Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 15

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 15
VÍSIR 15 ýmsar upplýsingar, er komið gátu að notum enda þótt þau hefðj vilst af leið. ElínU flaug það i liug, og oftar en einu sinni þessa nótt, að leggja af stað út í nátt- myrkrið og hriðina í leit að bygð. Hún hafði altaf tilfinn- ingu fyrir áttunum, vegna þess að hún vissi af hvaða átt hvesti — og það ýtti undir hana að leggja á stúfana. En við nánari athugun fanst henni þetta vera óráð. Það voru ekki líkur til, að hún óvön og óhörðnuð stúlka hefði þrek til að kljúfa ófærð- ina til bygða. Ef liún örmagn- aðist á leiðinni myndi hún sofna, og það var bani hennar. Aulc þess vissi liún af hættu- legum hjörgum, en sem hún gat ekki varast vegna ókunnug- leika. Eina skynsamlega ráðið var að vera kyrr og bíða átekta. Þegar birti af nóttu og veðr- inu slotaði, skall svo niðdimm þoka á, að ekkert sá. Hún hélst jafn svört allan daginn, og auk þess rigndi. Elín varð á skammri stundu holdvot frá hvirfh til ilja þrátt fyrir sinn mikla ldæðnað, og ekki bætti það úr líðan hennar. Þannig leið allur dagurinn — það var 17. desember — í þoku tilbreytingaleysi og nístandi kulda. Hestarnir liímdu og skulfu fram eftir deginum, en síðan fóru þeir á stjá og hurfu út í þokuna. Elín heyrði samt öðru hvoru í þeim, því þeir komust ekki áfram fyrir fann dyngjunni. Um hundinn var svipað að segja, að öðru leyti en þvi, að hann lá altaf kyr, bar sig aumlega og hríðskalf. Hvað er hægt að hugsa sér ömurlegra en skammdegisdag á Fróðárheiði í blindsvartri þoku? Og livað er liægt að hugsa sér átakanlegra en dvöl hinnar ungu stúlku þarna uppi í endalausum fannbreiðum, gegnblauta, lamaða af kulda og vonlitla um að komast lifandi til bygða. Þarna biður hún, magnþrota og skjálfandi og biður þess sem verða vill. Hún er hætt að geta gengið sér til hita. Þótt hún hrejd'i sig, færist ekkert líf framar i limi hennar. Dauðinn er kominn í þá, og hún finnur hvernig hann mjakast hægt og sígandi eftir likama hennar. Miátturinn er að dvína og lík- aminn að dofna. Hún liggur nær altaf orðið kyr i hálfgerðu móki, en vegna óttans við svefninn, reynir hún að bæra eitthvað á sér eða mjaka sér til, þvi að hfslöngunin er enn í fullu fjöri. Hún hugsar og hún skynjar sem áður. Hún minnist foreldranna sem bíða hennar heima á Ölkeldu, sem þrá liana fyrir jólin. Og Elínu hefir aldrei langað svo ákaft heim eins og nú, aldi’ei þráð jólin svo innilega heitt eins og þessa stund, þegar hún er einmana uppi á Fróðárheiði og biður — dauðans. Ehn gerir sér orðið litla von um hjálp fyrr en á næsta degi, en henni er það líka ljóst, að sú hjálp kemur of seint, að sú hjálp kemur ekki til annai’s en flytja andvana líkama hennar til bygða. Næstu nótt hfir Elín ekki af. Það er vonlaust. Það kvöldar og rökkvar. Elín leitai’ með veikum mætti að sið- ast bitanum í töskunni. Það gengur erfiðlega að niá honum, J)ví hendurnar lilýða ekki skip- un heilans lengur. Þær eru slirðnaðar af kulda og stokk- bólgnar að auki. Matarbitinn hressir hana, henni finst nýtt líf færast um líkamann, en þessi tilfinning varir ekki nema ör- skamma stund. Elín leggur aðra töskuna undir liöfuðið og legst svo niður í krapablautan snjóinn. Var þetta hinsta hvílan? Tíminn líður. Elín hefir fall- ið í dvala eða mók, án þess þó að sofa. Endurminningar lið- inna tíma koma frarn í luiga hennar, en þær ná eldci neinni festu. Hver myndin rekur aðra i skipulagslausri hendu frá ýmsum tímum og atburðum. Hún sér ástvini sina, talar við J)á, heyrir J)á tala, hún er kom- in heim til sin um jólin og dansar í kring um jólatréð. En alt hverfur þetta á næsta augna- bliki og nýjar myndir birtast í staðinn. Þannig líður klukkustund eft- ir klukkustund. Það er fyrii löngu orðið myrkt af nótlu og Elm mókir áfram í dvala, sé>’ sýnir og dreymir í vöku. Alt í einu hrekkur Elín upp með andfælum. Hvað var þetta? Var J)að sem henni heyrðist, eða var ])að bara misheyrn? Var einhver að kalla? Elín ris upp við olnboga og hlustar. í fjTsta skifti í J)essari hræði- iegu útilegu á Fróðárheiði gríp- ur Elínu skelfing. Hún hafði heyrt J)ess getið, að fólk sem var í andarslitrunum heyrði kallað á sig. Það var dauðinn að kalla. Voru J)etta draumórar deyj- andi manneskju? Var þetta kall- ið seni alt deyjandi fólk heyrði? Eða var hún orðin hrjáluð, og heyrði hún köll og’ hróp sem hvergi voru til nema í huga hennar sjálfrar? En hvers vegna gelti þá hund- urinn? Var hann máske lilca orðinn vitlaus? En nú heyrðist hljóðið aftur og greinilegar en áður. Það færðist nær. Nú lék elcki neinn vafi á ])ví lengur að J)etta voru menn lifandi menn að kalla. Elín reis á fætur, lifsvonin magnaði vilja liennar og J)rek. Hún kallaði á móti, svo staulaðist liún á fætur og í átt- ina til bjargvættánna í myrlcr- inu. Hvílikur fögnuður! Hvílík til- finning að vita sig hó.lpna eftir meir en sólarlirings baráttu við náttúruöfl og dauða! Hvilík sæla að sjá aftur menn — menn með holdi og blóði — eftir J)essa einmana dvöl í liellieimi auðna og' lculda! Þeir voru þrjátiu mennirnir sem leituðu hennar, 19 úr Ölafs- vík og 11 úr Staðarsveit. Þeir lögðu undir kvöldið af stað i leitina, en höfðu áður sammælst að hittast á heiðinni iniðri og leita sameiginlega. Þeir höfðu með sér nokkur Ijósker, en svo var þokan svört, að Elín sá J)au eklci fyr en mennirnir voru alveg komnir að henni. Enda J)ótt leitarmennirnir byggjust tæplega við að hitta Elínu lifandi, höfðu J)cir þura sokka, vethnga, trefla og húfu með sér til vonar og vara. Þetta kom alt aðágætumnolum. Þeir færðu stúlkuna i Jæssar þurru spjarir og gáfu henni svo heita nijóllc og mat, er J)eir höfðu meðferðis. Klukkan var tíu um kvöldið, er J)eir fundu stúlkuna, en klukkan hálf ivö um nóttina lcomust J)au suður að Búðum í Staðarsveit. Elín gekk alla leiðina og má það teljast ])rekvirki. Ilenni hitnaði fljótt eftir að hún hafði farið í þur föt og matast. Hana J)yrsti ákaflega á leiðinni, en annars kendi hún elcki neinnar vanlíðunar fyrr en hún kom að Búðum. Á Búðum hitti Elín Ágúst póst. Af hans ferðum er það að segja, að skömmu eftir að liann slcildi við Elínu og hestana, hrapaði hann fyrir björg —- ein- mitt þessi björg, sem Elín ótt- aðist mest. Það var gilfarvegur, sem hann hafði dottið niður í, og býsna djúpt niður. I hrapinu mun stafurinn hafa slegist í höfuðið á Ágúst, svo að hann misti meðvitundina. Er hann raknaði úr rotinu hóf hann leit að stúlkunni og hestunum, en fann ekki. Tók liann þá J)að ráð að leita til bæja og fá ])aðan hjálp. Komst hann klukkan fjögur daginn eftir niður að Búðum og var ])á mjög þjakað- ur. Sagði hann sínar farir elclci sléttar, kvað Elinu i miklum lifsháslca, ef hún væri ])á á ann- að borð með lífi. Yar strax brugðið við, símað til Ólafsvík- ur, monnum safnað og leitin hafin. Sjálfur var Ágúst of þjakaður til að geta tekið þátt í leitinni. Þegar Elín kom ásamt fvlgd- arliði sinu klukkan liálftvö um nóttina niður að Búðum, voru þar allir á fótum og biðu í mik- illi eftirvæntingu. Fanst fólkinu sem ])að hafa heimt Elínu úr helju og tók henni með kostum og kynjum. Elín fór á Jmiðja degi lieini til sín að Ölkeldu — alhress að öðru leyli en J)ví sem liún var alhnilcið bólgin í andliti, á höndum og fótum. Þó var hún hvergi kalin og má J)að J)aklca klæðnaði hennar og útbúnaði, sem var með ágætum. Svaðilför Elínar er góð bending til J)eirra lcarla sem kvenna, er í vetrar- ferðir fara, að búa sig vel og vera við öllu búin. Það má full- yrða, að ef klæðnaður Elínar hefði elcki verið svo góður, hefði hún elclci staðist þessa þrelcraun og fallið fyrir kuldan- um fyrr en skyldi. En J)að sem meslu máli skifti var að Elín komst litt slcödduð lil foreldra og systlcina og færði Jæiiii fegurstu jólagjöfina, sem J)au gátu óskað sér — sig sjálfa. Tvö ár eru liðin siðan Jressi atburður skeði á Fróðárheiði. En J)að er sama hversu mörg ár hða, að aldrei mun endui’- minningin um hina hræðilegu nótt þar uppi, firnast i huga Elínar. Bót i máli er ])að hins- vegar, að J)etta ömurlega æfin- týri endaði þó með „gleðilegum jóhun“ — fegurstu og dásam- legustu jólum, sem Elín hefir lifað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.