Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 40

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 40
40 VÍSIR hennar þessi orð, er hún sjálf hafði sagt fyrir lítilli slundu: — Eg þrái æfintýri, einmitt af því að eg er trúlofuð Davið. — Æfintýri, spennandi æfintýri. En nú var hún alls ekkert trúlofuð. Davið var giftur og hún frjáls að gera hvað sCni hún vildi. — Þér komið eins og af himnum ofan, hjálpið mér, eg Dyrnar opnuðust og ung þjónustustúlka í svörtum kjól, með hvita svuntu kom í ljós, og á eftir henni kom feit, roskin kona með góðlátlegt andlit. — Þið eruð þá komin, sagði gamla konan og brosti. — Það er indælt. Verið velkomin, góða mín. Hún tók innilega í hönd Önnu og leiddi hana inn. — Mamma, sagði ungi mað- urinn um leið og liann klæddi sig úr frakkanum. —■ Inga var svo óheppin að bíllinn sem flutti dótið hennar tafðist. Eg sagði henni að liún mundi geta not- að kjóla af Unni sálugu systur, þangað til hún fær töskurnar sínar. Hvað segir þú um það? — Jú, það er sjálfsagt hægt, góði minn. Hún er svipuð á hæð og Unnur mín var. Meðan á þessu samtali stóð beið Anna róleg þess, er verða vildi og horfði á þau til skift- is. Henni datt ekki í hug að flýja, hún hugsaði yfirleitt ekki um neitt nema þetta eina orð: æfintýri. Hún þráði æfintýri og hér var tækifæri til þess að rata í eitthvað skemtilegt, svo hún ákvað að láta það ekki ganga sér úr greipum. — Mamma, viltu gjöra svo vel að fylgja Ingu upp í herbergi hennar? Eg ætla að hafa fata- skifli. — Já, Danni minn. En þið verðið að hafa hraðann á, þau koina klukkan sjö. Svo sneri hún sér að Önnu og lét dæluna ganga: — Danni minn hefir auðvil- að sagt yður frá þvi, að eg er vön að bjóða ungu fólki til mín á jólunum. Eg er svo mikið fyr- ir glaðværðina. Þegar Anna var orðin ein i herberginu settist hún á stól, lagði hendurnar í kjöltu sér, dæsti og lók að hugsa málið. Hvað var hún að gera? Blanda sér í mál, sem henni kom ekk- ert við? Hversvegna reyndi hún ekki að flýja. læðast burt og kæra sig svo kollótta um bréfið Fara heim — hvila sig og gráta. Hún var alein í þessum auma heimi. Enginn Davíð — enginn snjór t- engin jól, ■— ^ Jú, jólin GLEÐILEG JÓL! SILKIBÚÐIN. Jf GLEÐILEG JÓL! r Rciðhjóhwerksmiðjan Fálkinn. GLEÐILEG JÓL! S o F FÍUBÚÐ. GLEÐILEG JÓL! PÉTUR KRISTJÁNSSON, , Ásvallag. 19. Víðimel 35. j ri GLEÐILEG JÓL! SÍMON JÓNSSON. < e ► ffl 1 i GLEÐILEG JÓL! Verslunin Liverpool. m--------— w a voru hér, og hún átti kost á að njóta þeirra, ef hún vildi. Og það var æfintýri, meira að segja hættulegt æfintýri. Hann hafði beðið hana að hjálpa sér og hún mátti ekki bregðast honum. Alt benti til að bréfið hennar myndi hafa valdið einhverjum óþæg- indum og þessveigna var það blátt áfram skylda hennar, að leiðrétta misskilninginn, ef þess væri nokkur kostur. Hún þaut upp af stólnum, gekk að klæða- skápnum og tók að virða fyrir sér kjólana. Eftir dálitla stund valdi hún ljósbláan samkvæm- iskjóll úr tyll og organdy. Svo þvoði hún sér, burstaði hár sitl, málaði dálítið varirnai’íOg púðr aði kinnarnar. Kjóllinn fór henni prýðilega. Hún hikaði andartak við dyrnar áður en hún áræddi að opna. Ennþá var tími til að snúa við. En hún vísaði þeirri hugs- un á bug. Það lýsti hugleysi,, að flýja. Þegar hún kom fram á gang- inn beið Daníel eftir henni; hann var i smoking. — Myndar- legur maður, hugsaði Anna, — næstum því eins myndarlegur og Davíð, -— kannske ennþá karlmannlegri. Hann gekk til hennar og hvíslaði: — Það er beðið eftir okkur. Svo gengu þau niður í stofu og þar var Anna kynt fyrir gest- unum, þrem stúlkum og þrem karlmönnum. Borðið var fagurlega skreytt með jólatrésgreinum og blóm- um, skínandi borðbúnaði og ginnandi krásum. Við hvern disk lá böggull, vafinn inn i skrautlegar umbúðir. Það voru gjafirnar. Þegar máltíðinni var lokið og jólaböglarnir höfðu verið opn- aðir, reis gamla konan á fæt- ur og sagði: — Nú er aðeins ein gjöf eftir, og það er jólagjöfin sem Daníel ætlaði að gefa mér. Þið vitið öll hve eg hefi verið kjánaleg og óróleg út af drengnum minum. Eg vildi láta hann kvænast og setjast hér í búið með kbnu sinni, er tæki við af mér. Eg var orðin vondauf um að þessi ósk ætlaði að rætast. Hann virt- ist engan áhuga hafa fyrir stúlkunum. Hann kaus heldur að ferðast á milli landa og hann hafði sem sagt áhuga á öllu i heiminum nema stúlkunum. — Nú ýkirðu, mamma, greip Daníel framin í fyrir henni og brosti. — Getur verið, góði minn, en þú neitaðir að festa ráð þitt fyr en nú. En þú ert þó trúlofaður;
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.