Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 13

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 13
VÍSIR 13 Lögreglufulltrúinn var sta'ð- inn upp og óttinn skein úr hverjum andlitsdrætti lians. I sömu svifum henti Ondra sér á bak hinum hestinum og reið af stað og liélt áfram að kalla: „Dorcha, Dorcha, komdu, komdu!“ „Hvert ætlarðu,“ kallaði lög- reglufulltrúinn. „Hvert ætlarðu, þorparinu þinn, þú — þú lúsablesi — eg skal —“ En Ondra skellihló. „Ætlarðu að skilja mig liér eftir?“ veinaði lögreglufulltrú- inn, „það verður minn hani. Gerðu það ekki, eg bið þig.“ Rödd lians titraði af angist. „Úlfarnir úlfarnir koma kannske.“ „Verið alls ósmeykir, herra minn,“ sagði Ondra. „Það eru engin villidýr hérna í mýrinni — og úlfarnir eru vatnshrædd- ir. Ve'fjið að yður feldinum — svo að þír kvefist ekki. I fvrra- málið kem eg — eldsnemma. Það er heypoki undir sætinu — búið yður hvílu og látið fara vel um yður. Eg tek ekke'rt fyr- ir næturgreiðann.“ „Vertu ekki að skopast að mér,“ sagði lögreglufulltrúinn eymdarlega. „Farðu ekki frá mér. Iljálpaðu mér.“ „Það er svo dimt, fulltfúi, eg sé ekki iianda skil. Hvað get eg gert yður til lijálpar?“ Það fór ekki fram lijá full- trúanum, að Ondra mælti í liæðnislegum tón. Hann var gripinn skelfingu af tilhugsun- inni að vera þarna einn alla nóttina á miðjum mýrarflákan- um, og hann mælti með grál- stafinn í kverkunum: „Ondra, komdu aftur, eg bið þig. Eg skal launa þér vel — livað sem þú setur upp. Eg á konu og börn. Þau híða eftir mér. Og á morgun er jóladag- ur — því ertu svona harðlnnd- aðnr?“ Hann ííiælíi í örvæntingu. Hann beið eftir svari. En ekkerl svar kom. Þá var eins og hann ætlaði af göflunum að ganga og hann æpti út i myrkrið: „Hæ, strákur, nautshaus, fantur, komdu og bjargaðu mér. Sjáðu aunnir á mér. Ilugs- aðu um börnin mín. Þau bíða eftir mér — það verður ekki kveikl á jólatrénu fyr en eg kem. Engin jól, nema eg komi. Ó, bændalydda, liundur —“ Svo hneig hann niður í sæt- ið, vafði um sig úlfsskinnafeld- inum og grét eins og barn. En nóttin var þögul og dimm. Og honum var engu svarað. A. Th. þýddi úr ensku. HEIM FYRIR JÓLIN Porsteinn Jósepsson færði í letur eftir frá- sögn Elínar Gísladóttur á Ölkeldu. Úr Staðarsveit. Lengst t. v. á myndinni sést hvar Fróðárheiði byrj- ar, en þar liggja sumstaðar klettahjörg mikil, er geta verið mjög liættu- ieg vegfarendum, þeim, er viltir fara. Elín Gíslndóttir. |AÐ lagði vindgjóstu sunn- an af fjöllum og norður vfir Breiðafjörð. Sennilega vrðj hann svalur á Fróðárheiði í dag. Þó voru menn ekki á eitl sáttir með veð- urútlitið. Flestir héldu að hann myndi lægja og létta til, öðrum fanst útlitið ískyggilegt, og töldu allra veðra von. Veðurspá útvarpsins fór fyrir ofan garð og tieðan hjá þeim þorpsbúun- um. Sjómenn spá veðrinu sjáll'- ir. Þeim finst það tryggara. Undir öllum kringumstæðum var betra að búa sig vel, og Elín var færð í hverja spjörina utan yfir aðra. Hún fór nauðug i þær, en fór í þær samt, því gamla íólkið veit livernig á að búa sig út í f jallferðalög í skammdeginu. Útlitið var hka langt frá því að vera örugt. Elín var færð í tvenn ullar- nærföt og þrenna sokka, poka- buxur úr þykkri íslenskri voð og tvær ullarpeysur. Um háls- inn var vafinn lítill ullartrefill og skjólgóð slæða utanyfir liann, svo henni yrði ekkj kalt á hálsinum. Svo var haldið á- fram að búa hana úndir kuld- ann á Fróðárheiði. Hún var færð í jakka, siðan skjólgóða kiápu með loðkraga og loks var endahnúturinn hnýttur á þetta með því að færa hana í regn- kápu yst allra klæða. En auk þess var liún í stórum gúmmí- stígvélum — svo stórum, að þau rúmuðu alla sokkana sem hún var í, auk fótanna. Á höfð- inn hafði hún alpahúfu og sjó- hatt utanyfir. Elín leit út eins og stór álna- vörustrangi. Það var með naumindum að það sæist á henni nokkur mannsmynd, og af liðamótum á líkama sínum vissi hún varla, svo stirð og þunglamaleg var hún orðin i þessum mikla fatabunka. En Elín var vel búin, og það var fyrir mestu, þvi að um skamm- degisleytið er alh'a veðra von á Fróðárheiði — jafnvel þótt út- litið væri betra en það var í dag. Elín var Gísladóttir, og átti heima á Ölkeldu í Staðarsveit. Hún fæddist 22. dag ágústmán- aðar árið 1917. Og nú var hún tuttugu árum og fjórum mánuðum seinna — á leið heim til foreldra sinna til að dvelja þar meðal ástlcærra ættmenna sinna um hátíðarnar. Þetta var 16. desember 1937, og EJín var sammæld við póst- inn sem fór milli Ólafsvíkur og Búða, Ágúst Ólason í Máfa- hlíð, Þau höfðu þrjá liesta, sinn hestinn hvort til reiðar, og einn undir póst. Þegar þau lögðu af stað vantaði klukkuna hálfa stund til hádegis. Þau fóru sem leið lá frá Ól- afsyík og inn með sjónum, und- ir hlíðum sem liggja norður úr Ivambsheiði og að svokölluðu Heiðartagli fyrir innan Fróðá. Ljósm.: Þorst. Jósepsson. Þar byrjar Fróðárheiði. Færðin var góð að Taglinu og þau fóru greitt. Loftið var þungbúið eins og' áður og það rofaði hvorki til né syrti að. Gjóstan var hin sama. Þegar upp í heiðina kom, versnaði færðin til muna. Snjór- inn var mikill og viða djúpir skaflar. En það kom þeim ekki á óvart. Þau vissu það áður og ætluðu að ferðin til Búða tæki 5—6 ldst., en það er nokkuð lengri timi en venjulega þarf til að komast þessa leið. Á leiðinni upp fyrstu hrekk- una syrti í lofti og úr sortanum hrutu snjóél — allsvört — en birti að eins á milli. Það tók að hvessa. Veðrið versnaði því ofar sem dró í heiðina. Hvassviðrið* óx, snjókoman líka. Nú var ekki meir um uppstyttu að ræða, og innan stundar var skollið á fár- viðri, rok’óg samsvarandi hríð. Það sást ekkert til vegar og þarna var ekkert sem hægt var að átta sig á. Þau héldu beint í veðrið, og hestarnir brutust á- fram í ófærðinni. Póstshestarn- ir voru öllu vanir og klufu fann- 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.