki alment var þess þó gætt að verja skötuna ólirein- induni, en þessara bragða var beitt til þess að fá hana til að úldna. 1 Jólahátíðin. Á aðfangadaginn klukkan 6 að kvöldi hófst jólahelgin; þá var öllum undirbúningi lokið og öllum störfum hætt, sá eini er ekki var búinn að ljúka störf- um sínum var fjósamaðurinn, og var þó venja að gefa kúnum fyrr það kvöld en venjulega. lveptist nú liver um annan við að skreyta sig eftir bestu föng- um. Húsmóðii-in sá um að eng- inn þyrf ti að klæða jólaköttinn, en það gerðu þeir er enga nýja spjör áttu til að fara í. Þegar fólkið liafði klætt sig um, var öllu fólkinu safnað saman til húslestrar; voru þá sungnir jóla-sálmar og jólalesturinn les- inn. Að lesti'inum loknum geklc hver maður fyrir lesarann (sem venjulega var annarlivor hús- hændanna) og þakkaði fyrir sig með handabandi, en lesarinn bað guð að blessa hvern og einn er á lesturinn hafði lilýtt. Eftir lesturinn varð hlé á dagskrá kvöldsins meðan kvenfólkið har á horð; var lilé þetta notað til að útbýta jólagjöfum og taka þær upp og skoða og sýna. Fyrr- um var það siður að lmsbændur gáfu öllu fólki sínu kerti, sem steypt var úr tólg, kostaði það mikla vinnu. Ivertin voru ann- aðhvort steypt í tilgerðum kertamótum, eða tólgin var brædd og svo látin í strokk og rakinu síðan difið ofan í tólgina aftur og aftur þar til kertin höfðu náð Iiæfilegum gildleika. Þá voru líka búin til, til há- tíðabrigða hin svokölluðu kóngakerti; þau voru þríálmuð, en stóðu á einum legg; þóttu þau hið mesta fágæti og voru vand-tilbúin. Þessar kertagjafir eru þó löngu úr sögunni og er sennilegt að þau liafi liætt þeg- ar jólatré fóru að tíðkast og meiri og betri kostur varð á ljósmeti öllu. Næsti liður jóla- dagskrárinnar var svo sá, að allir settust að einu horði, sem þakið var allskonar fágæti, svo sem súkkulaði, kaffi og ótal kökutegunda, sem ekki koma á J)orð sveitabóndans nema á Stórhétíðum. Skemti fólk sér nú undir borðum við neyslu rétt- anna og samræður. Allir voru i hátíðaskapi, en prúðir og stilt- ir, þvi allir eru sér þess með- vitandi að nú er liátíð hátið- anna. Þegar staðið var upp frá Jiorðum gengu allir fyrir hús- ráðendur og þökkuðu fyrir með kossi eða handabandi. Næsti liðurinn fer svo jóla- tréð; það er fyrst og fremt ætl- að börnunum, en ér þó einhver
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.